Vísir


Vísir - 10.04.1970, Qupperneq 9

Vísir - 10.04.1970, Qupperneq 9
9 VÍSIR . Föstudagur 10. april 1970. með sömu röngu hugmyndirnar. Á hinn bóginn getur líka verið athyglisvert að standa lengur við og kafa dýpra til aö sjá æ betur, hversu hin fyrstu lcynni gáfu fjarstæðukennda mynd af raunveruleikanum. Tjað eru ekki íslendingar ein- ir, sem gera sér rómantisk ar hugmyndir um íra. Amerí- kanar koma til Dublin í stór- um flokkum með myndavélar á maganum, yfirleitt til að leita uppi þá staöi, sem fprfeður þeirra yfirgáfu endur fyrir löngu, eða þá í bókmenntaleg- um hugleiðingum til að sjá, hvar Wilde fæddist, Joyc bjó og Behan draikk. Á Mulligan’s-kránni viö mynni árinnar Liffey í hjarta Dyflinar hlæja menn ennþá að ame- rísku kéllingunni, sem kom þar inn, og spurði, hvort sjálfur Joyce hefði ekki oft komið á þennan stað. Því var, svarað ját andi, úr því að Joyce var þar í eina tíð daglegur gestur og skrifaði víst einhvem hluta af þeirri frægu bók „Ulysses" á staðnum. Sú ameríska spurði, hvar hann hefði setið, og var bent á einhvem auðan stól úti í horni, þangað tók hún strikið, féll á kné og kyssti setuna fjálglega, og gekk síðan út með tárin í augunum, en verkakall- arnir, sem alltaf eru þarna inni, hlógu svo mikiö, að þeim svelgd ist á bjómum sínum. Þótt Irar geri góðlátlegt grín að þessum myndavélapílagrim- um, sem heimsækja þá handan um höf í leit aö einhverju, sem ekki et til og hefur vísast aldrei verið til, annars staðar en í hug arheim' draumlyndra manna, gera þeir ekkert til þess að fólk breyti áliti sínu á þjóðinni. Sjálf ir gangast þeir ofurlítið upp við allt talið um orðhvata og óstýri láta þjöð, káta í stríöi en dapra í söng. /~kg þannig þekkja flestir ír- land, rétt eins og flestir ferðamenn, sem til íslands koma, fara þaðan með endur- minningar frá Þingvöllum, þenkjandi um Sögueyjuna, þar sem lýðræðið blómstraði, og menn skrifuðu ódauölegar bæk ur, en vita annars lítið um það þjóðlíf, sem þar þrífst, um fólk, sem byggir yfir sig á nóttunrá og'um helgar, um hreppapóli- tik i landinu — og annað því- umlíkt. í augum feröamannsins eru írar söngelskir og drykk- felldir og heita flestir í höfuðið á heilögum Patreki, á sama hátt og Skotar ganga í pilsum og blása í sekkjapípur, og Bretar sjást ekki án þess að vera með kúluhatt og einglesi. öll þessi þjóðareinkenni eru velþekkt, en þau eru leifar frá gamalli tíö, og helzt dregin fram í sviðsljósið á tyllidögum, því hvunndags eru menn of uppteknir af nútíð og framtíð til að hugsa mikið um gömul verðmæti og þjóðararf. Og óneitanlega virðist það vera heilbrigðara að láta sig fram- tfð þjóðar sinnar miklu skipta heldur en að kroppa sífellt sama bitann og forðast allt nýtt á þeirri forsendu, að forfeöumir hafi lifaö og dáið án þess. Kannski em írar núna að vakna til meðvitundar um, nö það frelsi, sem þeir börðust svo hatrammlega fyrir, er ekki nóg eitt út af fvrir sig — frels ið er til að gefa þeim svigrúm til að skipuleggja framtíðina, “n ekki til að dýrka fortíðina, -tin peir vildu svo gjarnan, aö hefði verið öðravísi. En hvað sem allri írskri ferðamannarómantík líður þá er víst að þangað er gaman að koma, þrátt fyrir dýrtíðina, og vissulega er eyjan græn og íbú- arnir vingjarnlegir, þótt húsin séu sótug og straetin óhrein. .! Um helgina verða miklar annir hjá öllu starfsfólki strætisvagnanna í sambandi við nýju leiðabreytinguna. Allar símalínur verða opnar til þess að taka á móti þeim hringingum, sem kunna að berast og veittar upplýsingar um nýja kerfið. Strætisvagna