Vísir - 24.06.1971, Side 13
V í SIR - Fimmtudagur 24. júní 1971.
IO
„Ekki erfitt en dálítið
— spjallab við tvær húsmæður, sem náðu
frábærum námsárangri, eftir nýlokið
gagnfræðapróf úr Kvöldskólanum
„'É'g er fædd og uppaliu í sveit
svo að frekari skólaganga
kom ekki til greina í þá daga“,
segir Ásta Ólafsdóttir, sem er
eán þeirra nemenda, sem ný-
lega útskrifuöust með gagn-
fræöapróf frá Kvöldskólanum.
Asta, sem er 48 ára húsmóðir,
náði frábærum árangri, hlaut
einkunnina 8.70 og va^ semi-
dúx, en fyrir utan heimilið
stundaöi hún fuila vinnu ásamt
náminu.
„Mig hefur ailtaf iangað til
þess að læra og hefur alltaf
þótt skömm að því að hafa ekki
gagnfraaðapróf, og ég sé eftir
því að hafa ekki gert þetta fyrr.
Maður hefur haft þetta skólafólk
í kringum sig, en staöurinn hef-
ur aiitaf fyrst og fremst verið
heima í kringum fjölskylduna."
—Og þú vannst utan heim-
itisins jafnhliða náminu?
„Ég vann átta tíma á dag á
sktifstofu bamaskólans í Breiö-
holti og svo hafði ég mitt heim-
ili, en ég hef nú bara strákinn
eftir, sem er 16 ára, manninn
minn og mig.“
— Var þetta ekki erfitt?
„Að vfsu fór ég ekki í alla
tíma, ekkert f ensku og lítið í
íslenzku og dönsku en samt hef
ég farið f rúman mánuð f hvort
fyrir sig, hitt sótti ég alveg.
Þetta var ekki voðalega erfitt,
ég hafði miklu meiri ánægju af
en erfíði. Ég dáðist mikið að
unglingunum þama því ég veit,
að það er meira átak fyrir þá
að vinna á daginn og eyöa kvöld
unum svona en fyrir þá, sem eru
eldri, en þau gerðu þetta vel
mörg. Ég hafði voða gaman af
þessu. Þarna kynntist ég nýju
fólki, og ég hvet alla sem hafa
áhuga á námi að gera það
sama.“
— Kom skólagangan niður á
heimilinu?
„Það var góð samvinna héma
heima, ég var ósköp lítið heima
og þurfti lfka að undirbúa mig,
það er svo langt síðan ég hef
verið f skóla, en þetta gekk allt
ágætlega."
— Hvemig stðð á því, að þú
sóttir færri tíma í málunum.
hafðir þú þekkingu f þeim fyrir?
„Ég átti heima í Bandaríkjun-
um sem iítið bam og það hjálp-
aði mér í enskunni, dönskuna
hafði ég lært einhvern veginn
af sjálfu sér og íslenzkuna var
ég búin að taka i bréfaskóla
fyrir tveim árum, en ég tók
bókmenntimar f skólanum.“
— Og hvað var erfiðast?
„Stærðfræðin, en hitt var allt
mjög þægilegt."
— Hvað ætlastu fyrir í fram-
tíðinni, halda áfram námi?
„Það er alveg óákveðið. Ég
sé til næsta vetur. Það fer kann-
ski eftir þvf hvað verður gert
þama niður frá.. Annars hef ég
ekki tíma til að vera við nám á
hverjum vetri, það verður eitt
og annað útundan.“
Tjóra Björgvinsdóttir er önnur
húsmóðir, sem stóð sig af-
bragðsvel í Kvöldskólanum með
8.25 f aðaleinkunn. Hún er 42
ára og á fimm böm á aldrinum
9—20 ára.
&
Fjölskyldan og Ijeimilid
„Mér líkaði alveg sérstaklega
vel. Þetta var miklu betra en
ég bjóst við. Kennslan var
virkilega góð og nemendurnir
virtust vera samstillt fólk, ein-
beitt við að læra.
— Vaf þetta ekki erfitt?
„Ekki erfitt, en dálítið álag
sérstaklega fyrir fjölskylduna.
Skólinn var þrjá tíma á dag frá
kl. 6 — 9 síðdegis. Þetta var ágæt
is tími fyrir mig að minnsta
kosti. Ég bjó til matinn áður
en ég fór í skóiann og svo
hjálpuðust hin við að ganga frá
eftir matinn. Ég lærði á daginn
þegar ég hafði tíma og það var
ekki svo voðalegt, ánægjan flyt-
ur mann svo langt.“
— Hvað va,. erfiðast í skól-
anum?
„Það var eitt fagið aðallega,
sem mér fannst seinlegt aö læra
og hefði þurft meiri kennslu í
því. Það er fag, sem maður hef-
ur aldrei komið nálægt fyrr en
í vetur, algebra og hlutir eins
og tölur og mengi. Hins vegar
hef ég afskaplega gaman af
reikningi, en ég hafði aldrei tek-
ið nema barnaskólaprófið og
það er stórt stökk að fara yfir
fjóra bekki i einu.“
— En slepptirðu einhverjum
tímum?
„Já, ég sleppti málunum, eig-
inlega eftir það, sem þeir köll-
uðu miðsvetrarpróf, og ég fékk
ágætt út úr því“.
— Hefurðu ákveðið framhald
á námi?
,É» hef ekki ákveðið neitt
„Það er stðrt stökk að fara
yfir fjóra bekki í einu“, segir
Þóra Björgvinsdöttir.
ennþá, ég sé bara til. En mér
finnst voðalega gaman að læra,
reglulega nýt þess.“
— 9B
..... .....■ --------------------
•■ :gí'i r'.; -V‘ ’ i y'W#: •,
Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur
Ónæmisaðgerðir gegn mænusótt fara fram í Heilsu-
vemdarstöð Reykjavfkur til loka júní-mánaðar alla
virka daga frá kl. 14—18, nema laugardaga.
Inngangur frá baklóð
Sérstaklega em þeir áminntir um að koma nú til end-
urbólusetningar, sem bólusettir vom tvisvar í fyrra og
þá sagt að koma að ári liönu til þriðju bólusetningar.
Heilsuvemdarstöð Reykjavikur
Húsnæðismálastofnun ríkisins
AUGLÝSIR
Húsnæðismálastofnunin verður lokuð föstu-
daginn 25. júní n.k. vegna sumarferðalags
starfsfólks.
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN RIKiSiNS
LAUGAVEGI77. SlMI 22453
Trésmiðjan Víðir
auglýsir
Nú get^ alir eignazt borðstofuhúsgögn.
Greiðsluskilmálar: 2.000 kr. útborgun og 1.500 kr.
á mánuði.
Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt.
Verzlið í Víði
Laugavegi 166 — Sími 22229