Vísir - 14.04.1972, Blaðsíða 8
8
VÍSIR. Föstudagur 14. apríl 1972.
Eiga óreiðumanneskjur að
dœma h vað sé ,vanrœksla'
ó foreldrahlutverkinu?
Um miðjan marz s.l. birtist
löng greinargerð i dagblööum
frá Barnaverndarnefnd Reykja-
vikur, þar sem nefndin reynir að
hvitþvo hendur sinar af þeim
ásökunum um lagabrot og ennþá
ósvöruðu spurningum, sem beinzt
hafa að henni i dagblöðunum að
undanförnu. t greinargerðinni
segir nefndin, að með ásökunum
sé verið aö gera hlut hennar tor-
tryggilegan. Nefndin hefur auð-
vitaö sjálf gert hlut sinn tor-
tryggilegan, og verra en það, með
margvislegum lagabrotum og
fram' úr hófi óréttlátum á-
kvöröunumog með þvi að svara
ekki spurningum almenns eðlis,
sem hafa birzt i dagblöðunum.
Nefndin segir, að „rétti barnsins
sé bezt borgið i höndum
foreldranna”. Uetta er auðvitað
rétt i langflestum tilvikum.
Nefndin hefur þvi framið hin
verstu óhæfuverk með þvi að taka
börn af ágælum foreldrum, sem i
engu hafa brugðizt börnum
sinum, og komið þeim til vanda-
lausra, i gróðaskyni að þvi er
virðist. 1 greinargerðinni er talað
um, að „vitaverð vanræksla á
foreldrahlutverkinu” eigi sér
stundum stað. Uetta má rétt vera,
en það réttlætir alls ekki aðgerðir
nelndarinnar gegn lólki, sem
enga vanrækslu hefur sýnt börn-
um sinum, en slikt hefur átt sér
stað. Kinnig segir, að nefndin
reyni jafnan „til þrautar” að
hjálpa foreldrum. Staðreyndin er.
hins vegar sú, að stundum eru
börn hrifsuð af foreldrum ánþess
að haft sé fyrir þvi að tala eitt orð
við þá um það. Er þetta hinn
margrómaði „réttur barnsins?”
Ennfremur segir i greinargerð
nefndarinnar, að menn geti
áfrýjað málum til barnaverndar-
ráðs og til dómstóla. Þetta má
heita dauður bókstafur, þvi að
áfrýjun frestar ekki aðgeröum
nefndarinnar sbr. 56. gr. barna-
verndarlaga, og staðreynd er, að
mál liggja stundum óafgreidd
árum saman hjá barnaverndar-
ráði, og sama gildir um Bæjar-
þing Reykjavikur sem kunnugt
er. A meðan árin liða eru svo börn
ágætra foreldra e.t.v. hjá vanda-
lausum, sem hagnast á marg-
földu barnsmeðlagi, á meðan þeir
vinna helð á börnunum fyrir til-
stilli nefndarinnar. Oft koma þó
ekki allir peningarnir, sem greiða
ber, til skila. Sumir fá jafnvel
ekki helming þess, sem þeim ber
að lögum, aðrir fá alls ekkert
meðlag, þótt nefndin hafi ráð-
stafað barninu og þeir ættu lögum
samkvæmt að fá kr. 6.600,oo eða
9.900,oo á mánuði með hverju
barni. Ekkert skal hér fullyrt um,
hvert þeir peningar fara, semþeir
eiga að fá, en fá ekki. En hvað
sem þvi liður, þá fæst meira fé úr
opinberum sjóðum, eftir þvi sem
starfsemi nefndarinnar eykst og
heinist gegn fleira fólki.
Nokkrir þeirra! sem i barna
verndarnelnd sitja, virðast ekki
vita, hvað er að gerast.
Ákvarðanir eru a.m.k. stundum
teknar þannig, að einhver af
starfsfólkinu skýrir fram-
kvæmdastjóra eða formanni
nefndarinnar frá sinu persónu-
legu áiiti á högum barns, að litt
athuguðu máli, og hann einn
tekur siðan, án frekari rann-
sóknar, ákvörðun um hvað gera
skuli, stundum hin voðalegustu
mistök. Má vera, að sumum
nefndarmönnum sé ókunnugt u.m,
að nefndin margbrjóti lög, ef
málin eru siðan lögð fyrir á
nefndarfundum á vissan hátt.
