Vísir - 08.02.1971, Blaðsíða 3
3
V1SIR . Mánudagur 8. febrúar 1971.
í MORGUN UTLÖNDI MORGUN UTLÖND I MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Umsjón: Haukur Helgason:
Innrás hafin í LAOS
20 búsund Suður-Vietnamar inn fyrir landa-
mærin <— Stefnt að eyðileggingu Ho Chi Minh-
leiðarinnar
□ Hersveitir Suður-Víet-
nama réðust í nótt inn
fyrir landamæri Laos. Ó-
staðfestar fregnir herma,
Nixon — aukinn stríðsrekstur.
9 Konur í Sviss fengu í gær í
fyrsta sinn kosningarétt í þing-
kosningum. Mikill meirihluti
karlmanna studdi í þetta sinn
kosningarétt kvenna. Við þjóð-
aratkvæði, sem aðeins karlar
tóku þátt í, studdu 621.403 kosn
ingarétt kvenna en 323.596 voru
andvíggir Þátttaka var 57%.
9 Nú höfðu orðið endaskipti á
hlutunum, síðan seinast var kos-
ið um þetta. Árið 1959 höfðu
654.926 verið andvígir kosninga-
að bandarískir ráðgjafar
séu í förinni. Takmark inn-
rásarinnar er að eyðileggja
aðflutningsleið Norður-Ví-
etnam um Ho Chi Minch-
veginn. Innrásarsveitirnar
munu vera um 20 þúsund
manns. Bandarískar her-
sveitir í norðurhluta Suð-
ur-Víetnam eru við öllu
búnar.
Suður-Víetnamar og Bandaríkja-
menn hafa undanfarna daga safnað
miklu liði í norðurMuta S-Víetnam
við landamæri Laos. Bandaríska
stjómin vildi ekkert upplýsa um
tilgang liðssafnaðarins, en margir
spáðu því, aö innrás yrði gerð í
Laos.
í Laos eiga hersveitir stjómar-
sinna í vök að verjast. Kommún-
rétti handa konum en að-
eins 323.306 fylgjandi. Sviss var
eina landið í Evrópu og eitt af
fáum í heiminum, þar sem kon-
ur höfðu ekki kosningarétt 1
þingkosningum. í nokkrum fylkj
um hafa konur mátt kjósa áöur.
9 það voru einkum þýzkumælandi
Svisslendingar, sem voru and-
vígir kosningarétti kvenna, en
frönsku og ítöiskumælandi
menn studdu yfirleitt kosninga-
réttinn.
istar í landinu, Pathet Lao, og
Norður-Víetnamar em í sókn.
Ho Chi Minh-leiðin er aðalflutn-
ingaleið frá Norður-Víetnam til
Suður-Víetnam.
Með þessu hefur stjórn Banda-
ríkjanna aukið þátttöku Bandaríkj-
anna í Indó-Kínastríðinu. Mun það
vafalaust valda öl'gu í Bandarfkj-
unum og annars staðar. Bandaríkja
maðurinn Wililim Aiken er ráðu-
nautur við innrásipa. Hann sagði
í morgun, að Suður-Víetnamar
væru vel búnir til bardaganna.
Hann segir, að engir Bandarfkja-
menn séu f innrásarliðinu. Þetta sé
þáttur f þeirri stefnu Bandarfkja-
stjómar að vemda lff bandarfskra
hermanna í Suður-Víetnam.
Nixon Bandaríkjaforseti gaf í
APOLLO 14
LENDIR
ANNAÐ
KVÖLD
APOLLO 14 var á hraðri leið til
jarðar í morgun og geimfararnir
við góða líöan. Þrátt fyrir nokk-
ur smáóhöpp er talið, að þessi
sé, hingað til að minnsta kosti,
bezt heppnuð tunglferða. Apollo
14 á að lenda á Kyrrahafi kl.
21.03 annað kvöld.
Vel tókst aö tengja tunglferj-
una við stjórnfarið í fyrradag,
þegar þeir MitcheM og Shepard
skutu sér aftur upp frá tungli
og sameinuðust meginhluta geim
farsins, þar sem félagi þeirra
Roosa hafði sveimað um tungl
síðan á föstudagsmorgun.
Rannsóknir þeirra félaga á yf-
irborði tungls tókust vel. Þeir
fóru tvívegis í gönguferð og
söfnuðu sýnishornum. Smáleki
varð • f búningi Mitchel'ls, en
kom ekki að sök. |
Síðasta ,karl-
mannaveldið' fallið
4000 HEIMILISLAUSIR
EFTIR JARÐSKJÁLFTA
18 fórust i hinum fornfræga bæ Tuscania,
sem geymir minjar frá menningu Etrúska,
fyrirrennara Rómverja
í jarðskjálftum í ítölsku
borginni Tuscania fórust
18 og rúmlega 200 eru slas
aðir samkvæmt seinustu
fréttum. 4000 eru heimilis-
lausir og búa í tjaldbúðum
utan við borgina.
