Vísir - 17.05.1969, Blaðsíða 13
V í SIR . Laugardagur 17. maí 1969.
13
Úrval úr dagskrá næstu viku j JHtöntGðtn
SJONVARP
Sunnudagur 18. maí
18.00 Helgistund. Séra Óskar J.
Þorláksson, dómkirkjuprestur.
18.15 Stundin okkar. „Tíu litlir
negrastrákar" — börn úr
Laugalæk.jarskóla flytja. Norsk
skíðamynd. „Ferðin til Oz“ III.
hluti. „Höfðaskolli" — lokaþátt
ur. Umsjón: Svanhildur Kaaber
og Birgir G. Albertsson.
20.20 Lucy Ball. í bamasköla
hersins.
20.45 Samleikur á flautu og pianó
Charles Joseph Bopp og Elena
Bopp Panajotowa leika sónötu
í F-dúr K. 13 eftir Mozart og
ballööu fyrir flautu og píanó
eftir Frank Martin.
21.00 f svipmyndum. Steinunn S.
Briem ræðir við Jónínu Guð-
mundsdóttur, hannar, og Þór-
unni Magnúsdóttur leikkonu.
21.30 Lifandi eftirmynd. Brezkt
sjónvarpsleikrit eftir James
Broom Lyune. Aðalhlutverk:
Alec Clunes, James Villiers,
Elizabeth MacLennan og Alexis
Kanner.
22.20 Kalmar-ályktunin. Danska
sjónvarpið fékk nýlega nokkra
rithöfunda og menntamenn til
að ræða norræna samvinnu á
fundi í Kalmar og er í þessari
dagskrá úrdráttur úr umræðun-
um. Meðal þátttakenda eru
Thor Vilhjálmsson, rithöfundur
og Þörir Kr. Þórðarson. próf.
Mánudagur 19. maí
20.30 Apakettir. Frá öðrum heimi.
20.55 Hvað er á seyði í mennta-
skölunum? Þriöji þáttur. Einar
Magnússon, rektor Menntaskól
ans i Reykjavik og Guðmundur
Arnlaugsson, rektor Mennta-
skólans við Hamrahlið, svara
nokkrum spurningum um skól-
, ana, markmið þeirra og skipu-
lag. Einnig er rætt við nokkra
nemendur. Umsjónarmaður
Andrés Indriðason.
21.40 Gannon. Bandarísk sjón-
varpskvikmynd, síðari hluti. —
'Leiksfjóri jafrtes' Goldstone. Að
alhlutverk: Stanley Baker,
teslie Nielsen, Jack Weston,
heree North og Signe Hasso.
ÞfflðjudapF’SflT'níaí
20/30 Setið .ijnjíjirjsvörum.
21Í00 Á flóttá. Tveir á flotta.
21.50 fþróttir. Sýndur verður
hluti úr landsleik íJrnattspyrnu
mifíT Englendinga og' Skota.
Miðvikudagur 21. maí
18.00 Lassi — -Fintn^
18.25 Hrói höttur — ' Huldufólk.
20.30 Fagur fiskur í sjó. Sagt
frá störfum um borð í kajja4jsku
hafrannsóknaskipi' sém fyígist
með ferðum laxins í norðan-
verðu Kyrrahafi. .
20.55 Trönurnar fljúga. Rússnesk
kvikmynd gerð árið 1957, Leik-
stjóri: Mikhájl Kaltózov.
Föstudagur 23. maí
20.35 Dugnaðarforkar. Ýmsir hafa
þótzt sjá sitthvað likt með
maurum og mönnum, einkum
þeim þjöðfélögum, sem gera
minnst úr einstaklingnum og
sjálfsvitund hans. Þetta er önn-
ur myndin í myndaflokknum
„Svona erum við“.
21.00 Grín úr gömlum myndum.
Bob Monkhouse kynnir.
21.25 Dýrlingurinn. Snilldaráætl-
unin.
