Vísir - 11.02.1969, Side 4
THELMA INGVARSDÓTTIR TALIN
MEÐAL FIMM BEZTU i PARÍS
Tappi í
eyranu
í 20 ár
Adrian Bennett, tuttugu og
þriggja ára, hefur náð heilsu.
Hinn ungi maður býr í Bridge-
water í Englandi, og nú hefur
læknum loks tekizt að komast
fyrir orsök hinnar þrálátu heym-
ardeyfu hans. Sjúkdómsgreining:
Adrian hefur verið með kork-
tappa í eyranu í tuttugu ár!
-X
„Það er engin frétt, þótt hund-
ur bíti mann,“ sagði ritstjórinn
við blaðamanninn sem var að
héfja starf hjá hinum fyrmefnda.
„En ef maður bítur hund, þá gegn
ir öðru máli.“
Þvi verður varla þagað yfir at-
viki, sem gerðist fyrir viku í fang-
elsinu í Acqui Terme á Ítalíu,
þegar Jolanda Caputo, sem er
kona þrftug að aldri, kom í heim-
sókn til manns síns. Hann beit
fráman af nefi hennar.
Hann var samstundis úrskurð-
aður í geðrannsókn, en hún hef-
ur sótt um skilnað á þeim forsend
um, að hann sé óður orðinn,
en ekki fylgir sögunni, hvort það
var hundaæði, sem að honum
gékkj
Hvort sem drottning Victoria-
Eugenia á eða á eldd La Pere-
grina, einhverja frægustu perlu
heims, þá vill prins Alfonso de
Bóubon Asturias gera úr því
vissu.
Prinsinn var nýlega yfirboðinn
á Parke-Bemet uppboðinu, fræga,
af Richard Burton, sem keypti
perluna til þess að bæta í hið
fræga skartgripasafn Elizabetar
Taylor. Alfonso hefur nú boðið
Burton tvöfalt kaupverð perlunn-
ar, sem slegin var á 37.000 doll-
ara.
Hinn kurtéisi aðalsmaður á
ekki aðra ósk heitari en þá, að
fæm hinni áttræðu, fyrrverandi
drottningu Spánar, perluna að
gjöf sem hollustuvott La Pere-
grina var i eigu drottningarinnar,
en þjónustustúlka hennar fullyrð-
ir, að perian sé enn f tryggri
geymslu í Sviss — ennþá í eigu
drottningarinnar.
Aðspurður um, hvers vegna
hann hafí hækkað upphæðina i
74.000 dollara, svaraði Alfonso:
;,Ég óttaðist, að hann mundi eng-
an áhuga fá á sölu á perl-
unni, ef ég hækkaði prísinn
aðeins um nokkur þúsund. — Það
kann að vera, að frú Taylor sé
drottning á sinu sviði, en af sögu-
legum ástæðum finnst mér, að
perlan eigi að vera áfram eign
Eugeniu drottningar."
„Pr'imadonnan" svaf yfir sig á frumsýningardegi,
segja dönsk blób, en óstundvisi báir henni
annars ekki
Danskir keppinautar:
Birgit Larsen.
Dönsk blöö skrifa vel um
Thelmu Ingvarsdóttur þessa dag-
ana. í fyrirsögn eins þeirra er
hún kölluð „dönsk stúlka“, en
annars „dönsk-íslenzk tízku-
dama“. íslendingar vilja þó eigna
sér Thelmu. — Frásögn eins blaðs
ins er eitthvaö á þessa leið:
„Thelma Ingvarsdóttir, sem áð-
ur var dönsk-íslenzk tízkusýning-
ardama, en er nú franskari en
flestar aðrar, umtumaði frumsýn-
ingu í tízkuhúsinu Ferraud í Par-
ís. Hún svaf yfir sig. Thelma
heföi ekki komizt upp með það
fyrir nokkrum árum, en nú er
hún „stjarna", í hópi fimm eða
sex þeirra beztu tízkudama í
París. Þess vegna getur hún leyft
sér ýmislegt, sem „prímadonnur"
mega gera. Annars háir slíkt at-
hæfi henni ekki.
í einkalífi er Thelma sú hiri
sama létta stúlka, sem hún hef-
ur alltaf veriö. Dálítið grennri,
dálítið öruggari og miklu yndis-
legri en menn muna hana úr
tízkuheiminum í Kaupmannahöfn.
Á tindinum.
