Vísir - 27.03.1972, Qupperneq 5
Visir. Mánudagur 27. marz 1972.
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Umsjón: Haukur Helgason
Aðalvitnið i ITT-málinu, Dita
Beard, hné niður við vitnaleiðslur
fyrir þingnefnd i gær, og mun hún
hafa fengið hjartaáfall. Varð að
fresta rannsókninni, en Dita er
aðalvitnið i máli þessu, þar sem
blaðamaðurinn Anderson sakar
háttsetta menn i stjórn Nixons
um að hafa þegið mútur frá fyrir-
tækinu ITT.
Brúðkaupsgestir myrtir
Hermdarverk tíð i Jemen
Stjórnvöld i lýðveldinu
Jemen segja, að 60
manns, karlar, konur
og börn, sem tóku þátt i
brúðkaupsveizlu þar,
hafi verið brytjuð niður
með vélbyssu og
menn frá Suður—
Jemen hafi framið
ódæðið.
t tilkynningu frá sendiráði
Jemens i Beirut er sagt, að þessi
verknaður sé einn af mörgum
slikum, sem útsendarar frá al-
þýðulýðveldinu i Suður—Jemen
séu sékir um undanfarna daga
Alls hafi 80 verið drepnir og fjöl-
margir hafi særzt i hermdar-
verkum þessum.
Arásin á brúðkaupsgestina
gerðist i þorpinu Wazieh, sem er
skammt frá landamærunum.
Einnig er kona sögð hafa verið
myrt i öðru þorpi, þegar
sprengja sprakk skammt frá
heimili hennar. begar konan
var jarðsett sprakk sprengja á
veginum, þar sem likfylgdinfór,
og tólf biðu bana og margir
særðust.
t tilkynningum frá Jemen er
einnig sagt, að skotið hafi verið
á langferðarbifreið á leið milli
Aden og bæjarins Lahaj og tiu
hafi beðið bana og margir særzt.
Sendiráðið i Beirut segir, að
stjórnvöld i Jemen telji
stjórnina i Suður—Jemen bera
fulla ábyrgð á ódæðum þessum
og afleiðingum þeirra. Takmörk
séu fyrir þolinmæði stiórnar-
innar i Jemen, og kunni styrjöld
að brjótast -út, ef þessar árásir
verði ekki stöðvaðar.
Arabarikið Jemen hefur löngum
verið striðsvettvangur. Þar
geisaði fyrir nokkrum árum
borgarastyrjöld, þar sem
Nasser og Egyptar studdu
vinstri sinna (lýðveldissinns) en
Saudi—Arabia studdi hægri
menn (konungssinna). Upp úr
þessu varð skipting Jemen, og
„alþýðulýðveldi” stofnað i
Suður-Jemen.
"N
Þessa mynd sendu skæruliðar trotskýista frá sér, og sýnir hún yfirmann Fiat-verksmiðjanna i Argentinu,
dr. Oberdan Saliustro, 56 ára, sem er gisl þeirra. Til vinstri á myndinni hafa skæruliðar skrifað „sigra eða
deyja”.
Vill ekki sleppa föngum
Skæruliöarnir, sem halda Fiat-
manninum Sallustro i gislingu,
hafa franlengt frestinn, sem þeir
gáfustjórnvöldum, og nú hóta þeir
að taka fanga sinn af llfi á mið-
nætti þriðjudag, verði ekki gengið
að kröfum þeirra.
Skæruliðar krefjast lausnar-
gjalds, meðal annars klæða og
matar, sem þeir segjast ætla að
útbýta meðal fátækra skóla-
barna. Þeir krefjast þess, að fjöl-
margir pólitiskir fangar verði
látnir lausir.
Rikisstjórn Argentinu neitar að
láta fanga lausa. Stjórnin vill
heldur ekki leyfa Fiat að semja
við skæruliða á eigin spýtur, ef
það gæti á nokkurn hátt „orðið
hvatning til glæpaverka”. Sumir
telja, að stjórnin muni þvi ekki
Ifallast á, að Fiat afhendi mat og
klæði i skiptum fyrir Sallustro.
Höfrungar í
stríði og friði
Frá Suður-Vietnam hafa komið
fréttir um höfrunga, sem hafi
verið notaðir i striðinu, búnir
senditækjum, teitað uppi óvini i
sjónum, og sumir segja, grandað
þeim. Höfrungurinn á myndinni
er af friösamara taginu. Á fri-
stundum „slappar hann af” við
eftirlætistónlist sina, sem leikin
er af segulbandstæki. Ekkert hef-
ur okkur vcrið sagt um, hvaða iög
eru efst á viusældalista höfrunga.
Norður-Vietnamar báru fyrir
skömmu fram kvartanir vegna
þess að Bandarikjainenn hefðu
beitt þessum dýrum gegn sér.
Var þar meöal annars sagt frá, að
dýrin hefðu elt uppi hermenn
þeirra, sem hefðu verið I köfun
við hafnir og þessháttar og hefðu
þau verið búin sveðjum til að
granda hermönnunum. Vitað er,
að Bandarikjamenn hafa þjálfað
höfrunga i að kafa með senditæki
og leita uppi og „tilkynna um”
óvinakafbáta og slikt.
BÓLUSÓTTIN
BREIÐIST ÚT
Sextán tilfelli af bólu-
sótt hafa komið á daginn
i austurhéruðum Sýr-
lands. Yfirvöld hafa gert
viðtækar ráðstafanir til
að koma i veg fyrir, að
sjúkdómurinn breiðist
úr.
Sjúklingarnir eru börn 8-10 ára
gömul. Ferðaskrifstofa Spies i
Danmörku hefur aflýst öllum
ferðalögum til Júgóslaviu fram til
1. júni samkvæmt frétt frá NTB.
Þetta er gert vegna bólusóttar,
sem hefur orðið vart á afskekkt-
um svæðum i Júgóslaviu.
Möller framkvæmdastjóri
„Spiesrejser” segir, að þeim
1700, sem hafi pantað ferð til
Júgóslaviu, verði gefinn kostur á
að fara til einhvers annars af
þeim 33 stöðum, sem ferðaskrif-
stofan gengst fyrir ferðum tii.
Hökgaard forstjóri Tjæreborg
segir, að ferðalög ferðaskrifstof-
unnar til Júgóslaviu muni verða
samkvæmt áætlun, en fólki er
ráðlagt að láta bólusetja sig.
Blœðir ón sára
Nú fara páskar I hönd, og hún Cloretta Robertson, tiu ára svertingja-
stúlka i Kaliforniu, hefur i niu daga haft þau einkenni heitrar trúar,
sem sögur hafa fariðaf fyrr á timum. þótt ekki vitum við rreð vissu um f
sannanir. Samkvæmt frásögn stúikunnar og foreldra hennar blæöir úr
báöum lófum hennar, báðum iljum og hægrisfðu, en sár hefur hún þar
cngin. Þcssar blæöingar hafa gerzt f nfu sfðustu daga, og eru á sömu
stöðum og naglar ristu hold Krists.
MIGMéghvik
með gleraugum fm
Austurstrœti 20 — Sími 14566