Vísir - 31.07.1972, Blaðsíða 3
Visir. Mánudagur. 31. júli 1972
3
w
SONY-
undraheimur
n jöma og töna.
☆
jpGudjónsson ftf
Shúíagötu 26
NYKOMIÐ
☆ Wild Mustang buxur
☆ Stuttjakkar og buxur
Leður og rúskinnsjakkar
ADAfll i
VAR BJARGAÐ „OF FLJOTT
ÚR LYFTUNNI
fékk ekki tíma til að Ijúka lestri blaðsins
,,...Og hann hafði á orði,
þegar ég hleypti honum
út úr lyftunni, að eigin-
lega hefði ég verið full-
fljótur i ferðum. Hann
var nefnilega rétt búinn
að setja sig i stellingar
til þess að byrja að lesa
eitthvert blað, sem hann
var með, en gafst ekki
timi til þess að ljúka
lestrinum á þvi, sem
hann var byrjaður á,”
sagði einn lyftuvið-
gerðarmannanna hjá
Bræðrunum Ormsson,
Guðmundur Þorkelsson.
betta gerðist ekki alls fyrir
löngu i lyftunni i Loftleiðahótel-
inu. Lyftan var föst með manni
innanborðs, einmitt þá stuttu
stund, sem húsvörðurinn hafði
brugðið sér eitthvað frá. Enginn
nærstaddur hafði lykla til þess að
opna lyftudyrnar, né kunni nægi-
lega vel á lyftuna til þess að
bjarga manninum út. — En Guð-
mundur viðgerðarmaður var ein-
mitt staddur i nýbyggingu i næsta
húsi, og var sóttur strax, svo að
maðurinn losnaði úr prísundinni
eiginlega áður en hann hafði náð
að hrópa á hjálp.
„Annars er þetta afar sjaldan,
sem að við þurfum að hleypa út
fólki úr lyftum. Ég man satt að
segja ekki, hvenær það kom síð-
ast fyrir mig. Það er orðið svo
langt siðan,” sagði Hallgrimur
Guðmundsson, verkstjóri við-
gerðardeildarinnar hjá Ormsson
h.f.
„Það er lang oftast, að hús-
verðir eða einhverjir umsjónar-
menn lyftunnar þar sem slikt ber
upp á, eru búnir að hleypa fólkinu
út, og það kannski löngu áður en
við komum til skjalanna.”
Hallgrimur er búinn að vera 13
ár i lyftu-uppsetningum og við-
gerðum, og hefur þvi haft nógan
tima og tækifæri til að vinna að
slikum „björgunum”, ef bara
aðstæður hefðu krafizt.
En þeir voru allir sammála um
það, þessir lyftumenn, sem við
tókum tali, að það bæri sára -
sjaldan upp á, að til þeirra kasta
kæmi til þess að hjálpa fólki úr
lyftum.
Eftir tilvikið núna i vikunni, þar
sem blaðasöludrengurinn sat
innilokaðuri lyftu i Domus Medica
heila nótt, hafa menn mikið velt
vongum yfir þvi, hversu treyst-
andi húslyftum væri.
„Ég man ekki til þess, að hafa
heyrt af neinum dæmum um það,
að fólk hafi orðið fyrir verulegum
óþægindum af slikum óhöppum,
né heldur heyrt um innilokun,
sem orð var gerandi á — nema
þetta eina,” sagði Hallgrimur.
öryggisútbúnaður i rafmagns-
lyftum hefur batnað mjög með
árunum, og neyðarbjöllur i þeim
öllum, þótt hún hafi brugðizt með
einhverjum óskiljanlegum hætti
um daginn. Meira að segja eru
dæmi þess, að simtæki séu höfð i
Jitum, og með þeim er hægt að
hringja i hvaða númer, sem menn
viljaútiibæ. -GP
í þessari lyftu, sem er i húsi O. Johnsons og Kaabers við Sætún, er
hafður sini til öryggis, svo að húsvörðurinn geti gert vart við sig, ef
hann Iokaðist inni, cn aiinais ætti hann á hætlu, að dúsa kannski frá
fösludagskvöldi og fram á inánudagsmorgun lokaður i lyftunni.
„Sára — sárasjaldan, sem við þurfum að hjálpa fólki út úr lyftum,” sögöu lyftuviðgerðarmennirnir,
Hallgrimur Guðmundsson (t.h.) og Guðmundur Þorkelsson.