Vísir - 18.07.1970, Blaðsíða 8
Vl S IR . Laugardagur 18. júlí 1970.
?
VISIR
Útgefan li • Reykjaprent hí.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R Eyjólfsson
Ritstjóri- Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingar- Bröttugötu 3b Símar 15610 11660
Afgreiösla- Bröttugötu 3b Sími 11660
Ritstjóm: Laugavegi 178 Sími 11660 (5 línur)
Askriftargjald kr 165 00 á mánuði innanlands
I lausasölu kr. 10.00 eintakiC
Prentsmiðja Vfsis — Edda hf.
Stórfelld aukning námslána
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að beita sér fyrir stór-
felldri aukningu á lánum til námsmanna. Á hækkunin
að koma til framkvæmda þegar í haust. Verður séð
svo um, að Lánasjóður námsmanna fái til ráðstöf-
unar um 135 milljón krónur á næsta ári, en það er
49 milljón krónum meira en í ár og næstum 60%
aukning á aðeins einu ári.
Stjórn Lánasjóðs námsmanna hafði orðið einróma
sammála um að gera tillögur ti) ríkisstjórnarinnar um
þessa aukningu. Hún miðar að því, að námsmönn-
um verði að meðaltali lánað um 66% af svokallaðri
umframfjárþörf þeirra, en það er mismunurinn á
námskostnaði þeirra og eigin tekjuöflun. Áður hafði
þetta hlutfall numið um 54%. Varð ríkisstjórnin að
öllu leyti við óskum stjórnar Lánasjóðs námsmanna.
Byrjendur í námi fá nú lánuð 60% af umframfjár-
þörf sinni og þeir, sem lengst eru komnir. fá 90%
lánuð. Er með þessu stigið stórt skref í þá átt, að op-
inber aðstoð við námsmenn nægi hverjum námsmanni
til að standa straum af árlegum námskostnaði, þegar
eðlilegt tillit hefur verið tekið til afstöðu hans til að
afla sér fjár með vinnu í fríum.
Samtök námsmanna hafa lagt fram þá kröfu, að
á fjórum árum verði þessu marki náð. Eru nú góðar
horfur á, að þetta takist að verulegu leyti, þar sem
ríkisstjórnin hefur brugðizt svo vel við. Samtökin
hafa einnig kvartað yfir því, að lán þessi séu ekki
greidd nógu snemma á hverjum vetri. Úr því verður
nú einnig bætt, og verður hluti námslána næsta vetr-
ar greiddur þegar við upphaf náms í haust. Á nú að
verða mun auðveldara fyrir efnalitla námsmenn að
komast til mennta.
Með þessum aðgerðum er ekki verið að bæta fyrir
neina fyrri vanrækslu. Á undanförnum árum hefur
heildarupphæð námslána aukizt gífurlega. Aukning-
in til hvirs námsmanns er mun meiri en sem nemur
verðhækkunum. RiVcs'jjórnin hefur því á undanförn-
um árum sýnt sérstaka viðleitni í þá átt að bæta kjör
námsmanna. Hin mikla aukning námslána í ár er að-
eins eðlilegt framhald þeirrar stefnu.
Þótt námslán hafi áukizt gífurlega að undanförnu,
hefur hlutur þeirra námsmanna, sem dveljast erlend-
is, versnað vegna verðhækkana erlendis og gengis-
Iækkana hér heima. Eigin kostnaðarhluti þeirra í ís-
lenzkum krónum hefur aukizt, og sömuleiðis hefur
versnað aðstaða þeirra til að afla sér mikils fjár í
fríum. Þetta er orsök gremjunnar, sem undanfarið
hefur mjög borið á í röðum námsmanna erlendis.
. Nú hefur verið tekið svo mikið stökk fram á við í
aðstoð við námsmenn, að allir mega vel við una. Og
búast má við, að lánveitingar aukist enn á næstu ár-
um í samræmi við þá þróun, sem nú á sér stað. Stefn-
an ,er sú, að hæfileikar ungu kynslóðanna nýtist sem
bezt, án tillits til efna og aðstöðu.
