Vísir - 23.08.1969, Síða 16
•II
„Þetta er eins og / móðurlífí
— Fyrsta mannaba geimfarið komib til landsins — „The Red Arrows" koma 3. september
„Þetta er eins og í
móðurlífi“, varð einum
að orði er hann leit inn í
geimfarið, Freedom 7,
sem komið var með á
Flugmálasýninguna hér
í Reykjavík kl. 2.30 í
gær. Þetta geimfar verð
ur meðal annarra sýn-
ingargripa á sýningunni
sem opnuð verður á
fimmtudaginn.
Freedom 7 er af Mercurygerð
og fyrsta mannaða geimfar
Bandaríkjamanna. Var bví skot-
ið á loft í maí 1961 með
geimfarann Ailan B. Shepard
innanborðs. Geimfarið lenti á
Atlantshafi eftir 15 mínútna
og 22 sekúndna flug. Þar af var
Shepard í þyngdarleysi í 5 mín-
útur. Geimfarið er um 3 m á
hæð og vegur um 2 tonn. Á því
er gluggi og má sjá likan af
geimfaranum þar inni, svo
og "H stjórntæki. Var heilmikill
viðbúnaður, er bvi var lyft af
flutningabil Varnarliðsins og
komið fyrir í sýningarskemm-
unni á Reykjavíkurflugvelli. Það
v r bandaríski flugherinn, sem
flutti bað hingað en ekki Loft-
leiðir, eins og af vangá var sagt
í Vísi i fyrradag.
Þaö má segja aö í sýningar-
skemmunni megi nú sjá gamla
og nýja tímann þar sem gamla
Avroflugvélin stendur við hlið
geimfarsins. En auk þessa eru
enn ókomnir ýmsir gripir sem
tengja munu saman það gamla
og nýja. Þar á meðal eru líkön
af ýmsum flugvélategundum,
sem komið verður fyrir í röð á
miðju gólfi. Er vænghaf þeirra
um 2 til 3 m. Það er Björn Jóns-
son hjá Loftleiðum sem borið
hefur hita og þunga af undir-
búningi sýningarinnar og var
hann viðstaddur, er geimfarið
kom. Þá voru einnig þrír menn
frá brezka flughernum, en þeir
hafa umsjón með þeim hlutum,
sem frá Bretlandi koma. Foringi
þeirra Sq. Lr. John Reed upp-
lýsti að nú væri fullvíst að hin
fræga flugsveit The Red Arrows
sem af mörgum er talin bezta
sýningarsvc!f sinnar tegundar,
Ein bezta þotusveit heimsins
„The Red Arrows“ kemur hing-
aö og sýnir listir sínar. Hér
steypir sveitin sér lóðrétt niður
iangt ofar skýjum.
^erðamálasérfræð-
ingur S.Þ. í
heimsókn
® Hingað er nú kominn á veg-
um Sameinuðu þjóðanna danskur
ferðamálasérfræðingur, Ejlar Al-
kjær. Vísir fékk þær upplýsingar
á skrifstofu Ferðamálaráðs, að Al-
kjær væri hér þeirra crinda að
l<ynna sér aðbúnað feröamanna á
Islandi og vera til ráðuneytis um
úrbætur.
Framkvæmdastjóri Feröamála-
ráðs, Lúðvíg Hjálmtýsson, hefur |
haft veg og vanda af komu Alkjær, |
og eru þeir nú um þessar mundir
á ferð um Norðurland. Ejlar ÁI-
kjær kom hingað fyrir nokkrum
á ..m og þá á eigin vegum .
Um 550 kenn-
- * • m m
arar á skólabekk
• Um 550 kennarar víðs veg-
ar af landinu sækja hin ýmsu
kennaranámskeið, sem haldin
eru hér í sumar. Námskeiðin
standa nú sem hæst, sum hver
öðrum er lokið og enn önnur
fara að byrja.
