Vísir - 29.03.1972, Page 8

Vísir - 29.03.1972, Page 8
8 Vísir. Miðvikudagur 29. marz 1972. HVERS VÆNTIR ÞÚ? Páskahugleiðing eftir sr. Guðmund Óskar Olafsson Páskamorgunn. Páskanna fögru hátið höldum vér. Hugur vor stigur, drottinn, upp til þin. Kærleikur þinn oss öllum gefinn er. Elifðarljósið gegnum dauðann skin. Sigur þinn veitir sálum vorum frið, sólstafir upprisunnar ná til vor. — Lát oss á vorum vegum sjá þin spor. Ó, vertu i lifi og dauða oss við hlið. (Þetta erindi er úr ljóðinu Jónsson) ,, Ég er léominn til þess að þeir hafi lif og nægtir ( Jóh. 10:10 ) Það er talað um að lifa góðu lifi, einnig ömurlegu o.s.frv. Fæstir eru þó alveg samdóma um hvað sé bezt, enda raunin sú, að það sem einum kann að þykja sóma- lif, er öðrum allt að þvi dauði, á sama hátt og einum er það brauð og nægð, sem öðrum sýnist þurrð. Þeir mega teljast margir, bæði einstaklingar og fulltrúar sam- taka og sjónarmiða, sem ganga með lausnir upp á vasann til að létta almenningi lifið, betra það og fylla ljúfum nægtum. Ekki sizt er áriðandi að bjóða upp á fjöl- breytt úrval lifgunarmeðala, þegar Irium er fagnað. Og ekki bregður vana um þessa dagana, ósleitilega eru auglýstar páska- ferðir, ódýrar og lofandi. Og visast láta það margir eftir sér að nota fridagana til ,,upp- lyftingar’’ heima og heiman, enda ekkert nema gott um það að segja, hollt aö létta af sér hvers- dagsleikanum. En þótt dægur- gaman sé hyggilegt og heilsu- samlegt, er þar fyrir jafn óæskilegt og ógæfulegt, þegar sérhver tómstund sem á að hvila og gleðja, þegar hún verður til að ergja æsa og fylla leiðindum. Þótt fjölmiðlar bjóði upp á fjöl- breytta lifskosti i auglýsingum og gott sé að ferðast brott frá spennu daganna, þá getur slikt aðeins þegar bezt lætur, hvilt okkur um stund, en aldrei máð á brott erfið- leika okkar, eða þurrkað það burt sem var óuppgjört i brjóstinu. A stundum virðast tómstundirnar fá á sig flóttasvip. Kann að vera „Páskamorgunn” e. Éinar M. að þegar aukinn umþóttunartimi gefst þegar starfsspennu linnir, þá skjóti upp spurningunni: Hvar er raunverulegt lif að finna og varanlegar nægtir? Eða eins og rithöfundurinn Ifarry Martinsson segir: ..Heimurinn kemst ekki undan þeim andlegu spurningum, sem fjalla um „hvaðan og hvert”. Eða með orðum Steins „Hvers væntir þú, sem vakir hér og lifir/ einn sólskinsbjartan dag og deyrð i haust”. Ef full- nægjandi svar ekki fæst, hvað er þá nærtækara en lifa sem dýrast meðan dagur endist, sjúga hvern dropa þeirra veiga sem stundin býður, fljúga og flýja milli blóma þar sem hunangið drýpur. Frjáls þjóð—frjáls maður, þú mátt leita þér fótfestu þar sem þér þóknast, finna vit i tilveru þina, botn i amstur þitt, tilgang með lifi þinu. En páskahátiðin sem nú gengur i garð, hún er kristnum mönnum eins og tindur i þeirri sögu sem öllu skiptir og er lif og nægtir. Ýmsir sjá aðeins i þessari hátiðstund milli striða til aukinna afþreyingarleikja og á þann hátt má gera páskana að enn einni munnfylli til að seðja tilgangshungrið. Kristnum mönnum er viðburður páskanna annað—-undirstaða lifs og nýrrar útsýnar i trú, eða eins og Sviinn Ebbe Arvisson orðar það: „Jesús er mér útgöngudyr úr þöglum af- mörkuðum alheimi, inn i annan raunveruleika, eilifðina. Grund- völlur trúar minnar er upprisa Jesú, ásamt hinni tómu gröf". Þetta er svar kristins manns við spurningunni: „Hvers væntir þú?” göngudyr, sem opna leið inn i raunveruleika léttis og lausnar frá spennu og óseðjandi leit. Þessi Jesús virðist nú vera meira um talaður i samtiðinni en oft áður og kann vel að vera að sú „súper hetja” ,sem fjöldi ungs fólks sér i honum, sé ekki eins mikil tizkubóla og margir vilja vera láta. Fjölmiðlar og tækni hafa aukið svo nánd manna i