Alþýðublaðið - 15.02.1977, Síða 4

Alþýðublaðið - 15.02.1977, Síða 4
4 VETTVANGUR Þriðjudagur 15. febrúar 1977 bSSfö' Bandalag starfsmanna ríkis og bæja 35 ára Rætt við Kristján Thorlacius, formann BSRB og Guðjón B. Baldvinsson, sem átti sæti í fyrstu stjórninni Kristján Thorlacius, formaöur Bandalags starfsmanna rikis og bæja Viðtal við Kristján Thorlacius, formann Bandalags starfs- manna rikis og bæja. „Mér skilst aö BSRB eigi merkisafmæli um þessar mundir, Kristján. Er það ekki rétt með farið? ,,Ef til vill er nú ekki hægt aö kalla þetta neitt stórafmæli, en það er rétt, að Bandalagiö á 35 ára afmæli þ. 14. febrúar, var stofnað þann dag 1942.” „Hverjir voru helztu stofn- endur, hve mánnmargt var bandalagið, voru einhverjar sérstakar ástæöur fyrir stofnun þess þá?” „Stofnendur voru 11 félög meö um 1100 félaga. Mannflest munu hafa verið Starfsmannafélag rikisstofnana, Samband islenzkra barnakennara, Starfs- mannafélag Reykjavikurborgar og Félag islenzkra simamanna. Það var engin tilviljun, að Bandalagiö var stofnað um þessar mundir. Þá var hagur rikisins heldur tekinn aö rýmk- ast. Segja mátti, að fram að þessum tima rækju opinberir starfsmenn sig á vegg, hvenær sem þeir leituöust við að bæta kjör sin áður. Ef ég man rétt voru laun meira að segja lækkuð á verstu kreppu- árunum.” „Svo þab hefur veríð nógu að sinna i þessum efnum?” „Já.þaöeróhættum það.Eitt hið fyrsta, sem Bandalagið sneri sér aö voru endurbætur á lifeyrissjóðslögum fyrir starfs- mtnn rikisins, sem þá urðu alm inn réttindi þeirra. Þá var tekiö aö huga að nýjum launa- lögum, og tókust samningar um þau 1945. Setning þeirra mátti kallast raunveruleg bylting á þeim tima i launamálum. Siöar þegar sett voru lög um réttindi og skyldur opinberrra starfs- manna og reglugerðir út frá þeim lögumrurðu kjör starfs- manna sveitarfélaga I höfuð- dráttum i samræmi viö rfkis- kjörin um réttindi, skyldur og lifeyrissjóöi.” „Og svo hélt baráttan áfram?” ,,Já, og heldur enn. Banda- lagiö hefur óslitið starfað að launa-kjara og réttindamálum alla sina tiö. Stærstu skrefin, sem hafa náðst tel ég vera á fyrstu timum þess ákvæðin um lifeyrissjóðina, launalögin 1945 og 1955, auk samninga um launa- og verölagsbætur, og siöan lög um takmarkaöan samningsrétt 1962, og i fram- haldi af þvi endurbætta samningsréttarlöggjöf. En oft höfum við orðið að sæta geröar- dómum i kjaramálum, bæði um rammasamninga og kjör ein- stakra félaga.” „Hvaö viltu segja um starfs- matið?” „Eg tel starfsmatið hafa verið merka tilraun. En þess ber að gæta, að þetta var frumsmið, sem af hálfu Bandalagsins var ætlað aö endurskoöa og bæta. Gagnrýni hefur komið fram, sem ekki er óeðlilegt, en á þingi Bandalagsins 1973 var einróma samþykkt að halda starfsmati áfram, þó breytingar þættu sjálfsagðar. Rikisvaldiö (fjár- málaráöherra) snerist öndvert gegn þeim. Annars er bezt að gera sér ljóst, að starfsmat er framkvæmt i öllum samningum, en bara of handa- hófskennt nú. Ég teldi mikið framfaraspor að þróa kerfisbundiö starfsmat. Það gæti vitanlega aldrei orðiö visindi, en gagnlegt hjálpartæki við samningagerö.” „En fleira hefur nú Banda- lagiö fengizt við en launa- og kjarabætur? „Já, við getum nefnt orlofs- heimilið i Munaðarnesi. Viö fengum þaröOha leiguland til 72 ára 1969. Fljótlega var hafizt handa og slðla sumars 1971 voru risin 23 orlofshús ásamt veit- ingaskála, þegar starfsemin hófst. Veitingaskálinn er jafn- framt félagsmiðstöð, sem hefur verið nýtt til fræöslustarfsemi samtakanna og ráöstefnur, auk þess sem fleiri félagssamtök hafa fengið þar inni fyrir funda- höld. Þá hafa einstök hús oft verið leigð út aö vetrarlagi, einkum um