Alþýðublaðið - 02.04.1977, Qupperneq 7
. œ" Laugardagur 2. april 1977.
VIÐ
Fimm ára snáði úr Þykkva-
bænum vann Kanaríeyjaferð
Haflifti Pálsson, fimm ára tekur vift verftlaunum sinum f samkeppni Samvinnutrygginga úr hendi
Brunos Hjaltesteft, aftstoftarframkvæmdastjóra Samvinnutrygginga. Foreldrar Haflifta, Steinunn
Adólfsdóttir og Páil 0. Hafliftason standa sitt hvoru megin vift hann og Böftvar Valgcirsson fram-
kvæmdastjóriSamvinnuferfta hf. er einnig viftstaddur og svaraftihann fyrstu spurningum um hvaft Haf-
lifti eigi nú f vændum f Kanarieyjaferft fjölskyldunnar f október.
Hann Hafliði Pálsson i
Þykkvabæ f Rangárvallasýslu
datt heldur betur i lukkupottinn
á dögunum. Hann sendi inn svör
viö spurningum i umferftarsam-
keppni Samvinnutrygginga, en
að sögn hans sjálfs naut hann
góftrar aðstoðar systkina sinna
og foreldra við að finna lausnir
á þrautunum sem fyrir voru
lagðar. Þegar svo dregið var
um vinninginn i samkeppninni,
reyndist það vera lausn Hafliða
Pálssonar og hlýtur hann þvi að
launum þriggja vikna dvöl á
Kanarieyjum á vegum Sam-
vinnuferða hf. Mun Hafliði, sem
aðeins er 5 ára, fara i utan-
landsreisuna i október i haust og
mun hann njóta fylgdar foreldra
sinna, Steinunnar Adólfsdóttur
og Páls O. Hafliðasonar i Búð I
Þykkvabæ. Búist er við þvi að
einnig sláist i förina fleiri syst-
kin Hafliða.
Viðstaddir úrdrátt úrlausn-
anna voru: Jónas Thoroddsen,
borgarfógeti og dómnefndar-
menn samkeppninnar, þeir
Guðni Karlsson, forstöðumaður
Bifreiðaeftirlits rikisins, Sig-
urður Agústsson, fulltrúi
Umferðarráðs og Sturla Þórð-
arson, fulltrúi Lögreglustjórans
i Reykjavik.
—ARH
F ramhaldssagan
F órnar-
lambið
— Ég veit það ekki, en bóka-
vörðurinn sagði, að þú hefðir
pantað hana. Liður þér betur?
— Já, þakka þér fyrir! En ég er
orðin þreytt á að liggja i rúminu
ogég skilekki, hvers vegna lækn-
irinn villekki hleypa mér á fætur.
— Það munaði nú minnstu, að
þúfengirlungnabólgu! Ég heyröi
hann segja það við mömmu, en
það ernú þér sjálfri að kenna! Þú
áttir ekki að rifast við Sebastian.
Drúsilla svaraöi engu og Katrin
yppti öxlum um leið og hún fór.
Drúsilla tók upp bókina og það fór
hrollur um hana. Bókin hét
„Elsku, litla vina” eftir Selinu
Saffron.Húnvirtibókina fyrirsér
meft tárin i augunum. Mikift ósk-
aði hún heitt, að Sebastian hefði
aldrei skrifað hana. Þá væru þau
enn trúlofuð og heföu gengið i
hjónaband eftir viku. En bókin
hafði gengið svo vel.... Hún hafði
lesið mjög góða ritdóma um
hana, en ákveðið að lesa hana
aldrei. Hún andvarpaði og hallaði
séraftur á koddana. Hún gæti svo
sem lesið einn eða tvo kafla fyrst
Katrin kom með hana. Hún hafði
beðið Sebastian um áritað ein-
tak, þegar bókin kom út, en hann
neitaði og sagði, aö hún yrði ekki
hrifin af henni.
Hún byrjaði að lesa og þaft fór
aftur hrollur um hana, þegar hún
hafði lokið fyrsta kafla. Hetjan,
Anthony, var auðsýnilega
Sebastian, ekki siður en Linnet,
var auðsýnilega Drúsilla. Hann
lýsti henni svo lifandi, að henni
varð óglatt. Sólbrúnni húöinni,
skökkum tönnunum, staminu,
grönnu vaxtarlaginu... engan
ágalla hafði Sebastian látið
óskiptan. Þessi óásjálegi, litli
erfingi og hetjan glæsilega...
hvers vegna hafði hún ekki getið
sér þess til? Sebastian hafði ekki
hugsað um hana og annast hana
af vinsemd einni saman, heldur
tilað nota hana sem aðalpersónu i
bók. Drúsillu sveið í vangana,
meðan hún hélt lestrinum
áfram... las um nóttina i skógin-
um, um viðræðurnar við fjár-
haldsmann Linnets... en nú las
Drúsilla jafnframt i huga
Sebastians. Hún gat naumast
tára bundist af auðmýkingu, þeg-
ar hún las um skelfingu hans og
ótta, þegar hún lýsti yfir, að hún
væri fús til að giftast honum.