Tuscania hefur verið talin ein-
hver fegursta borg Mið-Ítalíu. Þar
eru merkar fomminjar, sem marg-
ar skemmdust í jarðskjálftanum.
Enn einn jarðskjálftakippur var
f gærkvöldi, en aðaljarðskjálftarnir
urðu á laugardagskvöld. Meðal
þeirra húsa, sem hrundu, var 370
ára gamalt sjúkrahús borgarinnar.
Vegum til borgarinnar var lokað,
meðan sjúkrabílar og fjölmargir
vörubflar óku til Tuscania með ull-
arteppi og vindsængur. Hjálpar-
sveitir komu fljótt á vettvang.
Það var einn íbúi Tuscania, sem
fyrstur tilkynnti um jarðskjáliftana.
Hann stökk á vélhjól í miöjum ham
förunum og ók til næsta þorps, þar
sem hann skýrði frá ástandinu. —
Hjálparstarf hófst samstundis.
Enn í morgun var leitað f rústum
að eftiríifandi. Emilio Colombo for-
sætisráðherra fer til Tuscania í dag.
Nýjasti hluti borgarinnar er lítið
skemmdur, og þar var .tftur komið
rafmagn f gærkvöldi.
Hin fornfræga Tuscania var mið-
stöð menningar Etrúska, sem réðu
ríkjum fyrir daga Rómverja. Þarna
eru einnig merkar minjar frá mið-
öildum Tvær fagrar kirkjur frá 8.
öld evðilögðust, Péturskirkjan og
Maríukirkjan í Tuscania.
Jarðskjálftamir nú voru hinir
mestu á Ítalíu síðan 1968, en þá
fórust um 200 1 jarðskjálftum á
Vestur-Sikiley.
gær þá yfirlýsingu, að „bandarískir
hermenn yrðu í Víetnam, meðan
Norður-Víetnamar héldu bandarísk
um stríðsföngum í haldi“. Þetta er
í fyrsta sinn, að stjómvöld gefa
slíka yfiriýsingu.
„Gomulka og æðsta stjórn flokksins fyrirskipaði, að skotið yrði
á fólkið án þess að spyrja miðstjórnina,“ sagði Gierek, nýi for-
maðurinn, í gær. Myndin sýnir Gomulka, sem nú er sjúkur og
sviptur mannvirðingum.
Át'ókin i Póllandi:
45 féllu, 1165 særðust
Sól Wladislaw Gomulka er að síga
til viðar. Gomulka var æðsti maður
pólska kommúnistaflokksins þar til
um jól, og f gær var hann sviptur
sæti sínu í miðstjórn. Tveir stuðn-
ingsmenn hans viku einnig úr mið-
stjóminni, stjórnandi efnahagsstofn
unarinnar Jaszbzuk og hugmynda-
fræðingurinn Kliszko. Þetta er ein
afleiðing uppþotanna í Norður-Pól-
landi í vetur.
Gierek hinn nýi forystumaður
kommúnistaflokksins hefur styrkt
aðstööu sina. Hann sagöi f gær, að
æðsta flokksstjórnin hefði borið á-
byrgöina á því ástandi, sem leitt
heföi til uppþota. Gierek sagði, að
45 hefðu fail'lið i borgum Norður-
PóMands í átökunum og 1165 særzt.
Er þetta í fyrsta sinn, sem viður-
kennt er, að svo margir hafi týnt
Hffi.
Efnahagsmálaforingjanum Jaszc-
zuk er kennt um ranga stefnu, sem
hafi valdið mikilla óánægju almenn-
ings.
Stjórn Trausta félags
sendibifreiðastjóra
vill vekja athygli á lögum nr. 36/1970 um letigubif-
reiðar, sem tóku gildi 1. júlí 1970 og hlotið hafa sam-
þykki og löggidlingu borgarstjórnar Reykjavíkur, bæj-
arstjórnar Kópavogs og sýslunefnda Garða-, Álftanes-,
Seltjarnarnes- og Mosfellshreppa.
Samkvæmt því er þeim einum heimilt að stunda leigu-
akstur á sendibifreiðum, sem hafa afgreiðslu á viður-
kenndri sendibílastöð og eru félagar í Trausta félagi
sendibifreiðastjóra. Atvinnurekendum og öðrum við-
skiptamönnum er vinsamlega bent á, að óheimilt er
aö hafa aðra í vinnu en þá sem fullnægja framan-
greindum skilyrðum.
Við viljum ennfremur vekja athygli á auglýsingu frá
Samgöngumálaráðuneytinu dags. 3. okt. 1956, þar sem
segir að frá og með 25. þess mánaðar sé skylt að hafa
gjaldmæla í öllum sendibifreiðum, sem aka fyrir al-
menning gegn gjaldi.
Við munum hlutast til um að allir, sem brjóta gegn
lögum og reglugerðum þessum, verði tafarlaust kærð-
ir og látnir sæta ábyrgö.
Reykjavík, 4. febrúar 1971.
Stjórn Trausta félags sendibifreiðastjóra.