Vísir - 18.07.1970, Blaðsíða 1
Unnið við a' reka saman kassa undir Norðursjávarsíld fyrir vel-
skipið Örn frá Reykjavík á Granda í gær.
„Við gerum ráð fyrir að einir
150—200 bílar verði f mótmæla
förinni á morgun, sem efnt er til
á vegum félagasamtaka til vernd
ar Laxá og Mývatns, svo og ým-
issa áhugamanna um náttúru-
vernd“, sagði Hermóður Guð-
mundsson, bóndi í Árnesi í S-
Þingeyjarsýslu, er blaðið hafði
nband við hann í p"
Trollii sprakk í fyrstu veiðitilraun-
imi á koimunna
—„Vonum að hægt verði að fara skófla honum
upp", segir Jakob Jakobsson, sem nú er við
kolmunnaleit úti af Austfj'órðum
Fyrsta veiðitilraun ís-
lendinga á kolmunna fór
heldur illa. Árni Friðriks
son reif flottrollið í
fyrstu tilraun sinni við
kolmunnaveiðar austur
í hafinu núna fyrir
nokkrum dögum og í
annarri tilraun sprengdi
hann trollið. Ekki er vit-
að hvort það hefur verið
magnið í vörpunni sem
sprengdi hana, en mjög
mikið af kolmunna virð
ist vera í henni. Veður
var fremur óhagstætt
þegar þetta var.
— Við höfum verið norður í
hafi, og leitað meðan við vor-
um að gera við þetta, sagði
Jakob Jakobsson, leiðangurs-
stjóri í þessum leiðangri. Það
fór þama um það bil 1/4 af
vörpunni.
Við vorum að toga 70—80
horður með austurjaðri kalda
straumsins allt að 150 mílum
AnA af Jan Mayen, en lítið
fundið, aðeins dreiifðar lóðning-
ar, engar torfur.
Við vorum að toga 70—80
mílur út; af Austfjörðum, þegar
við rifum trollið og náðum fyrst
tveim þrem hölum 5 — 6 tonn-
um í hverju hali áður en við
urðum fyrir þessum óhöppum.
Við munum reyna þetta aftur
núna. Við vonum bara að hægt
verði að fara að skófla þessu
inn. Þetta er þó altént betra en
ekki neitt.
Að sögn Jakobs hefur ekkert
frétzt til síldar. Færeyzkt síld-
arleitarskip hefur stöðugt leitað
á svæöinu 50—20 mílur út af
Áustfjörðum að undanförnu og
lagt reknet á hverri nóttu.
— Hann hefur tvisvar fengið
tvær síldar, sagöi Jakob. Síld-
arleit hefur engin verið norður
f höfum síðan rússnesku skipin
voru þar í vor. Við tímdum ekki
að eyða þessum leiðangri í það.
Slík ferð hefði tekið svo
laiígan tíma. Ég reikna með að
reynt verði að fylgjast með þvi
frekar, hvort hún kemur upp
hérna nær. Hún reyndist líka
illveiðanleg þarna norður frá f
fyrra, það sem fannst af henni.
Jakob sagði að allmikið hefði
fundizt af dreiföum kolmunna
lóðningum á stórum svæöum þar
eystra. Fyrir kæmi að hann
fyndist líka í torfum, þannig að
hugsanlegt væri að veiða hann
í nætur. — JH.
Sem kunnugt er hafa bændur á
Laxársvæðinu hafið Iögbanns-
mál gegn stjórn Laxárvirkjunar
vegna fyrirhugaðra virkjunar-
framkvæmda við ána. Hermóður
hefur ásamt fleiri mönnum
skipulagt þessa mótmælaför, en
lagt verður af stað frá Húsavík
klukkan 1 á morgun.
„Viö höfum lögreglufylgd og
þetta verða friðsamleg mótmæli.
Við höldum fyrst aö Laxárvirkjun-
inni og strengjum þar upp á háar
stengur borða, en á borðanum
stendur: „Mótmæli gegn Laxár-
virkjun — verndun gimsteina ís-
lenzkrar náttúru — Laxá verður
varin“. Bílar okkar verða einnig
með ýmsum slíkum mótmælum. Þá
veröur ekið til Akureyrar og gert
er ráö fyrir að þangað verði kom
ið kl. 16.30. Við afhendum bæjar-
stjóranum þar mótmælaskjal
til bæjarstjórnarinnar. Við munum
einnig hafa lögreglufylgd til Akur-
eyrar.“
„Hefur verið ákveðið hvort farið
verður í skaðabótamál í framhaldi
af lögbannsmálinu?"
