Vísir - 04.05.1971, Qupperneq 5
'nilldamwrkvarzla Sigurðar
agssonar færði Val sigur!
Hermann Gunnarsson skorar eina mark Vals í leiknum í gær-
kvöldi. (Ljósmyndari Vísis BB).
Sigurður Dagsson.
- snilldarmarkvarzla.
Valsmenn geta þakkað það
Sigurði Dagssyni að þeir
fóru með sigur af hólmi í
sjöunda leik Reykjavíkur-
mótsins á Melavellinum í
gærkvöldi. Hermann Gunn
arsson skoraði eitt mark
fyrir Val í leiknum og það
nægði, því sama var hvað
Víkingar reyndu Sigurð —
hann varði allt sem á Vals
markið kom.
Slík snilldarmarkvarzla hefur
ekki sézt lengi hjá íslenzkum mark
verði og ekki frá því, þegar Sig-
Áttundi sigur Ar-
í 1. deildí
senals
Lundúnafélagiö Arsenal hlaut
í gærkvöldi sinn áttunda meist
aratitil í ensku knattspyrnunni
og hefur því unnið oftar, en
nokkurt annað félag. Næst. eru
Everton, Liverpool og Manch.
Utd. meö sjö sigra hvert félag
í 1. deild. Arsenal var stofnað
1886 og nefndist fyrst Royal
Arsenal. Þaö var gert að at-
vinnumannaliði 1891 og þá var
Woolwich sett fyrir framan
Arsenal í stað Royal. Það heiti
hafði félagið til 1914 og síðan
hefur það aðeins nefnzt Arse-
nal, hvað útleggst vopnabúr á
íslenzku.
Arsenal hóf þátttöku í deilda
keppninni 1893 og lék fyrst í
2. deild, en 1904 vann liðiö
sig upp í 1. deild, en féll svo
aftur niður 1913. En 1919 vann
Arsenal sig á ný upp í 1. deild
Og hefur leikið þar síðan —
eða langlengst allra liða. Árin
milli 1930 og 1940 var félag-
ið hið þekktasta í heimi og í
sérflokki enskra liða. Fyrsti
meistaratitillinn vannst 1931 —
og s'iöan þrjú ár í röö 1933,
1934 og 1935. Enn vannst titill-
inn 1938. síðan 1948, 1953 og
nú 1971. Arsenal hefur þrívegis
sigrað í ensku bikarkeppninni
1930, 1936 og 1950. Einn íslend
ingur hefur leikiö í aðalliði Arse
nal, Albert Guðmundsson, sem
vann sæti í liðinu 1946 á kostn
að skozka landsliðsmannsins
Jim Logie. Þá æfði Ríkharður
Jönsson með Arsenal um tíma,
og lék í aðalliðinu í vináttu- og
æfingaleikjum. í einum slíkum
meiddist hann mjög alvarlega,
en vann bug á þeim meiðslum
með fádæma dugnaði. hsím.
urður næstum upp á sitt eindæmi
færðj Val íslandsmeistaratitilinn
fyrir nokkrum árum eftir hörku
keppni og attkaleik við Keflv’tk-
inga. Það var vissulega glæsileg
sjón, að sjá Sigurð svífa upp í
markhornin eða niður að stöng i
gærkvöldi og verja allt, sem á
markið kom með undraverðum
glæsibrag.
Suddaveður
Veður var heldur leiðinlegt, þeg
ar leikurinn var háður, suddarign
ing og hvasst og stóð vindurinn á
nyrðra markið. Víkingar léku und
an vindinum í fyrri hálfleik og
sóttu þá mjög framan aif_ en án
árangurs. Mikill hraðj var í leikn
um, en knattspyrna ekki alltaf
góð að sama skapi — og harka
oft allsráóandi. Undir lokin sóttu
Valsmenn aðeins í sig veðriö, en
ekki komst þó Víkingsmarkið í
mikla hættu.
í siðarj hálfleik bjuggust áhorf-
endur við, að Valsmenn — með
aðstoð vindsins — mundu yfir-
taka spilið. En það var öðru nær.
Víkingar gerðu nokkrar stöðubreyt
ingar hjá sér, sem höfðu góð áhrif
— einkum þó að láta Eirik Þor
steinsson leika sem innherja, og
voru mun meira í sókn en Válurí
Og þá var hlutur Siguröar V Vals-
markinu frábær.
Það byrjaði á 14. mín. þegar
Sigfús Guðmundsson varði vel
aukaspyrnu Jóhannesar Edwalds-
sonar — bezta manns Vals af úti-
spilurum — í horn, fékk knöttinn
eftir hana, og spyrntj fram, Eftir
skemmtilegan leik sóknarmanna
Víkings stóð Hafliði einn með knött
inn á markteignum og spyrnti fast
neðst í markhornið og þangað kast
aði Sigurður sér með leifturhraða,
greip knöttinn og hélt honum.
Enn sóttu Víkingar og á 22. mín.
fengu þeir aukaspyrnu, sem Guð-
geir Leifsson tók og þrumuskot
hans stefndi neðst í markhornið
út við stöng neðst — en það var
sama og áður — Sigurður varði.
Og knettinum var spyrnt fram —
Hermann sem varla hafði sézt í
leiknum náði honum, lék á varnar
leikmann Víkings og siðan mark-
vörð og renndi knettinum í mark
ið. Það reyndist sigurmark eins
og svo oft áður hjá Hermanni.
