Vísir


Vísir - 22.01.1972, Qupperneq 13

Vísir - 22.01.1972, Qupperneq 13
V í SIR . Laugardagur 22. janúar 1972. 13 Sjóliðabúningurinn endurnýjaður af Cardin — hér úr brúnu bómullarsatíni með appel- sínirgulum fléttuböndum. Skozka munstrið hjá Dior í síðum pilsum og chiffonblússur við. Vortízkan 1972 Blóm og rendur hjá Ungaro — litirnir eru rautt, svart og hvítt. Ennþá eru það hátízkuteikn- ararnir frönsku, sem eru leið- andi í tízkunni. Hér birtast nokkrar myndir af fötum, sem þeir hafa sett á markaðinn í fjöldaframleiðslu og eru ætluð fyrir vorið og sumarið. Eins og oftast nær áður tekst þeim ótrúlega vel að fylgja sameiginlegri línu, sem mun hafa áhrif á fataframleiðsluna í heiminum næstu mánuði. Lín- an fyrir árið 1972 er þannig: Axlasvipurinn á fötunum mun vera breiður, fötin verða frem- ur aðskorin í mittið og frem- Patou notar rauðar og hvítar rendur og grænt prjónabindi og skyrtu- snið. Hér er regnkápan hans Saint Laurent sem er sígild í sniði og minn ir á regnfrakkana, sem leikarinn Bogart kom í tízku. Hún er úr beige- litaðri bómull. ur víð að neðan og síddin um hnéð. Saint Laurent hefur breiðan axlasvip á fötum sínum og not- ar gjarnan axlapúða. Nýjustu regnkápurnar hans minna mjög á regnfrakkana, sem leikarinn vinsæli Humphrey Bogart var í — í mörgum kvikmynda sinna. Það er óhætt að spá þessu sniði vinsældum enda hefur það t.d. verið mikið notað hér á landi og er sígilt regnkápu- snið. Frá vöggu til grafar Fallegar skreytingar Blómvendir í miklu úrvali. Daglega ný blóm Mikið úrval af nýjum vörum. — Gjörið svo vel að líta inn. Sendum um allan bæ SILLA & VALDAHÚSINU Álfheimum 74. Simi 23.5.23.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.