22.15 Erlend málefni.
Laugardagur 24. maí
18.00 Endurtekiö efni: „Það er
svo margt“. Kvikmyndaþáttur
Magnúsar Jóhannssonar. Að
þessu sinni verða sýndar mynd
irnar „Hnattflug 1924“, „Skíða-
gaman“ og „Laxaklak“.
18.35 „Vorið er komið“. Skemmti
dagskrá í umsjá Flosa Ólafsson
ar. Auk hans koma fram Sig-
ríður Þorvaldsdóttir, Margrét
Guðmundsdóttir, Helga Magn-
úsdóttir, Egill Jónsson, Gísli A1
freðsson, Karl Guðmundsson
og Þórhallur Sigurðsson.
20.25 Tamdir smáfuglar. íbúar
fuglabæjarins Chirpendale una
glaðir við sín daglegu störf, en
þeir eiga einn óvin —■ krákuna
svörtu, sem kemur öðru hverju
og flytur með sér skelfingu og
eyðileggingu. Myndin er leikin
af fuglum.
21.15 „Leiðarljós". Erla Stefáns-
dóttir syngur nokkur vinsæl
lög.
21.30 Einhvers staðar við ána
Xingu. Á bökkum Xingu-fljóts,
inni í myrkviðum Brasilíu, búa
ýmsir Indíánaþjóðflokkar við
siðmenningu, sem er á svipuðu
stigi og með steinaldarmönnum
í árdaga.
22.00 Ríkarður Ijónshjarta og
krossfararnir. Bandarísk kvik-
mynd gerð árið 1954 eftir sögu
Walters Scotts. . ,
UTVARP
Sunnudagur 18. maí
10.25 Þáttur um bækur. Ólafur
Jónsson, Magnús Már Lárusson
prófessor og Björn Þorsteins-
son sagnfræðingur ræða um
„Vínlandspúnkta" eftir Halldór
Laxness.
11.00 Messa í safnaðarheimili
Langholtssóknar. Prestur: Séra
Sigurður Haukur Guðjónsson.
19.30 Gunnar Gunnarsson skáld
áttræður. a. Dr. Steingrímur J.
Þorsteinsson prófessor flytur
erindi. b. Gunnar Gunnarsson
les kafla úr sögu sinni „Svart-
fugli". c. Andrés Björnsson út-
varpsstjóri les smásögu.
20.30 „Veizlan á Sólhaugum“ leik
hústónlist eftir Pál ísólfsson.
Sinfóníuhljómsveit íslands leik-
ur, Bohdan Wodiczko stj.
20.45 Sagnamenn kveða. Ljóð eft-
ir Gunnar Gunnarsson og Jak-
ob Thorarensen. Baldur Pálma-
son sér um þáttinn og les
ásamt Brodda Jóhannessyni.
21.10 Sónata í G dúr fyrir fiðlu
og píanó (K301) eftir Mozart.
21.25 Heyrt og séð á Húsavík.
Jónas Jónasson ræðir við leik-
félagsmenn, Sigurð Hallmars-
son, Halldór Bárðarson og Ingi-
mund Jónsson, og flutt verða
stutt atriði úr „Púntila og
Matta“ eftir Bertold Brecht.
Mánudagur 19. maí
13.15 Búnaðarþáttur. Óli Valur
Hansson ráðunautur talar um
kartöflur og gulrófur.
19.30 Um daginn og veginn. Stein
ar Berg Björnsson viðskipta-
fræðingur talar.
20.20 Guðspjöllm og manngildið.
Ólafur Tryggvason á Akureyri
flvtur erindi.
20.45 Tónlist eftir Pál P. Pálsson,
tónskáld mánaðarins.
21.C3 „Hræddi maðurinn með orf-
ið og Ijáinn", frásögn Málfríðar
Einarsdóttur. Elías Mar rithöf-
undur les.
21.15 Klarínettukonsert í Es-dúr
eftir Weber.