heiminum að þeir kunna að hafa rýrt þá hugmynd að gildi, sem boðar „útopiuna” eða fyrirheitna landið i nýjum stefnum, straumum og skoðunum, fremur sýnist að uppmáluð kvölin, hungur, ókyrrð og vig valdi auknum efa i huga fólks á að nýjar og nýjar „patent" lausnir stjórnmálakenninga færi varan- lega lausn, frið og kyrrð. Má vera að ýmsir minnist þeirra spakyrða að heiminn vanti ekki nýjar kenn- ingar, heldur nýja menn. Og kristnir menn trúa þvi að hann sem lifir og er Herra páskanna geti skapað slika menn, að hann hafi það lif og þær nægtir, sem öllu varðar. Þessi trú er ekkert lif-. tryggingarskirteini, er firrir menn ábyrgð og erfiðleikum, heldur veitir vissu um lausnar- mann, sem á ráð á að vernda og styrkja i hverri raun og sér- hverjum vanda. „Sem þver- hönd ein er ævin breið”, en hann sem er fullur náðar og sannleika, veitir slikri ævi fyllingu og blessun ef hann fær að komast að. Hann yfirgefur ekki manninn i einmanaleik eða óróa, aðeins maðurinn getur yfirgefið hann. Við erum gæfusöm þjóð, þegar á heildina er litið, en þeir sem gefa sér tima til að skyggnast undir fágað yfirborðið og lita á einstak- linginn, þeir sjá nýja mynd. Furðu margir búa við einhverja þraut, dulin kaun, sem ekki eru borin á torg. Flestir þrá þar svar við tilgangi byrða sinna, skima eftir fótfestu og horfa óráðnum augum til framtiðarinnar þegar kvölda tekur. Engin „ódýr” „Gætið þess, að þér verðið ekki leiddir i villu”. — Þannig farast Meistaranum frá Nasaret orð á einum stað. Þau standa i 8. v. i 21. kap. Lúkasarguð- spjalls. Þessi orðaskipti hóf- ust á þvi, að nokkrir sögðu um helgidóminn, að hann væri skrýddur fögrum steinum og heit- gjöfum. Heimfært til nú- timans mætti segja, að þetta þýddi það, að hátt sé risið á okkar menn- ingarmusterum, mikið væri lagt fram til visinda og lista og miklu væri fórnað fyrir að komast sem lengst áfram á tækniþróunar- innar og lifsþæginda braut. Hversu fagrar mublur, hversu stórar ibúðir, hversu margir bilar, hversu miklar krásir, hversu dýrar veigar! Þetta er allt, páskaferð eða tilbreytni getur þar um bætt eða satt. En bæði i reisn og niöurlægingu, i gleði og sorg, á kristinn maður ávallt hinzta svar i hjarta sinu. „Vort lif sem svo stutt og stopult er/ það stefnir á æðri leiðir. /Og upphiminn fegri en augað sér/ mót öllum oss faðminn breiðir.” Þetta er páskasvar, byggt á Honum, sem er ljómi þeirrar hátiðar. Lifið og starfið er ekki árangurslaust eða blint fálm, ef vitundin um hinn lifandi Orottin er sterk og óbifanleg. Þessvegna segir postulinn: „Guði séu þakkir sem gefur oss sigurinn fyrir Jesúm Krist. Þessvegna minir elskuðu bræður verið fastir, óbifanlegir, siauðugir i verki Drottins vitandi aö erfiði yðar er ekki árangurs- laust i Drottni". Páskahátiðin ætti þvi að vera okkur annað en ferð án fyrirheits, annað en tilbreytni i erlinum, hún er upprisuhátið og þvi lofgjörðar- stund sem á að vera i hjartanu: Láttu mig Drottinn lofa þig/ með lofi þinu hvila mig”. Orð Krists, jég lifi og þér munuð lifa”, eiga að orka þannig á okkur að við finn- um okkur ekki framtiðarlaus i þessum brigðula heimi, heldur með fasta viðspyrnu i daglegu striti, sem gerir okkur kleift að taka til hendi og bera byrðar daganna með seiglu og bjartsýni. Upprisufrásagan verður að visu hvorki grunduð eða skyggnd á fræðilegan hátt, svo að þú getir tekið hana inn i skömmtum þér til lifstrúar, heldur verður hún að lifa i hjarta þér, nærast þar og staðfestast i samfélagi við hann sjálfan sem er upprisinn og nálægur alla tima hér og nú. Hvernig veiztu að Jesús er upp- risinn? Þannig var eitt sinn aldraður sjómaður spurður. „Sérðu litlu húsin þarna undir hamrinum. Stundum þegar ég er hérna úti á bugtinni, þá veit ég að