Vísir - 14.04.1972, Síða 10

Vísir - 14.04.1972, Síða 10
I>aft var slyddusnjór, þcgar l.ufivik Þorgcirsson, sá mikli Framari og heiöursfélagi Fram, tók fyrstu skóflustunguna i gær að nýju félagshcimili Fram i Alftamýrinni. Þar mun i framliöinni risa veglegt íþróttasvæöi fyrir hina þróttmiklu starfsemi félagsins, cn árangur Fram siöustu árin hefur veriö undragóöur, þrátt fyrir hina erfiðustu aðstöðu. Bjarnleifur tók myndina hér aö ofan, þcgar Lúövlk framkvæmdi þcssa merku athöfn, og að baki hans má sjá eldri og yngri Framara — Jón I Straum- nesi, Svein Itagnarsson, Sæmund Gislason, Stein Guömundsson, Sigurö Friöfinnsson og Erlcnd Magnússon, svo nokkrir séu nefndir. Aö neðan cr tcikning af félagsheiinilinu. Lúðvík tók fyrstu skóf lu- stungu við Fram-heimilið r Byggingaframkvœmdir hafnar á Alftamýrarsvœði Fram Á fimmtudaginn var tekin fyrsta skóflustungan að nýju félagsheimili Fram, sem risa mun á svæði þvi, sem Ileykjavikurborg út- hlutaði ielaginu 1958 við Álftamýri. Lúðvik Þor- geirsson, einn af heiðurs- félögum Fram, tók fyrstu skóflustunguna. Framkvæmdir á hinu nýja félags- svæði Fram hófust fyrir fjórum árum. A svæðinu verða þrir stórir knattspyrnuvellir, tveir grasvellir og einn malarvöllur. Lokið er byggingu annars grasvallarins og malarvallar- ins, og vonir standa til, að siðari gras- völlurinn verði tilbúinn á næsta ári. Félagsheimilið verður byggt i tveimur áföngum. 1 fyrri áfanganum, sem er um 270 fermetrar að gólfmáli, verða böð og búningsklefar, en í siðari áfanganum verða fundarsalir og fundaherbergi. Fyrri hluti byggingarinnar var boðinn út fyrir skemmstu. Var tilboði Valdimars Magnússonar, trésmiða- meistara, tekið, en gert er ráð fyrir, að byggingin verði fokheld Lágúst n,k, Stefnt verður að þvi aö innrétta böð og búningsklefa næsta vetur, þannig, að hægt verði að taka félagsheimilið i notkum fyrir næsta sumar, en þá eru liðin 65 ár frá stofnun Fram. Sett hefur verið á laggirnar byggingarnefnd á vegum félagsins og eiga sæti i henni Karl Benediktsson, Asmundur Jóhannsson og Baldur Friðriksson en tveir þeir siðartöldu teiknuðu húsið. Einnig hefur full- trúaráð félagsins verið endurreist, en það mun verða stjórn félagsins til ráðuneytis um byggingarfram- kvæmdir. FH GEGN HAUKUM Sunnudaginn 16. april fer fram keppni i m.fl. karla milli F.H. og Hauka i handknattleik. Keppt verður um glæsilegan bikar, sem Oliustöðin i Hafnarfirði gaf i til- efniopnunar nýja iþróttahússins i Hafnarfirði. Bikar þessi, „Esso- bikarinn”, er farandgripur, en auk hans fylgir litill bikar til þess félags, sem sigrar hverju sinni. Forleikir verða tveir leikir úr islandsmótinu, sem ólokið var. Þeireru milli F.H. og Fylkir i 2,fl. kvenna og Um. Njarðvik og Vik- ingur I 1. deild kvenna. Keppnin hefst kl. 15.00- FH í úrslitum í fjórum flokkum-Víkingur þrem i næstu viku verða úr- slitaleíkirnir i yngri flokk- unum á islandsmótinu í handknattleik háðir. Þá keppa úrslítaliöín úr Reyk- javikur-Reykjaness- og Norðurlandsriðlum og má búast við mjög skemmti- legum leikjum. Fimleikafélag Hafnarfjarðar á flest lið i úrslitum eða fjögur — það er i 3. flokki kvenna og karla, og 2. flokki kvenna og karla. Vik- ingur á þrjú liö i úrslitum, það er i 3.2. og 1. flokki karla — önnur félög færri. Úrslitaleikirnir verða háðir á þessum dögum. Fimmtudagur 20. april kl. 20.00. Laugardalshöll. 