Vísir - 28.10.1970, Síða 16
ISIR
Miðvikudagur 28. október 1970.
Frægt
naf n á tón
leikunum
í kvöld
Sjostakovitsj stjómar sinfón-
íuhijómsveitinni í kvöld. Þetta
nefn dregur eflaust að sér ca
marga áheyrendur að tónleikun
um, en hér er uin að ræða son
tónskáidsins þekkta. Á tónleik
unum kemur einnig fram landi
Sjostakovitsj, Karine Georgyan
sellðleikari, en hún mun leika
Roknln-tilbrigðin eftir Tsjai-
kovslty.
Önnur verk á efnisskránni eru
forleikur eftir Mussorgsky og
fimmta sinfónía Beethovens. ,
— SB
ÁHB gerði gæfumuninn!
— Af 1800 milljón kr. bata v'óruskiptajafn-
aharins stafa nær 1300 milljónir af hinum
nýja útflutningi
□ Álverksmiðjan f
Straumsvík er vissu
lega komin ver í gagnið.
Á1 og álmelmi var flutt
út fyrir 1.282,3 milljónir
króna fyrstu níu mánuði
ársins. Þessi nýi útflutn-
ingur hefur gjörbreytt
vöruskiptajöfnuðinum.
Nú er hann hagstæður
um 565,4 milljónir
fyrstu níu mánuðina
1970 en var óhagstæður
um 1.278,0 milljónir
1969.
Þessi álútflutningur fyrir
nærri 1,3 milljarða veldur því,
að batinn hefur orðiö yfir 1,8
miUjarðar síðan í fyrrn frá 1,3
mínus í nærri 0,6 í plús.
Mánuðina janúar til septem-
ber 1970 var flutt út fyrir 9.607,8
miHjónir samtals en inn fyrir
9.042,4 milljónir. Otflutningur i
september nam 1.211,2 mililj. en
innflutningur 1.174,2 millj.
í fyrra var halli á vöruskipta
jöfnuði í septejnber þar setn
innflutningur var 48,2 mi'llj.
meiri en útflutningur.
Innflutningur til íslenzka ál-
félagsins nam 711 miMj. fyrstu
níu mánuðina, og eru þær tölur
meðtáldar hér að framan. Til
Búrfellsvirkjunar var flutt inn
þennan tíma fyrir 88,3 mil'ljónir.
— H!H
MeíS
morg jarn
eldinum
„Við erum að æfa
leikrit. Ég held það
hér núna
sé algjört
Sjostakovitsj heldur til æfingarinnar í Háskólabíói í morgun
met í sögu þessa húss“, sagði
okkur Klemenz Jónsson, blaða-
fulltrúi Þjóðleikhússins. >
,,Ég vil, Ég vil“ er nú á síðustu
dögum æfingatímans og þá kemur
næst Sólnes byggingameistari eftir
Ibsen. Leikstjóri er Gisli Halldórs-
son. Svo erum við að Para af stað
með æfingar á jólaleiknum, Faust.
Gísli Alfreösson stjórnar æfingum
á því í Lindarbæ þar til þýzki leik
stjórinn kemur. Nú, og svo er ég
sjálfur að æfa barnaleikritið Litla
Kláus og stóra Kláus. Þ'aö er svo
áskipað á sali Þjóðleikhússins, að
ég verð aö æfa það uppi í Kristals-
sal“, sagði Klemens, „leikstjórarn-
ir veröa að komta sér sama.n um
æfingatíma, því að margir leikarar
leika í fleiri en einu af þessum
verkum — en þetta virðist ætla
að bjargiast einhvern veginn“. <
— GG
Nokkurra ivikna vinna
eftir I starfsmati
Kjarasamningar opinberra starfs
manna verða sennilega sendir form
lega til Kjaradóms 1. nóvember,
þar sem ekki er útlit fyrir, að geng
ið hafi verið frá samningum milli
Kjararáðs BSRB og samninganefnd
ar rfkisins fyrir þann tíma. Hins
vegar er óvíst hvort Kjaradómur
mun taka samningana til meðferð-
ar, þar sem talið er að samningar
séu að takast milli aðila.
