Vísir - 17.05.1972, Blaðsíða 5
VÍSIR. Miðvikudagur 17. mai. 1972
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Stœrstu sigrar Wallace
Sigraði í Norðurríkinu Michigan og einnig í
Maryland — Fékk jafn mikið og McGovern
og Humphrey til samans
George Wallace vaknaði
skamma hriö í gærkvöldi af
deyfilyfjasvefni og frétti,
að hann hefði sigrað í próf-
kosningunum i Maryland
og Michigan. Kona hans
færði honum brosleit þessar
mestu sigurfréttir í stiórn-
málabaráttu hans.
Sigur Wallace i norður-miðfylk-
inu Michigan er sá fyrsti slíkur,
sem hann hefur unnið. Hann hefði
þótt ótrúlegur fyrir nokkrum
mánuðum.
t báðum fylkjunum sigraði
Wallace McGovern og Hubert
Humhrey, en þeir börðust nokkuð
jafnri baráttu um annað sætið.
Fékk jafnmikið
og hinir samtals.
I Michigan vann Wallace með
yfirburðum i prófkosningum i
demókrataflokknum i fylki, sem
hefúr verið vettvangur frjáls-
lyndis, iðnaðarriki,. sem skiptir
miklu i stjórnmáíabaráttunni i
flokknum.
Maryland er einnig ekki suður-
riki, þótt sigur Wallace þar þyki
ekki jafn athyglisverður.
Talningu var nærri lokið i
báðum fylkjunum i morgun.
1 Michigan hafði Wallace 50 af
hundraði atkvæðanna.
MacGovern 25% og Humphrey
18%.
1 Maryland hafði Wallace 40 af
hundraði atkvæðanna, McGovern
26% og Humphrey 22%
Nixon vann. yfirburðasigra i
prófkosningum i repúblikana-
flokknum. t Maryland voru
keppinautar hans tveir þingmenn
flokksins i fulltrUadeildinni, og
raunar voru nöfn þeirra á listan-
um helzt til málamynda.
Tilræðið jók fylgi hans.
Skotinn niður, með miklar efa-
semdir um, hvort hann gæti
stigið i fæturna að nýju, meðtók
Wallace sigurfréttirnar. Engir
fagnaðarfundir voru haldnir eða
hópgöngur stuðningsmanna
vegna sigursins.
Sigurinn var það mikill, að
felstir töldu, að tilræðið hafi aukið
fylgi hans.
Fulltrúar Wallace segja, að
hann muni halda áfram þátttöku i
prófkosningunum.
Kona hans heimsótti i gær-
kvöldi leyniþjónustumanninn,
sem skotinn var i hálsinn á sama
tima.
Ti Iræðismaður með
„meðal-gáfur7'
Arthur Bremer, sem var hand-
tekinn vegna tilræðisins við
Wallace, hafði verið sendur i geð-
rannsókn i nóvember i haust, þar
sem framburður hans hafði verið
mjög undarlegur, er hann kom
fyrir rétt vegna ákæru um að hafa
vopn ólöglega undir höndum.
Sálfærðingur taldi hins vegar
eftir rannsókn, að Bremer hefði
meðalgáfur, þó i lakara lagi.
Hann var sektaður um 40
dollara (3520 krónur).
Lögregluþjónn hafði stöðvað
bifreið hans, sem hafði verið lagt
ólöglega og Bremer var tekinn
höndum, þegar tvö veski i bilnum
fundust með skotum og ein
skammbyssa i vasa Bremers.
Skömmu fyrir tilræðið hafði
Bremer verið tekinn til yfir-
heyrslu vegna grunsamlegs hátt-
ernis, en lögreglan sá ekki ástæðu
til að halda honum.
Tilræðisbærinn kaus
McGovem.
Bærinn Laurel i Maryland, sem
verður minnzt vegna tilræðisins,
kaus McGovern i gær.
Bærinnn er nánast útbær
Washington og þar búa margir
opinberir starfsmenn.
