Vísir - 18.07.1970, Blaðsíða 2
„N>i, og hvað með þaö?“ Var
það eina sem þýzki glaumgosinn
Arvid Imiela hafði að segja þeg-
ar lögreglan handtók og ákærði
hann um leið fyrir að myröa 4
forríkar konur, Arvid þessi Im-
iela 44 ára að aldri var færð-
ur i fangelsi og neitaði hann að
segja eitt einasta orö um þessa
ákæru við fréttamenn, er lög-
reglan fylgdi honum til fanga-
klefans. Fyrir réttinum hefur
hann þó neitað að hafa myrt kon
urnar, en sitthvaö er þaö í mál-
inu sem hann gétur ekki skýrt
á viöeigandi hátt. Til dæmis seg
ir hann að blóðblettir sem víða
eru i íbúð hans séu annað hvort
rauðrófusafi eða blóö úr hundin-
um sínum, sem hann segir aö
hafi meitt sig svolítið eigi alls
fyrir Iöngu.
Tvö lík hinna myrtu kvenna
hafa fundizt, en til hinna
kvennanna tveggja hefur ekkert
spurzt síðan þær áttu í ástar-
ævintýri með Imiela.
„Eppli á dag kemur heilsunni
í lag“ — þetta er enskur máls-
h£ttur sem margir kannast við
og hann Archie Bessley frá
Brierley Hill í Englandi ekki síð
ur en við hér uppi á Islandi.
Archie hnikar málshættinum
bara aðeins til sjálfum sér í hag:
„Einn froskur á dag kippirheils
unni í lag“. Archie borðar nefni
lega einn frosk hráan daglega og
segir það vera einu öruggu leið-
ina til að halda sér frá rúminu
og lifa lengi. Hann er núna 57
ára, en hefur borðað froska í
meira en 40 ár. Reyndar borðar
hann ekki nema allra' minnstu
froskkvikindi sem finnast og þau
eru kannski á stærö við tuttugu
ogfimmeyring, en hann fékk upp
skriftina hjá bróður sínum sem
nú er 75 ára óg kveðst ætla að
lifa önnur 75 ár!
□□□□□□□□□□
Lagasmiðurinn Wolfe Gilbert dó
12 júlí s. 1. 83 ára að áldri. Gil-
bert bjó I Los Angeles og varð
heimsfrægur fyrir að semja lag-
ið „Ramóna“ sem margir kann-
ast við hérlendis.
Brezka lögreglan lætur ekki að
sér hæða. Upp á síðkastið hefur
verið óvenju mikið um hvers kon
ar slys og óhöpp á vegum úti
í Bretlandi, og mörg þessara
slysa hafa beinlínis stafað af ó-
gætilegum akstri. Þar sem lög-
regluyiirtöldum var fullljóst, að
þegar lögreglumenn eru aó
stöðva bifreiðir á hraðbrautum og
veita ökumönnum þeirra ofaní-
gjöf, er mjög svo óvtst að öku-
maður taki tillit til slíkrar að-
vörunar, einkum vegna þess að
menn veröa yfirleitt vondir út
í valdsmannlegan mann sem tef-
ur förina með ámjnningum er
menn hafa heyrt 3000 sinnum áð-
ur. Lögregluyfirvöld brugðu þvi
á það skemmtiléga ráð að ráða
til sín ungar og broshírar stúlk-
ur. Stúlkunum var kennt að aka
bifreið af leikni og að öðru leyti
þjálfaðar i störfum vegalögregl-
unnar. Síðan fengu þær hrað-
skreiða Cortínu til umráða og
voru sendar út á hraðbrautirnar
að veita mönnum áminningar á
vingjarnlegan hátt. Þá eru stúlk-
urnar oft staösettar þar sem veg
urinn er af einhverjum orsökum
hættulegur: Hengiflug á aðra hlið
eða kröpp beygja. Þar standa þá
þessar „fallegu turtildúfur" og
brosa við ökumönnum og biðja
þá með augnaráðinu einu sam-
an að passa sig nú! Á þeim fáu
vikum sem stúlkur þessar hafa
verið í starfi hafa þær stöðvað
mikinn fjölda bíla, en aðeins 5
ökumenn hafa fcngið kæru. Lög
reglan kveðst þess fullviss, að
að ökumenn, einkum þeir sem
eru karlkyns, hljóti að taka því
vel ef ung og brosandi lögreglu
kona biður þá í guðanna bæn-
um að gæta nú að eigin skinni
og náungans.
Blaðamaður einn sem brá sér
út á hraðbrautina, akandi með
lögreglukonunum, sagði, að sér
fyndist vafalaust að þessi aðferð
muni' duga betur en að hafa
hörkulegan karl á vélhjóli, vopn-
aðan kylfum og hvers kyns öðru
dóti, en samt sé hann svolítið
uggandi yfir þeirri athygli sem
stúlkurnar njóta ennþá. Margir
ökuménn snúi sér næstum viö
i sætinu er þeir næta svo lag-
legum lögreglumönnum og ein-
staka gefi sér jafnvel tíma. til
að senda þeim fingurkoss!
DELON OG ROMY
SCHNEIDER í
SUNDLAUGINNI
„La Piscine“ (Sundláugin) heit-
ir ný kvikmynd sem er að koma
á markaðinn nú á næstunni og
á sennilega eftir að vekja for-
vitni margra.
Myndin fjallar um hóp fólks
sem saman er komiö við sund-
laug, en þetta fólk leikur Alain
Delon, Romy Schneider, Maur-
ice Ronet og Jane Birkin. Svo
sem sjá má af þessum nöfnum
er hér um að ræða franska mynd
og mun hún ekki af verri endan
um. Alain Delon kannast allir
við og sömuleiðis Romy Schneid-
er en hau voru einu sinni gift.
Jane Birkin er sú sem söng og
stundin inn á þá umtöluðu hljóm-
plötu ,,Je t'aime moi non plus“.
Maurice Ronet mun ungur og á
uppleið. Fólk þetta við sundlaug
ina kemur saman til einhvers
fagnaðar, en allt fer öðruvísi
en ætlað er því morð er framið
og allt fer i upplausn.
Hrifin af
pínu pilsum
Bandarísk blöð eru nú full með
hvers konar skrif um þau Charl-
es og Önnu drottningarböm frá
Bretlandi, en þau koma í heim-
sókn til USA á næstunni. Anna
prinsessa er ekki síður en krón-
prinsinn, bróðir hennar, mikið
fréttaefni þessa dagana. Dagblað
ið Sundey News heldur því blá-
kalt fram að prinsessan elski að
ganga í pínu-pilsum og sýna
þannig sem mest af sínum eðlu
leggjum. Sama blað segist hafa
áreiðanlegar upplýsingar um að
kroppmál prinsessunnar séu
87-62-92. Sem stendur eru syst-
kinin á ferðalagi með foreldrum
sínum um norðurbyggðir Kanada.
l\i> »*« -""■ti. jjp:
' • :
Romy Schneider í einu atriðanna úr „Sundlauginni“. Hún er í sólbaði á laugarbakkanum. (Leikur ekki lík).
i