Samkomulag mun hafa tekizt um
veigamikla liði í samningunum,
srvo sem launastigann, þ.e. hækk
anir á hinum einstöku launaflokk-
um. Hins vegar er eftir að raða
stapfsheitum í launaif’lokka eftir
statifsmati og er talið, að nokkra
vi'kna vinna sé eftir við það. —VJ
Hj úkrunarkonur vanda
um við kennara
— telja jbá nota samanburÓaráróður til að
lyfta sér upp á kostnað annarra stétta
„Starf bamakennara er vanda-
samt cg ábyrgðarmikið og vonandi
cð það verði rétt metið til launa,
en það virðist alltaf gengið fram
. <_d því, að allar hjúkrunarkonur
iiafa kennsluskyldu i sínu starfi,
gem leiðbeinendur sjúklinga, við
heilsuvemdarstörf, og við að kenna
hjúkrunarnemum og aðstoðarfólki
við hjúkrunarstörf. Þeim mun
nieiri ástæða er fyrir þessa hópa
að vera traustir samherjar“, segir
m. a. í athugasemd frá stjórn
Hjúkrunarfélags íslands, þar sem
stjórnin lýsir óánægju sinni yfir
samanburði barnakennara á laun-
um þeirra og hjúkrunarfólks.
í athugasenidinni er vitnað til
samningaviðræðna BSRB og samn-
inganefndar ríkisins. „Innan BSRB
er ætlazt til að allir aðiiar vinni
saman að kjarabótum og sýni þann
ig félagslegan þroska, en noti ekki
samanburðaráróður til þess að
lyfta einum hópi á kostnað ann-
arra.“
Þá segir stjómin, að það sé við-
urkennt um allan heim að hjúkr-
unarkonur hafi verið vanmetnar til
launa, enda víöast mikill skortur
á hjúkrunarkonum. Einnig hafi
kröfur til hiúkrunar farið sívax-
andi. Það verði að gera hjúkrunar-
starfið eftirsóknarverðara sem at-
vinnugrein, bæöi fyrir karla og
konur, ef ekki vegna hjúkrunar-
kvennanna sjálfra, bá a. m. k.
vegna þess fóllcs, sein l>arf.ilsf
þjónustu þeirra. — SB
Frostið komst
í 13 stig í nótt
í Reykjavík
Hörkufrost er enn víða á iandinu.
1 nótt mældist mesta frostið á
Hveravölilum 17 stig og komst upp
í 13 stig ( Reykjavik.
1 morgun klukkan níu var 7 stiga
fro'St i Reykjavfk, 13 stiga frost á
Þingvöl'lum og 10 stiga frost víða
um land. Gert er ráð fyrir austan
átt og snjókomu á víð og dreif á
1 suðurströndinni í nótt en björtu
I veðri fyrir norðan. — SB
BETRI LÍÐAN
DRENGSINS
Líðan Hjartar Kristmundsson
ar, 10 ára drengsins, sem stung
inn var hnSfi í Keflavík í fyrra-
dag, fór batnandi í gær, en hann
liggur á Borgarsjúkrahúsinu.
Hann var lagður þar inn í
fyrrinótt strax til aðgerðar, og
þótti of þungt haldinn i gær til
þess aö geta tekið á móti heim
sóknum annarra en móður sinn
ar, en var þó talinn úr lífs-
hættu. — GP
Hjörtur Kristmundsson
Piltarnir voru
látnir lausir
Piltarnir þrír, er kæröir voru
fyrir nauðgun 12 ára stúlku,
hafa verið látnir lausir að lokn
um yfirheyrslum. Játuðu þeir
allir hlutdeild sína í verknaðin-
um, og að þeir hefðu komið
vilja sínum fram við stúlkuna
með líkamlegu ofbeldi.
Frumrannsókn málsins er lokið
og hefur verið úpplýst, en á síðara
stigi verður málið sent saksóknara
ríkisins til ákvörðunar um, hvort
til málshöfðunar kemur. Piltarnir
eru fimmtán ára gamlir og eru því
aldurs vegna nýorðnir sakhæfir.
Þeir hafa ekki verið úrskurðaðir
í gæzluvarðhald, sem einungis er
gert, þegar öryggi borgara þykir
annars hætta búin, eða ef ætla
má að rannsókninni veröi spillt og
gögnum komið undan eða við
komandi reyni að komast undan
réttvísinni.
Engar aðstæður eru til meðferö
ar á afbrotamönnum á þessum aidri
sem þykja of gamlir fyrir upptöku
heimiii fvrir vandræðaböirn og of
ungir til vistunar í betrunarhús-
um. —GP
Þórbergur með Einar ríka
á markað fyrir jól
Bók i-órbergs Þóröarsonar, 3.
hefti af ævisögu Einars Sigurös
^ sonar, útgerðarmrnns mun
L ko-ma út núna fyrir jólin, en
/ ekki í janúar, eins og áður var
) sagt.
\ Margrét Jctnsdóttir, eigin-
kona skáldsins tiáði Vísi á mánu
daginn, að bókin væri tilbúin,
en ekki er en ráðið hvaða nafn
henni verður gefið. Bókin er eíns
og fyrri hefti byggð á viörœð-
um þeirra Einars og Þórbergs.
—GG