Vísir - 08.02.1971, Síða 6
V í SIR . Mánudagur 8. febrúar 1971.
FARCJALDID FYRIR JÓN
VAR VCL ÞESS VIRDI!
Hafði nær stöðvað sigurgöngu FH i gær-
Jón Hjaltalín reyndist gjörsam-
lega óstöðvandi og skoraði 10
mörk, aðeins eitt þeirra úr víta-
kasti. Hér æðir hann upp, stekk-
ur og skorar enn eitt markið.
Áhorfendur hrifust mjög af leik
kvöldi — æsispennandi áfók Vikinga og FH
— 22:21 eftir vafasaman dóm undir lokin
1400 borgandi áhorfendur
auk 200 boðsgesta og
annarra dáðust að leik
Jóns Hjaltalín í gær með
Víkingsliðinu, — 10 glæsi-
leg mörk og gjörbreytt Vík
ingslið með tilkomu þessa
góða handknattleiks-
manns. Sannarlega áttu
Víkingar meira en tap skil-
ið. — Jafntefli var það
minnsta, en 1—2 marka
sigur þeirra hefði ekki ver-
ið ósanngjarn.
Síöari hálfleikur Víkinga er með
þvi allra bezta í þessu allra bezta
íslandsmóti, sem sögur fara af.
Þriggja marka forysta FH frá í
hálfleik var jöfnuð, og þá fengu
áhorfendur að sjá FH-inga í al-
gjörri taugaveiklun. Liðið virtist
ekki vita hvaðan á sig stóð veðrið.
F!H byrjaði annars ekki illa,
komst l 4 mqr^i-mjin j seinni hátf-.
leik, 13:9 og 'Í4:10, en þá skora
þeir Georg og Jón Hjaltalín með
stórglæsilegu skoti, en Rósmundur
Jónsson, sem nú er orðinn mark-
vörður Víkings, varði stórvel skot'
af línunni og annað úr horni. Það
var eins og þetta kveikti eld í
Vfkingunum og Öm á skot, sem
lendir í stöng. Hins vegar skorar
Guðjón Magnússon á 9. mínútu
14:13 og þá er leikurinn orðinn
fyrst æsispennandi og Ólafur Ein-
arsson, stórskytta FH brennir gróf-
iega af.
Það á ekki af FH að ganga.
Vitakast er dæmt á Víkinga eftir
að Geir skorar mark, — Geir
mótmælir við hinn unga dómara
Hauk Þorvaldsson, sem vísar Geir
umsvifalaust af velli í 2 mínútur,
enda Geir búinn að steyta göm
við dómarana fyrr i leiknum. Að
vísu skorar Ólafur Einarsson úr
þessu vítakasti, — en FH-menn
hafa misst sinn bezta mann af
velli.
Jón Hjaltalín skorar nú glæsi-
lega 15:14 yfir vömina og Rósmund
ur ver enn stórvel. Jón HjaltaMn
skorar svo á 13. mínútu jöfnunar-
markið 15:15 með rosalegu upp-
stökki og skoti. Og til að þjarma
enn að FH, þá ver Rósmundur enn
eins og höfðingi.
Loks þegar Geir er kominn aftur
í leik, skorar hann 16:15, en Magn-
ús Sigurðsson svarar meö góöu
skoti utan úr horninu, 16:16. Þetta
er um miðjan seinni hálfleik.
Birgir Bjömsson skorar 17. mark
FH, en Jón Hjaltalín jafnar. Geir
og Örn eiga tvö næstu mörk, og
nú halda menn að sé komið að
þeim kafla, þegar FH tekur völdin
sakir reynslu sinnar. Þetta staðfest-
ir Ólafur Einarsson með 20:17 úr
vítakasti.
En Víkingar eiga eftir að koma
enn einu sinni á óvart. Guðjón
skorar fyrst, þá Sigfús, þá em 5
mín. eftir, og þegar Víkingsvörnin
gliðnar, stekkur Geir inn, en Rós-
mundur ver fínuskotið við mikinn
fögnuö áhorfenda, og enn ver Rós-
mundur skot, og sókn Víkinga er
hafin.
Um þetta leyti vom FH-menn
einum færri, Birgi Bjömssyni var
vísað af velli þegar rúmar tvær
mínútur vom eftir af ieiktímanum.
Og nú skorar Jón Hjaltalfn Magn
ússon af iínunni, — 20:20.
Eftir em 80 sekúndur, — þá
skorar Kristján Stefánsson, sá
gamli og góði leikmaður, sem er nú
einn bezti maður liðs síns á ný
eftir áralanga hvíld, — 50 sekúnd-
ur em eftir, segir klukkan okkar,
og þá skorar Jón Hjaltalín 21:21 og
æsingurinn er satt að segja oröinn
ógurlegur.
í síðustu sókn FH, tekur Jón
Hjaltalín undir sig stökk, stekkur
á einn FH-manna, greinilega til að
brjóta af sér og fá þannig leiktöf,
— en Jón Friðsteinsson vísar hon-
um réttilega af velli, en laetur
stöðva klukkuná. Tvær sekúndur
eru eftir, þegar brotið er á FH-
menn á
réttá. sem
dæmir, — skotiö fer frá Geir gegn-
um klof Rósmundar i markinu.