sól er risin, þegar ég sé geislana endurspeglast á gluggum húsanna. Og ég veit að Kristur er upprisinn, af þvi að ég sé endur- sem heimshyggjan keppir eftir. Hún hefur lika mikið fram að bjóða. Þetta gef ég, segir hún, ef þú fellur fram og tilbiður mig. Og það hefur maðurinn vissulega gjört. Hann hefur ekki látið á sér standa. í þessum heimi sóknarinnar eftir jarð- neskum gæðum lifir og hrærist nútímamaður a.m.k. i þeim þjóðlönd- um, sem við höfum nán- astar spurnir af. En nú erum vér að komast að raun um það, að þetta er ekki einhlitt —hvorki til gæfu né lang- lifis. Streyta og þreyta þtla að gera út af við manninn i lifsþæg- indakapphlaupinu og græðgi neyzluþjóðfelagsins ógnar allri heilbrigði og hollustu lifsins i milljónaborgum og öðru þéttbýli. Þegar svo er komið sér mann- kynið sitt Mene Tekel á veggnum. Þá mun það lika rifjast upp, að eitt sinn var oss gefin aðvörunin: Gætið þess að þér verðið ekki leiddir i villu. Ef vér leggjum nú eyrun við og ihugum þessa aðvörun, þá er sjálfsagt ekki of seint að snúa við, þvi að langlundargeð Guðs er Sr. Guðmundur óskar Ólafs- son, núverandi farprestur Þjóð- kirkjunnar, skrifar páska- hugvekjuna i Kirkjusiðu Vísis að þessu sinni. Hann er fæddur 25móv. 1933, tók kennarapróf 1955, stundaði siðan kennslu en hélt jafnframt áfram námi og lauk stúdentsprófi utanskóla i M.K. 1964. Guðfræðipróf tók hann i jan. 1969 og var vigður farprestur 9.febr. s.á. Hefur hann gegnt þvi starfi siðan og þjónað á ýmsum stöðum, Keykhólum, Egilsstöðum og Mosfeili. Siðan i haust hefur hann jafnframt verið frikirkju- prestur i Hafnarfirði. Kona sr. Guðmundar er Ingi- björg kennari Hannesdóttir fasteignasaia i Reykjavik skin dýrðar hans speglast i svo mörgum augum og andlitum fólks, sem ég þekki og vegna þess að ég finn ylinn af ljóma hans um- lykja mina eigin sál.” Betur, að páskahátiðin sem i hönd fer fylli okkar hjörtu slikri birtu og vissu um eiliía likn er nær út yfir stund- lega augsýn. Já „lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists, sem eftir mikilli miskunn sinni hefur endurfætt oss til lifandi vonar fyrir upprisu Jesú Krists frá dauðum”. í hans blessaða nafni gleðilega páskahátið. mikið. Hann vill ekki dauða synd- ugs manns, heldur að hann snúi sér og lifi. Hann sendi oss sinn eingetinn son til að flytja fagnaðarerindi lifsins og kær- leikans inn i kaldan heim en vara við dómi haturs og dauða. Og hann benti á hættumerkin á við- sjálum vegi og sagði: Gætið þess að þér verðið ekki leiddir i villu. Munið það, að ekkert gagnar það manninn að safna sér auði til að njóta allra jarðneskra lystisemda, já það gagnar honum m.a.s. ekki neitt að yfirvinna all- an heiminn, ef hann biður tjón á sinni eigin sál, þvi að hvaða verði getur maðurinn keypt sál sina. Það er engin lifsins leið fyrir nokkurn mann að ætla sér að hrifsa til sin hamingjuna og lifs- lánið með þvi að gina yfir sem mestu af heimsgæðunum. t stað þess á hann að auðgast að sálar- þroska, vaxa i trú á góðan Guð, styrkjast i voninni á bjarta fram- tið og verða þannig með degi hverjum stöðugri i kærleikanum og rikari að samúð með öllum sinum samferðamönnum. Að brýna þetta fyrir mönn- unum, styrkja þá i þessari við- leitni hjálpa þeim á þessum hjálpræðisvegi, það á að vera fagnaðarerindi kristindómsins til hvers einasta kristins manns. Og sé kirkjan sinum herra trú, á hún að geta verið farvegur þessa fagnaðarerindis inn i hjörtu þeirra mörgu manna, sem hafa verið leiddir i villu og eru að gef- ast upp á skeiðvellinum þar sem þeir þreyta kapphlaupið um lifs- þægindin og heimsgæðin en færast jafnframt sifellt fjær þeim friði, sem hjartað þráir. GÆTIÐ ÞESS. . .

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.