Þetta hefur mér virzt af viðtölum
við nokkrar konur i nefndinni ný-
lega. Þær segjast verða að
treysta starfsfólkinu. Þær virðast
ekki vita um lagabrotin: 1) að
lögboðnir úrskurðir séu ekki
sendir út, 2) að hagir barns, sem
nefndin ráðstafar, séu stundum
allt of litið kannaðir fyrirfram, 3)
að samráð sé ekki haft við
foreldra, 4) að klögumál, sem
afgreiöa skal strax, séu látin
dragast mánuðum og árum
saman, 5) að starfsfólkið segi oft
ærumeiðandi hluti um foreldra
við börn þeirra, 6) að börnum af
ágætisheimilum sé stundum
komið fyrir af nefndinni hjá
fósturforeldrum, sem eru það
óhæfir,aö þeir ættu jafnvel að sitja
bak við lás og slá, 7) að ekki komi
til skila öll hin lögboönu fóstur-
barnameðlög, 8) að eigið fjöl-
skyldulif starfsfólks, sem nefndin
treystir á i blindni, er i sumum
tilvikum i stórkostlegri óreiðu, og
svona mætti lengi telja. Allt eru
þetta brot á lögum, nema siðasta
atriðið. En sá, sem dregur
flisina, á ekki að ganga með
bjaika i auganu sjálfur.
Er hægt að treysta i blindni
sliku fólki til að dæma um hæfni
annarra foreldra til að ala upp
börn ? Reykjavik, 25. marz 1972.
Carl J. Eiriksson.
HLJÓIMLIST
LEIKLIST
BÓKMENNTIR
LISTDANS
MYNDLIST
4. til 15. júní 1972
Lislahálíö í Reylyavík
Listahátlðin nálgast nú óðum,
en hún verður, sem kunnugt er
haldin dagana 4.-15. júni á ýms-
um stöðum í Reykjavik.
Hcr birtist fyrir ofan sú dag-
skrá, sem framkvæmdastjórn
hátiðarinnar hefur látiö prenta og
dreifa, einkum á ferðaskrifstof-
um hér heima og erlendis.
Framkvæmdastjórnin áskilur
sér rétt til að breyta þessari dag-
skrá, þegar nær dregur hátiöinni,
enda mun ekki endanlega gengið
frá vmsum liöum hátiðahaldanna
enn sem komið er. —GG
Okkar sigur, segja
Miðkvíslarmenn
Þeir eru ánægðir með hæsta-
réttardóminn, Miðkvislarmenn.
Á fundi i Skjólbrekku um siðustu
helgi samþykktu þeir ályktun,
þar sem lýst var yfir ánægju með
dóminn og náttúruverndarmenn
hvattir til að fylgja fast eftir þess-
um sigri. Þá var samþykkt álykt-
un þess efnis til Laxárvirkjunar-
stjórnar, að á vori komanda verði
hreinsaðar burt úr Laxá leifar
Miðkvislarstiflu, „svo og stein-
bákn það i meðri á,er silungastigi
er kallað. Telur fundurinn það
sannað mál, að Miðkvislarstiflan
hafi verið gagnslaus og verði ekki
endurreist. Sé það hagsmunamál
allra, ,,að verki þvi, sem hafið
var 25. ájíúst 1970, verði lokið”.
Iðnnemar óánægðir
Iðnnemar gera sifellt háværari
kröfur um að fá samningsrétt i
hendur, og er skýrt frá kröfum
þeirra annars staðar i blaðinu. Á
formannaráðstefnunni i Reykja
vik 8. april sl. voru töluverð ar
breytingar gerðar á stjórn Iðn-
nemasambandsins Er hún þannig
skipuð: Formaður er Tryggvi Þór
Aða 1 steinsson, varafor
maður Jón Ragnarsson, en aðrir i
stjórn þeir Rúnar Bachmann,
Guðmundur Hilmarsson, Gisli
Eiriksson, Þórunn Birgisdóttir,
Olafur Birgisson, Torfi Geir-
mundsson, Jónas H. Jónsson,
Daniel Engilbertsson, Eyþór
Árnason, Guðbrandur Þorvalds-
son og Óli J. Pálmason.
Týndur kiðlingur
fannst á eyðibýli
Dagur segir frá þvi i siðasta
blaði, að þegar Friðrik Eyfjörð á
Finnastöðum á Látraströnd fór á
sjó á sunnudaginn, hafi hann orð-
ið var við einmana kiðling á eyði-
býlinu að Grimsnesi á Látra-
strönd. Fór hann i land og sótti
kiðlinginn. Stóð þannig á veru
kiðlingsins þarna, að Ingólfur
Benediktsson rak geitur sinar
þangað norður sl. sumar. Ein
geitanna var óborin og bar siðar
um sumarið, — en sá siðborni
kom svo ekki i leitirnar
um haustið, er heim var haldið?