Á mánudaginn var hófst kenn-
aranámskeið í ensku í Hamrahlíð-
arskólanum, sem Heimir Áskels-
son stjórnar, en það námskeið
sækja yfir 40 kennarar. Kennari
þar er dr. Lee, þekktur maður i
sinni grein. Sama dag var dönsku
kennaranámskeið sett í Kennara-
skóla íslands, en kennslufyrirkomu
lag er unnið af Kennaraháskóla
Kaupmannahafnar. Þetta námskeið
sækja 25 kennarar, en aðgangur
var miðaður við þann fjölda. Á
þessu námskeiði er fjallað um
kennslu byrjenda í dönsku.
Þá er nýhafið námskeið fyr-
ir söng- og tónlistarkennara í Tón-
listarskólanum meö 26 þátttakend-
um. Kennarinn er þýzkur, Margar
etha Daub, en námskeiðinu stjórn
ar Stefán Edelstein. Námskeið fyr-
ir íþróttakennara er að hefjast í
Gagnfræöaskóla Austurbæjar.
Námsefnið er sundkennsla og taka
90 manns þátt 1 því. Kennari er
Kaj Warning, yfirkennari við Dan-
marks hojskole for legemsovelse.
Á mánudag hefst hið fyrsta af
þrem námskeiðum í mengjafræöi
fyrir kennara 7, 8 og 9 ára barna,
í Hagaskóla. Á annað hundrað kenn
ara taka þátt í því. Námskeiö handa
vinnukennara pilta hefst 1. sept.
með 30 þátttakendum í Laugarnes-
skóla, þar verður kennd blikk-eir-
og málmsmíði. Loks má geta þess
að Kennarafélagið Hússtjórn hefur
námskeið í textílfræðum núna f
nýbyggingu Menntaskólans í
Reykjavík, kennari er norskur og
um 40 húsmæðraskóla- og hús-
stjórnarkennarar taka þátt í því.
komi hingað þann 3. sept. frá
Bretlandi. En það verður því
aðeins að hér sé gott veöur,
þar eð þoturnar hafa engan
varavöll hér á landi. í sveitinni
eru 12 flugvélar en aðeins 9
þeirra munu sýna listir sínar.
Mercury-geimfarið Freedom 7 kom með Varnarliðsbíl til Reykja-
víkur í gær. Hér er verið að setja það niður á skemmugólfið.
Akureyringar fá líka
Útlagann
//
//
Þetta var bara mín eigin hug-
mynd og ég vildi einungis sýna
með því vinarhug til Akureyrar,
sagði frú Anna Jónsson, ekkja
Einars Jónssonar, myndhöggv-
ara, þegar Vísir hringdi til henn-
ar í gær. En hún hefur gefið
Akureyrarbæ afsteypu af hinu
kunna listaverki eiginmanns
síns, Útlaganum.
Myndin verður sett upp á gras-
flöt við gatnamót Eyrarlandsvegar
og Hrafnagilsstrætis og var sá
staður valinn í samráði við gefand-
ann. Uppsetningu afsteypunnar
kostar Menningarsjóður Akureyrar
og er reiknað með að hún verði
komin upp fyrir haustið.
Skotóðir unglingar skemma fyrir þúsundir"
— segir formaður Skotfélags Reykjavikur
13 Verðmæti fyrir tugi til
hundruð þúsunda fara árlega f
súginn, vegna ábyrgðarlausra
skemmdarvarga, sem hafa kom-
izt yfir skotvopn og finna ein-
hverja fróun í því að velja sér að
skotmörkum verðmætar eignir
mgnna.
Fg „Við förum ekki varhlutq af
bessu heldur“, sagði formaður
Skotfélags Reykjavíkur Axel
Sölvason, þegar blaðamaður
Vísis, í tilefni af atvikinu á golf
vellinum uppi í Grafarholti f
fyrrakvöld, spurði hann eftir
því, hvort satt væri, að þeir yrðu
einnig fyrir ágangi skotmanna.
