Vísir - 24.06.1971, Blaðsíða 13

Vísir - 24.06.1971, Blaðsíða 13
V í SIR - Fimmtudagur 24. júní 1971. IO „Ekki erfitt en dálítið — spjallab við tvær húsmæður, sem náðu frábærum námsárangri, eftir nýlokið gagnfræðapróf úr Kvöldskólanum „'É'g er fædd og uppaliu í sveit svo að frekari skólaganga kom ekki til greina í þá daga“, segir Ásta Ólafsdóttir, sem er eán þeirra nemenda, sem ný- lega útskrifuöust með gagn- fræöapróf frá Kvöldskólanum. Asta, sem er 48 ára húsmóðir, náði frábærum árangri, hlaut einkunnina 8.70 og va^ semi- dúx, en fyrir utan heimilið stundaöi hún fuila vinnu ásamt náminu. „Mig hefur ailtaf iangað til þess að læra og hefur alltaf þótt skömm að því að hafa ekki gagnfraaðapróf, og ég sé eftir því að hafa ekki gert þetta fyrr. Maður hefur haft þetta skólafólk í kringum sig, en staöurinn hef- ur aiitaf fyrst og fremst verið heima í kringum fjölskylduna." —Og þú vannst utan heim- itisins jafnhliða náminu? „Ég vann átta tíma á dag á sktifstofu bamaskólans í Breiö- holti og svo hafði ég mitt heim- ili, en ég hef nú bara strákinn eftir, sem er 16 ára, manninn minn og mig.“ — Var þetta ekki erfitt? „Að vfsu fór ég ekki í alla tíma, ekkert f ensku og lítið í íslenzku og dönsku en samt hef ég farið f rúman mánuð f hvort fyrir sig, hitt sótti ég alveg. Þetta var ekki voðalega erfitt, ég hafði miklu meiri ánægju af en erfíði. Ég dáðist mikið að unglingunum þama því ég veit, að það er meira átak fyrir þá að vinna á daginn og eyöa kvöld unum svona en fyrir þá, sem eru eldri, en þau gerðu þetta vel mörg. Ég hafði voða gaman af þessu. Þarna kynntist ég nýju fólki, og ég hvet alla sem hafa áhuga á námi að gera það sama.“ — Kom skólagangan niður á heimilinu? „Það var góð samvinna héma heima, ég var ósköp lítið heima og þurfti lfka að undirbúa mig, það er svo langt síðan ég hef verið f skóla, en þetta gekk allt ágætlega." — Hvemig stðð á því, að þú sóttir færri tíma í málunum. hafðir þú þekkingu f þeim fyrir? „Ég átti heima í Bandaríkjun- um sem iítið bam og það hjálp- aði mér í enskunni, dönskuna hafði ég lært einhvern veginn af sjálfu sér og íslenzkuna var ég búin að taka i bréfaskóla fyrir tveim árum, en ég tók bókmenntimar f skólanum.“ — Og hvað var erfiðast? „Stærðfræðin, en hitt var allt mjög þægilegt." — Hvað ætlastu fyrir í fram- tíðinni, halda áfram námi? „Það er alveg óákveðið. Ég sé til næsta vetur. Það fer kann- ski eftir þvf hvað verður gert þama niður frá.. Annars hef ég ekki tíma til að vera við nám á hverjum vetri, það verður eitt og annað útundan.“ Tjóra Björgvinsdóttir er önnur húsmóðir, sem stóð sig af- bragðsvel í Kvöldskólanum með 8.25 f aðaleinkunn. Hún er 42 ára og á fimm böm á aldrinum 9—20 ára. & Fjölskyldan og Ijeimilid „Mér líkaði alveg sérstaklega vel. Þetta var miklu betra en ég bjóst við. Kennslan var virkilega góð og nemendurnir virtust vera samstillt fólk, ein- beitt við að læra. — Vaf þetta ekki erfitt? „Ekki erfitt, en dálítið álag sérstaklega fyrir fjölskylduna. Skólinn var þrjá tíma á dag frá kl. 6 — 9 síðdegis. Þetta var ágæt is tími fyrir mig að minnsta kosti. Ég bjó til matinn áður en ég fór í skóiann og svo hjálpuðust hin við að ganga frá eftir matinn. Ég lærði á daginn þegar ég hafði tíma og það var ekki svo voðalegt, ánægjan flyt- ur mann svo langt.“ — Hvað va,. erfiðast í skól- anum? „Það var eitt fagið aðallega, sem mér fannst seinlegt aö læra og hefði þurft meiri kennslu í því. Það er fag, sem maður hef- ur aldrei komið nálægt fyrr en í vetur, algebra og hlutir eins og tölur og mengi. Hins vegar hef ég afskaplega gaman af reikningi, en ég hafði aldrei tek- ið nema barnaskólaprófið og það er stórt stökk að fara yfir fjóra bekki i einu.“ — En slepptirðu einhverjum tímum? „Já, ég sleppti málunum, eig- inlega eftir það, sem þeir köll- uðu miðsvetrarpróf, og ég fékk ágætt út úr því“. — Hefurðu ákveðið framhald á námi? ,É» hef ekki ákveðið neitt „Það er stðrt stökk að fara yfir fjóra bekki í einu“, segir Þóra Björgvinsdöttir. ennþá, ég sé bara til. En mér finnst voðalega gaman að læra, reglulega nýt þess.“ — 9B ..... .....■ -------------------- •■ :gí'i r'.; -V‘ ’ i y'W#: •, Heilsuverndarstöð Reykjavíkur Ónæmisaðgerðir gegn mænusótt fara fram í Heilsu- vemdarstöð Reykjavfkur til loka júní-mánaðar alla virka daga frá kl. 14—18, nema laugardaga. Inngangur frá baklóð Sérstaklega em þeir áminntir um að koma nú til end- urbólusetningar, sem bólusettir vom tvisvar í fyrra og þá sagt að koma að ári liönu til þriðju bólusetningar. Heilsuvemdarstöð Reykjavikur Húsnæðismálastofnun ríkisins AUGLÝSIR Húsnæðismálastofnunin verður lokuð föstu- daginn 25. júní n.k. vegna sumarferðalags starfsfólks. HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN RIKiSiNS LAUGAVEGI77. SlMI 22453 Trésmiðjan Víðir auglýsir Nú get^ alir eignazt borðstofuhúsgögn. Greiðsluskilmálar: 2.000 kr. útborgun og 1.500 kr. á mánuði. Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt. Verzlið í Víði Laugavegi 166 — Sími 22229

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.