Umsjón: Haukur Helgason
2000 milljónir
í hreinu
heróíni
Rikissaksóknari i Belgíu
sagði i gærkvöldi, að lögreglan
hefði lagt hald á 120 kiló af
hreinu heróini, sem verið var að
flytja frá Paris til New York.
Sjö manns hefðu verið hand-
teknir vegna þessa smygls,
fimm i New York og tveir I
Paris.
Hann taldi, að verðmæti
heróinsins mundi vera um 2000
milljónir króna, hefði það náð til
markaðarins i New York.
Fimmtón
með kóleru
Tiu ný tilfelli af kóleru hafa
komið á daginn I Singapore, og
hafa þannig alls 15 tekið veikina
þar, siðan hennar varð vart fyrir
viku.
Tvgir munaðarleysingjar á flotta fra' heimilum sinum sitja við veginn nálægt Hué I Suður-Viet-
nam. Börnin misstu foreldra sína i bardögunum i Quang Tri fyrr í mánuðinum.
BANNA LAXVEIÐAR Á
HAFINU VIÐ ÍSLAND
Fiskveiðinefnd Norð-
austur-Atlantshafs hefur
gert aðgerðir um verndun
ákveðinna fiskstofna eftir
fjögurra daga fundi í
London.
Stofnar þessir eru taldir
i hættu vegna ofveiði.
Nú á að vernda laxinn i hafinu
i auknum mæli. Aður hafa verið
gerðar ýmsar ráðstafanir til að
tálma laxveiði á hafinu, en
nefndin hefur fært takmarkan-
irnar út með þvi að banna lax-
veiði á hafinu umhverfis Island.
Þá hafa verið settar nýjar
hömlur við sildveiði i Norðursjó
og Skagerak fyrir næsta ár.
Verður aflamagnið 1973 tak-
markað við aflann árin 1969-
1972.
Möguleikar á að setja hömlur
á þorskveiði i Norð-austur-
Atlantshafinu voru ræddir.
Áður hefur verið rætt um al-
mennar takmarkanir við þorsk-
veiðinni á þessum slóðum.
SKOTIÐ AFTUR I KOREU
Norður-Kóreumenn
sökuðu Suður-Kóreu-
menn i morgun um að
hafa skotið mörg hundr-
uð sinnum af vélbyssum
yfir landamærin.
Sögðu þeir, að Bandarikjamenn
og Suður-Kóreustjórn hygðust
nota hlutlausa beltið milli rikj-
anna i Kóreu til að magna illdeil-
ur á skipulagðan hátt.
ATTA FUNDIR
NIXONS OG
SOVÉTLEIÐTOGA
Nixon mun halda að
minnsta kosti átta fundi
með æðstu mönnum Sovét-
ríkjanna í næstu viku, þeg-
ar hann sækir Moskvu
heim. Enn hefur þó ekki
verið gengið frá dagskrá
fundanna.
350 blaðamenn hafa tilkynnt
Moskvudvöl og fengið tilheyrandi
leyfi vegna ferðar Nixons. Blaða-
mannamiðstöð með 10 fjölritalin-
um og 20 alþjóðlegum simalinum
verður sett á fót i hið nýja Hótel
Intourist, sem er skammt frá
Kreml.
Þetta er i fyrsta sinn, að sovézk
stjórnvöld setja upp blaðamanna-
miðstöð fyrir erlenda blaðamenn.
Yfirmaður TASS-fréttastofunnar,
Leonid Samjatin, hefur verið
skipaður forstjóri miðstöðvar-
innar.
........ .. ..■ yfOýffjÝj.
Hermdarverkabylgja gekk yfir Vestur-Þýzkaland fyrir skömmu, og
sprengjur sprungu viða. Hér er starfsfólk I rannsóknarlögreglustöðinni
i Múnchen að horfa út um brotnar gluggarúðurnar, eftir að sprengja
sprakk á bflastæði og eyðilagði 25 bíla og særði margt rnanna