GóÖur leikur þetta, — talsvert
mikið fyrir inngangseyrinn. FH
vann bama enn eitt stigaoarið i
safn sitt, — og siglir nú frarp<j>.
f.yrir Val á töflunni, — aðeins einu
stigi hafa FH-menn tapað í 6 leiki-
um s'inum. Geir var góður sem
fvrr, en Ólafur Einarsson kom ekki
eins vel út og í fyrri leikjum. ætti
e. t. v. ekki að leika svo lengi
í einu sem hann var látinn gera
nú, bvf hann er éhn ungur og ó-
revndur.
Annars er þetta FH-lið áreiðan-
lega þaö bezta í sögu félagsins.
Hraðinn í byrjun hefur áreiöanlega
átt að setja Víkingá út af laginu,
—og haföi raunar nær gert það,
staöan var orðin 6:2, 7:3 og 9:4,
10:5, þegar 3 Víkingsmörk koma,
10:8, rétt fyrir hálfleik, en þá skor-
ar Ólafur Einarsson úr vel fram-
kvæmdu aukakasti 11:8 fyrir FH á
lokasekúndunni.
Víkingsliðið átti stórkostlegan
leik. Væntanlega á liðið eftir að
hrósa sigri yfir veikari aðilum en
FH — ef Jóns Hjaltalíns nýtur við,
sem mun verða að sögn forráða-
manna Víkings, því hann mun
verða með næstu 3 leikj Víking-
anna. Guðjón féll mjög í skugga
Jóns í fyrri hálfleik, en kom fram
i þeim s'iðari og var góöur. Einar
Magnússon hefði getaö veriö virk-
ari. Rósmundur var góður í mark-
inu, en liöið sem heild gott.
Dómararnir, Jón Friðsteinsson og
Haukur Þorvaldsson voru góöir,
mun betri en nokkum óraöi fyrir
fyrirfram. Það þarf hæfileika til aö
dæma leik sem þennan en þeim
tókst vel, enda þótt ákvörðun Jóns
skilii eftir efasemdir, varðandi
stöövun klukkunnar. — JBP
Haukarnir slógu ÍR út af laginu
— Tiltölulega jafn fyrri hálfleikur — rassskellur i jbe/m siðari
Haukar fóru allt of létt með IR-
inga í 1. deildinnj i handknattleik í
gærkvöldi unnu þá með 26:14 f
leik sem margir höfðu reiknaö með
að yrði jafn og spennandi til síð-
ustu mínútu. Haukar náðu góðri for
ystu í byrjun 5:2 6:3 svo nefnd
séu dæmj en ÍR-ingum tókst að
jafna muninn og jafna f 7:7 en Guð
mundur Gunnarsson varði stórvel
fyrir ÍR.
í hálfleik var staðan 11:8 fyrir
Hauka alls ekki óvinnandi vegur að
sigra fyrir ÍR-inga. En hvað gerðist.
Haukasóknin fór allt í einu hrein-
lega að labba gegnum vömina hjá
ÍR sem virtist gatslitin. Hins veg
ar þjappaðist vöm Hauka saman
og tókst iR ekki að skora nema 6
mörk í síðari hálfleik þar af ekki
nema 2 mörk fyrstu 19 mínútur
leiksins.
Haukar tóku að sigla rólega fram
úr, alltr virtist heppnast þeim, ekk
ert fyrir ÍR-ingum. Vítaköst ÍR-
inga voru varin, linuskot runnu
úr höndum leikmanna yfir markið
OÆ.frv. en Haukaskotin áttu ótrú-
lega greiða leið í markiö af ótrúleg-
ustu færum,
Lokastaðan varð 26:14, — mjög
óviðunandi úrslit fyrir ÍR-liðið,
sem er mun betra en svo að þaö
saetti sig við slfka útreið.
Mörkin: Stefán 6, Þórarinn 6, Við
ar 5, Ólafur Ól. 3, Hafsteinn 2,
Þórður 2, Sig. Jóakimsson 1 og Hall
dór 1 fyrir Hauka.
Fyrir ÍR skoruðu Vilhjálmur 6, Þór
arinn 3. Brynjólfur 2, Ágúst, Ás-
geir og Jóhannes eitt hver.
! Áhorfendur á OLD TRAFFORD j
• •
! brostu í gegnum tárin i
— grein H. Sim. verður að geymast
til morguns vegna þrengsla
Urslit f getraunaleikjum helg
arinnar urðu annars þessi:
Arsenal—Manch City 1:0
Blackpool—Wolves 0:2
C. Palace'—Ipswioh
Everton—Huddersfield
Leeds—Liverpool
Manch. Utd.—Tottenham
Newcastle—Chelsea 0:1
Nottinm For—Southampton 2:0
Stoke—Coventry 2:1
WBA—Bumley 1:0
1:0 West Ham—-Derby 1:4
2:1 Leicester—Hull 0:0
0:1 TÓLF RÉTTIR eru því sem hér
2:1 segir: 121—121—211—12x.