Vísir - 16.06.1973, Blaðsíða 6

Vísir - 16.06.1973, Blaðsíða 6
6 Vísir. Laugardagur 16. júni 1973. vísm Útgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson ./ Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Simi 86611 Ritstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611 Cl lfnur) Askriftargjald kr. 300 á mánuöi innanlands i lausasölu kri 18.00 einfakiö. Blaöaprent hf. Ekki flot, en til bóta Gengi krónunnar okkar hefur fengið að reyna ýmislegt, siðan það var hækkað um 6% fyrir hálfum öðrum mánuði. Þessi hækkun dugði svo skammt, að ekki leið nema mánuður, unz krónan hafði fallið aftur um 5,6% eða nokkurn veginn sem hækkuninni nam. Lækkunin stafaði af óbeinu floti krónunnat’. Hún fylgir dollarnum á meðan flestar myntir Vestur-Evrópu fljóta upp á við. Þýzka markið flaut upp um 10%, hollenzka gyllinið og sænsku og norsku krónurnar um meira en 9%, og aðrir gjaldmiðlar minna. Með floti sinu bættu þessar myntir stöðu sina gagnvart dollarnum, sem stóð i stað, og þá gagnvart islenzku krónunni i leiðinni. Seðlabankinn og rikisstjórnin hafá nú gert tilraun til að rétta þetta af. Það er gert með bráðabirgðalögum, er auka svigrúmið, sem krónan getur flotið i. Með þessum bráðabirgða- lögum hækkaði gengi krónunnar aftur um 2,2%, sem nægir að visu ekki til að bæta upp gengis- lækkun undanfarinna vikna, en er þó spor i þá áttina. Hið aukna svigrúm á gengi krónunnar er til bóta, þótt það feli alls ekki i sér, að hún hafi verið sétt á flot eins og gert hefur verið við fjölmargar myntir á undanförnum misserum. Krónan má að visu fljóta upp að vild, en ekki nema um 2,25% niður á við. Það eru litil likindi til þess i okkar verðbólguþjóðfélagi, að krónan hafi tilhneigingu til að fljóta upp. Miklu liklegra er, að hún stefni niður á við, og þar er takmarkað svigrúm sem fyrrr. Svo langt sem bráðabirgðalögin ná, eru þau spor i rétta átt. En það vekur umhugsun um, hvort ekki sé rétt fyrir okkur að leyfa krónunni að fljóta og finna rétt verðgildi sitt frá degi til dags. Ýmsar bremsur má hafa á sliku floti til að hindra spekúlasjónir og sveiflur. Margar þjóðir, sem skynsamlegasta hafa fjármálastefnuna, hafa farið slikar leiðir með góðum árangri. Það er ekki hægt að festa gengi gjaldmiðils með lagaboði. Við höfum langa reynslu af þvi hér á landi. Hvað eftir annað hefur i lengstu lög verið forðazt að horfast i augu við veruleikann, unz engin leið var orðin út úr ógöngunum önnur en að skera krónuna niður mjög verulega. Slikar stökk- breytingar hafa jafnan sett efnahagslifið úr skorðum og magnað deilur um kjaramál. Tiðari og minni breytingar væru farsælli. Þvi miður byggist nýjasta hækkun krónunnar um 2,2% ekki á slikum hugmyndum um eðlilegt flot krónunnar. Þessi örlitla hækkun er mála- myndatilraun til að hamla gegn sjálfvirkri lækkunarþróun siðustu vikna og komast aftur i átt til þess gengis, sem ákveðið var fyrir hálfum öðrum mánuði. Þessi tilraun byggist á pólitiskum forsendum en ekki efnahagslegum. Krónan heldur áfram að lækka, þrátt fyrir slikar tilraunir til hækkunar. Það mikilvægasta við bráðabirgðalögin um hækkunina er samt, að i þeim felst viss viður- kenning Seðlabanka og rikisstjórnar á, að gengi krónunnar þurfi að vera frjálsara, svo að hún geti hverju sinni mælt sem réttast verð og gegnt hlut- verki sinu sem bezt. — JK Rrezhnev og Nixon i heimsókn þess siöarnefnda til Moscvu i mai i fyrra. —Nú endurgeldur Brezhnev kurteisina. Brezhnef leggur enn land undir fót A ð n ý i o k i n n i heimsókn sinni til Bonn bregður Breshnev undir sig betri fætinum aftur og í þetta sinn leggur hann af stað til að hitta Nixon Bandarikja- forseta i Washington. 