21.40 íslenzkt mál. Ásgeir Blöndal
Magnússon cand. mag. flytur
þáttinn.
22.35 Hljómplötusafnið.
Þriðjudagur 20. maí
19.35 Þáttur um atvinnumál i um-
sjá Eggerts Jónssonar hagfr.
20.00 Lög unga fólksins. Gerður
Guðmundsd. Bjarklind kynnir.
20.50 Skotlandspistill. Hallgrímur
Snorrason segir frá. „
21.05 Einsöngur í útvarpssal: Guð
mundur Jónsson syngur. Ólafur
Vignir Alberts, leikur á píanó.
Miðvikudagur 21. maí
19.30 Tækni og vísindi: Eðlisþætt-
ir hafíss og hafískomu. Dr. Unn
steinn Stefánsson efnafræðing-
ur talar um hafstrauma norðan
íslands.
20.20 Kvöldvaka. a. Lestur forn-
rita, Kristinn Kristmundsson
cand. mag. endar lestur Skáld-
skaparmála (3). b. Kvæðalög.
Jón Sigurgeirss. í Hafnarf. kveð
ur. c. Æðarræktarfélagið. Berg-
sveinn Skúlason flytur frásögu-
þátt. d. Lög eftir Pál Isólfsson.
e. Hvolshjón og Hvolsbrenna.
Þórður Tómasson safnvörður í
Skógum segir frá. f. í hending-
um. Sigurður Jónsson frá
Haukagili flytur vísnaþátt,
22.35 Knattspyrnupistill.
Fimmtudagur 22. maí
19.35 Tónlist eftir Pál P. Pálsson,
tónskáld maímánaðar.
19.55 Á víðavangi. Ámi Waag tal
ar við Sigríði Pétursdóttur á
Ólafsvöllum um íslenzka hund-
inn.
20.30 Sinfóníuhljómsveit Islands
heldur tónleika í Háskóíabiói.
21.30 Bertolt Brecht sem ljóð-
sxáld. Viðtal 'dð Þorstein Þor-
steinsson, sem kynnir sum ljóð-
in. Ólafur Haukur Símonarson
sér um dagskrána ásamt Ólafi
Kvaran.
22.15 Frá fsrael. Benedikt Grön-
dal alþingismaður flytur fyrra
erindi sitt.
22.40 Barrokktónlist.
Föstudagur 23. maí
14.30 Við sem heima sitjum. Hers
ilia Sveinsdóttir les frumsamda
smásögu: Gæfuspor.
19.30 Efst á baugi. Tómas Karls-
son og Björn Jóhannsson fjalla
um erlend málefni.
20.20 Saga kristnihalds undir Ási
í Fellum. Séra Ágúst Sigurðs-
son í Vallanesi flytur erindi.
20.55 Úr tónleikasal: Bandaríski
píanósnillingurinn Lee Luvisi
leikur.
21.30 Útvarpssagan: „Babelsturn-
inn“ eftir Morris West. Þor-
steinn Hannesson les (1).
22.35 Kvöldhljómleikar: Frá tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í Háskólabíói kvöldið
áður,
Laugardagur 24. maí
15.20 Um litla stund. Jónas Jón-
asson ræðir við Árna Óla rith..
um Elliðavatn og umhverfi þess
19.30 Daglegt líf. Árni Gunnars-
son fréttamaður stjómar þætt-
inum.
20.00 Bellman-söngvar.
20.25 Maí. Anna Snorrad. spjall-
ar um vorið og kynnir ljóð og
lög.
21.05 Mars og valsar eftir Johann
Strauss.
21.25 Leikrit: ,,Óttinn“ eftir Ant-
on Tsjekhoff., Leikstjóri Ævar.
R. Kvaran.
2215 Á undan hvítasunnu. Ása
Beck kynnir iéttklassíska tón-
list og kafla úr tónverkum.