)
(
/)
Rifizt um innflytj-
endur í Bretlandi
— sérfræðingar rikisins hafa tekió harða af-
stöðu gegn innflytjendum til landsins
Þessi mynd er frá Halifax. Aoeins hórundsdokkir verkamenn
vinna þar næturvaktir.
Deilur miklar eru nú uppi í
Bretlandi um hvemig skuli
bregðast viö vandanum sem inn-
flytjendur víðsvegar að úr heim-
inum, en einkum bó frá suð- og
austlægum Samveldislöndum,
hafa skapaö.
Þekkt er hin harða afstaða
ihaldsþingmannsins Enough
Powell op; nú bendir sitthvað til
þess, að þess verði krafizt að
yfirvöld geri einhverjar ráðstaf-
anir. Ein stofnun innan brezka
ríklsbáknsins fjallar um vanda-
mál litaðra innflytjenda, eða
innflytjenda af framandi kyn-
stofnum. Þessi stofnun „Race
Relations“ hefur ttl dæmis gert
nokkuð nákvæma rannsókn um
hve mikið hver innflytjandi
kosti ríkiskassann og hvernig
þeim gengur að fá atvinnu.
Sömuleiðis hvemig atvinnu þeir
fá.
Það er NIESR (Nationai
Institute for Economic and
Social Research) sem hefur yf-
irumsjón meö þessum athugun-
um og hermir í þeirra skýrslu,
að innflytjendur síðari ára þ.e.
þeir er flutzt ha>fa til Bretlands
Innflytjendur fyrri ára
reynast vel.
Fyrir 1960 komu aö visu stöö-
ugt innflytjendur til Bretlands,
en árlega nam sá fjöldi aldrei
nema nokkrum þúsundum, og
Bretar eru svo fjölmennir fyrir,
að þessa fólks var varla vart
sem eiginlegri viðbót. Það hef-
ur og sýnt sig, að hæfilegur
fjöldj innflytjenda frá Indlandi
eða Jamaica getur veríð til
heilmikilla bóta, en þá veröur
að ganga út frá þvl sem vísu,
að fólkið sem til landsins flytzt
geti fengið atvinnu og að pláss
sé fyrir börn þess f skólunum.
Þeir sem ekki vilja á neinn
hátt hamla gegn innflytjenda-
straumnum, benda gjarnan á þá
Indverja sem fluttu til Bret-
Iands eftir 1950. Þessir Indverjar
virðast nú fullkomlega hafa sam-
lagazt innfæddum. Þeir hafa
orðið sér úti um góða almenna
menntun og það hefur vakið at-
hygli að indverskum nemend-
um og skólanemendum frá Jam-
aica, hefur gengið áberandi vel
að læra.
á áratugnum 1960 — ’70 eru mikl-
um mun misjafnari sauöir en
fyrri innflytjendur sem ti! Bret-
lands hafa þyrpzt. Er þá eink-
um átt við Gyðinga sem flýðu
undan nasistum i Þýzkalandi á
striösárunum eða skömmu fyrii
þau, svo og flóttamenn úr Evr-
ópu fyrr á öldum, svo sem
Húgenottana sem flýöu undan
Lúðvík 14. í Frakklandi.
Þeir innflytjendur sem nú
valda Bretum hugarangri eru
aðallega frá Indlandi, Kýpur og
Jamaica. Þetta er yfirleitt fóik
sem litla sem enga starfsmennt
un hefur og mjög mikill fjöldi
þess er enn á barnsaldri. Það
merkir þaö að skólakerfið verð-
ur að taka við miklum umfram-
fjölda, en þessi fjöldi útlendinga
sem þannig streymir inn i
brezkar skólastofur er illa fier
um að meðtaka kennsluna og á
oft i erfiðleikúm meö að ná inn-
lendum nemendum. Margit
benda á, að aukakostnaður viö
rekstur skólanna, sé af þessum
sökum svo mikill, að varla sé
forsvaranlegt að taka svo ótak-
markað við nýjum nemendum.