66 ára gamall stendur Brezhnev á hátir.di stjórnmálaferils sins. Ekki alls fyrir löngu styrkti hann sig i sessi, þegar hann kom traustum stuðningsmönnum sinum i æðsta ráðið og tryggði sér þar áframhaldandi meiri- hluta. Og nú er markmiðið með ferðinni til Bandarikjanna að lappa ögn upp á veikustu hlið Ráðstjórnarrikjanna, sjálft efna- hagslifið. Þvi meir, sem Vesturlandabúar hafa séð til Brezhnefs, þeim mun betur virðist þeim falla maöurinn i geð. Fundir hans og Nixons i fyrrasumar og Brandts núna og áður hafa orðið til þess að smám saman þokast til hliðar sú hugmynd sem menn höfðu gert sér um, að þessi brúnaþungi og þrekni aðalritari væri harðsviraður valdataflmaður. — Minnir það helzt á, þegar Krúsjoff á sinum tima vann með glettni sinni Vesturlandamenn á sitt band. Enginn skyldi þó ætla, að Brezhnev sé mjúkur i samning- um, og jafnvel bandariskir fjöl- miðlar segja, að þar hafi Nixon mætt jafnoka sinum. En við þau tækifæri, sem Brezhnev hefur verið i sviðsljósinu, hefur honum tekizt að sýna, að hann er flug- skarpur, aðlaðandi og fyndinn. 1 fyrstu móttöku sinni, meðan hann var i Bonn, tók Brezhnev sér glas með tómatsafa i hönd og gekk til blaðamannanna: „Égvil, að þið sjáið sjálfir”, sagði hann, „að þetta er örugglega tómatsafi, en ekki vodka”. En góða skapið getur horfið eins og dögg fyrir sólu, ef honum þykir sér misboðið. „Við erum friðsamleg þjóð”, næstum urraði hann framan i dauðskelkaðan blaðamann i Bonn. „Við komum hingað til að ræða frið, en þið gaspriöallan timann um strið. Ég get beðið Andrej Gretchco (varnarmálaráðherrann) um að koma og svara spurningum ykkar”. Viðræður Brezhnevs og Nixons munu að allra haldi snúast um afvopnunartillögur og um aukin verzlunarviðskipti milli land- anna. Þó er varla að vænta stór- tiðinda á sviði þróunarinnar i átt til aukins og tryggari friðar. Ekki á borð við samkomulagið, sem gert var i heimsókn Nixons til Mosvku, sem Brezhnev er núna að endurgjalda. En fjöldi minniháttar samninga liggur fyrir reiðubúinn til undir- ritunar og aðeins eftir að gera þá lýðum kunna. Hins vegar má ekki gera sér of stórar vonir um einhverjar lausnir á stórmálum á borð við deilu Araba og Gyðinga. Um tilraunir þeirra til þess að koma á aukinni verzlun landanna i milli geta menn litið sagt fyrir, enda mundi t.d. af hálfu Bandarikjamanna þingið eiga þar lokaorðið. En bandariskum fyrirtækjum leikur mikill hugur á að taka þátt i að nýta auðlyndir Siberiu, sem er geysiauðug af oliu, gasi og málmum ýmsum. Sovétmönnum leikur á hinn bóginn hugur á að flytja inn frá Bandarikjunum hina háþróuðu tækniþekkingu þeirra. t þessum verzlunarhug- leiðingum eru Bandarikjamenn þó bundir i báða skó af samning- um við Japan, Vestur-Þýzkaland og önnur riki, sem mundu una þvi illa, ef USA tæki upp viðskipti við USSR, til þess að draga svo úr viðskiptum við sina fyrri skiptanauta. Fjöldi þingmanna mundi lika spyrna við fótum gegn aukinni verzlun við Rússa, á meðan rússeneskir Gyðingar og minnihlutahópar hafa ekki fullt ferðafrelsi og leyfi til að flytjast frá Ráðstjórnarrikjunum. IIIIIIBIIIII UmsjónGuðmundur Pétursson Brezhnev og Brandt ræðast viö á svölum hótelsins á Pétursbjargi, þar sem Brezhnev dvaldi i Bonn I' ' J' .j;' > ^ wm ’/jHi É’Þ i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.