Slysahæfta á vorin
Þaö fylgir útiverunni í góða
veðrinu á vorin aukin slysa-
hætta. Börnin sækja mikið út á
götuna sem eðlilegt er, sérstak-
lega þar sem langt er á útileik-
vang. Mikið átak hefur að vísu
verið gert til þess að auka rými
til Ieikvalla alls konar, en aug-
ljóst er, að í þéttbýlinu þarf að
ganga langt í því efni að skapa
yngstu borgurunum svigrúm.
Jafnframt því sem afmörkuð
eru cnn fleiri svæði til leika og
íþrótta fyrir böm og unglinga,
þarf nauðsynlega að minnka
sem mest umferð barnanna
éinna á götunni.
Sérstaklega í sutnum borgar-
hverfum Reykjavíkur er það á-
berandi hve börn virðast vera
mikið á götunni, jafnvel þó úti-
svæði séu á næsta leiti. Þarna
verða foreldrar að grípa inn í
og beina börnunum til þeirra
svæða sem þeim eru sérstaklega
ætluð. Fótbolti eða handbolta-
leikur á ekki að eiga sér stað á
götunni, og oft má sjá smáböm
með þrihjól á fleygiferð eftir um
ferðargötum, og þau skeyta
hvorki um bílflaut eða aðvörun-
arköll vegfarenda. Stundum á
þetta rætur sínar að rekja til
kæruleysis hinna fullorðnu, þó
að vísu sleppi börnin oft út úr
húsagörðum, bar sem þau hafa
verið í gæzlu. En við hinu verð-
ur seint of oft varað að láta
börnin vera á götunni eftir-
litslaus.
Öllum finnst sjálfsagt að hafa
vel snyrtar lóðir í kringum hús
sín. En þegar barnafjölskyldur
ganga svo Iangt í snyrtimensk-
unni og blómadýrkun, að börnln
mega ekki vera inni á lóðum
húsa þeirra, sem þau eiga þó
heima I, þá er gengið eínum of
langt. Grasbletturinn inni á ióð-
um húsanna er hollari og trygg-
ari leikvangur fyrir börnin en
gatan, sem er stórhættuleg.
Meö vorinu og góða veðrinu
skapast einnig stórhætta á öðru
sviði, en þar eru það ekki litlu
börnin, sem aðgæzlu þurfa við.
Smábátaeign hefur stóraukizt og
mörgum finnst það góð upplyft-
ing að bregða sér í bátsferð. En
það þarf ætíð að fara með gát
á sjóinn, jafnvel þó hann sé
spegilsléttur, þegar ýtt er úr
vör. Fljótt geta skipazt veður í
lofti. Einnig hefur það sýnt sig,
að þessar fleytur margar sem á
boðstólum eru, eru vlðsjár-
verðar og geta verið hinir mestu
háskagripir. Það er svo furðulegt
að okkar stranga skipaeftirlit
og okkar ágæta Sh/savarnafélag
skuli ekki gera enn meira til þess
að auka öryggi á smáskipum.
Leiðbeiningar og áróður og
hreint eftirlit með þeim bátum,
sem á boðstólum eru og fram-
leiddir eru í stórum „seríum“
þarf að verða fastur liður.
Brýna þarf.fyrir bátamönnum,
að árar þurfi að vera með í bát-
um þó að þeir séu með utan-
borðsmótor, því það hefur reynd-
ar komið fyrir að bátavélar bila
ekki síður en bílvélar. Einnig á
engin fleyta að fara frá landi
nema björgunarbelti af réttri
gerð sé með i ferðum.
Þrándur í Götu.
AUGlfWég hvili dbi *•
með gleraugumfrá IWÍI
AUSTURSTRÆTI 20 "
Vélnbökhald — Reikningsskil
BÓKHALD OG UMSÝSLA H/F
ÁSGEIR BJARNASON
Laugavegi 178 - Box 1355 • Simar 84455 og 11399
Sdelmann
KOPARFITTINGS
EIRRðR
‘11
HVERGE MEIRA
ORVAL
ao&Gi
Laugavegi 178, sími 38000. |