Alþýðublaðið - 25.11.1976, Page 16
ÍSFIRÐINGAR BYGGJfl
AF KRAFTI
- 42 einbýlishús í smíðum
Þann 1. desember
1975 voru búsettir á
isafirði 3100 manns, en
það sem einkennir
bæjarlif þar, er einkum
tvennt, annars vegar
hin öfluga útgerð sem
rekin er, en hins vegar
mjög svo blómlegt og
fjölskrúðugt skólalif.
Þaðan eru gerðir út
fjórir skuttogarar, allir
i eigu ísfirðinga sjálfra
og um 40 rækjubátar,
einnig leggja upp á ísa-
firði nokkrir meðal-
stórir bátar.
Afli rækubátanna er unnin i
hvorki meira né minna en fimm
rækjuvinnslustöövum og er Isa-
fjörður mesti rækjuvinnslu-
staður á landinu. Yfir sumar-
mánuðina stunda rækjubátarnir
skak og leggja þá afla sinn upp
hjá þeim þremur frystihúsum
sem á staðnum eru. En það eru
frystihúsin Norðurtangi, Ishús-
félag Isfirðinga og Hraðfrysti-
húsið i Hnifsdal.
Eins og áður sagði er tsa-
fjörður mikill skólabær, og eru
þar starfandi auk barna- og
gagnfræðaskóla, menntaskóli,
tónlistarskóli, húsmæðraskóli,
iðnskóli, en auk' þess eru þar
þrjár deildir frá eftirtöldum
skólum: vélskóla.stýrimanna-
skóla og undirbúningsdeild
tækniskóla.
1 viðtali við bæjarstjórann á
Isafirði Bolla Kjartansson kom
fram, að þar hefur verið gifur-
leg atvinna undanfarin ár, en
framan af var sú vinna nokkuð
sveiflukennd og vertiðabundin.
Með tilkomu skuttogaranna
jafnaðistatvinna mjög og má nú
segja að fiskverkun á Isafirði sé
rekin eins og hver annar
fastaiðnaður.
Mikið byggt
A Isafirði er nú unnið að bygg-
ingu 42 einbýlishúsa sem risa á
svokölluðu Fjarðarsvæði, en
það er skipulagssvæði, sem til-
heyrir hinu nýja aðalskipulagi
sem gert hefur verið fyrir Isa-
fjarðarbæ.
Þá hefur undanfarin ár verið
unnið að byggingu Verka-
mannabústaða, en það eru
leiguibúðir i eigu bæjarfélags-
ins. Sagði Bolli, að nú þegar
væru 20 slikar ibúðir komnar i
gagnið og væri verið að leggja
siðustu hönd á aörar 12.
Auk þessara bygginga er
unnið að byggingu sjúkrahúss-
og heilsugæzlustöðvar, en
einnig hefur verið stofnað hluta-
félag um byggingu nýs hótels á
fsafirðí. EFu hlutháfár i hótel-
byggingarfélaginu mjög marg-
ir, bæði fyrirtæki og einstakl-
ingar, en auk þess á bæjarfélag-
ið hlut I félaginu.
Þrátt fyrir mikið fjör f ibúða-
byggingum, er aö sögn Bolla
ennþá skortur á fbúðahúsnæði
og má segja að hver ibúð á
staðnum sé troðin. Sagði Bolli,
að þó svo að þeim bættust við 50
nýjar ibúðir til viðbótar þeim
sem nú eru i smiðum, myndu
þær án efa fyllast á svipstundu.
Þó svo að vöntun á ibúðahús-
næði sé jafn mikil og raun ber
vitni hefur verið nokkuð um að-
flutning fólks til staðarins, en
bæjarbúum hefur að sögn Bolla
fjölgað um 100 s.l. tvö ár.
Þannig hafa með tilkomu skut-
togaranna flutzt nokkuð margir
til Isafjarðar, til dæmis vél-
stjórar og stýrimenn. Þá hefur
stofnun menntaskólans þar
einnig haft sitt að segja.
Taldi Bolli, að meginhluti
þess aðkomufólks sem setzt
hefði að á Isafirði undanfarinár
kæmi af Faxaflóasvæðinu.
Auk þeirra framkvæmda á
vegum bæjarfélagsins, sem hér
hefur verið á minnst, hefur
miklum fjármunum verið ráð-
stafað við gerð hins nýja ibúða-
svæðis, svo sem til gatnagerðar,
skólplagna o.s.frv.
Þá hafa Isfirðingar unnið aö
þvi undanfarin ár að reisa sorp-
eyðingarstöð i samvinnu við
kauptúnin i Bolungarvik og
Súðavik og er sú framkvæmd nú
að komast á lokastig.
Að endingu gat Bolli
Kjartansson, bæjarstjóri á Is-
afirði þess, að þó að tala mætti
um ísafjörð sem útgeröar- og
skólabæ, mætti ekki gleyma þvi
að þar væri skiðaiþróttin i há-
vegum höfð enda ekki nema 5
min. akstur i skiðaskálann i
Seljalandsdal. En eins og öllum
erkunnugt.er þar einhver besta
skíðaaðstaða á landinu. Þar eru
starfræktar yfir vetrar-
mánuðina tvær skiðalyftur og
nær sú efri allt upp i 600 metra
hæð.
