Alþýðublaðið - 02.04.1977, Blaðsíða 5
Laugardagur 2. apríl 1977.
IVETTVAWGIIB 5l
Mikil umsvif í
Þjóðleikhúsinu
Fimm leikrit sýnd um þessar mundir og
f jögur ný verk í æf ingu
Starfsemi Þjóðleik- Skipið eftir Steinbjörn
hússins hefur staðið i
miklum blóma undan-
farið og eru nú f jögur ný
verk i æfingu. Sem
kunnugt er, eru nú sýnd
fimm leikrit i ieikhúsinu
eftir
Jakobsen.
Skipið er fyrsta færeyska leik-
ritiö, sem Þjóðleikhúsiö tekur til
sýninga. Þaö var frumsýnt f Fær-
eyjum fyrir tveimur árum og náði
meiri vinsældum en nokkurt ann-
að leikrit, sem þar hefur verið
sýnt. Mátti heita svo að megnið af
ibúum Færeyja sæi leikritð. Það
gerist um borð i togara á hafi úti
og lýsir hversdagslegu lifi og
striti sjómanna en einnig er
brugðiö upp svipmyndum af fjöl-
skyldu og ættingjum þeirra i
landi. Leikstjóri Skipsins er fær-
eyski leikstjórinn Eyjun Johann-
essen, sem er leikhússtjóri Sjón-
leikhússins i Þórshöfn og stjórn-
aði frumuppfærslu verksins þar.
Leikmynd gerir Birgir Engilberts
en yfir 20 manns koma fram i
sýningunni. Meðal leikara eru
Rúrik Haraldsson, Hákon Waage,
Badvin Halldórsson, Gunnar
Eyjólfsson, Helgi Skúlason, Gisli
Alfreðsson, Erlingur Gislason,
Bjarni Steingrimsson, Randver
Þorláksson, Guöbjörg Þor-
bjarnardóttir, Bryndis Péturs-
dóttir, Margrét Guðmundsdóttir,
Sigurður Sigurjónsson, Lilja
Þórisdóttir o.fl. Frumsýning er
fyrirhuguð i aprillok.
Þá eru nýlega hafnar æfingar
á litla sviöinu á leikritinu Kaspar
eftir þýzka höfundinn Peter
Handke. Handke erihópi þeirra
þýzku ungu höfunda, sem hvað
mesta athygli hafa vakið á siðari
árum, og eru verk hans leikin
viða um Evrópu, ekki sizt þetta
verk.
Höfundur styðst við frásögnina
af Kaspar Hauser, sem á siðustu
öld „fannst” uppkominn ungling-
ur á dularfullan hátt, án þess að
nokkuð væri vitað um forsögu
hans. Fjallar leikritið um, hvern-
ig einstaklingur er lagaður aö og
felldur inn I formfast umhverfi,
hvernig honum er kennd og inn-
rætt hefðbundin lögmál mann-
legra samskipta.
Leikstjóri sýningarinar er Nig-
el Watson, brezkur leikari sem
dvalist hefur hér á landi um skeiö
og hefur áöur sviðsett sýningar
með áhugamönnum. Má þar
nefna Hamlet og Fröken Júliu.
Þórhallur Sigurösson fer með
hlutverk Kaspars, en alls koma
fimm leikarar fram i sýningunni,
leikmynd gerir Magnús Tómas-
son og verður leikritið flutt á litla
sviöinu, sem fyrr sagði. Er það
hið fjórða sinnar tegundar sem
þar er sýnt I vetur undir samheit-
inu Nútimaleikritun. Hin fyrri
voru Nótt ástmeyjanna, Meistar-
inn og Endatafl.
um þessar mundir, en
þau eru: Sólarferö,
Gullna hliðiö, Lér kon-
ungur, Dýrin i Hálsa-
skógi á stóra sviðinu og
Endatafl á litla sviðinu.
Sýningum fer nú aö fækka á
Sólarferö en hún hefur verið sýnd
siðan i haust. Eru sýningar orðn-
ar 45 og aðeins örfáar eftir.
Gullna hliðið og Dýrin I Hálsa-
skógi hafa verið sýnd 35 sinnum
hvort, og njóta bæöi verkin mik-
illa vinsælda.
Þá eru, sem kunnugt er, ný-
hafnar sýningar á Le konungi og
Endatafli. Hafa báðar sýningarn-
ar hlotið mikið lof, einkum þó Lér
konungur.
Ys og þys.
Verkin fjögur sem eru nú I
æfingu eru: ballettinn Ys og þys
út af engu, leikritið Skipið, söng-
leikurinn Helena fagra og nú-
timaverkið Kaspar.
Verður fyrsta frumsýningin á
balletinum Ys og þys út af engu,
en hann verður sýndur 7. april. Er
þetta nýr ballett, byggður á
samnefndum gamanleik Shake-
spears. Sviðsetningu og samn-
ingudansa annast ballettmeistari
Þjóðleikhússins, Natali Konjus og
leikmynd gerir Jón Þórisson.
Ballettónlistin er eftir Tikhon
Krnnikov og var þessi ballett ný-
lega frumfluttur I Bolshoi leik-
húsinu I Moskvu og verður þvi
sennilega sýning Þjóðleikhússins
önnur upppfærsla þessa nýja
verks. Tveir gestadansarar koma
til landsins til að dansa I sýning-
unni. Þórarinn Baldvinsson,
Islenskur dansari, sem starfar i
Bretlandi i Minerva ballett-
flokknum og dansaði hér siðast
aðalhlutverk i Coppeliu, og einn
aðaldansari Bolshoiballettsins I
Moskvu, Maríus Liepa. tslenzki
dansflokkurinn tekur þátt i
sýningunni, svo og nemendur úr
Listdansskóla leikhússins: auk
þess leikararnir: Bessi Bjarna-
son Sigmundur Orn Arngrimsson
og Ölafur Thoroddsen.
Mjög mikil að-
sókná Sand-
kassann:
Auka-
sýning á
mánu-
dag
Leiklistarsvið Menntaskólans
viö Tjörnina hefur að undanförnu
sýnt Sandkassann eftir Kent
Anderson við gifurlega góða að-
sókn. Fólk hefur þurft frá að
hverfa vegna plássleysis, þrátt
fyrir að lausum sætaröðum hafi
vcriö bætt við á öllum sýningum.
Þrjár sýningar voru á Sand-
kassanum um siðustu helgi I
Breiðholtsskóla, en skólinn tekur
um 230 manns f sæti. Vegna mik-
iilar aðsóknar hefur verið ákveöið
að efna tii aukasýningar á leik-
ritinu, næstkomandi mánudags-
kvöid ldukkan 8.30 en það veröur
jafnframt siðasta sýning leiksins.
—AB
wMM MM Iff iy9w%jB M
og betri vegir
Verdtryggö happdrættisskuldabréf í J fiokki eru til sölu nú.
DregiÖ í fyrsta skipti 15. júní n.k.
Vinningaskrá:
5 vinningar á kr. 1.000.000 kr. 5.000.000
5 vinningar á kr. 500.000 kr. 2 500.000
100 vinningar á kr. 100.000 kr. 10.000.000
750 vinningar á kr. 10.000 kr. 7.500.000
860 vinningar Samtals kr. 25.000.000
Þú hefurallt að vinna.
Bréfin fást í bönkum og sparisjóðum um land allt
og kosta 2500 krónur.
.pVMhi j.
SEÐLABANKI ÍSLANDS