„Já, við höfum ákveðið aö höfða
skaðabótamál, en ákæra hefur ekki
verið lögð fram ennþá“, sagði Her
móður að lokum.
Yfirhevrslur í málinu fóru fram
í gær og verður nú viku hlé, þar
til endanlegur málflutningur fer
fram og úrskurður kveöinn upp.
—ÞS
_ Þjóðfélagsfræði n tekur
við stúdentaaukningunni
— 499 látið innrita sig til náms i Háskólanum
Litadýrð
Heklu
Visir i vikulokin
með Heklumyndir
■ Vísir i vikulokin, sem fylgir
blaðinu til áskrifenda í dag er
nokkuð frábrugðinn því, sem
venjulegt er. Allt blaðið er lagt
undir litmyndir frá Heklugoslnu
þeim til fróðleiks og ánægju,
sem ekki hafa sjálfir litið dýrð-
ina augum og þó ekki síður fyr
ir þá, sem hafa séð gosið. Með
myndunum geta þeir endurlifað
litadýrðina og hið mikla meistar
ans sjónarspil, sem þarna var á
ferðinni.
Ljósmyndirnar tók ljósmynd-
ari Vísis, Bragi Guðmundsson,
sem varð einna fyrstur allra at-
vinnuljósmyndara á staðinn við
upphaf gossins og Ijósmyndarar
Myndiðnar, Leifur Þorsteinsson
og Ævar Jónsson.
Skemmtilegt er fyrir áskrif-
endur Vísis að eiga þessar mynd
ir um ókomin ár, en einnig er til
valið að senda vinum og ættingj
um erlendis blaðið, því að mynd
ir segja oft meira, en þúsund
orð geta. Þess vegna er mönnum
gefinn kostur á aö kaupa blaöið
á kostnaðarverði, 25 kr., þó að
þeir séu ekki áskrifendur.
■ Skrásetningarfresti nýrra
stúdenta við Háskóla ís-
lands er lokið og hafa 499 lát
ið innrita sig nú. Að vísu má
búast við nokkru fleiri innrit
unum, utan af landi og er-
Iendis frá, þannig að endan-
leg tala þeirra nýskráðu er
áætluð um 540.
Þeir, sem þegar hafa látið
skrá sig við Háskólann næsta
vetur skiptast á milli deilda
þannig: I guðfræðideild 8, lækn
irfræði 70, lögfræði 33, við-
skiptafræði 58, heimspekideild
130, verkfræðideild 38, tann-
læknadeild 16, lyfjafræði 11, Bs.
raungreinadeild 77 og þjóðfél-
agsfræði 58. Meðal nýrra inn-
ritunar eru nokkrar, þeirra stú-
denta, sem hafa skipt um náms
grein. Sex slíkar innritanir eru
i viðskiptadeild, 6 I tannlækna
deild og 6. í þjóðfélagsfræði.
Aðrar slíkar innritanir skiptast
niður á hinar deildirnar. Það
virðist sem þjóðfélagsfræði taki
við aukingu nýrra stúdenta,
sem er 50—60 fleiri en í fyrra,
en innritun í aðrar deildir er
nokkuð svipuð því, sem hún
var í fyrra, samkvæmt því sem
Stefán Sörensson tjáði blaðinu.
Stúdentafjöldi við Háskólann
var 1450 manns á síðasta ári
en búizt er við 1600—1650
stúdentum við nám í Háskól-
anum í vetur, sem kemur ekki
fram fyrr en við árlega skrán-
ingu, sem er í byrjun skólaárs-
ins. —SB
Skipum fjölg
í Norðursjó
Talsvert amstur hefur verið í
Reykjavíkurhöfn kringum bata,
sem eiga að fara til síldveiða i
Norðursjó. Fjórir bátar héldu úr
Reykjavikurhöfn um síðustu helgi
áleiöis suður i Norðursjó, en þar
eru nú hátt í fjörutíu skip við síld
veiðar. Flestir Ianda aflanum í
Danmörku og selja yfirleitt vel,
allt upp í 18 krónur ísl. fyrir
hvert kíló, en bátarnir afla svona
40—60 tonn á nokkrum dögum, ef
vel gengur og veður er gotL
Síldin er ísuð niður í kassa jafn
óðum og hún kemur um borð. Á
myndinni sést hvar verið er aö
reka saman kassa út á Granda til
þessara nota fyrir vélskipið Örn
RE, sem er að halda út á síld-
veiðar einhvern næstu daga.
„VERNDUM GIMSTEIN
ISLENZKRAR NÁTTÚRU