Vísir - 18.07.1970, Side 7
VÍSIR . Laugardagur 18. júlí 1970.
7
□ Líflegra sjónvarp.
Það er vonandi að sjðnvarps-
menn komi nú hressir og end
urrtærðir úr sumarfríinu —
og finni up á einhverju nýju
og hressandi.
Þaö verður spennandi að sjá
sjónvarpið þegar það byrjar á
ný. Skyldi það nú ekki verða
dáiítið fjölbreyttara en í vetur?
Hvemig væri að taka til fyrir
myndar dagskrár frá Norður-
löndunum, þar sem fjallaö er á
lifandi hátt um málefni, sem eru
ofarlega á baugi. Það er ekki
endilega nauðsynlegt að fjalla
um „andlegt efni“ á jafn þurran
og einhæfan hátt og hér refur
veriö gert. Hér er ekkert til á
milli Ieiklistar og viðtalsþátta,
en þarna á milli liggur einmitt
sviö sjónvarpsins. I guðs bæn-
um hressið nú upp á stemmning
una sjónvarpsmenn. Hvemig
væri að gera þætti, eins og
sænska þáttinn um mótmæla-
unglingana? Hvernig væri að
hverfa dálítið frá fortíðinni og
gamla fólkinu og gefa t.d. stúd
entum kost á að gera sjálfsíæða
lifandj og fræðandi þætti um
ýmsa hluti, um skoðanamyndun
um atvinnulífið, um neyzluþjóð-
félagiö um skólakerfið, um unga
fólkið — en nú eru sjónvarps
menn h'klega búnar að fleygja
blaðinu í ruslakörfuna.
S.P.
□ Ófriður við veiðar
í Elliðaám.
„Einn morgun fórum ég og
kunningi minn til að veiða i Ell
iðaánum. Við hö.fðum keypt
leyfin dýrum dómum. Þegar við
komum þangað voru brúarfram
kvæmdirnar neðst í ánni miög
truflandi, og var mikil styggð á
laxinum, svo að ekki var við
komandi að fá hann til að
taka, sama hverju beitt var. —
Við færðum okkur þá upp með
ánni, því við hugðum að þar
mundi vera meira næði til veið
anna, en þegar þangað kom tök
ekki betra við. Þar var allt fullt
af krökkum úr nágrenninu að
,,leik“, þ.e.a.s. kastandi grjóti
út í árnar. Eins og menn geta
rétt ímyndað sér var nær von-
laust að reyna að veiða eftir þá
meðferð sem áin var búin að
fá. Meöal annars var búið að
henda miklu grjóti í einn hvlinn
svo telja má hann óvirkan með
an hann er ekki hreinsaður. Ot-
koman úr þessum veiðitúr okk
ar varð sú, að við fengum engan
fisk, þó að nóg hefði verið af
honum í ánum. Við fréttum að
þejr sem á eftir okkur voru
hefðu heldur ekki fengið neitt,
en væru samt vanir veiðimenn.
Væri nú ekki ráð að ráða-
menn réðu mann til þess að sjá
um að halda mestu umferðinni
frá, svo menn gætu notið þess-
arar stundar sem þeir kaupa við
áraar, en þurfj ekki að vera að
ergja sig á þvi að reka frá sér
allan tímann.
Veiðimaður
□ Af hverju öryggis-
belti bara í nýjum
bílum?
Öryggisbelti eru sjálfsagt mjög
nytsamleg í bifreiðum ef til á-
rekstrar kemur og ég ætla sízt
að neita því að þau geti komið
í veg fyrir slys á fólki, séu þau
notuð. Hitt skil ég ekki, af
hverju þetta er ekki haft í öll-
um bílum, fyrst á annað borð
er verið að setjá reglur um
þetta. Á að^meta mannslífieftir
þvi hvort það ferðast f nýjum
bfl eða gömlum. Ég skil ekki for
sendurnar fyrir því að eigendum
nýrra bíla er gert skylt að hafa
öryggisbeltj í bílum sinum en
ekki eigendum gamalla bila. —
Þetta er svo til athugunar fyrir
Bifreiðaeftirlitið.
Bileigandi.
A að meta mannslífin eftir
því, hvort þau aka í nýjum
bílum eða gömlum. Af hveriu
ekki öryggisbelti i alla bila:
r
| HRINGIÐ í
SÍMA1-16-60
KI.1R-1R
*
FELAGSLIF
Hinar áriegu tjaldsamkomur
Sambands íSl. kristniboðsfélaga
varða nú öðru sinni við Nesveg
vestan Neskirkju hvert kvöld frá
18—26 júlí kl. 8.30 e. h.
Sunnudaginn 19 júlí verður sér-
stök kristniboðssamkoma þar sem
ti! máls taka Bjarni Eyjólfsson rit
stjóri og danska hjúkrunarkonan
og Indlandskristniboöinn Ellen
Lund. Síðar munu taka til máls
séra Frank M. Halldórsson sóknar
prestur, Árni Sigurjónsson, banka-
fulltrúi og Magnús Oddsson raf-
veitustjóri. Einnig mun margt
skólafólk tala .Mikill söngur verð
ur. Gunnar Sigurjónsson mun stj.
samkomunum,
Kristniboðssambandið.
COOKY GRENNIR
COOKY i hvert eldhús. Hreinni
eldhús. Auðveldar uppþvott. —
COOKY fyrir þá, sem forðast
fitu.
Bandaríska tónskáldið
Harold Clayton leikur eigin tónsmíðar í
Norræna húsinu á rnorgun sunnudag 19. júlí
kl. 16. — Aðgangur ókeypis.
Norræna húsið.
Viögeröir á sportgúmmíbát-
um. — Kókos og marlindregl
ar fyrirliggjandi í Iitavali. —
Hentugt í bíla.
Gúmmíbátaþjónustan
Grandagarði 13. Sími 140,10
NÝKOMINN
Vntnslímdur útíburðukrossviður
90x210 cm — 9 mm
Glæsileg vara — Mjög lágt verð.
Hannes Þorsteinsson, heildverzlun.
Hallveigarstíg 10. Símar 24455—24459
JON LOFTSSÖN h/f hringbraut 121, s/mi W600 í
O
U
ö
V>
V
át
*
Grillaðir kjúklingar, ásamt fjölda annarra heitra og kaldra rétta.
Smurt brauð og.snittur og einnig hinar vinsælu nestissamlokur,
afgreiddar allan daginn.
Lækjargötu 8. — Sími 10340.