Vísir - 08.02.1971, Side 2
Bíll handa hverjum manni
Hinir 900 verkamenn og hvit-
flibbamenn, sem starfa hjá Weiss-
enberger byggingafyrirtækinu í
Bergisch-Gladbach, Vestur-Þýzka-
landi, eru nú öfundaðir af starfs-
bræðrum sínum um allt Þýzka-
land. Framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins, hinn 40 ára gamli Franz
Weissenberger, hefur nefnilega
ákveðið að fyrirtækið kaupi bfl
handa sérhverjum starfsmanni
sínum. Hvort sem viðkomandi er
múrari, deildarstjóri, símastúlka
eða verkamaður. Fyrstu 300 bil-
amir eru þegar komnir í gagnið
og hinir 600 eru þegar væntan-
legir innan fárra daga. Fyrirtækið
mun bera allan kostnað af þess-
( um bflum - einnig skattagreiðsl-
ur af þeim og tryggingagjöld.
Starifsmenn Weissenbergers verða
aðeins aö annast bílinn sinn vel,
halda honum ævinlega hreinum
og í góðu lagi. Fyrirtækið borgar
einnig bensín á hvern bfl, þ. e.
a. s. bensín sem þarf til að aka
ti-1 og frá vinnu dag hvera, en
annan akstur svo sem í þágu
fjölskyldunnar út um sveitir um
-helgar, verða verkamenn að borga
sjálflr.
Franz Weissemberger segist
vera svo höfðinglegur vegna þess
að hann $egist vilja binda sér-
hvem starfstnann fastari böndum
við fyrirtækið og hindra hina
stöðugu hreyfingu á verkamönn-
um milli byggingafyrirtækja, sem
tfðkazt hefur í Þýzkalandi. Einnig
vi'1'1 hann veita starfsmönnum sín
um nokkurn h-lut f velgengni fyr-
irtækisins, þakka þeim þannig
fyrir vinnu þeirra. Framkvæmda-
stjórinn gerir engum hærra undir
höfði en öðrum — skrifstofu-
maðurinn og deildarstjðrinn aka
f alveg eins bflum og ófaglærði
verkamaðurinn frá Spáni, Tyrk-
landi eða Júgóslavíu. Og litur
bflsins er einnig eins konar ein-
kermisklæði: Rauður.
□aaa
Mandy litla Hornsby í Lond-
on er sögð einstaklega heilbrigt
og skemmtilegt bam, enda
skortir hana ekkert — nema
hendumar. Hún er eitt af hin-
um svokölluðu „Thalidomide-
bömum“ — þau fæddust á ýms-
an hátt bækluð vegna þess að
mæður þeirra höfðu neytt lyfs-
ins thaiidomide — meðan með-
göngutíminn stóð, án þess að
hafa fengið vitneskju um hversu
hroðalegar afleiðingar þess geta
orðlð.
En það sem kann að vanta á
Mandy líkamiega bætir hún sér
upp á andiega sviðinu. Vilja-
styrkur hennar er sagður ein-
stakur. Nágrannar hennar og
foreldra hennar í London hafa
frá því hún fæddist dáðst að
henni og eins og til að láta
aðdáun sína í ljósi, gáfu þeir
henni reiðhjól í afmælisgjöf um
daginn, þegar hún varð 9 ára.
Og nú þeysir Mandy um á hjól-
inu, rétt eins og leikfélagar
hennar.
Burton og Taylor í helgan stein
„Það er með mig alveg
eins og pabba gamla, mér
er það lífsnauðsyn að
fara á fyllirí annað slag-
ið,“ sagði Richard Burton
blaðamanni einum ný-
lega, „en mín fyllirí
standa sjaldan lengur en í
3 daga. Pabbi gat vérið
fullur og í fínu formi vik-
um saman.“
,nn hins vegar aldrei. Ée held Liz var kpmin í upptökusalinn
i ráuiív£rUlegar' sé'1 ¥ia?in 'gra’utfú ll' Töngu áöur en hún skyldi koma
e.crs vppri3 “ z c-oLm**. -----------x —* - * —
Liðnir kynsprengjudagar
Og ekki stendur betur í bólið
hjá frúnni, Taylor, Hún er orðin
38 ára, feitlagin og fær ekki leng-
ur kynsprengjuhlutverk. Hún
reynir að fela hrörnun sína bak
við þykkt lag af andlitsfarða, og
þetta málriingarfjall skreytir hún
svo með gimsteinum fyrir margar
milljónir. Taugaveiklun hennar
ágerist og segja gamlir kunningj-
ar þeirra hjóna, að þeim leiðist
hversu mjög þau, eða einkum Liz,
leggja sig í líma við að laða að
sér athygli meö nýjum aðferðum.