helgar. Framtiðardraumurinn er að koma þarna á fót félagsmála- skóla að vetrinum fyrir samtökin. Siðan 1967 hefur verið sleitulaust aö þvi unniö að efla fræðslustarf innan samtakanna, en þetta er oröinn þýöingar- mikill þáttur i starfi þeirra. Nú eru risin þarna 68 orlofshús og verið að stækka félagsmið- stöðina.” „En eru nokkrar hugmyndir uppi um orlofshús á vegum Bandalagsins viðar um land?” „Já, takmarkið er að koma þeim upp helzt i öllum lands- fjórðungum, þegar heppilegir staðir fást og efni standa til.” „En svo við vfkjum aftur að þvi nýjasta i kjaramálum og þvi, sem er framundan. Hvaö viltu segja um þaö?” „Verkfallsrétturinn var stórt skref framávið og ég tel höfuð- nauösyn aö við höfum hann eins og aörar stéttir. Að þvi verður unnið áfram. Við gátum ekki náð lengra en raun var á siöast með samningum, sem við teljum hina einu réttu leið og sættum okkur við það i bili. En málið er ekki niður fallið.” „Verður samflot með hinni almennu verklýðshreyfingu og BSRB i næstu samningum?” „Samþykktir á þingum bæði BSRB ogASÍ voru gerðar um að slikt samstarf væri æskilegt. ASÍ hefur nú haft, frumkvæði um að koma þvi á. BSRB hefur þegar kosiö tvo fulltrúa i samstarfsnefnd. Ég geri mér vonir um aö þessi háttur verði til heilla fyrir launamenn almennt. Eftir er að finna þvi heppilegt form og það verður að þróast eftir aðstæðum.” „Hvað um stefnuna i launa- málum?” „Þing BSRB markaði stefnu i kjaramálum. Samningum verður væntanlega sagt upp fyrirl.aprilog miðað við 1. júli. Sett hefur verið á laggir fjöl- menn nefnd allra bandalags- félaganna, eða 50-60 manna. Nefndin hefurþegar hafið störf að undirbúningi kröfugeröar. Siðan i marz 1974 hefur orðiö kjaraskerðing um 30-40% hjá opinberum starfsmönnum og nú er óumdeild staðreynd að islenzkir launþegar almennt eru varla hálfdrættingar á viö launafólk á hinum Norðurlönd- unum. Þessa kjaraskerðingu þarf að fá fullbætta og rifa þarf tslendinga upp úr þvi að vera láglaunafólk á láglaunasvæði.” „Hverjar eru, að þinum dómi, ástæður fyrir þessum ófarnaði?” „Að minum dómi efalaust fyrstog fremst óhóflega óréttlát tekjuskipting. Skattabyröin hvilir óhæfilega þungt á launþegum. Við nánari athugun: Söluskattur er áætlaður nú um 34 milljarðar, sérstakt vörugjald um 5,5 millj- arðar aöflutningsgjöld (tollar) um 14,4 milljaröar og tekju- skattar á einstaklinga um 9,5 milljarðar. Þessir skattar koma óumdeilanlega á almenning, auk svo gjalda til sveitarfélaga. Þvi er haldiö fram, að auk þeirra 2ja milljarða, sem félögunum er ætlaö að bera og fjárlög 1977 gera ráö fyrir, komi þungar skattbyrðar i formi aðstöðugjalda. Þessi aðstöðu- gjöld voru 1976 samtals 2,3 milljarðar, sem skiptust á 18152 aðila. Ekki þarf lengi að fletta opin- berum tölum, til þess að sjá, að gjörbylta þarf skattakerfi þjóðfélagsins i heild, og ein höfuðkrafa islenzks launafólks hlýtur að vera að stór hluti skattabyrðanna veröi færður á atvinnurekstur og atvinnurekendur. Það yrði raunhæf kjarabót og hluti af lækningu verðbólguvandans” lauk Kristján Thorlacius for- maður BSRB máli sinu. OS Fyrsti fundur nýkjörinnar bandalagsstjórnar var haldinn 20. okt. s.l. A myndinni eru (taliö frá vinstri): Helga Haröardóttir, Agúst Geirsson, Jónas Jónasson, örlygur Geirsson, Helga Guöjóns- dóttir, Guörún Helgadóttir, Haraldur Steinþórsson, Kristin Tryggvadóttir, Kristján Thorlacius, Hersir Oddsson, Vilborg Einarsdóttir, Albert Kristinsson, Sigurveig Siguröardóttir, Asgeir Ingv- arsson, Magnús Björgvinsson, Páll R. Magnússon og Einar ólafsson. A myndina vantar Bergmund Guölaugsson, sem gat ekki fengið sig lausan af vakt. mmwmwammm mmmam

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.