Vísir - 31.07.1972, Page 10

Vísir - 31.07.1972, Page 10
10 Yísir. Mánudagur. 31. júli 1972 VIÐSKIPTALÖND OKKAR Bandaríkin 1 fyrri heimsstyrjöldinni hófust "Dkkur viðskipti við Bandarikin, þvi siglingar til Evrópu voru mjög erfiðar sökum hernaðarins. Eftir striðið lögöust þessi við- skipti að mestu niður en aukast aftur á móti á fjórða tug aldarinnar, þó var aðallega um að ræða útflutning héðan. Veruleg aukning verður á viðskiptum við Bandarikin i seinni heimsstyrjöldinni þvi þá voru Evrópusiglingar ekki siður hættulegar en i fyrri heims- styrjöldinni, og er þá farið að flytja inn gifurlega mikið af vörum frá Bandarikjunum, t.d. var árið 1944 2/3 innflutnings okkar þaðan. Eins og eftir fyrri heimsstyr jöldina minnkuðu viðskiptin eftir þá sfðari, en héldust þó all mikil eða 10-20% á árunum 1950 — 1960 en siðan hefur innflutningur frá Banda- ríkjunum heldur minnkað hlut- fallslega. þó jókst hann fá 1970 úr 8,2% i 14,7% áriö 1971. A siðasta áratug hefur út- fiutningurinn til Bandaríkjanna aukizt. Hann var aö meðaltali 23% af heildarútflutningnum árin 1966 - 1970 og árið 1971 var þessi hlutfailstala 36,7% Árið 1970 voru fryst fiskflök 90% af útflutningnum til Banda- rikjanna og var það um 80% af heildarútflutningi frystra fisk- flaka það árið. Auk frystra fiskflaka flytjum við ýmsar aðrar fiskafurðir þangað, m.a. humar og niður- suðuvörur. Einnig hafa ullar- og skinn- vörur átt vaxandi vinsældum að fagna i Bandaríkjunum og út- flutningur þeirra aukizt. Innflutningur frá Banda- rikjunum hefur verið mikill, en var þó langmestur i seinna striðinu eins og áöur segir. Aðallega hafa verið flutt inn ýmsar vélar og tæki t.d. bilar, flugvélar, rafmagnstæki og. fl. Einnig mjölvara, tókbaksvörur, og margar aðrar vörutegundir. Hiutfallslega er nú keypt minna af vélum og tækjum frá Bandarikjunum en var fyrr sökum þess, að nú er.þessir hlutir fáanlegir frá svo mörgum öðrum löndum, þvi viöa hefur tækni- þróunin verið mjör ör, en á árunum eftir siðari heims- styrjöldina, stóðu Bandarikin mun framar öðrum rikjum i framleiðslu á slikum vörum. Vonandi er að okkur takist áfram að selja svo mikið af fisk- afurðum okkar, sem nú er i Bandarikjunum og vaxandi markaður veröi fyrir aðrar vörur. Innflutningur frá Banda- rikjunum hefur veriö svipaður undanfarin ár og er ekki útlit fyrir miklar sveiflur á honum, en útflutningnum er hættara við sveiflum og breytingar á honum geta haft mjög mikla þýðingu um afkomu okkar. ERUM FLUTTIR mémmmM Rafgeymasala, ábyrgðar og viðgerðarþjónusta er flutt að Laugavegi 168 (áöur Fjöðrín) TÆKNIVER SIMI 33-1-55 Qer er ekkert grin! Glerverkstæði okkar býður yður því ein- ungis Tudor öryggisgler í bílinn. Með því mæla okkar þrautreyndu fagmenn í gler- vinnslu. Þeim treystum við, og til þeirra er yður einnig óhætt að leita, vanti yður gler í bílinn. Þeir vita að bílagler er ör- yggisatriði, því á það reynir á hættu- stund — og þá verður það að standa sig. Allt á sama Stað Laugavegi 118 - Simi 22240 EGILL VILHJÁLMSSON HF Spaug og spé á ekkert erindi í bílaglers- framleiðslu. í þeirri grein verða menn að taka sjálfa sig alvarlega. Það gera fram- leiðendur Tudor bílaglersins. Það hefur reynslan sýnt og sannað. í þeirri vöru finnst ekkert spé og öryggið er innbyggt í gler þeirra. Vestmannaeyingar fá matsölustað bað var ekki seinna vænna að þeir Eyjamenn eignuðust mat- sölustað, — en fyrsta matsalan þeirra var opnuð núna fyrir helgina og verður væntanlega vinsæl af þjóðhátiðargestum um næstu helgi. bað er Pálmi Lórenzson sem rekur matsöluna á Heiðarvegi 1, en þar er hægt að velja um 25 - 30 rétti smurt brauð og annað, en opið er frá 9 á morgnana til 11.30 á kvöldin. Myndin er af þeim Pálma (t.h.) og Herði Adolssyni, sem er frá Hótel Sögu og hjálpaði við fyrstu sporin i rekstrinum. Tólf nýir húsgagnasmiðir Rétt um það leyti sem islenzkt smiöastykki sést á myndum i blöðum um allan heim — skák- borðið i Laugardalshöll, þá út- skrifuðust 12 nýir menn i þessa iðn. Sveinsstykkin hönnuðu piltarnirsjálfir, flestir hverjir, og sýndu siðan i skóla sinum og var góður rómur gerður aö. i s^ijidi Leigubilstjórar hér tefldu við norræna sporvagns- stjóra Sviinn Helmer Gustafsson frá Gautaborg vann Norðurlandatitil sporvagnsstjóra i skák, en mótið fór fram i Norræna húsinu, — i skugga skákeinvigis aldarinnar og var þvi hljótt um mótið. Sviinn hlaut 5 1/2 vinning, bórður bórðarson, Reykjavík hlaut 5 vinninga, Karl Hall, Stokkhólmi 5 og Georg Kildetoft, Danmörku 4 1/2 en hann var Norðurlanda- meistari 1970. I 2. flokki urðu sigurvegarar i riðlunum þeir Seid Börgesen, Stokkhólmi, Snorri Jónsson Reykjavik, og Alf Eriksson, Stokkhólmi, og flytjast þeir i 1. flokk á næsta ári.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.