Vísir - 19.04.1972, Page 13
13
VÍSIR. Miðvikudagur 19. april 1972.
LIZ TAYLOR
kveðst ekki mundi standa i vegi fyrir Richard
sinum Burton, vildi hann yfirgefa hana. — En
kannski ég mundi slá hann i rot i staðinn, segir
hún.
ALAIN DELON
og Burt Lanchester munu innan skamms leika
saman i njósnamynd. Hún verður gerð i Wien i
mai — og Delon á að leika CIA-njósnara i Wien,
þar sem á að vera viðamikil njósnamiðstöð aust-
urs og vesturs.
JÁNE FONDA
— Oscarsverðlaunahafinn nýbakaði — hefur
ekki mörg orð eða stór um hjónaband sitt og
Rogers Vadim hér fyrr á árum: — Með honum
átti ég leiðinlegasta timabil ævi minnar, segir
hún. Það er ekkert jafn fyrirlitlegt og stúlka,
sem er svo yfir sig ástfangin og ég var þá.
MICHELE MORGAN
— fyrrum kvikmyndastjarna, en nú hluthafi i
hring tizkufataverzlana — er að snúa sér aftur
að kvikmyndunum. Og fyrsta hlutverkið, sem
hún tekur að sér, er hlutverk 45 ára gamallar
konu.
GUNTERSACHS
nýtur ekki ástar og umhyggju sinnar ástkæru
eiginkonu Mirju þessa dagana. Þeirri ágætu frú _
fipaðist illa á skiðum nýlega, sem leiddi til þess,'
að hún skaddaði á sér andlitið. Taka varð nokkur
spor i andlit henni og þá mest við varirnar,
þannig að Gunter fær ekki einu sinni að
þrýstakossi á varir henni i heimsóknartimanum
á spitalanum. — Og það þykir mér afar súrt i
broti, kvartar hann.
BRIGITTE BARDOT
— fyrrum eiginkona Gunters Sachs — hefur upp-
lýst, hverjar kröfur hún geri helstar til sinna
fylgissveina: — Það verða að vera karlar i krap-
inu sem ég get átt með ánægjulegar nætur.
Þegar ég er ótrú, er það ætið mannsins sök.
ROBERT VAUGHN
— maðurinn frá F.R.Æ.N.D.A. — hefur tekið að
sér aðalhlutverkið i nýjum, enskum sjónvarps-
myndaflokki, sem á aö vera talsvert margir
þættir. Með aðalkvenhlutverkið fer Nyree Dawn
Porter, sú er lék Irene i „Sögu Forsyte-ættar-
innar”.
RINGO STARR
er orðinn leikstjóri. Hann hefur nýlokið við aö
stjórna töku myndar um pop-hljómsveitina
T.REX.
JACKIE ONASSIS
borðar reiðinnar býsn af osti. Hún var nýverið i
innkaupaleiðangri i Paris og keypti þá hjá ein-
um einasta ostasala eftirtalin ósköp: 50 kg
camember, 20 kg. emmentaler og samtals 210
kg. af ostum annara tegunda. Samanlagt verð:
114 þúsund islenzkar krónur.
FREDERIC LOEWE
— sá 68 ára gamli tónlistarmaður og höfundur
,,My Fair Lady” — fæst nú við það að skilja við
konu sina eftir 41 árs hjónaband. Karlanginn er
nefnilega orðinn bálskotinn i einni 25 ára gam-
alli.
200 metrarnir
Þessi skemmtilega mynd var tek-
in i Sundhöllinni fyrir nokkru,
þegar Höllin hélt eftirminnilega
upp á 35 ára afmælið. Þetta er
skemmtilég og listilega gerð
mynd hjá Bjarnleifi Bjarnleifs-
syni. Asdis Erlingsdóttir, sú sem
vigði laugina á sinum tima, synd-
ir hér öruggum tökum, en spegil-
mynd glugganna varpar svona
skemmtilegri mynd á vatnsflöt-
inn. Og vitanlega er rétt að minna
á 200 metrana i leiðinni. Hversu
oft hefurðu synt? Kvótinn er jú 50
skipti á hvern mann.