En hlutverki Siguröar í Valsmark
inu var enn ekki lokið — og hann
fékk mikið klapp á 30. mín. þegar
hann bætti ÖU s’in fyrri afrek í
leiknum. Hafliði átti þá hörkuskot
efst í markhornið og alveg út við
stöng, en Sigurður sveif eins og
tígrisdýr upp í hornið og tókst á
síðustu stundu að snerta knöttinn
með fingurgómunum og slá hann
yfir þverslá. Öneitanlega glæsileg
sjón.
Valsliðið var ekkj beint sannfær
andi í þessum leik og Halldór Ein
arsson sýndi oft háskalegan leik
í vörn liðsins, þar var leikið af
miklu meiri krafti en viti, enda
var hann áminntur af ágætum dóm
ara leiksihs, Óla Olseii. Valsvörn
in opnaöist stundum illa á miöj-
unni og það verður höfuðverkur
liðsins, ef það ætlar að ná árangri
í sumar. Framlinumennirnir eru
nettir eins og Hermann, Ingi Björn
og Þörir, en vinna ekki að sama
skapj vel nema Þórir. Víkingsliðið
var yfirleitt skarpara í leiknum,
leikmenn fljótarj á knöttinn og
baráttuviljinn mikill — en í þess
um leik mættu þeir hindrun, sem
þeim tókst ekki að yfirstíga og
svo hefði farið fyrir fleirum.
—hsím
Leeds enn nr. tvö
Síðan Leeds vann aftur sæti í
1. deild hefur árangur liðsins
verið frábær, þótt meistaratitill
inn hafi aðeins unnizt einu
sinni — 1969. Fjórum sinnum
hefur Leeds oröið í öðru sæti
og árangurinn er þannig í töl-
um nr. 2-2-4-4-1-2- og nú enn
nr. 2.
Fyrsta áriö 1965 varð Leeds
nr. tvö með 61 stig. eða sömu
stigatölu og meistararnir
Manch. Utd., en miklu verra
markahlutfall eða 83—52 gegn
89—39 hjá United. Keppnin þá
var ekkert í líkingu við það,
sem nú var, því Manch. Utd. var
búið að sigra, þegar liðið átti
einn leik eftir og það tapaði
honum fyrir Aston Villa 2—1.
Chelsea varð í þriðja sæti meö
56 stig.
Vorið 1966 varð Leeds aftur
í 2. sæti — nú sigraði Liver
pool, hlaut 61 st. Leeds 56 og
Burnley 55. Árið eftir 1967 sigr
aði Manch. Utd., hlaut 60
stig, Nottm. Forest 56, Totten-
ham 56 og Leeds varð í fjórða
sæti með 55 st. Næsta ár bit-
ust Manchester-Iiðin um meist
aratitilinn og sigraði City á
geysihörðum lokaspretti — svip
uðum og hjá Arsenal nú —
hlaut 58 stig. United hlaut 56,
en hlaut nokkra sárabót með
því að vinna Evrópukeppni
meistaraliða í mai 1968. Liver-
pool varö í þriðja sætj með 55
stig og Leeds í fjórða með 53.
Og vorið 1969 varð Leeds loks
meistari f fyrsta sinn og setti
nýtt stigamet í 1. deild — 67
stig — bætti met Arsenal og
Tottenham um eitt stig. Liver
pool varð í öðru sæti með 61
stig, Everton hlaut 57 og Arse-
nal 56. í fyrravor sigraði Ever-
ton, hlaut 66 stig, Leeds var
nr. 2 með 57 stig og Chelsea
í þriðja sæti meö 55 stig. Og
nú sigraði Arsenal með 65 stig
um, Leeds íllaut 64 og enn eitt
annað sæti, og ekki er enn
vitað um þriðja sætið nú.
Þótt árangur Leeds sé frábær
á þessu tímabili, og kannski
óheppni, að liðið hefur ekki
sigrað nema einu sinni, er þó
til enn furðulegra dæmi um
næstum eilift annað sæti. Fyrst
eftir síðari heimsstyrjöldina
varð Manch Utd. þrisvar nr.
2 í röð — 1947, 1948 og 1949,
en 1950 í 4. sæti og svo kom
enn annað sætj 1951 áður en
meistaratitillinn vannst loks
1952. Þá fékk undirritaður sam
úð með Manch. Utd., sem hef
ur haldizt síðan. —hs'im
Frá Barnaskólum
Hafnarfjarðar
Innritun 7 ára barna (fædd 1964) fer fram ískólunum
miðvikudaginn 5. maí kl. 4—5 síðdegis.
Hverfiskipting verður við innritun þessi:
1. Lækjarskóli: Hvaleyrarholt, Suðurgata, milli Sel-
vogsgötu og Lækjargötu og svæðið vestan Lækjar
að og með Linnetsstíg og Smyrlahrauni og Álfa-
skeið, upp að nr. 70.
2. Víðistaðaskóli: Frá Linnetsstíg og Smyrlahrauni
og Álfaskeiði 70 og þar fyrir vestan og norðan.
3. Öldutúnsskóli: Öll börn fyrir sunnan Læk, nema
þau, sem fara í Lækjarskóla.
Innritun 6 ára barna:
Ákveðið er að hafa deildir í skólunum fyrir 6 ára börn
(fædd 1965) næsta vetur. —■ Þau börn á að innrita
miðvikudaginn 12. maí kl. 4—5 síðdegis.
Hverfaskipting er sú sama og hjá 7 ára börnum.
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði.