Alþýðublaðið - 05.09.1963, Qupperneq 16
!
Hans Lenz ræðir v/ð fréttamenn:
Lék hér í Faust
fyrir 30 árum
Vestur-ÞjóSverjar hafa í
hyggju að stækka verulega há-
skóla sína og reisa fimm nýja,
að því er vísindamálaráðhcrra
þeirra, Hans Lenz, sagði í fyr
irlestri í Háskólanum í gær.
Ræddi hann um stjórnmál og
vísindi, og gerði grein fyrir
skipan þeirra mál'a í Þýzka-
landi. Hefur þar verið komið
upp 29 manna vísindaráði, þar
sem sitja fulltrúar ríkis, há-
skóla og atvinnuvega, og hefur
reynslan af því verið góð.
Lenz, sagði að íslendingar
hefðu komið á góðu sambandi
milli vísinda og stjórnmála í
þá tíð er Háskóil og Alþingi
voru í sama húsi — og góð
vinátta þar á mill'i. Hann undir
strikaði nauðsyn frjálsrar vís-
indastarfsemi og kvað háskól-
ana gegna þar meginhlutverki,
nema verkefni væru svo nm-
fangsmikil, að enginn nema ríki
eitt eða fleiri, gætn leyst þau.
Lenz taldi hlutverk smærri
þjóða eins og íslendinga
inundu verða mest á sviöi hug
vísinda. Þótt hann teldi þýð
ingu vísindanna nf.kla, mót-
mælti hann þeirri skoðun, að
vísindin væru trúarbrögð nú-
tímans. Ilann sagði, að vísindi
gætu aldrei komið í stað trúar-
bragða. Það hefðu hinir mestu
vísindamenn, eins og Einstein
skilið manna bczt.
í gærkvöldi ræddi Lenz, sem
hér dvelzt í boöi ríkisstjórnar-
innar sem gestur Gylfi Þ.
Gislasonar, menntamálaráð-
herra við blaðamenn að Hótel
Sögu.
Ráöherrann rakti fyrst stutt
lega það helzta sem á daga hans
hefur drifið frá því að hann
dvaldi hér fyrir rúmum 30 ár
um. Þegar hann hafði lokið
námi , en hann er málfræðing-
ur að menntun, gerðist hann
starfsmaður bókaforlags, sem
gaf út vísindabækur. Það starf
stundaðí hann fram til 1942, en
þá var hann kallaður í herinn.
Að stríðinu loknu var iökað fyr
ir alla bókaútgáfu og varð
hann þá að finna sér annaö
starf. Hann fékk starf við tón
listarháskóla í Suður-Þýzka-
landi og starfaði við hann um
tíma.
Hann var kosirm á þing ár
ið 1953 og varð rái herra í Bonn
1961 og á síðasta ári var hann
skipaður vísindar’.álaráðherra.
Undir hann heyra hau mál sem
að vísindum varða, en þó ekki
kennslumál nema að mjög
litlu feyti, því að menntmál
heyrir undir stjórnir hinna
einstöku ríkja innan sambands
ins. Hans Lenz er þingmaður
fyrir Frjálsa demokrata og er
varaformaðiír þingfloklss
þeirra.
Ilans Lenz minntist veru
sinnar hér á landi fyrir 30 ár-
um með mikilli ánægju, og rif j
aði upp ýmsar gamlar minn
ingar. Hann var hér í stúdenta
skiptum og lagði stund á nor-
rænu við háskólann hjá þeim
Sigurði Nordal og Alexander
Jóhannesisyni; Hásk«i!nn var
þá til húsa í Alþingishúsinu.
Framh. á 5. síðu
40 BÖRN MISSA FOR-
I FLUGSLYSI
ELDRA
Humlikon, Sviss, 4. sept.
NTB-Reuter.
Um það bil fjörutíu börn I
þorpinu Humlikon í Sviss urðu
nnunaðarlaus í dag, þegar flugvél
íiórst við þorpið Ðúrrenant í N-
Sviss. Streymt hafa tilboð frá
Sóiki víðs vegar í Sviss, er vill
í.aka að sér munaðarlausu börn-
«n.
Flugvélin sem fórst var af gerð
inni Caravelle og allir sem í
'henni voru, 80 manns, fórust. —
Flugvélin var frá svissneska flug-
félaginu Sviss-Air.
Leifar af flugvélinni, sem var
■fveggja hreyfla þota, þeir sem
fórust og farangur, þeyttist í allar
óttir, allt að átta kilómetra frá
slysstaðnum.
Lögreglumenn og hermenn
voru önnum kafnir í allan dag
við að finna líkin og bera kennsl
á þau. í vélinni voru 74 farþeg-
ar og 6 manna áhöfn, þar af þrjár
flugfreyjur.
Þegar flugvélin hrapaði til
jarðar, aðeins fimm mínútum
eftir flugtak á vellinum í Zúrick,
reif logandi flugvélin. þak 'af húsi
og skömmu síðar varð spreng-
ing.
Sex útlendingar voru í flug-
vélinni, enginn þeirra Norður-
landabúi.
Þetta er fyrsta meiriháttar flug
slysið í sögu Sviss-Air, sem var
stofnað fyrir 30 árum. Einnig er
þetta versta slysið, sem komið
hefur fyrir Caravelle-flugvél.
íbúar þorpsins heyrðu kröft-
uga sprengingu frá flugvélinni,
þegar hún var enn á lofti. Litlu
síðar varð önnur sprenging, þegar
flugvélin rakst á jörðina.
Engan hinna 900 íbúa þorpsins
sakaði og enginn varð fyrir leif-
um vélarinnar, en nokkrir fengu
vægt taugaáfall.
í húsinu næst slysstaðnum býr
75 ára gamall maður, Heinrich
Linhard, og slapp hann naum-
lega.
Bær og hlaða
brunnu
Stórbruni varð á bænum Kirkju
bóli í Miðneshreppi kl. 23.00 á
þriöjudagskvöldið. Eigandi og á-
búandi jarðarinnar, Þorvaldur H.
Jónsson og annar maðnr voru
staddir á bænum, þegar eldurinn
kom upp í heyhlöðunni. Orsakir
hans eru taldar vera rafmagnsbil
un. Slökkviliðið kom á staðiun frá
Kefí'avík og Keflavíkurflugvelli.
Eldurinn barst yfir í íbúðarhúsið
sem var sambyggt við hlöðuna.
Húsið, hlaðan og skemman gjör
eyddist af eldinum.
Bærinn stendur nokkuð afskekkt
og enginn sími er á bænum. Eld
urinn kom svo skyndilega upp,
að Þorvaldur gat ekkert við ráð
ið. Hann ók niður í Sandgerði,
sem er um það bil tíu mínútna
akstur, til að hringja á hjálp.
Slökkviliðið kom á staðinn um
tólfleytið. Var þá íbúðarhúsið al
elda. Það var tveggja hæða stein
hús með trégólfi. Slökkviíiðinu
1,ókst að ráða niðurlögum eldsins
til ösku
um fjögurleytið. Síðan voru
menn látnir standa á verði yfir
heyinu til kl. 9. Þá var talið ör
uggt að enginn eldur leyndist í
því. Svo var þó ekki. Eldur leynd
ist í þurrstokkum undir heyinu og
gaus hann upp aftur. Slökkviliðið
var kallað að nýju á staðinn og var
eldurinn slökktur á skömmuna
tíma. Til að auðvelda slökkvistarf
ið varð að rífa út allt heyið.
Það sem torveldaði slökkvistarf
ið var að lítið vatn var á staðnuœ
Vatn var flutt þangað á þar til
gerðum strigabelgjum á vörubíl
um frá Sandgerði. Hver belgur
tók 1200 lítra.
Þess má geta að 400 hestar af
heyj voru í hlöðunni og skemmd
ist það nærri þvi allt. Innanstokkg
munir gjöreyðilögðust og þar á
meðal gott bókasafn sem Þorvald
ur átti. Aftur á móti tókst að
bjarga skepnunum og gripahúsun
um. Býlið var einungis skyldu
tryggt.
Mesti solar-
hringsaflinn
Ifíjög góð síldveiði var sl. sól-
arhring. Iíefur sólarhHíngsafíinn
aldrei orðið meiri í snmar. 71
skip fékk veiði og samanlagður
afli þeirra var 63.850 mál og tunn
ur.
Á miðunum út af Langanesi
fengu 22 skip samtals 26.350 mál
og tunnur. Síldin var þar nokkuð
blönduð.
Á miðunum suðaustur a£ Gerpi
fengu 49 skip samtals 37.500 mál
og tunnur og var sú sild bæði
feit og falleg.
Síldveiðin í dag hefur verið
heldur minni en í gær. Á Langa-
nessvæðinu höfðu nokkrir bátar
fengið allgóða veiði, en þeir voru
mun færri en í gær. Síldin hefur
verið stygg og erfið vlðureignar.
Veðrið á þessum miðum hefur
verið heldur gott 2-3 vindstig af
norðaustri.
Síldin út af Gerpi hefur held-
ur færst nær landi og er hún nú
50-65 mílur suðaustur af Gerpi.
Þar hefur bátur og bátur verið
að fá veiðl í dag. Logn er þar á
miðunum og þokusúld.
Þessi skip höfðu tilkynnt afla
1000 mál og tunnur og þar yfir
sl. sólarhring:
Sigurpáll 1200, Helga RE 1700,
Björgúlfur EA 1650, Garðar GK
Árni Magnússon 1700, Sigurður
1400, Hamravík 1000, Vigri 1600,
Helgi Helgason 1200, Sólrún 1700,
Bjarnason 1500, Fákur 1800, Arn
firðingur 1000, Halldór Jónsson
1200 og Vonin KE 1100.
. Seyðisfjörður: Þráinn NK 1050,
Steíán Ben 1200, Ásbjörn RE
1000, Hávarðiír 1000, ÞorjLákur
1000, Ófeigur II. 1250, Guðmund
ur Þórðarson 1500, Gullfaxi 1100,
Framh. á 5. siðu
fundur Alþýðu-
flokksins um
Berlínarmálið
ALMENNUR fundur Al-
þýðuflokksins um Berlínar-
málið verður í Iðnó, uppi, í
kvöld kl. 8,30. Þar flytur dr.
Gerard Walther borgarfull-
trúi frá V-Berlín erindi, og
mun hann að því loknu svara
fyrirspurnum. Erindi hans
▼erður túlkað. Allt Alþýðu-
flokksfólk er hvatt til aö f jöl
menna. ■