3 fl. kvenna Valur-F.H. 4 fl. karla Þróttur-Umf.N. 3. fl. karla Vikingur-F.H. 1. fl karla Vikingur-Haukar Föstudagur 21. april kl. 20.15. iþróttahús liafnarfjaröar. 2. fl. kvenna Ármann-F.H. 2. fl. karla Vikingur-F.H. Laugardagur 22. april kl. 15.00. iþróttahús liafnarfjarðar. 3 fl. kvenna F.H.-Völsungar 2 fl. kvenna F.H.-Völsungar 4 fl. karla Umf.N.-Þór 3. fl. karla F.H.-K.A. 2 fi. karla F.H.-l.B.A. Sunnudagur 23. april kl. 14.00 Laugardalshöll. 1 fl. kvenna Valur-Völsungar 2. fl. kvenna Ármann-Völsungar 1 fl. karla Þróttur-Þór 1 fl. karla Vikingur-K.A. 2 fl. karla Vikingur-l.B.A. Mótanefnd H.S.l. Það fjölgar stöðugt hjó fjölmennasta landsliðinu Margir standa í þeirri trú að fyrirkomulag í norrænu sundkeppninni sé flókið. Sumt fólk er jafnvel feimið viðaðhefja þátttöku vegna þess. i raun og veru er það afar einfalt að vera með f keppninni. númer sitt og fær þá litinn, gulan miða, sem hann heldur eftir til sönnunar þvi, að hann hafi synt. Hverjum er heimilt að synda einu sinni á dag meðan á kcppninni stendur, en henni lýkur 31. október n.k. Eftir að þátttakandinn hefur synt 200 metrana einu sinni hefur hann hlotið rétt til kaupa á bronz- I fyrsta sinn, sem 200 metrarnir eru syntir, þarf að fylla út þátt- tökuskirteini, þ.e. nafn, heimilis- fang og skóla, ef viökomandi er i skóla. Siðan þarf þátttakandinn að skila efri hluta skirteinisins til þeirra er skrásetja. 1 þeim hluta skirteinisins, sem þátttakandinn heldur eftir, er númer, sem þátt- takandinn geymir. Eftir að við- komandi hefur synt 200 metrana þarf hann að láta skrá þátttöku- HEIMSMET Finninn Kaarlo Kagnasniemi setti nýtt heimsmet i snörum i milliþungavigt á finnska meistaramótinu i Kotka á sun- nudag — snaraði 155.5 kg, Saman- lagt lyfti hann 500 kg., sem gr nýtt finnskt met, fimm kg. betra en hann átti sjálfur bezt áður. Jafntefli hjó _ þeimbandarísku Bandariska landsliðið i hand- knattleik gerði jafntefli við úr- valslið Björgvinjar i gærkvöldi 18-18, og þótti leikurinn skemmti- legur og spennandi. Engir nor- skir landliðsmenn voru i úrvals- liðinu. Bandariska liðið heldur nú til Danmerkur og Sviþjóðar. Enn sigrar G. Foreman! George Foreman, hinn ósigraði hnefaleikmaður i þungavigt, vann sinn 35. sigur sem atvinnu- maður á mánudag, þegar hann stöðvaði mótherja sinn, Ted Gullick, i annarri lotu i fyrirhug- aðri 10. lotu keppni þeirra i Ingel- wood. Þetta var 32. sigur Foreman á rothöggi eftir að hann varð at- vinnumaður, en hann varð Ólym- piumeistari i þungavigt á Ólympiuleikunum i Mexikó 1968. V-Þjóðverjar skut- ust upp fyrir Sviss Aðeins einn leikur var háður í heimsmeistara- keppninni í ísknattleik í Prag í gær. Vestur-Þýzka- land sigraði Sviss 6-3 og komst því úr neðsta