Alþýðublaðið - 13.07.1977, Qupperneq 4
4 ÚTL0ND
Miðvikudagur 13. júlí 1977 SSSt
PER E. KOKKVOLD:
EININGARSAMTOK AFRIKU
HAFNA SITTHOLE OG MUZOREVA
— á fundinum í Gabons í Libreville
Stjórnendur 49 sjálf-
stæðra Afrikurikja,
sem mynda Einingar-
samtök Afriku (OAU)
hafa nýlokið vikulöng-
um fundi i Gabons i -
Libreville.
Eins og vænta má
var deila svartra og
hvitra i Rhodesiu mjög
á dagskrá og raunar
meira en það.
Kunnugt er, að tvenn
samtök blökkumanna i
Rhodesiu hafa deilt
ákaft um forræði fyrir
baráttunni gegn hvit-
um. Föðurlandsfylk-
ingin undir stjórn
Joshua Nkomos og Mu-
gabes annarsvegar og
Þjóðernisflokkurinn
undir forræði Abel
Muzorewa, biskups og
Noabingi Sitholes, hafa
fram að þessu skipt
blökkumönnum Rho-
desiu i tvær fylkingar.
1 siðastliðnum janú-
armánuði gerðist það,
að grannriki Rhodesiu
ákvæðu að skipa sér
saman um að styðja
einhuga Föðurlands-
fylkinguna. Þessi riki
eru Angola, Botswana,
Mosambik, Tanzania
og Zambia.
Þetta skref var i
fyrstu mjög umdeilt
meðal annarra rikja
OAU, og það kom i ljós
á ráðherrafundi i
febrúar, sem haldinn
var i Lomé. En þar
sættust menn loks á, að
fresta ályktunum til
forsetafundarins, sem
nú er nýlokið.
Það, sem mest kom á óvart I
ályktunum forsetafundarins,
var, að þær voru gerðar ein-
róma i þessu efni.
Fylgismenn Muzorewas og
Siholes benda þó á, aö ekki felist
iályktun OAU nein fordæming á
hendur þeirra, og vilja láta
liggja að þvi, að vel gæti oröið
um endurskoðun að ræða. Aðrir
. telja hinsvegar, að hér hafi OAU
-
Robert Mugabe (I miðju).Til vinstri Edgar Teke og G. Sillindika til | hægri, nánir samstarfsmenn Mugabes.
að fullu gert upp á milli deiluað-
ilanna innan blökkumanna i
Rhodesiu og það sé aðeins ósk-
hyggja, að þvi verði breytt.
Alyktunin ber greinilega með
sér, að það sé aðeins Föður-
landsfylkingin, sem eigi að
hljóta stuðning OAU, og aöal-
rökin eru einfaldlega þau, að
það hljóti að seinka frelsisstriöi
blökkumanna, að tveir aðilar
togist á um forræði svo sem ver-
ið hefur, og OAU lýsir þvi yfir,
að það sé mat rikisstjóra sam-
bandsins, að frelsisherinn eigi
aðeins að vera einn I Rhodesíu.
Kampakátir sigurveg-
arar!
Það voru hvorki hljóðir né
hógværir menn á ferð, þegar
Nkomo og Mugabe héldu blaða-
mannafund eftir samþykktina i
Gabons.
Mugabe lagði aðaláherzluna
á, að nú væri komiö svarið viö
þvi, hver það væri, sem fram-
vegis yrði i forsvari fyrir
blökkumenn Rhodesiu. Nú gilti
að láta kné fylgja kviði og
þurrka út hina brezku heims-
veldisstefnu I Afriku, nýlendu-
stefnu Breta og kapitalismann.
Nkomo vék hinsvegar harð-
lega aö starfsemi Muzorwas, og
gekk þar öllu lengra en nokkru
sinni fyrr. Hann haföi sleppt þvl
Joshua Nkomo
i Osló vikuna áður, að biskupinn
væri „prestlærður lygari”.
A blaðamannafundinum i
Libreville kallaði hann Muzore-
wa hinsvegar „lús”!
„Þegar barizt er við ljón (Ian
Smith) hirða menn ekki um bit
smálúsa”, sagði hann. „Við lát-
um þær eiga sig, unz ljónið er að
velli lagt. Þá fyrst gefst tæki-
færi til að hreinsa af sér óvær-
una.”
Báðir leiðtogar Fööurlands-
fylkingarinnar lögðu megin-
áherzlu á, að þeir væntu þess, að
ródesiskir blökkumenn skipuðu
sér nú einhuga undir merki
Fylkingarinnar.
Viðbrögð hinna sigr-
uðu.
Muzorewa biskup, sem einnig
var á fundinum i Gabons, hefur
látið það boð út ganga til fylgis-
manna, að nú þegar þeir geti
ekki lengur vænzt aðstoðar ut-
anfrá.sé ekki um annað að gera
en að þeir gangi i leið með
skæruliðum annarra samtaka,
enda megi þeir við öllu illi búast
ella.
Sitthole hefur hinsvegur lýst
þvi yfir, að það sé skoðun sin að
útilokað sé eftir yfirlýsingar
OAU, að takist að sameina
Rhodesiumenn. Hann bætir þvi
við, að Föðurlandssfylkingin sé
I reynd erlend skipulagning,
sem ekki þjóni öðru en erlend-
um hagsmunum!
Erfitt hlutverk.
Sýnt er, að það verður ekki
auðvelt fyrir brezka utanrikis-
ráðherrann, David Owen, að fá
botn I milligöngu milli hinna
striðandi aðila I Rhodesiu. Ian
Smith og hviti kynstofninn þar
er viðsfjarri þvi að vilja gefa á
bátinn völd sin og forræði I land-
inu — sennilega aldrei fjær en
nú. Blökkumenn eru nú ákveðn-
ari en nokkru sinni áður i að láta
vopnin tala, og fundurinn i
Libreville hefur stælt þá veru-
lega, þar sem þeir auövitað
treysta á, að Einingarsamtökin
láti ekki stija við orðin tóm.
„Tilgangslaust er”, segir Nk-
omo, „að gera sér vonir um
frjálsa og óháða Rhodesiu meö
samningaþófi við Vesturveld-
in.”
„Hið eina, sem frambærilegt
er I samningum”, segir Muga-
be, „er að hvitu mennirnir snúi
sér að þvi, að fá völdin I landinu
I hendur samtökum skærulið-
anna og þvi fyrr þvi betra.”
Nú eru i gangi umræður og
samningaumleitanir i Suður Af-
riku, þar sem mál Rhodesiu
blandast einnig inn I, á vegum
brezka utanrikisráðuneytisins
og bandariska ambassadorsins,
Stephen Low.
Þar eru frumdrög Owens lögð
til gruundvallar, og sjálfur mun
hann fara til Suöur Afriku i lok
þessa mánaðar, eöa fyrst i á-
gúst.
Útlitið á friðsamlegri lausn er
vægast sagt skuggalegt, en hið
eina, sem Owen mun geta bund-
ið einhverjar vonir viö.er, að
áðurnefnd fimm nágrannariki
Rhodesiu komist að þeirri nið-
urstöðu, aö þau hafi meira að
vinna en tapa á samningaum-
leitunum.
Það sé nefnilega ekki alveg
vist, að ef til sprengingar kemur
— opinnar styr jaldar — berist á-
hrif hennar ekki út fyrir landa-
mæri Rhodesiu! ÞýG
*o'N?
* POSTSENDUM
TROLOFUNARHRINGA
JoÍMiinrs lcitsson
— U.tug.torgi 30
<5>inti 10 209