Var hann talinn af, — en nú kom
hann i leitirnar, alivel á sig kom-
inn og hornaprúður mjög, og kann
vel við sig meðal manna og dýra
eftir einmanalegan en léttan
vetur.
Snarráöur Islendingur
Ungur islendingur, Bob Johann
son, ættaður frá Nýja íslandi, var
heiðraður fyrir snarræði á dögun-
um, segir i þvi ágæta blaði, Lög-
bergi-Heimskringlu. Kom hann
fyrstur manna að bilslysi miklu,
sem orðið hafði á þjóðvegi 25. Bil-
stjórinn lá þarna i öngviti og var
hættur að draga andann. Brá Bob
skjótt við og andaði ofan i mann-
inn, þar til hann gat andað sjálfur
með eigin öndunarfærum.
Bæjarstjórinn i Kitimat, þar sem
slasaði bilstjórinn býr, kallaði á
unga V-Islendinginn og heiðraði
hann við sérstaka athöfn. Johann
son er lögreglumaður i þeirri
heimsfrægu kanadisku lögreglu,
Canadian Mounted Police, þekkt
fyrir snarræði, búning <inn og
hina tigulegu hesta sina.
BRADABIRGÐA-
DAGSKRÁ
Birt 1. marz
SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ
Háskólabíó
kl. 14.00
Opnun hátíðarinnar
Hátíðarfoi lcikur
Sinfóníuhljómsvcit Islands
Avarp mcnntamálaráðherra
Upplcstur
EinsönKur: Guðrún A. Símonar
ofí Guðmundur Jónsson
Söj»usinfónía eftir Jón Lcifs
Sinfóníuhljómsvcit íslands
Stjórnandi: Jussi Jalas
* Myndlistarhús á Miklatúni
kl. 17.00 Norr;cn málvcrka-
sýninií
* Norræna húsið
kl. 17.00 Norræn tfrafíksýning
* Listasafn Islands
kl. 17.00 Höþífímyndir cftir
Sij»urjón Olafsson
* Skólavöi ðuholt
kl. 17.00 Islcnzk höi»f»mynda-
sýninj»
* Anddvri Lauj»ardalshallar
kl. 17.00 Erlend húsaí»crðarlist
* Asmundarsalur
kl. 17.00 Innlcnd húsagcrðaríist
* Bogasalur Þjóðminjasafns
kl. 17.00 Tcikningar eftir
Paul Wcber
* Casa Nova, Menritaskólanum
kl. 17.00 Vestur-afrísk list
* Kjarvalshús. Sæbraut 1,
Seltjarnarnesi
kl. 17.00 Mannamyndir
(teikningar) eftir
Jóhannes Kjarval
* Sýningin opin mt-öan Listahátíð
stendur
Þjóðlcikhúsið
kl. 20.00 Sjálfstætt fólk
Lcikfélag Rcykjavíkur
Dóminó cftir Jökul Jakobsson
(forsýning), lcikstjóri Hclgi
Skúlason
Norræna húsið
kl. 20.30 Liv Dommersnes
Strömstcd
og Liv Glascr:
I Ivsc ncttcr (Ijóða- og
tónlistardagskrá)
MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ
Bústaðakirkja
kl. 17.00 Nóaflóðið. barnaópcra
cftir Benjamin Brittcn
Stjórnandi: Garðar Cortcs.