„Já, ef skotmenn skyldi kalla,
því þetta eru oft byssuleyfislausir
unglingar, sem kunna ekki undir-
stöðuvarúðarreglur f meðferö skot-
vopna, eins og atburðurinn á golf-
vellinum sýnir, þar sem svo virð-
ist, sem mennirnir hafi ekki einu
sinni haft fyrir því að skyggnast
eftir því, hvað er á bak við skot-
mark þeirra i skotlínunni“, sagði
Axel.
„Árlega valda þeir okkur tjóni
)á skotsvæðinu okkar þarna uppfrá
! svo að þúsundum skiptir. Við höf-
| um þar þrjú skýli, læst — eitt viö
riffilbrautina og tvö fyrir kastvél-
ar, sem varpa leirdúfum yfir völl-
inn fyrir haglabyssuskyttur að æfa
sig á — og á þau hafa menn ráð-
izt, svo oft, að við höfum týnt á
því tölunni. Viö höfum hreinlega
ekki við að kaupa okkur læsing-
ar“
Axel kvað það ekki vera neitt
nýjabrum hjá þeim, að þurfa að
stugga burt mönnum, sem kæmu
á svæðið til þess að æfa sig, en
hirtu ekki um ákveðnar reglur,
sem þar giltu um skotstefnur og
annað í sambandi við skotæfingar.
„Viö göngum mjög ríkt eftir því,
j að þær reglur séu haldnar, því
, þetta svæöi er, á margra kílömetra
I svæði, eina afdrep manna, sem eiga
' skotvopn og vilja halda skotfim-
! inni við, eða þurfa að stilla miðin
á byssunum sínum, áður en þeir
fara í veiðferðir.
Auk þess að spilla þarna hjá
okkur uppfrá, varpa þessir piltung
ar á okkur tortryggni og rýra álit
okkar í Skotfélaginu út á við, því
almenningur ætlar þá vera úr okk-
ar hópi. Þess vegna þyrfti nauð-
synlega að hafa hendur í hári svona
pilta, eins og þeirra þarna á gplf-
vellinum, svo aðrir Iægju ekki und
ir grun um athæfið".
Aeykvíkingar verða javí ekki leng
ur einir um þettajágæta listaverk.
Hins vegar sagði frú Anna, þegar
við spurðum hana, hvortmeiningin
væri að láta-gera fleirí afsteypur af
verkinu, að svo væri ekki, að
minnsta kostí ekkStí'-bráð.
Sfal hrosshúð,
en hárin komu
upp um hann
• Maður nokkur stal í gærdag
gullfallegri hrosshúð, sem strengd
hafði verið upp á vegg minjagripa-
verzlunar í Hafnarstræti i auglýs-
ingaskyni — en til hans sást á
hlaupunum meö hrosshúðina og
hann þekktist.
Hafði lögreglan hendur í hári
þjófsins, en hann þrætti eindregið
fyrir að hafa nokkurn tíma snert
umrædda 3720 króna hrosshúð,
sam var gráleit. Föt mannsins voru
þó öll í gráum ,.árum og áttu menn
bágt með að trúa því, að þau stöf-
uðu frá því, að maðurinn væri að
ganga úr hárunum, enda vafðist
honum tunga um tönn, pegar lög-
reglumennirnir báðu hann um að
i ský ra b.'i."-
Játaði hann þá hrosshúðarstuld-
i inn og vísaði lögreglunni á skósmið
, sem hafði keypt húöina af honum
I á 400 krónur. Fyrir þær hafði hann
! hins vegar keypt sér ákavítisflösku
j og var byrjaður á henni, þegar til
I hans náöist .
VÍSIRl^
Laugaraagur 23. agust iaea.
AUGLYSINGAR
ADAtSTMTI 8
SIMAR 1.1640
1*66.10 ofl 1.50-9?
BOLHOLTI 6 SlMI 82145
a a . fi»r
shæm ooo
mm ©tesr' .þjoHusn
SVANS-PRENT
SkEIFAN 3 - SÍMAR 82605 OG 81754
TRYGGING
IIF.
* * *
íing)
LAUGAVEGI 17« B
SÍMI21120 B