sætinu. Liðin mætast aftur i næstu viku og allar likur eru á, að það liðið, sem tapar þá, leiki i B- riðli HM næsta ár. Sovézki leikmaðurinn Alexander Jakusjev er nú markhæstur i keppninni með sjö mörk, Valac Nedomansky, Tékkóslóvakiu, hefur skorað sex sinnum, og Finninn Lauri Mononen og Tékkinn Jiri Holik hafa skorað fimm mörk. Anders Hedberg er beztur Svia með fjögur mörk. Leikmönnum eru gefin stig fyrir mörk og sendingar, sem skorað er úr, og þar eru Nedomansky og sovézki leik- maðurinn Alexander Malcev efstur með 9 stig hvor — en þó hefur Malcev ekki skorað nema tvö mörk sjálfur. merki. Eftir að synt hefur verið 20 sinnum fæst réttur til kaupa á silfurmerki með þvi að framvisa 20 gulum miðum. Þegar viðkom- andi hefur synt 200 metrana 50 sinnum (10 km ) getur hann keypt gullmerki keppninnar með þvi að framvisa 50 gulum miðum. Svo virðist, það sem af er keppninni, er mikill áhugi sé meðal manna að ná gullmerkinu. Mun meiri en forráðamenn keppninnar hföðu þorað að vona fyrirfram. Heyrzt hefur á sumum að þeir ætli nú að synda 200 metr- ana og gera skyldu sina við þjóð- ina. Það er ánægjulegt til þess að vita að margir vilja vera með i fjölmennasta landsliði Islands i iþróttum. Vegna þess fyrirkomulags keppninnar nú, að hver einstakl- ingur getur synt einu sinni á dag, má segja að hver og einn hafi annað markmið og þaðekki siðra. það er skyldan við sjálfan sig að þjálfa likama sinn. Keppnin er þvi hvetjandi fyrir almenning til þess að iðka likamsrækt. Suiul cr eitt ákjósaniegasta trimm sem völ cr á, Þar sem norræna sund- keppnin stendur nú yfir þar til 31. október n.k. ættu allir tfg ekki sizt þeir, sem ekki hafa synt um langt skeið, að hefja þátttöku nú þegar i norrænu sundkeppninni, en láta ekki þar við sitja, heldur halda sundiðkunum áfram með a.m.k. gullmerki keppninnar sem mark- mið. Tamara Lazakovitsj, sovézki Evrópumeirstarinn i fimlcikum kvenna, tók nýlega þátt i iandskeppni við Noreg i Skien og sigraði með yfirburðum. Það kemur manni ekki á óvart þegar litið er á þcssa mynd i vSÍjí! Vestur-Þjóðverjar eru byrjaðir með ailskonar æfingar vegna ólympiuleikanna I Munchcn á aðalleikvang- inum, sem að mestu cr að verða tilbúinn.Þarna er Monika Pflug, sigurvegari i 1000 m. skautahlaupi i Sapporo og HM-meistari, með kyndil. Enn er ekki ákveðið hvort hún tendrar eld á ólympiuleikvanginum eftir að hlaupið hefur verið meðð liinn Olympiska eld 5300 km. vegalengd frá Grikklandi til Veslur-Þyzka- lands. KNATTSPYRNUKEPPNI DRENGJA OG BOBBY AFHENDIR VERDLAUN Hverjir eru knattspyrnu- menn framtíöarinnar á islandi? Hverjir búa yfir mestum hæfileikum, og hverjir eru líklegastir til þessað ná beztum árangri i knattspyrnunni hér á landi? Ford-fyrirtækið ætlar að leiða þessa ungu menn fram i sviðs- Ijósið. Komið verður á keppni, sem Ford-umboðin hér á landi, Sveinn Egilsson h.f. og Kr. Kristjánsson h.f. standa að i sam- vinnu við Knattspyrnusamband lslands, og hagað verður eins og Ford-keppni, sem efnt hefur verið til viða annars staðar i Evrópu. Keppnin er