Fyrir nokkrum mánuðum var
Liz Taylor gestur f sjónvarps-
þætti þess brezíka Davlds Frost.
,,gamla“ var mætt og ekki enn
búin að farða sig, tókst honum
með einhverjum brögðum að fá
hana til að koma fram fyrir sjón-
varpsmyndavélamar farðalausa
Þegar hún uppgötvaði hrekkinn,
varð hún æf aif vonzku, kallaði
Frost „Iítinn tíkarson" og storm-
aði burtu.
„Snyrtileg jarðarför“
í Wales
Burton hefur í seinni tíö státaö
stundum af peningaviti sínu.
Hann hefur sagt að hann gæti
aldrei orðið blankur, hversu brjál-
aður sem hann yrði f að eyöa
fé sínu, því hann hafi búið svo
um hnútana að fé ætti hann alla
tíð faliö í einhverri smugu. Og
nú er hann farinn að velta því
fyrir sér, að verðlauna sjálfan sig
rækilega eftir slítandi starfsferil.
Hann langar að taka sér bólfestu
f þorpi því í Wales, sem hann
fæddist og ólst upp í. Segist
hann hafa eignazt eitthvert fé með
an hann var drengur, og það fé
hafi hann lagt á bankabók og
hafi ekki snert við því sfðan. Hef-
ur hann hug á að láta það koma
að einhverju gagni núna með þvi
að kosta „snyrtilega jarðarför“,
eins og hann orðaði það og setjast
í helgan stein a. m. k. um tíma
— „þaö er víst ófrávíkjanlegt
lögmál að maður geti ekki að
eiiffu haldið áfram að leika elsk-
huga", á Burton að hafa sagt ný-
lega — sá skarpgáfaði maður.
Rauðskeggjaðir Indíánar
Þjóðfræðingar hafa fundið áður í
óþekktan ættbálk Indíána ein- t
hvers staðar 1 myrkviði Amazon- ;
frumskógarins. Eru þetta æði ‘
undarlegir Indíánar. Þeir em Ijós- t
ir á hörund, nánast hvítir og i
rækta á sér rautt skegg sem eins <
konar manndómsmerki.. I
Indíánar þessir þykja undarleg- >
ir um margt. Þeir fela konur sín- \
ar og böm og eftir því sem blaðið l
„Jomal do Brasil“ segir, þá /
rækta þeir hnetur, korn og svart- /
an pipar. Þeir kunna að búa til ’
ilát úr keramiki, nota vopn og 1
ræktunaráhöld úr steini. \
Þjóðfræðingar þeir, sem fundu -j
Indíánana, segja þá lága vexti, \
aðeins klædda tuskubleöli um 4
mittið og tungumál þeirra er ó- ^
Mkt tungum annarra Indíána, sem
nærri þeim búa — reyndar búa ^
þeirra næstu nágrannar í 250
mílna fjarlægö — þjóöfræðing-
amir segja þá aö útliti til helzt j
minna á Kákasusmenn. )
Richard Burton hefur aldrei
reynt að fela drykkjuhneigö sína,
enda væri það naumast mögulegt
þvílíkur viskíbelgur sem maöur-
inn hefur alla tíð veriö. Hann er
nú oröinn 45 ára og Bakkus virð-
ist stöðugt ná sterkari tökum á
Ieikaranum. Heilsa hans er heldur
Iéleg orðin og vinnuþrekiö er
sagt fara hraðminnkandi. Hann
þykir hafa fallið í „gæðaflokki“
hvað snertir leikhæfni a. m. k.
hafa hans síðustu myndir ekki
þótt minna neitt á það sem hann
gerði bezt hér á árum áöur.
Reyndar fékk Burton frábæra
dóma fyrir leik sinn í „Anne of
a Thousand Days“, en það skyggir
mjög á ánægju hans með þá
mynd að hann bjóst fastlega við
að fá fyrir hana Óskarsverðlaun-
in, on svo varð ekki.
Vinur Burtons sagði nýlega að
Burton hafi fundizt að hann ætti
aö fá Óskarsverðlaun fyrir mynd-
ina, eða leik sinn í henni og eng-
inn annar kæmi til greina. „Og
svo situr það líka í honum, þótt
hann láti sem ekkert sé og grínist
með það, aö Liz kona hans, hefur
tvisvar fengið Óskarsverðlaun —
\
s