Þjóðlcikhúsið
kl. 20.00 Þjóðdansadagskrá
Þjóðdansafclag Islands
Norræna húsið
kl. 20.30 Liv Dommersncs
Strömsted: Dagskrá um
Björnstjcrne Björnson
ÞRIDJUDAGUR 6. JÚNÍ
Iðnó cða Lindarbær
kl. 17 00 Dagskrá um og cftir
Stcin Stcinarr
Upplcstur og söngur
Bústaðakirkja
kl 17.00 Nóaflóðið
(önnur sýning)
Þjóðleikhúsið
kl. 20.00 Tveir einþáttungar
(frumsýning)
Lcikfclag Rcykjavíkur
kl. 20.30 Dóminó eftir Jökul
Jakobsson (frumsýning)
Norræna húsið
kl. 21.00 Birgit Finnilá:
Ljóðasöngur
Laugardalshöll
kl. 21.00 Svoriges Radioorkcstcr
Einlcikari á fiðlu:
Arvc Tcllcfscn
Stjórnandi: Sixtcn Ehrling
MIDVIKUDAGUR 7. JÚNÍ
Bústaðakirkja
kl. 17.00 Nóaflóðið
(þriðja sýning)
Þjóðlcikhúsið
kl. 20.00 Lilla Tcatern í
Helsinki:
Unihvcrfis jörðina á 80 dögum
(Jules Verno Bcngt Ahlfors)
Fyrsta sýning
Laugardalshöll
kl. 20.00 Svcrigcs Radioorkcster
Einleikari á pianó: John Lill
Stjórnandi: Sixten Ehrling
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ
Norræna húsið
kl. 17.00 Finnskt vísnakvöld
Mavnie Sirén og Einar Englund
(undirlcikari)
Bústaðakirkja
kl 17.00 Nóaflóðið
(fjórða sýning)
Þjóðleikhúsið
kl. 20.00 Lilla Teatern í
Helsinki:
Umhverfis jörðina á 80 dögum
(önnur sýning)
FÖSTUDAGUR 9 JÚNÍ
Norræna húsið
kl. 12.15 íslenzk þjóðlög
Einsöngvarakórinn og
Guðrún Tómasdóttir
Laugardalshöll
kl. 20.30
Sinfóníuhljómsveit íslands
Einlcikari á fiðlu:
Ychudi Mcnuhin
Stjórnandi: Karsten Andersen
Norræna húsið
kl. 20.30 Vísnakvöld
Áse Klcvcland og
William Clauson
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ
Austurbívjarhíó
kl. 16.00 Kammertónleikar I
(Vcrk eftir Jón Lcifs,
Ligcti og Bcethoven)
Bústaðakirkja
kl. 17.00 Nóaflóðið
(fimmta sýning) '
Þjóðleikhúsið
kl. 20.00 Ballettsýning
Dansarar frá konunglcga
danska ballettinum
Háskólabíó
kl. 20.30 Einleikstónleikar
John Willíams (gítar)
Norræna húsið
kl. 20.30 Kim Borg, einsöngur
Robert Levin, píanó
SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ
Austurbæjarbíó
kl. 16.00 Kammertónleikar II
(Verk eftir Magnús Blöndal
Jóhannsson, Pál P. Pálsson,
Hafliða Hallgrímsson og
Jónas Tómasson)
Þjóðleikhúsið
kl. 16:00 Dansarar frá konung-.
lega danska ballettinum
(önnur sýning)
Bústaðakirkja
kl. 17.00 Nóaflóðið
(sjötta sýning)
Þjóðlcikhúsið
kl. 20.30 Sjálfstætt fólk
(önnur sýning)
Norræna húsið
kl. 20.30 Einsöngur:
Taru Valjakka, sópran
Háskólabíó
kl. 21.00 Erik Mörk:
Dagskrá um H. C. Andersen
Austurbæjarbíó
kl. 23.00 Jasskantata eftir
Gunnar Rcyni Sveinsson og
Birgi Sigurðsson
MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ
Leikfélag Reykjavíkur
kl. 17.00 Leikhúsálfarnir
(Tovc Janson)
Frumsýning
Bústaðakirkja
kl. 17.00 Nóaflóðið
(sjöunda sýning)
Þjóðleikhúsið
kl. 20.00 Einþáttungar
(önnur sýning)
Laugardalshöll
kl. 20.30 Hljómleikari
Yehudi Menuhin, fiðla
Vladimir Ashkenazy, píanó
ÞRIDJUDAGUR 13. JÚNÍ
Austurbæjarbíó
kl. 12.15 Kammertónleikar III
(Verk eftir Atla Heimi Sveins-
sori, Anton Webern og
Schubert)
Leikfélag Reykjavíkur
kl. 17.00 Leikhúsálfarnir
(önnur sýning)
Bústaðakirkja
kl. 17.00 Nóaflóðið
(áttunda sýning)
Norræna húsið
kl. 20.30 Hljómleikar:
Edith Guillaume, alt
Ingolf Olsen, gítar, lúta
Nútímatónlist, m.a. frumflutn.
Háskólabíó
kl. 20.30 John Shirley-Quirk,
söngvnri,
Vladimir Ashkenazy, píanó
MIDVIKUDAGUR 14. JÚNÍ
Leikfélag Reykjavíkur
kl. 17.00 Leikhúsálfarnir
(þriðja sýning)
Austurbæjarbíó
kl. 17.30 Kammertónleikar IV
(Verk eftir Schumann, Múss-
orgskí, Þorkel Sigurbjörnsson
og Stravinsky)
Laugardalshöll
kl. 20.30 Einleikstónleikar:
André Watts
FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ
Þjóðleikhúsið
kl. 20.00 Sjálfstætt fólk
(þriðja sýning)
Laugardalshöll
kl. 20.30 Lokatónleikar
Sinfóníuhljómsveit íslands
Einleikari: André Watts
Stjórnandi: André Prévin
ATH. Listahátíð áskilur sér
rétt til að gera breytingar á
efnisskránni.