Vísir - 12.10.1971, Síða 13
41SIR. IÞriðjuaagur r*. oktoöer i»ii
73
Gloria Swanson kvikmyndaleikkona árið 1928 og sýningarstúlka árið 1971 með nýja farðann.
Rauður, grænn og blár
Sokkabuxur og
skór í einu lagi
varaliti, sem hún selur núna í
dökkrauðum litum hefur hún f
huga að bæta við tveim litum,
sem spáð er að muni a. m. k.
verða til þess, að ka'rlmenn sjái
rautt en það eru litirnir grænn
og blár. —SB
Snyrtivörurnar taka á sig ýmis litbrigði i vetur
Tj’in mest áberandi breyting í
^ tízku þessa vetrar mun
koma fram í andlitssnyrtingunni
Við höfum þegar séð, að sum
ar flugfreyjurnar hér hafa tekið
upp nýju snyrtinguna með t. d.
dekkri varalit og rauðum nögl-
um. Það eru litirnir, sem not-
aðir eru í farða og við snyrt-
ingu, sem eru að breytast og
taka dekkri blæ.
Rautt mun ekki vera óalgengt
og þá skærrautt, en ýmis önn
ur afbrigði eru til.
Lýsing hefur verið gefin á snyrt
ingu þeirrar konu, sem mun
farða sig eftir tízkunni í vetur.
Hún mun vera með skærrauð-
ar varir, eldrauðar neglur, mik
ilfenglega snyrtingu í kringum
augu. Framleiðendur eru orðnir
leiðir á „eðlilega útlitinu" og
búast má viö, aö konur fylgi
á. eftir.
Sumir vilja I'ikja þessari breyt
mgu og bera hana saman við
andlitssnyrtinguna, sem tíðkað-
ist 1920—50. En þaö vilja fram-
leiðendur ekki samþykkja |/að
öllu leyti og segja, að varalitur
inn árin 1940—50 hafi haft til-
hneigingu tij að vera blárauður
og þéttur en varaliturinn núna
sé tærrauður og flagni ekki.
Þessi nýjung sem leiðir af sér
meiri fjölbreytni en nokkru
sinni fyrr hefur haft áhrif i
nafnavalj og dæmj eru um
snyrtivörur með nafninu „rúsín
ur“, ,,barnakex“ og sterkari
nöfn eins og t. d. „kaffikoniak"
en síðasttalda nafnið á við lit-
inn á naglalakki. Annað nafn er
,„þroskuð plóma“ og er það á
kinnalit, sem er í hát’izkunni.
Þessi breyting í förðun fylgir
þvi, sem kallað hefur verið aft-
urhvarf til sígildra fata. Síðari
pils, þyngrj efn; og svarti lit
urinn útheimtir meiri lit á andlit
inu.
Biba í London er ekkj 1 nein
um vafa ura fylgi við þessa
nýjung tízkunna'r og fyrir utan
TVTýjungar í heimi tízkunnar eru
alltaf margar. Auðvitað eru
þær flestar á sviði kvenfata-
t’izkunnar eins og fyrr; daginn.
Það nýjasta eru sokkabuxur
með áfestum skpsólum, sem byrj
að er að framleiða í Bandaríkjun
um. Þar f Iandi er sagt að
þessi tegund sokkabuxna muni
spa'ra tima bandarísku konunnar
við að klæða sig, þar sem sokka'
buxurnar séu samsetningur
magabeltis, sokkabuxna og skó
fatnaðar.
Þessar sokkabuxut em gerðar
úr efni, sem er svipað því sem
er notað f sundföt. Það fór eitt
og hálft ár í tilraunir meö þess
ar sokkabuxur og skó en fyrir
skömmu var varan sett á mark
að og seldist fyrsta sending-
in upp Nú er fjöldaframleiðsla
á þessum klæðnaði að hefjast
og verða sokkabuxurnar til í 8
litum og meö þrem munstrum.
Þær kosta þó nokkuð á þriöja
þúsund krónur í Bandaríkjunum
og um sex þúsund í samkvæmis
útgáfu, en þá eru skóhælarnir
prýddir giitrandj steinum. Þess
ari frétt fylgdu ekki leiðbein
ingar um þvott eða hreinsun á
fyrirbærinu.
x 2 —
(29. leikvika — leikir 2. okt. 1971)
Úrslitarööin: 12x—xl2—22x—121
1. vinningur: 11 réttir — kr. 131.000,—
nr. ,38103x nr. 44895 (Reykjavík)
2. vinningur: 10 réttir — kr. 3.800,—
nr. ' 290 — 17331 — 26625 — 28854x
nr. 4271 — 17997 — 26807 — 33568
nr. 5088x— 18898 — 27056 — 33971
nr. 6133x— 23147 — 27322 — 34817x —
nr. 14953 — 25675 — 27673 — 36143 —
nr. 15823 — 26245 — 27887 — 36652 —
37528
42687
43602
44015
46221
Kærufrestur er til 26. október. Vinningsupphæðir geta
lækkað ef kærur verða teknar ti! greina. Vinningar
fyrir 29. leikviku verða póstlagðir eftir 27. október.
Handhafar nafnlausra seðla verða að framvísa stofni
eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og
heimilisfang ti! Getrauna fyrir greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR — íþróttamiðstöðin — REYKJAVlK
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Stúdentaráð Háskóla Islands óskar að ráða mann til rrt
stjórnarstarfa að nýju stúdentablaði fró og með 15. okt
Einnig framkvæmdastjóra frá og með 1. des. Hvort
tveggja hálfsdags vinna. Hugsanlegt er að sami maður-
inn gegni báðum störfunum. Skriflegar umsóknir leggist
inn á afgreiðslu blaðsins merkt „Ritstjóri 3904“.
Athugið
Blindir menn verða atvinnulausir ef, framlerðsla þeirra
ekki selst. Ef allir burstar og körfur, sem blindir geta
unpið aö, seldust jafnharðan, þyrfti lítið eöa ekkertað
kaupa erlendis frá af þeim vamingi. Stoðlið að því,
að blindir menn, karlar og konur, sitji ávallt fyrir
þeirri vinnu, sem þeir geta unnið, og þurfi ekki að
keppa við fulJfrískt fólk um þá atvinnu.
Látið Blindraiðn Ingólfsstræti 16 alltaf sitja fyrir
viöskiptum yðar þegar þér þurfið á burstum, köxiúm
eða vöggum að halda. Með því gleðjið þér hina blindu,
hjálpið þeim til að lifa lífinu frjálsir og öháðir sem
aðrir menn. Það er þjóðarhagur að alJir þegnar þjóð-
félagsins séu vinnandi, líka þeir sem biindir era og
sjóndaprir.
Munið að koma í Blindraiön Ingólfsstræti 16, þegar
þér þurfið að kaupa bursta, körfur eða vöggur.
Blindravinafélag Islands, Ingólfsstræti 16.
Ritari
Staða ritara við heymardeild Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur er laus til umsóknar. Laun skv. kjara-
samningum Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar. — Umsóknir með upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist skrifstofu Heilsuvemd-
arstöðvar Reykjavíkur fyrir 20. þ.m.
1 AlfGlfNég hvili
' með gleraugumfrá
Austurstræti 20. Slmi 14566.
I