opin öllum drengjum, sem fæddir eru 1959 til 1964. Fyrst verður um að ræða eins konar forkeppni, og siðan útsláttarkeppni, en til úrslita keppa tiu drengir i hverjum aldursflokki. Úrslitakeppni drengj anna sextiu veröur með sér stökum hætti, og fer hún fram á Laugardalsvellinum 13. mai. Verður sérstaklega til hennar vandað, og verðlaun afhendir hinn heimsþekkti knattspyrnu- maður Bobby Charlton, sem kemur hingað til lands eingöngu til þess. Forkeppnin hefst 16. april, og verður hún haldin á vegum knatt- spyrnufélaganna á landinu og stendur til 21. april. Að lokinni for keppni verða eitt þúsund stiga- hæstu drengirnir skráðir hjá Ford-umboðunum i útsláttar- keppnina. Skráning stendur yfir frá 27. april til 3. maí, og út láttar- keppnin fer fram frá 6. til 10. mai. Til skráningar innar verða keppendur að koma i fylgd með foreldrum sinum, eða forráðamönnum, sem undirrita þátttökutilkynninguna. Hver keppandi fær þá afhent merki, bækling eftir Bobby Charlton, og skyrtu til að keppa i, og siðan geta keppendurnir fengið sérstakt heiðursskjal aö iokinni kppni. Keppni þessi er liður i EvrOpu- keppni fyrir drengi á þessum aldri, og hefur h'ord þegar gengizt fyrir slikri keppni i mörgum löndum, t.d. Austurriki, Belgiu, Frakklandi, Italiu, Hollandi, Möltu, Vestur-Þýzka- landi og Sviss, og hef'ur keppnin hvarvetna tekizt mjög vel, og nú bætist tsland við. Keppendur eru látnir reyna sig við þrjár þrautir, og fá stig fyrir árangur þann er þeir ná i hverri þraut. Þrautirnar eru valdar af Bobby Charlton. Fyrsta þrautin er þannig, að keppendur spyrna þrisvar á mark frá vitapunkti, og er markinu skipti i sex einingar. Fá þeir stig eftir þvi hvar þeir hitta. Onnur þraut er þannig, að keppendur spyrna fjórum knöt- tum á mark, og er boltunum komið fyrir eins og myndin sýnir. Þrautin felst i þvi að vera fljótur að spyrna, og hitta markið. Timinn er tekinn og stig reiknuð samkvæmt stigatöflunni. Hitti keppendur ekki markið eru dregin frá fimm stig fyrir hvert skot, sem lendir utan við, — þó ekki þannig að fáisl minus-stig. Lægsta stigatala fyrir þrautina er núll stig - Knattrekstur er þriðja þrautin. Keppendur reka boltann á milli keilna, sem komið er fyrir á þann hátt, sem myndin sýnir, og timi er tekinn, og stig reiknuð samk- væmt stigatöflu. Ford-umboðin hér hafa notið góðrar samvinnu við Knatt- spyrnusamband lslands, sem skipaði sérstaka nefnd til þess að vinna að undirbúningi keppn- innar. 1 nefndinni eiga sæti Reynir Karlsson og Orn Steinsen, báðir úr stjórn Þjálfarafélags Islands, Bjarni Felixson, for- maður Dómarasambands Islands, Hreggviður Jónsson, for- maður tækninefndar KSl og Jón Ásgeirsson, sem er fulltrúi Ford Motor Company og Ford-umboð- anna á Islandi. Með þvi að kynna ungum drengjum á Islandi þessa keppni, vona forráðamenn Ford-umboð anna hér á landi, að hún verði til þess að auka áhuga þeirra á knattspyrnu, og til að auka hæfni þeirra i iþróttinni. Takizt það er megintilgangi keppninnar náð.-

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.