Vísir - 17.05.1972, Qupperneq 1
62. árg. Miðvikudagur 17. maí 1972. 110. tbl.
TILRÆÐIÐ FÆRÐI WALLACE
MESTU SIGRA SINA FRA BYRJUN
Georgc Wallace vaknaði af
deyfisvefni og fékk fréttir
um, að hann hefði unnið
mesta sigur til þessa. Hann
sigraði i tvennum próf-
kosningum i gær, og hvorugt
fylkið tilheyrir Suður-
rikjunum, þar sem fylgi hans
hefur veriö ianemest.
Hann sigraði i iðnaðar.
fylkinu Michigan, þar sem
frjálsiynd öfi hafa jafnan
ráðiö i stjórnmálum. Bæði
þar og i Maryland, fylkinu,
þar sem honum var sýnt
banatilræði, var fyigi
Wallace álika mikið og fylgi
McGoverns og Humphreys
samanlagt.
Mikiil vafi er, að Wallace
geti nokkru sinni stigið i
fæturna vegna mænu-
skemmdar.
SJA BLS 5.
Svanfríður ekki
viðriðin hassið
Rannsóknarlögreglan
vinnur nætur og daga aö þvi
að fletta ofan af hass-
hringnum, — náungum, sem
hafa haft af þvi tekjur að
selja fikniefni og smygla
þeim til landsins. Við
ræddum við einn hljóm-
sveitarmanna Svanfríðar i
gær, en aðstoðarmaður
hljómsveitarinnar varð til
þess að velta skriðunni af
stað. — SJA BLS 3.
•
Árekstur ó ekki
að þurfa að
þýða slys
Kannski eigum við eftir að
lifa þá tima aö biliinn verði
ekki sú endemis mann-
drápstik og nú er I dag. Við
jafnvel „ómerkilegustu”
árekstra verða slys, jafnvei
að menn láti lifið af völdum
þeirra, eða fái ævarandi
örkuml. Það er unnið mikið
starf i bilaverksmiðjum, t.d.
i Sviþjóð, við öryggisbilinn
svonefnda. Blaðamaður
Vísis skrapp í vikunni til
Sviþjóðar að kynna sér allt
um þessar tilraunir. — SJA
BLS 2.
70 þúsund kr. á
,saumakonuseðir
Dönsku leikirnir á siðasta
getrauanseðli voru erfiðir.
Aðeins tveir seðlar með 10
réttum fundust á þessum
„saumakonuseðli” og kemur
i lilut um sjötiu þúsund
krónur.sem er sennilega það
bezta sem komið hefur á tíu
rétta — þegar allir leikirnar
hafa farið fram — frá þvi
getraunastarfsemin hófst
hér. Og Danir voru i sjöunda
himni með þessi úrslit —
loksins er nú von i góðan
vinning hjá dönsku
getraununum, sennilega hátt
á aðra milljón islenzkra
króna fyrir alla leikina 12
rétta.
0
Áhorfendur í
völundarhúsi
Sænskur leikflokkur sýnir
ieikritið Goðsögu i Norræna
húsinu. Það vekur mikla
athygli hvernig leikhúsgestir
komast til sæta sinna. Þeir
eru leiddir gegnum
völundarhús eitt af
ieikurunum, þar til þeir
komast isætin, en hvað bíður
þeirra þá? — Sjá kritík
á bls 7
Vakinn af heilum
kór
á afmœlisdaginn
- sjú baksíðu
0
Banna laxveiði
við ísland.
SJÁ BLS. 5
Eldri og yngri drottning kjðrin
Fegurðarsamkeppnin í nœstu viku
Fegurðarsamkeppni ís-
lands 1972 mun fara fram á
laugardaginn i næstu viku.
Þá verður Fegurðardrottn-
ing íslands kjörin, en jafn-
framt Fegurðardrottning
ungu kynslóðarinnar, en sú
mun i sumar taka þátt í
Miss Young International-
keppninni í Tokyo.
