Alþýðublaðið - 02.04.1977, Síða 1
Mengun frá álverinu jafnmikil í nágrenni þess og í kerskálanum:
Búseta bönnuð í Straumi
Heilbrigðisráð
Hafnarfjarðar hefur
sent frá sér ályktun
þess efnis, að það geti
ekki lengur leyft bú-
setu í nágrenni við ál-
verið i Straumsvik.
Segir i ályktuninni, að
Pétur Sigurjónsson
forstöðumaður Rann-
sóknarstofu iðnaðar-
ins hafi á fundi með
ráðinu skýrt frá þvi,
að mengun i and-
rúmslofti næsta ná-
grennis staðarins geti
undir vissum kring-
umstæðum verið jafn-
mikil eða meiri en á
starfsvæðinu inni i
kerskálunum.
Pétur Sigurjónsson sagBi i
viðtali við blaðið i gær, að það
sem hér væri um að ræða væri
búseta i Straumi. Það húsnæöi
hefði verið leigt út fram til
þessa af eiganda þess, heild-
sala í Reykjavik, og oft verið
þarna fjölskyldur til heimilis.
Staðurinn væri hins vegar litt
aðlaðandi til búsetu, þar sem i
hægu veðri og sérstakri vind-
átt safnaðist öll mengun úr ál-
verinu yfir staðinn.
— Þegar áætiað er hættu-
mark mengunar á starfsfólki i
verksmiðjunni, er miðað við 8
stunda vinnudag. Hins vegar
er fráleitt að fólk sé allan dag-
inn f þessu andrúmslofti, sagði
Pétur. — Enda hefur Hafnar-
fjarðarbær nóg af lóðum og
ástæðulaust að iáta fólk búa
þarna.
Þá sagði Pétur aöhjá Rann-
sóknarstofnun iðnaðarins
væru nú til rannsóknar bein úr
kjúklingum af alifuglabúi sem
starfrækt hefur verið I
Straumi. Kvaöst þó ekki trú-
aður á að þar yrði um eitrun
að ræða, það sem um aðkeypt
fóöur væri aö ræða.
Heilbrigðisráð Hafnar-
fjarðar hefur itrekað
varnaðarorð sin vegna berja-
tinslu i næsta nágrenni álvers-
ins og bendir á, að skola beri
öll ber og allt kálmeti vel fyrir
neyzlu.
Þá hefur Heilbrigðisráöiö
fariö þess á leit við
Heilbrigöiseftirlit rikisins, að
þegar farið verður i mælingar
á mengun i andrúmslofti i ker-
skálunum þá fari jafnfram t
fram ámóta könr.un á lofti i
næsta nágrenni álversins,
meðal annars með tilliti til
væntanlegrar starfrækslu
hafnar og hugsanlegra iðn-
aðarumsvifa á svæðinu.
—hm.
Öryrkjar greiða
fullan söluskatt
— en leigu- og sendibflstjórar ekki
Eins og blaðið
skýrði frá i gær, þurfa
öryrkjar að greiða
fullan söluskatt til
rikisins af þeim bif-
reiðum sem þeir
kaupa. Samkvæmt
upplýsingum sem
blaðið aflaði sér á
Tollstjóra skrif-
stofunni, eru bæði
sendi- og leigubif-
reiðar undanþegnar
söiuskatti, sem nemur
niðurfellingu tolla á
bifreiðunum.
Geta þær verið tvenns konar
þ.e. heilar og hálfar eftir-
gjafir. Ef um heila eftirgjöf er
aö ræöa, greiöirkaupandi 40%
toll en fær 50% gefin eftir.
Hann þarf ekki að greiða sölu-
skatt af þessum 50% og fær
auk þess gefin eftir helming
bifreiðagjaldsins. Oryrkjar
þurfa hins vegar að greiöa
soluskatt af niðurfellingunni,
eíns og áður sagði.
Þarna virðist þvi vera um
talsvert ósamræmi aö ræöa
þvl segja má með sanni að bif-
reiðar öryrkja flokkist ekki
siður undir atvinnutæki, en
leigu- og sendibifreiöar, þar
sem þær gera þeim kleift að
stunda atvinnu fjarri
heimilum sinum.
—JSS
Sóknarkonur vinna
allt ad 53
stunda vinnuviku
Hag hinna lægst
launuðustu hefur oft
verið illa komið, en þó
liklega aldrei eins og
nú. Þannig þarf lág-
launafólk að vinna
meira en fjörutiu
stunda vinnuviku, til
þess eins að endarnir
nái saman. Þessar
upplýsingar koma m.a.
fram i könnun, sem
gerð var á högum
Sóknarkvenna. Hefur
blaðið áður birt hluta
niðurstaðanna.
43,7% þeirra kvenna er þátt
tóku I könnuninni, reyndust
vera einhleypar. Meðalvinnu-
timi þeirra var 37.4 stundir að
jafnaði, en af 52 konum unnu 27
40 stundir á viku, 9 konur unnu
meira en 40 stundir og 9 konur
unnu skemur.Skv* töflu, sem
sýnir vinnutimann eins og hann
dreifist á aldursflokka, kemur I
ljós, að aldurshóparnir frá 21-40 "
ára vinna lengstan vinnutlma.
Vinnustundum viröist þó litið
fækka með aldrinum. Meðal-
tekjur einhvleypra kvenna voru
66.704, og i mörgúm tilfellum
þarf þessi upphæð að nægja til
framfærslu fleiri en eins manns.
Meðalvinnutimi giftra kvenna
var 31.9 klst. á viku. Af þeim 63
konum sem gáfu upplýsingar,
unnu 26 eða 41.3% fullan vinnu-
dag þ.e. 40stundir á viku. 2 kon-
ur unnu meir en 40 stundir, önn-
ur 48 klst og hin 53 stundir.
\
1
A
Varðandi aldurskiptingu
er það segja að
konur á aldrinum 31-40 ára vir-
tust vinna skemmstan vinnu-
dag. Má ætla aðá þeim aldri séu
konur hvað uppteknastar af
barnauppeldi, og heimilisstörf-
um, og hafi þvl ekki tök á að
vina lengri vinnudag.
Meðalvinnutimi maka
Sóknarkvenna var 46.6 stundir
og meðaltekjur 95.252 kr. Loks
má benda á þá athyglisverðu
staðreynd, að á 70% heimila
giftra Sóknarkvenna í úrtakinu,
unnu bæði hjónin að meðaltali
nær fullan vinnudag, eða tæpar
40 stundir á viku. Meðaltekjur
einstaklings voru kr. 74.165 á
mánuði, og þvi þurfa hjón að
brauðfæöa sig og börn sin fyrir
rúm 148 þúsundir króna á mán-
uði.
—JSS
V'v
Það leynir sér ekki, þegar litið er við i verzl-
unum, að páskarnir eru á næsta leiti, þvi þar
gefur að lita falleg páskaegg i löngum röð-
um. En það eru fleiri farnir að búa sig undir
páskana en verzlunareigendur, og meðal
þeirra er þessi ungi maður i Hliðarskóla.
BANNAÐ AÐ
SELJA VÍTISÓDA
— nema yfir búdarbordid
Framvegis verður bannað
aðselja vitisóda i kjörbúðum
þar sem viðskiptavinir geta
sjáifir tekiö vörurnar. Vill
Heilbrigðiseftirlit rikisins
þvi mælast til þess að kjör-
búðir þær sem hafa vitisóda
til sölu, geymi hann á trygg-
um stað og afgreiði hann til
viðskiptavina yfir búðar-
borð.
^ O 0
Q . °