Mosfellsblaðið - 01.08.2000, Blaðsíða 5
Gististaðurinn „Refabúið". sem er hætt í rekstri sem slíkt, en breytt í
gistiaðstöðu undir stjórn Hclga lónassonar, en hann býr í Narsaa
ásamt fjölskyldu sinni. Þetta er rétt innan við bæinn í fallegu um-
hverfi, verönd við húsið og þrg'ttum veiðimönnum líður þarna vel.
■JwJJ STEMlfíir
sigurossonar og
félaga til Grænlands
Mosfellsblaðið ákvað að bjóða Bjarka Sigurðs-
syni, íþróttamanni Mosfellsbæjar 1999 í sjóbleikju-
ferð til Grænlands sumarið 2000 í tilefni af útnefn-
ingu hans. Skref Bjarka með Aftureldingu um hand-
boltasviðið eru ógleymanleg mörgum Mosfellingum
og þótti blaðinu rétt að innsigla þakklætið til hans og
fjölskyldu hans með Grænlandsferð, sem er gjörólík
öllu hans lífi.
Eftir þessa ákvörðun hafði Gylfi Guðjónsson fyrir
hönd blaðsins
samráð við Jóhann
Guðjónsson, for-
mann handknatt-
leiksdeildarinnar
um meðreiðar-
sveina íþrótta-
mannsins og til-
högun ferðarinnar.
Færri komust að
en vildu.
Bjarni Asgeir
Jónsson varaform.
deildarinnar ætlaði
með, en varð að
hætta við skömmu
fyrir brottför
vegna Suðurlands-
skjálftans. Hann
gerðist „vemdari“
ferðarinnar. Gylfi
Guðjónsson tók
flestar myndir sem
hér birtast og ritaði
ferðasögu.
Eftirtaldir menn
fóru í ferðina:
Bjarki Sigurðsson,
Jóhann Guðjóns-
son, Davíð B. Sig-
urðsson, Páll As-
mundsson, Ingvar
Hreinsson, Guðjón Öm Ingólfsson, Bjarni Óskars-
son og Gylfi Guðjónsson, allir úr Mosfellsbæ, þá
Svavar Sölvason úr Kópavogi og Julius Poulsen frá
Klakksvík í Færeyjum. Gylfi Guðjónsson fór þrem-
ur dögum á undan með félögum í öðmm hóp og lenti
á Landafundahátíð Leifs heppna við Eiríksfjörð
sunnudaginn 16. júli s.l. Þar var margmenni og há-
tíðin haldin bæði við Nassarsuaq flugvöll, þar sem
fjöldi fólks var með tjöld og mikil víkingahátíð, síð-
an að sjálfsögðu í Bratta-
hlíð hins vegar fjarðarins,
þar sem aðal hátíðahöldin
voru.
Myndir em frá þessum
mikla viðburði en síðan
kom Bjarki með sína hirð
þriðjudaginn 18. júlí,
glampandi sól allan tímann
og um 20 stiga hiti, en farið
var heim laugardaginn 22.
júlí.
- Sjá fleiri myndir
á næstu opnu
Á víkingahátíðina var mætt Elín
Reynisdóttir frá Mosfellsbæ, f.v.
einkarítari bæjarstjóra þar.
Hún er girt miklurn rýting og er
í fornbúningi. Ásarnt öðrum ís-
lendingum er Elín í víkingafé-
laginu Rimmugýgi, sem aftur er
í alþjóðlegum samtökum vík-
inga. Þarna var einnig staddur
Bárður Smárason, sem haft
hefur sýningaatriði í bardögum
víkinga, en hann mun leika Leif
Eiríksson í heimildarmynd sem
gerð verður af Kvikmyndafélag-
inu Andra og íslensku heimilda-
myndasamsteypunni. Myndin
verður sýnd í sjónvarpi.
í Brattahlfð var nrikið um að vera og hér er hr. Karl Sigur-
björnsson, biskup íslands. ánægður með hátíðahöldin, hann
var reyndar í fylgd með
biskupnum í Niðarósi.
Margt annarra íslenskra
jyrirmanna hitti blaða-
maður Mosfellsblaðsins,
má þar nefna alþingis-
mennina Sigríði Önnu
Þórðardóttur, Gísla
Einarsson, ísólf Gylfa
Pálmason, Guðmund
Hallvarðsson og Einar
Odd Kristjánsson.
Indíáni af Navaho ættbálki
frá Colorado í Bandaríkj-
unum, hann er hér við
handverk sitt.
Mosfcllsblaðið O