Vísir - 18.07.1970, Side 3
VISIR . Laugardagur 18. júlí 1970.
Forvitnilegar hljómplötur frá Fálkanum:
Ríó tríóið í næstu viku, Engil-
bert syngur „Let it be'' inn á
sína fyrstu sjálfstæðu plötu
Engilbert Jensen lætur nú
heyra frá sér á ný á hljóm-
plötu.
Þaö kom fram í þættinum sl.
laugardag aö í dag yrði getið um
þær hljómplötur sem vænfan-
legar eru á markaðinn frá Fálk-
anum.
Fyrir u.þ.b. viku var Engilbert
Jensen að syngja inn á sína
fyrstu sjálfstæðu plötu. Hér er
um að ræöa tvö lög, annaö er
fengið frá Beatles „Let it be“,
en í flutningi Berta nefnist það
„Fylgdu mér“. Sföara lagið er
einnig vel þekkt en þaö nefnist
„Raindrops keep falling on my
head“, en á umræddri plöitu
hefur þaö hlotið nafnið „Regn-
dropar falla við hvert skref“.
Undirleikurinn á þessum
tveim lögum var keyptur frá
Bretlandi, en Fálkinn lét ekki
þar við sitja heldur fékk tvo
ágæta íslenzka hljómlistarmenn
til aðstoðar. Gunnar Þóröarson
glímir við gftarsóló í „Let it be“
en Jón Sigurðsson blæs á tromp
ett f „Regndropar" svo þaö má
eiginlega segja aö þetta sé
brezk—íslenzkur hljómsveitar-
flutningur. Að öllu forfallalausu
ætti plata þessi að koma át eft
ir 3—4 svikur. Engilbert hefur
sungið inn á þrjár plötur, þaö
fyrsta sem heyrðist frá honum
á þeim vettvangi var túlkun
lím þessar mundir er TILVERA að spóka sig í Kaupmannahöfn,
þriðjudag.
Sex lög tekin upp
með Tilveru í Höfn
Fóru utan i gærdag, upptakan fer fram
i sama stúdiói og Trúbrot ...
en upptakan hefst n.k.
Ljósm.: Bragi.
Umsjón Benedikt Viggósson:
• ......................... .....................................
hans á hinu gullfallega lagi
Gunnars Þóröarsonar „Biáu aug
un þín“. Næstu tvær piötur sem
hann söng inn á voru einnig
meö Hljómum, og báðar LP, en
þekktustu löngin á þessum plöt
um hafa einmitt verið sungin af
Engilbert Jensen.
Um miöja næstu viku kemur
ný plata með Ríó tríóinu, en
þetta verður jafnframt þeirra
fyrsta plata meö hinum nýja
meðlim trfósins, Ágústi Atla-
syni.
Lögin eru tvö, titillagið nefn-
ist „Við viljum lifa“ en lagið
hinu megin heitir „Tár f tómið“
og fjallar það um raunir eitur-
lyfjanevtandans. Bæði þessi lög
voru á meðal þeirra er Ríó-trí-
óið fluttj í sjálfstæðum þætti í
sjónvarpinu fyrir nokkru.
Um þessar mundir er Ríó-trí
óið á faraldsfæti ásamt hinum
ötula umboðsmanni sínum Óm-
ari Valdimarssyni. En þeir fé-
lagar eru þátttakendur í heljar-
miklu ferðalagi sem Þjóðdansa-
félagið stendur aö.
Flokkurinn fór utan um síð-
ustu mánaðamót. Fyrst var kom
Tveggja laga plata með Ríó kemur á markaðinn um miðja
næstu viku...
ið fram í Svíþjóð, síðan haldið
til Danmerkur, Þýzkalands og
um þessar mundir er Ríó-tríóið
og sýningarhópur frá Þjóðdansa
félaginu f Austurrfki. Þar lfk-
ur ferðalagi flokksins, en Ríó-
mun ætla að ferðast eitthvað
meira upp á eigin spýtur. Sam-
kvæmt upplýsingum sem Fálkan
um hafa borizt hafa móttökum-
ar verið mjög góöar.
SPE POP ..
FIosi og Pops.
Tvö lög
ÍJtgefandi SG-hljómplötur.
Það fyrsta sem kom upp í
huga mér er ég hlustaði á þessa
plötu var það að Flosi hefði bara
töluveröa rödd.
Einhvern veginn hefur maður
það ríkt á tilfinningunni að hon
um hafí tekizt betur upp í túlk-
un sinni í þeim sjónvarpsþátt-
um sem þessi tvö lög voru frum
flutt í, en auðvitað hefur það
sitt að segja að núna hlustar
maður bara á flutning Flosa, en
áöur sá maður hann bæði og
heyrði á sjónvarpsskerminum.
Það er auðheyrt að honum tekst
betur upp í síðara laginu „Ó
Ijúfa líf“, en þaö er eftir Magn-
ús Ingimarsson.
Fyrra lagið er nú reyndar
bandarfskur negrasálmur, en í
meðförum Flosa hefur það hlot
ið hið virðulega heiti: „Þaö er
svo geggjað að geta hneggjaö“.
Flosi hefur samiö báöa text
ana, þeir eru báðir í stytzta lagi
til flutnings á hljómplötu/ enda
mikið um endurtekningar.
Frekar finnst mér lítið til
fyrri textans koma, en „Ó Ijúfa
líf“ er afar hnittið. Pops annast
undirleikinn og gera það mjög
þokkalega, en satt að segja
bjóst ég viö kröftugri flutningi
frá þeim, en kannski hefði það
ekki verið viðeigandi. Andrés
Ingólfsson leikur með þeim í síð
ara laginu.
Ein af þeim hljómsveitum er
voru stofnaðar fyrir ári er
Hljómar leystust upp var Til-
vera. Ekki er hægt að segja að
hljómsveitin hafi borið nafn sitt
með rentum, ferillinn hefur ver-
ið nokkuð skrikkjóttur og tölu
verðar breytingar hafa verið
gerðar á hljómsveitinni þetta
eina ár, sem hún hefur starfað.
En nú er aö birta til hjá Til-
veru, þeir félagarnir flugu til
Kaupmannahafnar í gær, en þar
verða hljóðrituð sex lög meö
hljómsveitinni.
Þau eru öll eftir gítarista og
söngvara hljómsveitarinnar Ax-
el Einarsson og textarnir sömu-
leiðis. Aðrir meðlimir Tilveru
eru Jóhann Kristinsson bassa,
Ólafur Garðarsson trommur og
Pétur Pétursson Hammond org-
«L — Þessi sex lög veröa gefin
út á þremur tveggja laga hljóm-
plötum, löigin á fyrstu plötunni
heita: „Kalli sæti“ og „Ferð-
in“ ....
Hljómsveitin fer út á vegum
Fálkans og verða umrædd sex
lög hljóörituð í sama stúdíói og
Trúbrot unnu sín nýjustu plötu
í.
Piltarnir sögöust hafa notað
tímann að undanförnu til að
samæfa sig og að sjálfsögðu til
að æfa fyrir plötuupptökuna.
Þetta verður stutt ferð, en
strax og þeir koma heim er
meiningin að fara að æfa upp
nýtt lagaprógram svo Tilvera
verði „ballhæf" á ný.
En til að byrja með verða þeir
eingöngu út á landsbyggðinni á
dansleikjum, sem þegar er búið
að ráða þá á.