Vísir - 31.07.1972, Page 6

Vísir - 31.07.1972, Page 6
6 Vísir. Mánudagur. 31. júli 1972 vísir Útgefandi: Reykjaprent hf. ( Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsscr. ) Ritstjóri: Jónas Kristjánsson ( Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson ) Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson ( Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson ) Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 (( Afgreiðsla: Hverfisgötu 32. Simi 86611 ) Ritstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611 (5 linur) ( Askriftargjald kr. 225 á mánuði innanlands ( i lausasölu kr. 15.00 eintakið. ) Blaðaprent hf. ( Umskiptingarnir sjö Almenningur hefur með undrun fylgzt með atferli ( ráðherranna, siðan þeir settust i valdastólana. ) Ýmsu hafa menn vanizt i stjórnmálum, en hegðun )) ráðherra vinstri stjórnarinnar eru tvimælalaust einsdæmi i kúvendingu. Litum á nokkur kornin. // Dómsdagsræður núverandi fjármálaráðherra // fjölluðu árum saman um fátt annað en það viti, að )) fjárlög hækkuðu töluvert frá ári til árs. Svo hamraði \ hann á þvi, að hækkandi fjárlög væru sem olia á eld ( verðbólgunnar, að ekki mun hafa farið fram hjá / mörgum. Þetta iðkaði hann allt eins, þegar sam-) dráttur var i efnahagsmálum og augljós þörf at-1 vinnuaukandi aðgerða. í framhaldi af þessu var // samt ekki beðið boðanna og f járlög hækkuð meira ) en nokkru sinni, um leið og hinn skeleggi baráttu- \ maður gat sjálfur ráðið. ( Alþýðubandalagið beitti sér af alefli gegn þvi, að ( íslendingar gengju i friverzlunarbandalagið EFTA. / Framsóknarmenn sátu hjá. Þegar þeir stýrðu sjálf-) ir, flýttu þeir sér að stiga skrefi lengra og gerðu við- \ skiptasamning við Efnahagsbandalag Evrópu, sem ( lengstum var erkióvinur þjóðarinnar samkvæmt/ boðskap Þjóðviljans. ) Fátt var núverandi valdhöfum meira hjartans) mál en að bæta skattakerfið og létta byrðum af( alþýðu manna, meðan þeir voru utan rikisstjórnar. / Þeim hefur hins vegar verið fátt kærara i stjórnar-) tið sinni en að ganga sem lengst i skattpiningu, eins \ og almenningi er ljóst. ( Nú er horfið mikilvægi þess að draga úr skuldum (( rikisins. öðru vöndust þeir, sem glugguðu i sam- )/ tektir Framsóknarmanna um „skuldafenið” og )i „rikisgjaldþrot” fyrrum. Vinstri stjórnin hefur ein- ( beitt sér að þvi að auka rikisskuldirnar og safna er- / lendum lánum. Rikisbúskapurinn er jafnframt rek-) inn með halla og skuldum safnað til frekari áherzlu \ á stefnuna. (( Ráðherrar hafa einnig látið koma fram klókindi (/ sin i notkun niðurgreiðslna til að lækka vöruverðið. )) Þeir hafa boðað, að kaupvisitölustigum verði hald- \ ið eftir til að hamla gegn kauphækkunum 1. septem- ( ber. Varla hafa þeir átt von á þessu, sem minnast / grimmilegrar baráttu þeirra á fyrri tið. ) Vinstri stjórnin hefur ekki látið á sér standa að) nota tækifæri til gengislækkunar. Hún stefnir sem( hraðast til nýrrar gengisfellingar. / Málefnasamningur vinstri stjórnar er orðinn forngripur, þar sem finna má spakmæli núverandi) valdhafa, meðan þeir voru utan garðs. \ Sjálfir eru þeir umskiptingar. ( Hendur ráðherranna Þjóðviljinn leikur djarfan leik i skattamálunum ) og þykist vera þar „stikkfri”. ) Það er ánægjulegt, að i blaðinu skuli öðru hverju ( birtast sannleikurinn um skattsvivirðuna. En auð- / vitað firra Alþýðubandalags menn sig engri ábyrgð ) með slikum kúnstum. Markmið þeirra kemur lik- \ lega bezt fram i grein, þar sem fjallað er um, hve ( hörmulegt það sé, að hönd Halldórs. E. hirði af / gamla fólkinu það sem hönd Magnúsar rétti þvi. ) Þetta missir marks, þar sem öll þjóðin hefur fylgzt \ með aðild Alþýðubandalagsmanna að skattafrum- ( varpinu, samningu þess og samþykkt á Alþingi og i ) rikisstjórn. ) Stóri bróðir fylgist betur og betur með þér ,.IIún er hin leyndasta af öllum leynilegum stofnunum Banda- rikjastjórnar. Fáir vita fullt nafn hennar... Bandariska ley niþjónustan NSA (National Security Agency, rikisöryggisstofnun) hefur um árabil ráöið alia dulmálslykla er- lcndra rikja. 15 þúsund starfsmönnum sinum gefur NSA fyrirskipun: „segið aldrei neitt”. Þetta segir vestur-þýzka tima- ritið Spiegel um „uppljóstranirn- ar” i bandariska timaritinu Ramparts, sem hafa vakið mikla athygli um allan heim. Fellwock nokkur hefur stigið á stokk og skýrt frá starfsemi leyniþjónustunnar, en litið er um andsvör stofnunarinnar, sem hef- ur þann hátt að svara helzt aldrei neinu, sem um hana er sagt, gott og illt. Njósnarar í eigin heimi Spiegel segir, að innan þrefaldrar girðingar hafi NSA eigin heim. Risastórt veitinga- hús, átta snarlbari, eitt sjúkra- hús, pósthús, banka. Ekkert gleymdist, þegar gera átt svæðið óháð umheiminum. Spiegel segir, að innan þre- faldrar girðingar hafi NSA eigin heim. Risastórt veitingahús, átta snarlbari, eitt sjúkrahús, póst- hús, banka. Ekkert gleymdist, þegar gera átti svæðið óháð um- heiminum. Stofnunin ræður ekki aðeins einni stærstu samsteypu i Washington. Hún ræður einnig tvöfalt hærri fjárlögum en sú leyniþjónusta Bandarikjamanna, sem þekktari er og mikið i frétt- um CIA. CIA eróháð NSA, en fæst fremur við „ómerkilegri” mál- efni, þótt stór séu. 2000 hlustunarstöðvar NSA um allan heim hlera næstum hvert útvarp veraldar, að sögn Spiegel, hvert mikilvægt simtal. Efnið, sem úr hlerunum fæst, er gaum- gæfilega rannsakað og úr þvi unnið. Þá vekur sú fullyrðing einna mesta athygli, að NSA-menn viti „næstum alltaf’, hvað gerist i ráðuneytum og sendiráðum i öðr- um löndum. Hvar eru mörk milli ,,góöra" og ,,vondra" njósna? Svo mikið er þó efnið, sem hleranir og aðrar njósnir veita, að lykilráðendur og mála- menn stofnunarinnar komast ekki yfir að ráða nema 10 til 15 prósent af þvi. Það er þó a 11 nokk- uð. 80 prósent af „njósnaefni”, sem bandarisk stjórnvöld fá, koma frá NSA. Ljósglæta barst inn i leyndar- dóma leyniþjónustunnar fyrir rúmri viku, segir Spiegel. Þá birtist i blaði vinstri sinnaðra kaþólskra manna Ramparts um- sögn fyrrverandi ráðanda dul- málslykla NSA um starfsemina. Perry Fellwock, 26 ára „striðs- andstæðingur” varð heimsfrægur fyrir vikið. Hann kvaðst vilja beina athygli almennings að þessari hæstleynilegu stofnun Þaö mál er mikið á dagskrá i Bandarikjunum, hversu langt opinberir aðilar geti gengið i eftirliti og njósnum um almenna borgara. Upplýst hefur verið um viðtækar njósnir rikislögreglurin- ar FBI og leyniþjónustunnar CIA um einstaka menn, á ýmsum svið um. Jafnvel þingmenn hafa kom- izt að þvi, að njósnað hefur verið um einkalif þeirra, mjög ýtar- lega. Þetta er uppvist mál og viðurkennt af aðstandendum njósnanna. önnur hlið þess eru njósnir um mafiuforingja, sima- hleranir og þess háttar. Spurn- ingin i landi einstaklingsfrelsis og friðhelgi er sú, hvar er unnt að draga markalinuna milli njósna, sem eru „góðar” og þeirra sem eru „vondar”. Sé það lagt i hend- ur stjórnenda FBI, CIA og NSA, hvers vegna er rangt að njósna um einkalif Johns en rétt að njósna um einkalif Bobs? Með öðrum orðum, njósnir um mafiu- menn mundu draga margt fram, flytja marga þeirra i fangelsi að verðskulduðu, en stjórnendur gætu alveg eins njósnað um kynlif annarra sér til gamans og haft til „afsakanir”, ef þarf. Ekki verður unnt að fjalla um slik mál i réttarsölum, að neinu gagni, þvi llllllllllll Umsjón: Haukur Helgason að auðvitað eru ekki heldur til sannanir á hendur mafiuforingj- um. Ella væru þeir i fangelsi. „Grunur” er svo viðtækt orð, að ekkert hindraði Johnson forseta i að skemmta sér yfir kynlifi þing- manna og annarra, eins og sagt er, að hann hafi gert vegna efnis frá njósnum lögreglunnar; „Njósnir” verða þannig tæki i höndum valdhafanna gegn and- Við gröf þjóðhetjunnar Komarvos geimfara. Fellwock segist hafa verið yfir- maður njósnara i Istanbul. stæðingum þeirra meðal glæpa- manna en jafnt gegn andstæðing- um þeirra meðal skaklausra borgara. Hin gifurlega tækni i njósnum, sem flestir þekkja eitt- hvað til, með hlerunartækjum, sem nánast skeikar ekki og „heyra” langar leiðir, getur fært nær martröð skáldsins Orwell. „Stóri bróðir fylgist með þér”. Framburður Fellwocks er sem olia á þennan eld meðal skelkaðra borgara. Vikjum aftur að grein Spiegel um NSA. Þar er sagt, að yfirmað- ur leyniþjónustunnar CIA hafi i.verið „mjög æstur” vegna máls- ins og kunnugum hafi þótt fram- burður Fellwocks sennilegur, enda mikið þar i af upplýsingum um njósnatækni, sem mátti sann- reyna utan girðingar NSA. Rakið er, hvernig NSA viti gjörla um verustað hvers sov. kjarnorkukafbátar, hverrar eld- flaugastöðvar, hverrar herdeild- ar, og þekki öll vopn smá og stór, sem Sovétmenn hafa. „Ég vil ekki deyja" sagöi Komarov Fellwock segist hafa komizt að raun um, að „mest hætta stafar mér og fjölskyldu minni og heimsfriðnum” af hernum. Fellwock kveðst hafa gerzt sjálfboðaliði i flughernum árið 1966. Hann gerði sér góðar vonir um ánægju i þvi starfi. Varð þó þreyttur á þjálfun, en útsendarar NSA uppgötvuðu hann og buðu starf. Þeir rannsökuðu hann hátt og lágt, fortið og nútið. Niðurstaðan var jákvæð: Maðurinn var vel fallinn til að starfa i NSA. NSA, lærðu menn, var stofnað árið 1952, i fyrstu fyrir herinn, siðar fyrir hermálaráðuneytið sem slikt. Aðalverkefni: Fylgjast með öllum elektrónisk- um merkjasendingum erlendra rikja. Fylgjast með ratsjárstöðvum. Hlera allar útvarpssendingar. Fellwock gekk upp i starfinu. Hann fékk að velja vinnustað og kaus Istanbul, sem honum fannst mest „spennandi”. Hann varð yfirmaður vinnuhóps, sem fylgdist með flugher Rússa og hafði 25 „mors” sérfræðinga i sinni þjónustu við það og fimm ,radd”fræðinga. Unnið var úr efninu og það bor- ið saman við aðrar upplýsingar sem veitti Fellwock mikla þekk- ingu á njósnakerfinu og þvi, sem aflaðist i öðrum stöðvum NSA, segir hann. Hann segist hafa heyrt Kosygin tala við geimfarann, Komarov, sem fórst 24. april 1967 i Sojusi I, Kosygin grét. Hann sagði, að Komarov væri hetja, sem hefði unnið mesta afrek i sögu Rúss- lands. Kona Komarovs talaði einnig við mann sinn. „Ég vil ekki deyja, gerið eitthvað,” á Koma- rov að hafa sagt. „Siðan heyrðist óp.” Fellwock bað um lausn árið 1968 og varð sjálfboðaliði i Viet- namhernum. Þar segist hann hafa fengið „nóg”.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.