stjórarnir fá að glíma við akstur á nýju leiðunum, þeg- ar akstur hefst í fyrramáiið, og um leið verða borgarbúar að vera undir það búnir að rata að réttum viðkomustað vagnsins síns og vita hvaða leið hann fer. J^jyja leiðakerfið merkir mik- il umskipti fyrir allan þann fjölda sem ferðast með strætis vögnunum daglega 45 þúsund manns. Þetta er mesta umferðar breytingin síðan hægri umferð in var tekin upp og kemur við líf flestallra borgarbúa í ein- hverri mynd. Ýmsar ástæður liggja að því að nýja leiðakerfið er tekiö upp. Engan þarf að furða á því að þörf hafi verið á nýju kerfi þegar það er haft í huga aö þeg ar strætisvagnaferðir hófust ár ið ‘31 var mestöll byggð Reykja víkur innan Hringbrautar, sem þá hét, en það eru nú Ánanaust, Hringbraut og Snorrabraut. — Lækjartorg var þá mjög mið- svæðis í byggð borgarinnar og athafnalífi. íbúataia Reykja- víkur var þá tæp 29 þúsund. Fyrstu leiðir strætisvagna lágu frá Lækjartorgi inn að Kleppi, suður í Skerjafjörð, inn í Sogamýrj og Rafstöö og um Vesturgötu út á Seltjamarnes. Fleiri leiðir bættust smátt og smátt við. Einar B. Pálsson, verkfræð- ingur, höfundur nýja leiðakerf isins, hefur tekið saman ýmsar upplýsingar um þetta efni o« leitt rök að þörf á breyttu leiðakerfi. „Byggð borgarinnar hefur breytzt mjög mikið á und anförnum árum“ segir hann m.a. „Borgarbyggðin hefur fyrst og fremst vaxið austur og suöaust ur á bóginn, svo að þyngdar- punktur byggðarinnar er kom- inn miklu austar og er nú lfk- lega nálægt Nóatúni. Mörg helztu athafnahverfj borgarinn- ar eru nú austan Nóatúns og Lönguhlíðar. Þessi þróun heldur áfram hröðum skrefum. Borgin hefur þrefaldazt að íbúatölu frá 1931 jafnframt því sem borgarbyggðin hefur þan- izt út. Miðbærinn gamli er kom inn í útjaðar borgarbyggðarinn- ar Ný athafnasvæði og stofn- anir hafa risið viðs vegar á borg arsvæðinu. Þarf nú líka að sjá fyrir strætisvagnaleiðum miili þeirra og íbúðahverfanna. Leiðakerfið hefur á undan- förnum árum þróazt í þá átt að verða of margbrotið. Athuganir sýna að borgarbúum veitist erf itt að átta sig á öðrum leiðum en þeim, sem þeir fara daglega. Lág ferðatíðni vagnanna eftir gamla kerfinu krafðist endur- skoðunar og sú þróun að borgar búar nota strætisvagna nú minna á kvöldin og á helgidög- um um leið og tíðni ferða eykst á daginn. Nýtt skipulag borgar innar útheimtir einnig breyt- ingu á leiðakerfi strætisvagn- anna.“ LKYK.UYIK 1 ' Eiríkur Ásgeirsson forstjóri SVR t. v. og Einar B. Pálsson verkfræöingur við kort af gamla og nýja leiðakerfinu. Nýja leiðakerfið sést á neðri uppdrættinum. ALLIR YILJA HAFA STUTT I STRÆTÓ „Jj’ólk vill hafa stutt í strætó en enginn vill láta strætó ganga sína götu eða stoppa hjá sínu húsi“ sagði Ragnar Þor- grímsson kennari á námskeiði fyrir strætisvagnastjóra, sem haidið var nýlega. Þessi setning lýsir kannski nokkuð vel hugar fari borgarbúa til strætis- vagnanna sem enginn vill vera án en allir vilja hins vegar losna við þá umferð, sem Öhjákvæmi lega leiðir af þeim. Þarna er einmitt vikið að því sem flest- ir strætisvagnafarþegar munu fyrst taka eftir í fyrramálið, en það er hvort styttra eða lengra sé I strætisvagninn en áður. — standi á sínum fyrri stöðum, en þau veröa færö til síðar. Meðal nýjunga eru ttaiaáætl anir, en í leiöavisinum frá, S.YR stendur hvenær vagninn kemur á hina ýmsu viðkomustaði og verður, þetta mikil breyting frá því sem áður var, þegar farþeg inn vissi aldrej nákvæmlega hvenær hann máttj eiga von á vagninum. Þegar inn í vagninn kemur ’ gjida sömu miðarnir og verið hafa en skiptimiðinn bætist við fyrir þá, sem ætla að taka tvo vama innan viss tima. Fyrir utan aukna tíðni vagn- ferða og breytingar á leiðum — en enginn vill láta vagninn ganga sina götu — mesta umferðarbreyting i höfuðborginni frá H-degi á morgun Allir vilja hafastutt I strsetó. Þetta atriði hefur verið tekið tii vandlegrar ahugunar við samn ingu nýja leiðakerfisins og nið urröðun viðkomustaða. Reynt hefur verið að fá meðalgöngu- leið 300 metra milli viðkomu- staða. En ekki hefur verið unnt aö framfylgja þvf í öllum tilfell um. Hins vegar hafa fleiri far- þegar styttri gönguleið á við- komustað eftir nýja kerfinu en áður var. Nöfnin á viðkomustöð unum munu breytast töluvert eins og staðsetn. þeirra, og nú veröa þau meira eftir kennileit um í borginni en áður. Vagnar staðnæmast t.d. við Langholts kirkju, Þjóðleikhús, Þjóðminja- safn, Hamrahlíðarsikóla og Mjólkurstöð. Farþegarnir ættu að veita við komustöðunum sérstaka athygli í fyrramálið, en ómerktir við- komustaðir verða þá ekki leng- ur i notkun þótt biðskýlin liemur nú nýtt atriði inn í leiða lcerfið en það er leiðirnar sker- ast nú eða snertast á mun fleiri stöðum en áður var og geta far þegamir þvi farið úr einum vagni á viðkomustað og tekið þar annan, sem fer í aðra átt, fyrir utan hinar þrjár störa mið stöðvar Lækjartorg, Hlemm og Grensásstöð. TTér á eftir verður leitazt við að skýra út leiðimar með þvl að taka nokkur dæmi: Nemandi í Háskólanum á t.d. heima uppi1 Árbæjarhverfj og ætlar heim til sín eftir að kennslu lýkur klukkan 16 á virk um degi. Hann á kóst á vagni á leið 6, sem staðnæmist rétt hjá Gamla Garði klukkan 16.13 og er kominn á Grensásstöð kl. 16.24. Þar nær nemandinn f vagn á leið 10, sem leggur af stað frá Grensásstöð mfnútu seinna og er kominn upp að Sel ásj kl. 16.33. Nemandinn er þvf tuttugu mínútur á leiðinni. not ar tvo, vagna og skiptimiða. Nemendur í Háskólanum hafa aðallega um tvær ferðir að velja, leið 6, sem áður var getið og leið 5, sem ekur bæði um Lækjartorg og Hlemm og gefur því möguleika á að skipta yfir í allar leiðir strætisvagnanna. Hins vegar fær maðurinn, er býr úti á Seltjamamesi og kenn ir við bamaskólann í Árbæjar hverfi ekki eins hentuga ferð: Hann á að vera kominn klukkan átta að morgni f skólann og tek ur því vagninn á leið 3, sem fer 7.02 frá Melabraut, hann nær í vagn á leið 10 sem ekur upp í Selás á Hlemmj kl. 7.32 og þarf því aö bíða á Hlemmi í 14 mínútur. Þessi farþegi er kom inn í skólann sinn tæplega 7.48 og mætir því tímanlega í kennsluna, en hætt er við því að honum leiðist biðin á Hlemmi þegar til lengdar lætur og verði sér úti um annan fararskjóta. Svo er það konan í Skerja- firðinum, sem æflar að heim- sækja ættingja sinn á Borgar- spítalann. Hún tekur leið 5 frá Skeljanesi kl. 18.27, skiptir um við Hljómskálann og tekur leið 7 eftir fjögurra mínútna bið (ef hún nennir ekki að bíða heldur hún áfram meö fyrri leiöinni og tekur seinn; leiðina á Lækjar- torgi, en þaðan fer vagn kl. 18.40) og er komin að Borg- arspítalanum kl. 18.51, eða eftir 24 mínútna ferðalag með tveim vögnum og á skiptimiða. Eftir heimsóknina á spítalann notar hún tækifærið og fer til kunningjafólks á Langholtsvegi. Hún tekur leið 9 á hominu á Bústaðavegi og Klifvegi kl. 19.47 og er komin inn á Lang- holtsveg níu mínútum seinna. Forráðamenn strætisvagn- anna segja aö nýja kerfiö sé ein faldara og auöskildara en hið gamla vonandi komast farþeg amir að hinu sama, þegar reynsla er komin á.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.