Vísir - 31.07.1972, Blaðsíða 5

Vísir - 31.07.1972, Blaðsíða 5
Visir. Mánudagur. 31. júli 1972 í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND UMSJÓN: HAUKUR HELGASON Innrásin hafín 1500 brezkir hermenn sœkja inn í víggirtu IRA hverfín í Londonderry í Belfast Brezkar hersveitir réöust inn i viggirt virki IRA í Londonderry og Belfast fyrir dögun í morgun. Varnir skæruliða voru brotnar á bak aftur. Klukkustundu eftir mestu hernaðaraðgeröir sem hafa verið gerðar á þessum þremur árum átakanna i Norður-lrlandi, tilkynnti herinn, að hann hefði náð öllum virkjum IRA i Belfast og sækti hratt fram i London- derry. Aðaltakmark hersins voru vig- girt hverfi kaþólskra i Bogside og Creggan i Londonderry, en þar hefur IRA drottnað i rúmt ár. 1500 hermenn réðust inn i virkin með skriðdrekum, sem voru notaðir sem ýtur, og tóku að rifa niður viggirðingar IRA. Varnir voru litlar, þótt sirenur Bogside- manna gæfu ,,innrásarmerki”. Bretar segjast hafa skotið eina leyniskyttu og mann, sem kastaði bensinsprengju, en lik fundust þó ekki. UDA rifur eigin girðingar Yfirleitt hafði verið búizt við meiri vörnum IRA, þótt brezku hermennirnir væru 50 sinnum fleiri. Framsókn Breta tafðist aðeins litils háttar vegna jarð- sprengja og vítisvéla á leiðinni. Flokkar hermanna réðust þegqr i stað inn i ákveðin hús i hverfunum, og segjast hermenn hafa fundið matarbirgðir og lyfja- og áróðursrit. 1 Belfast gekk framsókn hersins nær mótstöðulaust. 600 manna lið Breta var þar að verki Yfirmenn hersins segjast ráöa IRA-svæðunum Andersonstown, Falls, Ardoyne, Ballymurphy, Turf Lodge og New Lodge. Her- menn rifu niður viggirðingar IRA þar Sveitir öfgahreyf ingar mótmælenda, UDA, tóku sjálfar til við að rifa viggirðingar sinar i hverfum mótmælenda i Austur - Belfast. 8000 heimavarnarliðsmenn til vopna 8000 heimavarnarliðsmönnum i N-írlandi hefur verið skipað að vera viðbúnir að aðstoða brezka herinn i að minnsta kosti tiu daga. Liðsmenn þessir voru kvaddir til vopna i dag. Ráðherrann Whitelaw segir, að tilgangur aðgerðanna i morgun sé að tryggja hermönnum óhindraðan umgang um öll hverfi og vernda samfélagið fyrir skæruliðum. 477 hafa fallið i átökunum i Norður-trlandi frá upphafi, svo að vitað sé. Bretar reyna aö uppræta IRA i virkjum þeirra og með þvi er stefnt að þvi að gera þá vanmegnuga. Siðan hyggjast Bretar ryðja brautina fyrir póli- tiskum samningum um lausn vandans. Foringjar kaþólska jafnaðar- mannaflokksins, SDLP, sem i fyrri viku færðust nær þvi að vinna með Bretum, vöruðu hins vegar i morgun við afleiðingum innrásarinnar. Mest mun velta á afstöðu 63 þúsund ibúa i Bogside og Creggan, þegar viggirðingar hafa verið fjarlægðar. Þremur klukkustundum eftir að innrásin hófst tilkynnti White- law, að brezki herinn réði nú lögum og lofum um gjörvallt Noröur-Irland. ,,Ég vænti þess, að öllum skiljist, að herinn mun vernda þá”. segir ráðherrann. ,,Ég vænti þess, að enginn láti hermdarverkamenn ógna sér”. Paul Henri Spaak, fyrr- verandi forsætisráðherra Belgiu og einn helzti for- ystumaður Vestur-Evrópu eftir striðið lézt i morgun á heimili sinu í Brussel, 73ja ára gamall. Spaak var lykilmaður i stofnun Efnahagsbanda- lags Evrópu og Atlants- hafsbandalagsins. Hann var framkvæmdastjóri At- lantshafsbandalagsins frá 1957 til 1961. Fáir hafa látið eftir sig jafn mikil áhrif á heim nú- timans. 