Vísir - 20.09.1969, Blaðsíða 1
VISIR
LÁN HÚSNÆÐISMÁLASTJÓRN-
AR HÆKKUÐ í 440 ÞÚS. KR.
Lán frá Húsnæðismálastjórn hafa I þeir mest 395 þúsund. I'bráðabirgðalán Seðlabankans. Ekki
verið hækkuð, og verða hámarkslán | Mikið er að gera hjá Húsnæðis- er fullvíst, hversu margar umafikn
á íbúð 440 þúsund fyrir þá, sem málastofnuninni þessa dagana og ir verða afgreiddar nú, en útborgan
byrjuðu að byggja hús s(n á þessu stöðugt verið að afgreiða umsóknir, ir verða 1. október, 1. nóvember, 1.
ári. Hafi menn byrjað í fyrra, fá I enda hafa horfurnar vænkazt, eftir I desember og síðan 1. febrúar.
<S>-
AthuguS verði 75% virkjanlegs vatnsafis
— Orkustofnunin leggur til v/ð rikisstjórnina
oð kanna raforkúmöguleika, sem gæfu af sér
rúmlega 6 milljaröa árlega i raforkuverb
■ Orkustofnunin hefur í
sumar unnið að áætl-
unargerð um rannsóknir á
virkjunarmöguleikum hér
á landi. Áætlunin hefur nú
verið send ríkisstjórninni,
en í áætluninni leggur
stofnunin til að frumathug-
un verði gerð á næstu 5 ár-
um á þremur fjórðu hlut-
um virkjanlegs vatnsafls á
íslandi. Þetta vatnsafl
myndi gefa af sér 27.000
gígawattstundir á ári, en
til samanburðar má geta
þess, að áður en Búrfells-
virkjunin fór í gang var öll
vatnsaflsraforkufram-
leiðsla landsins um 700
gígawattstundir (GWh).
Ef miðað er við raforkuverð það,
sem álverið í Straumsvík greiðir
fyrir raforkuna frá Búrfelli, næmi
seld raforka frá virkjunum, sem
nýttu þetta vatnsafl, rúmum 6
milljörðum króna á núverandi verð-
lagi, þ. e. jafngilti nokkurn veginn
heildarútflutningsverðmætum lands
ins eins og þau hafa verið að und-
anförnu.
Þess má þó geta, að gjaldeyris-
tekjur, hvort sem raforkan yrði
seld erlendum eöa innlendum aðilj-
um, væri margföld þessi upphæð.
Þetta vatnsafl, sem stofnunin
leggur til að kannað verði, er á
þremur svæðum. Langstærst þeirra
er Þjórsár-Hvítársvæöið, en heildar
raforkuframleiðslan á því svæði
Laxveiði lýkur í dag
— Laxá i Kjós hæst með yfir 1600 laxa
• í dag treina laxveiðimenn
sér siðustu stundirnar á
þessu sumri við árnar, en lax
veiði lýkur víðast hvar í dag.
Margar ár hafa skilað mjög
góðri veiði í sumar. Laxá í
Kjós er þó tvímælalaust gjöf
ulasta áin að þessu sinni. Þar
hafa komið á land yfir 1600
laxar. Þverá í Borgarfirði,
Laxá í Þingeyjarsýslu og Eli-
iðaárnar hafa líka reynzt
mjög vel í sumar, búnar að
skiia 1100—1300 löxum.
Aftur hafa nokkrar ár verið
undir meðallagi, til dæmis Laxá
í Leirársveit, Langá og fleiri.
Kenna menn rigningunum eink
um um þetta. Laxinn hefurátt
mjög greiða uppgöngu í árnar,
þar sem þær hafa verið svo
vatnsmiklar og hann hefur því
ekki verið eins lengi á ferð-
inni í ánum í sumar og við eðli
legar aðstæður.
væri 17 þús GWh miðað við fulla
nýtingu svæöisins, en þar er nýt-
ing Skaftár innifalin og sömuleiðis
gert ráð fyrir að veita upptöku-
kvíslum skagfirzku jökulánna og
Skjálfandafljóts suður fyrir. Aðeins
þetta eina svæði hefur helming
virkjanlegs vatnsafls í landinu, sem
er um 35 þús. GWh.
Annað stærsta svæðið er í tengsl-
um við svokallaða Austurlands-
virkjun, en afkastageta þess væri
um 8 þús. GWh. Þriðja svæðið er
svæði Lax.árvirkjunar og Jökulsár
á Fjöllum með um 2 þús. GWh.
Okkur finnst ekki seinna vænna,
að fara að gera frumkönnun á
þessum vatnsaflssvæðum, ef ætlun-
in er, að búið verði að virkja þetta
vatnsafl í kringum 1990, sagði Jak-
ob Björnsson hjá Orkumálastofn-
uninni, en hann hefur stjórnað á-
ætlunargerðinni. — Það kann að
virðast langur tími að vera að tala
um, hvað á að gerast allt fram til
ársins 1990, en ef menn líta betur
á málin, sést, að þetta er ekki svo
ýkja langur tími, þegar svona fram
kvæmdir eru annars vegar. Allur
undirbúningur er seinlegur og
sömuleiðis tekur langan tíma að
reisa sjálf mannvirkin.
Okkur virðist hæpið að draga
þessar frumathuganir, segjum í 10
'ár, því með því væri hugsanlega
verið að dæma töluverðan hluta
vatnsaflsins úr leik sem auðlind.
Og við megum ekki heldur
gleyma því að tíminn vinnur á
móti okkur. Þróunin í orkumálum
er slfk, að samkeppnin við vatns-
aflsorku frá kjarnorku harðnar stöð
ugt, þó að hagkvæmar vatnsafls-
virkjanir hafi enn töluverða yfir-
burði.
Það er erfitt að vera með ná-
kvæmar tölur um, hvað þessi orku-
mannvirki myndu kosta, en Jakob
taldi það ekki vera mjög fjarri að
tala um 70 milljarða króna á nú- 1
verandi verðlagi.
40% sparnaður við
fyrsta áfanga
Tungnaárvirkjunar
Vegurinn þangað uppeftir 5 millj. undir áætlun
• Vegurinn, sem verið er að
ieggja frá Búrfelli upp að Sig-
öldu vegna framkvæmda Lands-
virkjunar þar verður rúmum 5
millj. kr. eða um það bil 2/5
ódýrari, en upphafleg áætlun
vegagerðarinnar gerði ráð fyrir.
Vegagerð þessi kemur til með
að kosta 300 þúsund í mesta
lagi hver km að meðtöldum öll-
um mælingum og undirbúningi.
?eðgarnir, sem voru að veiðum í Elliðaánum í gær voru meðal
íðustu laxveiðimanna á þessu sumri, því í dag er síðasti laxveiði-
lagur sumarsins. \
Vísir í
vikulokin
fylgir biaðinu í dag
til áskrifenda
Þessi vegarlagning var boðin út
og það voru nokkrir bílstjórar úr
Árnessýslu, sem áttu lægsta tilboð
ið í ofaníburðinn, 3,3 milljónir fyr
ir 32 km Iangan vegarkafla. — Ofan
íburðurinn var hins vegar áætlaður
6,2 milljónir. Þrír verktakar, Mið-
fell, Völur og Hlaðbær áttu hins
vegar lægsta tilboöið í sjálfan veg
arruðninginn, 4,76 milljónir, sem
hækkaði síðan upp í rúmar 5 millj
ónir vegna þess að ákveðið var að
gera veginn traustbvggðari en áætl
að var, vegna þess hvað vegargerð-
in reyndist ódýr. — Þetta verk átti
samkvæmt áætluninni hins vegar
að kosta 7,4 milljónir. Nú er búið
að semja við sömu aðila um að
ryðja veginn frá brúnni yfir
Tungnaá við Sigöldu og 10 km
leið austur fyrir Vatnsfell og annan
24 km þverveg af þeirri leið upp að
Þórisvatni; Öll er þessi vegarlagn-
ing undirbúningur undir vatnsmiðl-
unarframkvæmdirnar við Þórisvatn
og væntanlega virkjun við Sig-
öldu. Og það má því segja aö fyrsta
sporið, sem stigið er í þessum stór-
framkvæmdum bar efra lofi góðu.
Malbikað
úti í, móum
Nýlunda i hverfa-
uppbyggingu
■ Úti í móum, sem áður
voru sóttir af börnum í berja-
tinslu, standa nú þrjú stræti,
malbikuð, með ræsum og öllu
tilheyrandi, og ekkert vantar
nema húsin og íbúana.
■ Hvort tveggja er þó á
næsta leiti, því Íokið er úr-
vinnslu tilboða í III. áfanga
Breiðholts og víst orðið, að
verktakanum Breiðholti hf.,
sem átti lægsta tilboð í aðal-
verkið, verði falið að annast
framkvæmdirnar.
Er því ekki langt að bíða, að
þarna við göturnar, sem standa
tilbúnar í móunum, rísi 18 stiga
hús méð 180 íbúðum og þá
munu strætin ekki standa lengi
auð.
Úrvinnsla þeirra 70 tilboða, sem
bárust frá undirverktökum, og
50 efnistilboða, sem einnig bár-
ust í III. áfanga, er hálfnuð og
mun Ijúka væntanlega í næstu
viku.
Vísir náði tali af Guðmundi
Einarssyni, forst.ióra Breiðholts
hf., og spurði hann, hvenær
þeir mundu hefjast handa við
framkvæmdir, en hann kvað
enn ófrágengið frá samningurn
um verkið og því of snemmt að
fullyrða neitt um, hvenær byrj-
að yrði. Allar horfur eru þó á
því, að verklegar framkvæmdir
geti hafizt fyrir mánaðamót.