Þeldökkir fá illa laun-
uð störf.
í skýrslu NJESR, sem nær
allt fram til þessa árs, segir að
meðalaldur innflytjenda sé tals-
vert lægri en meðalaldur Breta.
Til dæmis hafa 100.000 börn á
skyldunámsstigi flutzt til lands-
ins síðan 1963. NIESR bendir i
því sarnbandi á, að þetta unga
fólk Verði að komast sem fyrst
í atvinnu eftir að það kemur til
iandsins, og atvinnan sem því
stendur til boða. er undantekn-
ingarlítið sú atvinna sem inn-
Færidir Bretar líta ekki við. Þann
ig starfar mjög mikill hluti inn-
,'lytjenda .þ.e.a.s. þeirra sem at-
vinnu hafa, að sóðalegum og
erfiðum störfum. Þessi störf
hafa þrjú sérkenni: Þau eru illa
launuð, leiöinleg og sem fyrr
segir sóðaleg og þar að auki er
oftast um að ræða einhvers kon-
ar skiptivinnu, þ.e. vaktavinnu
eða vinnu að næturlagi.
Slík störf er helzt aö finna
á veþingahúsum sjúkrahúsum
og við strætisvagnana. Þá vinna
innflytjendur mikið i þungaiðn-
aðinum, einkum í málmsteypum
Fyrsti hörundsdökki lögreglu
maðurinn i Bretlandi — hann
var Iögregluforingi í Kenya,
en varð aimennur iögreglu-
þjónn í London.
og nú er svo komið, að varla
væri hægt aö halda málmsteyp-
um svo og plast- og gúmiðnað-
inum gangandj án innflytjenda,
þvl að allir verkamenn eru út-
lendingar.
Sérfræðingar
svartsýnir
Sérfræðingar NTESR hafa tek-
ið nokkuð harða afstöðu gegn
innflytjendastraumnum, og
halda þeir því fram að hálfgert
neyðarástand muin skapast í
framtíðinni ef svo fer sem horf-
ir samkvæmt útreikningum
þeirra: að fram til ársins 1981
muni 30.000 innflytjendur koma
til Bretlands árlega, þrátt fyrir
nýlega sett lög um takmörkun
á þessum straum.
Aðrir benda þá á, að svo
harður áróður hafi verið rekinn
gegn innflytjendum til Bret-
lands, að það fólk sem nú er að
taka sig upp frá heimabyggð
sinni í Indlandi, á Jamaica,
Ceylon eða Kýpur, sé nú að
miklu leyti hætt aö hugsa um
að setjast að í Bretlandi, en
hugsi frekar um Kanada, enda
hefur innflytjendastraumur til
Kanada aukist gífurlega upp á
síðkastið — þannig aö veriö
getur að sérfræðingar séu full
svartsýnir.
Þjóðfélagið tapar ekki
Enn benda NIESR menn á að
árlega sendi vinnandi útlend-
ingar I Bretlandi 45 milljónir
punda úr landi, til ættingja sinna
í heimalandinu.
Þessu svara bjartsýnir þá með
því að benda á, að þessi 45
milljón pund séu aöeins lítill
hluti þess fjár sem þjóðfélagið
græði á hinum ungu erlendu
verkamönnum, því þeir láti sér
nægja svo illa launuð störf og
séu þar að auki yfirleitt mjög
framagjamir og ákafir í að ná
sér í peninga. Þeir séu því einu
verkamennirnir sem vilji vinna
yfirvinnu eða næturvinnu, en
oft hafi áður verið skortur á
fólki sem vildi leggja verulega
hart aö sér, þó kaupið væri lágt.
Það er vafalaust að innflytj-
endastraumurinn hefur valdið
og á eftir að valda Bretum mikl-
um erfiðleikum en þegar þessi
þunga alda er gengin yfir eða
tekur að fjara út, þá er líklegt,
að hinir hömndsdökku verka-
menn hafa þrátt fyrir voða spá-
dóma Powells og skoðana-
bræðra hans, ekki verið svo
slæmir gestir þegar allt kemur
til alls. — GG.