Hana langaði mest til að henda
bókinni frá sér, en hún var svo lif-
andi skrifuð, að hún hélt henni
bergnuminni, þó að hún hataðist
við höfundinn og værihonum reið.
Sebastian hafði bætt ýmsu inn,
sem aldrei hafði komið fyrir, og
sumt var svo fyndið, að Drúsilla
hefði skellihlegið, ef hún heföi
ekki verið aðalpersónan sjálf. Nú
fann hún aðeins til meðaumkunar
með „Eslku, litlu vinu”, sem hag-
aði sér svo heimskulega.
Þó undarlegt megi virðast sat
Sebastianog ásakaðisjálfan sig á
sömu stundu.Hannsateinn heima
hjá sér og var aö lima blaðaúr-
klippur I úrklippubók. Hann
hafði verið svo yfir sig hrifinn af
viðtökunum i fyrstu, en nú var
hann næstum þvi reiður bókinni.
Hann gat ekki losnað við þá til-
hugsun, að hann hefði brugðizt
Drúsillu. Hún hafði verið fórnar-
lamb hans. Hann hafði tvisvar
reynt að skrifa henni, en rifið
bréfið i bæði skiptin. Hvað hafði
hann að segja? Að hann vildi enn
kvænast henni? Það vissi hún.
Hann hafði ekki beðið um frelsi,
hún hafði sagt honum upp.
Hæðnislegt, að hún komst að
þessu skömmu fyrir brúðkaupið.
Fyrir mánuði eða svo hefði hann
eftir JAN TEMPEST
Afsláttur
á sumarferðum
Stjórnir Verzlunarmannafélags Reykjavikur og Landssam-
bands islenzkra verzlunarmanna, hafa samið við ferðaskrif-
stofurnar Sunnu og Samvinnuferðir um 6.000 kr. afslátt, fyrir
félagsmenn og fjöhskyldur þeirra I sumarleyfisferðir. 50% af-
sláttur er veittur fyrir börn innan 12 ára.
Farift verftur til: Costa Brava, Costa Del Sol, Dublin, Grikk-
lands, Krítar Mallorca.
Allar nánari upplýsingar veita feröaskrifstofurnar, Sunna í sim-
um 16400, 12070, Samvinnuferðir i sima 27077
Verzlunarmannafélag Reykjavikur,
Landssamband islenzkra verzlunarmanna
m
flrður til hluthafa
Samkvæmt ákvörðun aðalfundar Verzl-
unarbanka Islands hf. þann 26. marz s.l.
verður hluthöfum greiddur 13% arður af
hlutafé fyrir árið 1976 frá innborgunardegi
að telja.
Greiðsla arðsins hefir verið póstlögð i
ávisun til hluthafa.
Verði misbrestur á móttöku greiðslu eru
hluthafar beðnir að hafa samband við
aðalgjaldkera bankans.
Reykjavik, 1. april 1977,
Verzlunarbanki íslands hf.
frá Póst- og símamálastjórninni
Að gefnu tilefni viíl Póst- og simamála-
stjórnin vekja athygli á þvi, að samkvæmt
reglugerðarákvæði er óheimilt að hylja
með ógagnsærri hlifðarkápu upplýsingar,
sem prentaðar eru á forsiðu og baksiðu
kápur simaskrárinnar.
Póst- og simamálastjórnin.
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurftir —Vélarlok —
vJeymslulok á Wolkswagen i allfiestum litum. Skiptum á
einum degi meft dagsfyrirvara fyrir ákveftift verft. Reynift
viftskiptin.
Bilasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.
AUGLÝSING
KOSTABOÐ
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
B reiðholti
Siiili 7 12(10 — 7 1201
AS^
©
sx" PÖSTSENDUM
TRULOFUNARHRINGA
Jloli.inots Imsson
t.iiiB.mtai 30
é'iim 10 200
Dúnn Síðumúla 23 /ími 64000
Heimiliseldavélar.
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Óðinstotg
Símat 25322 og 10322
Loftpressur og
traktorsgröfur til
leigu.
Véltækni h/f
Simi á daginn 84911
á kvöldin 27924