Fegurðarsamkeppnirnar munu
fara fram samtimis i Háskóla-
biói, en sex stúlkur taka þátt i
hvorri keppni. Keppendur i yngri
keppninni eru á aldrinuml5 til 19
ára, en keppendur i eldri keppn-
inni eru á aldrinum frá 18 ára.
i yngri keppninni er aðeins um
feröina til Tokyo að keppa, en i
þeirri eldri eru utanlandsferðirn-
ar sex. Fyrsta alþjóðlega
fegurðarsamkeppnin, sem senda
þarf islenzka stúlku til, fer fram
strax i næsta mánuði.
Sem fyrr er það Sigriöur
Gunnarsdóttir, sem haft hefur
allan veg og vanda að undirbún-
ingi keppninnar, en henni til að-
stoðar hefur verið Heiðar Jóns
son, sem þjálfað hefur stúlkurn
ar- —ÞJM
„Ég vildi breyta svolitiö til og fékk þess vcgna vinnu hérna f
bænum,” segir Arnlieiður Asta, sem er frá Ytri-Njarövfk.
VILL GERAST
TÍZKUFYRIRSÆTA
Ahugamál Þórunnar Sfmonardóttur eru tfzkusýningarstörf og
hestamennska. Sjáif hefur hún átt hestinn Prins f þrjú ár.
„Ég tek þátt f Feguröarsam-
keppni ungu kynslóðarinnar i
þeirri von, að það opni mér leið-
ir inn i starf tizkufyrirsætu,”
sagði Arnheiður Asta Jósafats-
dóttir, 17 ára gömul úr Keflavik,
og hún hristi höfuðið þegar við
spurðum, hvort ferðin til Tokyo
hefði ekki freistað hennar eitt-
hvað lika. Og Arnheiður Asta
hióð aðeins þegar við spurðum
hana um álit hennar á andúð
Rauðsokka á fegurðarsam-
keppnum.
Arnheiður Asta er frá Ytri-
Njarðvik, en stundar nám við
Verzlunarskólann af kappi. Hún
vinnur i sumar i tizkuverzlun-
inni Karnabæ, en undanfarin
þrjú sumur vann hún i verzlun-
inni Kyndii f Keflavik. „Pabbi á
þá verzlun og það er ágætt að
vinna hjá honum, en ég vildi
samt breyta um vinnustað,”
sagði Arnhildur.
Hún sagði okkur lfka, að hún
skemmti sér alltaf i Stapanum.
„Ég er nefnilega ekki orðin
nógu gömul til að komast inn á
skemmtistaðina hér f Reykja-
vik. Tónabær er bara fyrir yngri
krakkana — og raunar Stapinn
lika,” sagði hún aö lokum. —
ÞJM
LANGAR TIL
AUSTURLANDA
Hestamennska og
tfzkusýningarstörf eru aðal-
áhugamál Þórunnar Símonar-
dóttur, 18 ára afgreiðslustúlku i
tizkuverzluninni Pop-húsið, cn
hún er mcðal keppenda um titil-
inn Fegurðardrottning tsiands.
Við spurðum Þórunni, hvern-
ig henni likaöi að starfa við það,
að bæði selja tizkuföt og sýna,
en Þórunn er (eins og Arnheiður
Asta) i sýningarsamtökunum
Karon. „Það finnst mér vera
einmitt þaö rétta,” svaraði hún.
„Svona fylgist maður miklu
betur mcð tizkunni.”
Þórunn vissi ekki almenni-
lega hvers vegna hún gaf sig út
að taka þátt i keppninni „Ég sá
eftir nokkra umhugsun, að
engu máli skipti hvort ég tæki
þátt i henni eða ekki. Ég ákvað
svo að fórna þessúm dögum i
hana. Nú, og þannig á ég Hka
utanlandsferð I vændum.”
Þórunn hefur ferðast til
Spánar og Englands og svo þar
að auki unniö um skeið á hóteli i
Kaupmannahöfn. „Mest mundi
mig þó langa til að komast ein-
hvérntima til Austurlanda
nær,” bætti hún við. -ÞJM
Hassi áður smyglað í kílóavís?
Æ ** - sjá baksíðu