Thelma Ingvarsdóttir hefur ver
ið nálægt því að skipta um eftir-
nafn nokkrum sinnum, síðan hún
kom: til Parísar. Eitthvað er talað
um bezta kappakstursmann Par-
ísar. „Maöurinn í lífi hennar" nú
er þekktur ungur lögfræðingur,
sem á framtíðina fyrir sér.
Þessi glæsilega stúlka, sem er
áhugasamari um morgunlúr sinn
en vekjaraklukkuna, starfar til
skiptis á Ítalíu og í Frakklandi.
Einnig kemur hún við í Englandi.
Blaðamaðurinn spurði hana
hversu mikiö hún fengi í laun á
tindi frægðarinnar. Thelma svar-
aði: Nóg.
1 tízkuhúsinu Real var önnur
dönsk stúlka gráti næst. Það var
hin ljóshærða Grete Thomsen,
sem finnast starfssystur sínar hér
í París ekki sérlega ^amvinnu-
Thelma er nú á tindinum í tízkuheimi Parísar.
þýðar. Hún hefur líka staðið
sig vel.
Grete fékk sitt tækifæri sem
ljósmyndafyrirsæta, og nú starfar
hún í París og er á uppleið.
|
Erfitt starf.
Svo er önnur Grete með eftir-
nafnið Kaspersen. Hún hefur
grennzt tapað tuttugu pundum á
öllu saman. Þá má nefna Birgit
Larsen, sem hefur náð miklum
-frama sem Ijósmyndafyrirsæta
hjá Elle. — og fleiri og fleiri —“
Þannig skrifar eitt danskt blað
um sýningardömumar. Þær eru
í sviðsljósinu, eins og leikarar og
kóngafólk, og verða að láta sér
lynda að sérhvert atriði í einka-
lífi þeirra, smátt og stórt, sé
dregið fram í dagsljósið. Eins og
allir vita ér margt ekki alveg
sannleikanum samkvæmt, sem
um þetta blessaða fólkl er sagt.
Hins vegar er augljóst, að Thelma
er meðal þeirra allra dáðustu í
París.
LÖGREGLAN EFLD Á GRÆNLANDI
Afbrotum hefur fjólgab, enda þétfbýli laukizt
— Það er mikil mannekla á
grænlenzkum lögreglustöðvum.
segir Jörgen Hertling í Godthaab,
en hann er lögreglustjóri Græn-
Iands. „Tregða manna til þess að
ganga í liðið var slík, að okkur
var hreint ekki farið að lítast
á blikuna."
En nú hafa horfumar batnað
og lfkur aukizt fyrir því, að
mönnum þyki nú lögregluþjóns-
staða á Grænlandi eftirsóknar-
verðari en áöur. Grænlenzkur lög
regluþjónn hafði áður í byrjunar-
laun kr. 850 danskar, en fjármála
ráðuneytið danska hefur fallizt
á að hækka þau laun upp í 2000
kr. danskar á mánuöi.
„Alls eru 22 menn í græn-
lenzka lögrqgluliðinu og er langt
frá því aö það fullnægi þörfinni,"
segir Jörgen lögreglustjóri. „Nú
hefur fengizt leyfi til þess að ráða
fimm nýja menn til viðbótar."
Fjöldi afbrota á Grænlandi hef-
ur aukizt óhugnanlega hin síðari
ár, í svipuðu hlutfalli og kaup-
túnin hafa stækkað, en hins veg-
ar hefur lögregluliðið ekkert verið
eflt í mörg ár. Möguleikar til
þess að senda liðsauka frá næstu
lögreglustöðvum eru sáralitlir.
Lögsagnarumdæmið, Egedes-
minde, er t. d. jafnstórt að flat-
armáli og Danmörk öll, en þar
eru aöeins þrír lögreglumenn til
þess að halda uppi röö og reglu.
Enda gerðist það fyrir nokkrum
árum, að það tók hálft ár að ná
tiF moröingja, sem hélt ttl í ein-
um útkjálkanum.
Yfirstjóm hverrar lögreglu-
stöðvar f Grænlandi, nema í Um-
anak og Artgmagssalik, er í hönd-
um skólaðra danskra lögreglu-
manna, sem hafa sér til aðstoðar
grænlenzka lögregluþjóna, er
gengið hafa á lögregluskóla ríkis-
ins. Lögreglan starfar undir emb-
ætti lénsfógetanna. Auk lög-
reglubílanna býr lögregluliðið
ekki yfir öðrum aðstoðartækjum,
en einni björgunarskútu.