500 skip óafgreidd FÓLKIÐ FLÝÐI JARÐSKJÁLFTA Meiri háttar jarðskjálftar urðu i Alaska í gær. Þeir mældust 7,3 stig á Richt- ermælum, en samkvæmt fyrstu fréttum varð ekki verulegt tjón. Jarðskjálftarnir áttu upptök sin um 50 kilómetrum vestan Sitka, 5000 manna þorpi i suð- austur-Alaska. Fólk varvaraðvið stórri ftóð- bylgju og sagt að fara til hæða, en seinna var aövörunin aftur- kölluð. Húsmæður i Sitka segja, að hrunið hafi úr loftum, og kaup- maður segir, að vörur hafi hrunið úr hillum. tbúar flýðu þegar i stað úr miðbiki þorpsins. Jarðskjálftarnir fundust um allan suðaustur hlutann. t höfuðborginni Juneau brotnuðu veggir i opinberri byggingu. Um 500 skip eru i höfnum Bret- lands, óafgreidd vegna verkfalls hafnarverkamanna. Fulltrúar deiluaðila koma sam- an i dag, og er aðal verkefnið að finna lausn, sem tryggir hafnar- verkamönnum vinnu áfram, eftir að gámunotkun verður almenn. Verkamenn krefjast þess, að fyr- irtækin verði skuldbundin til að ráða verkamenn áfram þótt þeirra verði ekki lengur þörf með nýrri tækni. Var taliö i morgun, að þetta kynni aö veröa sam- þykkt. Ilin nýkjörna UNGFRÚ ÁSTRALÍA KJÖRIN „UNGFRÚ ALHEIMUR ## Ungfrú Ástralia, 2ls árs I jósmynda fyrirsæta aö nafni Kerry Ann Wells, hefur verið kjörin Ungfrú Alheimur. Onnur varð ungfrú Brasilia, Viera Costa, og siðan komu fulltrúar Venesúela, tsrael og Englands, i þessari röð. Mál hinnar nýkjörnu virðast vera 91-66-91 samkvæmt frétt NTB-fréttastofunnar. Mörg hundruð mótmæltu keppninni fyrir utan hótelið i San Juan, Puerto Rico, þar sem hún fór fram. Menn hrópuðu. að þetta væri „misþyrming kvenleikans” og fleira af þvi tagi. 200 lögregluþjónar voru á verði til að hindra, að svipaðir atburðir gerðust og urðu, þegar ungfrú Bandarikin var kjörin fyrr i ár. Þá sprungu sprengjur, og allt fór i handaskolum. ,,Skalf í hálftíma" Kerry Ann Weels segir i viðtali, að hún hafi teiknað og gert öll föt, sem hún klæddist i keppninni. ,,Ég er ánægðust, þegar ég geri eitthvað sjálf”, segir hún. Ungfrúin er um 1,75 á hæð, samkvæmt frétt AP-frétta- stofunnar, græneyg með rauð- brúnt hár. ,,Ef ég geri fötin sjálf, þarf ég ekki að horfa á fimm aðra i sömu fötunum”, segir hún. Hún hefur verið veðurfrétta- maður i sjónvarpi. Fyrstu við- brögðin við kjörinu voru „deyfð”. Blandnar tilfinningar sóttu á hana, og hún skalf i hálftima, að eigin sögn. Hún hringdi til móður sinnar og var sagt, að föðurnum hefði brugðið svo við tiðindin, að hann „hoppaði um”. Hún hafði sagzt mundu hætta að vera fyrirsæta, þvi að sér geðjaðist ekki að öllu tilstandinu. Hún var spurð, hvort það væri ekki kaldhæðni, að hún hefði verið kjörin i svo tilstandsmikinn titil, úr þvi að henni fyndist þetta. ,,Jú,” sagði hún og brosti. ,,Þetta er þó öðru visi tilstand. Þegar maður sýnir föt, þá er maður eins og sýningarhross”, sagði hún. ,,En að vera Ungfrú Alheimur, þaö er maður sjáltur. Menn geta látið meira af skapgerð sinni til þess.” Leitað í bilum, skilríkja krafizt Hinar af keppendunum 60 eru sagðar hvilast i dag og búa sig undir heimferð. Ungfrú Weels fer hins vegar til New York i kvöld og á fimmtudag fer hún aftur til San Juan. Aðrir keppendur fara til New York-i dag. Mikil öryggisgæzla er enn i hótelinu i San Juan. Leitað er i bifreiðum, og aðein's þeir, sem hafa sérstök skilriki, fá að fara um hliðið. Þessar ráðstafanir voru gerðar vegna fyrri reynslu af mótmælum við fegurðarkeppni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.