Júgóslavneska ströndin
ekki í hættu
vegna bólu
Bólusóttin i Serbiu i Júgóslaviu
hefur sett ugg að ferðafólki, en að
þvi er segir i fréttum frá Júgósla-
viu, er strönd Júgóslaviu algjör-
lega laus við alla bólusótt. Kom
hún aðeins upp i Serbiu og i þorp-
um þriggja héraða i sjálfstjórn-
arhéraðinu Kosovo. Nokkrir Is-
lendingar voru um páskana
þarna suður frá og komu heim,
heilir heilsu, og með þennan
hraustlega brúna húðlit að auki
eftir vel heppnað páskaleyfi. Er
ferðamannastraumur nú að hefj-
ast á ný til Júgóslaviu eftir það
bakfall, sem varð vegna bólusótt-
arinnar. Þeir sem fara til Júgó-
slaviu ættu þó að athuga að fá
bólusetningu hjá borgarlækni i
Reykjavik, eða héraðslæknum i
sinum héruðum, — svona til að
öllu öryggi sé framfylgt til hins
itrasta.
50 sparisjóðir
starfandi í landinu
Alls eru þeir 50 sparisjóðirnir,
sem starfandi eru á tslandi i dag.
Þar af eru 41 i Sambandi isl.
sparisjóöa, sem hélt aðalfund
sinn um siðustu helgi. I sparisjóð-
um eru nú varðveitt 17,9% af
spariinnlánum bankakerfisins og
hefur litið raskazt þrátt fyrir að
sparisjóðum virðist fækka og
bankaútibúum fjölga i staðinn.
Upphæð heildarinnlána i spari-
sjóðum i árslok 1971 nam 3221
milljón króna og höfðu þau aukizt
um 463 milljónir á árinu. A sið-
asta ári sameinuðust tveir spari-
sjóðir bankaútibúum, en sá þriðji,
Sparisjóður alþýðu var gerður að
banka. Minnsti sparisjóðurinn er
með innlán við milljón krónur, sá
stærsti með um 530 milljónir, svo
misjöfn er stærð sjóðanna. For-
maður Sambands sparisjóða er
Friðjón Sveinbjörnsson i Borgar-
nesi, aðrir i stjórn eru þeir Hörð-
ur Þórðarson, sparisjóðsstjóri i
Sparisjóði Reykjavikur, Sólberg
Jónsson, Bolungarvik, Jón P.
Guðmundsson, Keflavik, og Ingi
Tryggvason, sparisjóðsstjóri á
Kárhóli.
Heilsurœktin í Glœsibœ
Óskar að ráða 2 starfstúlkur til afgreiðslu
og skrifstofustarfa. Verzlunarskóla-
menntun æskileg. Vinsamlega tilgreinið
aldur og fyrri störf. Vaktavinna.
Skriflegar umsóknir sendist Heilsurækt-
inni. Meðmæli æskileg.
Heilsuræktin.
Umboð i Reykjavik:
Aðalumboö Vesturveri
Verzlunin Straumnes, Nesvegi 33
Sjóbúðin við Grandagarð
B.S.R. Lækjargötu
Verzlunin Roði, Laugavegi 74
Ilreyfill, Fellsmúla 24
Bókabúö Safamýrar, Iláaleitisbraut 58—60
Ilrafnista, verzlunin
Verzl. Burstafell, Réttarholtsvegi 3
Bókaverzlun Jónasar Eggertssonar, Rofabæ 7
Breiðholtskjör, Arnarbakka 4—6
í Kópavogi:
Litaskálinn, Kársnesbraut 2
Borgarbúðin, Hófgeröi 30
í Hafnarfirði:
Sjómannafélag Ilafnarfjarðar, Strandgötu 11.
Sala á lausum miðum og endurnýjun
ársmiða og flokksmiða stendur yfir.
Happdrætti D.A.S.
'vi?