—GEK
Akranes:
Hafin smíði 90 íbúða á árinu
Mikil gróska er nú i
ibúðabyggingum á
Akranesi. Það sem af
er árinu hafa verið
hafnar framkvæmdir
við um 90 nýjar ibúðir
og um 70 íbúðir teknar i
notkun.
Si'ðastliðinn laugardag lauk
Guðmundur Magnússon bygg-
ingameistari við smiði 18 ibúða
f jölbýlishúss við Skorrabraut og
afhenti ibúðirnar kaupendum.
Ibúöir þessar eru hinar vönd-
uðustu að allri gerð. Verð á 87
fermetra þriggja herbergja
ibúð kr. 6.300.000. Auk þessa
fylgir Ibúðunum riflegt
geymslurými i kjallara. Þess
má geta að við smiði þessa fjöl-
býlishúss tók byggingar-
meistarinn upp ýmsar nýungar,
sem ekki hafa þekkst áður I
byggingariðnaði á Akranesi,
svo sem notkun byggingakrana
á vinnustað.
Fyrr á þessu ári lauk trésmiðj-
an Akur h.f. einnig við smiði 18
ibúða fjölbýlishúss við Skarös-
braut og nýlega lauk það sama
fyrirtæki við að gera annað slikt
hús fokheit. Trésmiðjan Akur
hefur undanfarið lokið við smiði
eins fjölbýlishúss á ári.
Fleiri fjölbýlishús eru nú i
smiöum á Akranesi. Húsverk
h.f. hefur nýverið byrjað á
framkvæmdum við 24 ibúða
fjölbýlishús og Guðmundur
Magnússon er kominn áleiðis
meö annað 18 ibúða hús.
Ýmsir aðrir byggingaraðilar
á Akranesi hafa undanfariö
unnið að smiði ibúðarhúsnæðis
til sölu á almennum markaði.
Má þar nefna Samtak h.f. Tré-
smiðju Sigurjóns og Þorbergs
h.f. og Guömund Bjarnason
byggingameistara.
A vegum einstaklinga eru
einnig mörg ibúðarhús i
smiðum flest i nýja hverfinu á
Garðagrundum. A þeim slóðum
er einnig að risa dvalarheimili
fyrir aldraða. Sú bygging
verður tilbúin undir tréverk um
áramótin og á næsta ári verður
væntanlega lokið við þá
framkvæmd en að henni standa
auk Akranesbæjar hrepparnir I
Borgarf jarðarsýslu, sunnan
Skarðsheiðar.
G.Vé.
FIMMTUDAGUR
25. NÓVEMBER 1976
alþýðu
blaðiö
Heyrt: Að Gundelach,
samningamaður Efna-
hagsbandaiagsins, hafi
boðið islenzkum
viðsemjendum til veizlu i
gærkvöldi, svona rétt til að
mýkja þá fyrir samninga-
þófið. Sumir telja, að Dan-
inn hafi með þessu verið að
launa fyrir sig og sina, þ.e.
þegar dönskum knatt-
spyrnumönnur var boðið i
langa útreiðatúra og mikl-
ar matarveizlur daginn
fyrir landsleik, svo þeir
voru vart færir til gangs á
eftir sökum stirðleika.
o
Heyrt: Að búast megi viö
nokkrum átökum á vænt-
anlegu þingi Alþýðusam-
bands Islands, þegar kem-
ur að stjórnarkjöri. Ekki er
ágreiningur um forsetaefn-
ið. Björn Jónsson, —
ágreiningurinn er innan
verkalýðsforystu Alþýðu-
bandalagsins. Þar eru
mjög skiptar skoðanir
meðal fulltrúa utan af landi
og Reykjavikurfulltrú-
anna, einkum þeirra, er
sitja i miðstjórn ASl. Reynt
hefur verið að setja þessar
deilur niður, enda fyrirsjá-
anlegt að þær geta orðið
mjög afdrifarikar fyrir
verkalýðsarm Alþýðu-
bandaiagsins, og er það spá
fróðra manna að jafnvel
geti komið til aigjörra vin-
slita i þeim hópi.
o
Séð: Að Verkalýðsfélag
Borgarness hefur byrjað
útgáfu myndarlegs frétta-
blaðs, sem gæti orðið öðr-
um verkalýðsfélögum til
fyrirmyndar. I siðasta
fréttablaði, sem nefnist
„Félagsfréttir”, mátti lesa
eftirfarandi: Nýlega kom
til afgreiðslu i hreppsnefnd
Borgarneshrepps samn-
ingur milli Verkalýðsfélags
Borgarness og sveitar-
stjórnar um kaup og kjör
starfsfólks i leikskólum. A
hreppsnefndarfundinum
var gerð athugasemd, að i
samningnum væri rætt um
konur en ekki menn. Var
athugasemdin tekin til
greina og breyting gerð á
samningnum. Þá var kveð-
ið:
Rauðsokkunum ráðin fá,
röngum orðum granda.
Orðið kona ekki má,
inn i samning standa.