Vísir - 16.06.1973, Blaðsíða 9

Vísir - 16.06.1973, Blaðsíða 9
Vísir. Laugardagur 16. júni 1973. 9 Noröurlandamótiö i sveita- keppni i bridge hefst núna eftir helgina, og sendir island sitt hvora sveitina i opna flokkinn og unglingaflokkinn. En alla þessa viku hefur stjórn Bridgesambands isiands staðið með öndina i hálsinum, vegna þess að horfði til þess að island sendi ekki sveit f opna flokkinn. — Annað parið, hinir gamalreyndu spilamenn Benedikt Jóhannsson og Jóhann Jónsson, hættu við að fara, þegar aðeins vika var til stenfu. BSÍ-stjórnin leitaði til varapara, en ekkert þeirra sá sér fært að fara með svo stuttum fyrirvara. Með þvi að Hannes Jónsson og Þórir Leifsson yrðu ekki sendir einir, lá við borð, að island sem hafði fengið fram komiö breytingu á mótstilhög- uninni i Álaborg hjá frændum okkar, Dönum, mundi svo ekki mæta til leiks. En landsliðsnefndarmenn fengu þá félaga Gylfa Baldursson og Jakob R. Möller til þess aö hlaupa i skarðiö,. Unglingalandsliðiö er skipað Helga Sigurössyni, Páli Hjartar- syni, Sverri Ármannssyni, Trausta Valssyni — en fyrirliði beggja sveitann er Alfreð Alfreðsson, sveitarstjóri. Noðurlandamótinu verður þannig hagaö, að spilaðir verða þrir 20-spila leikir milli sveita og eru gefin 20 stig mest fyrir unnin lcik, en það er hægt að tapa með minus fimm. Bridge í Fœreyjum Bridgedeild Breiðfirðinga sótti frændur voru, Færeyinga, heim 24. mai sl. og dvaldi þar i góðu yf- irlæti til 31. mai. Þátttakendur i ferðinni voru 26, þar af 22 spilar- ar. Gestgjafar hópsins voru Nyggja bridgefélagið i Þórshöfn, en ráðgert er að það heimsæki B.D.B. á næsta ári. Við komuna til Þórshafnar var gestum skipt niður á heimili gestgjafanna til dvalar og voru móttökur og við- urgerningur allur með þeim á- gætum, að seint mun gleymast. Tvimennings- og hraðsveitar- keppni voru háðar við gestgjaf- ana og var keppni þannig háttað, að gestir spiluðu aðeins við heimamenn en ekki innbyrðis. Vann B.D.B. báðar þessar keppn- inEfstir í tvimenning urðu Björn Gislason og Ólafur Guttormsson, en sveit Jóhönnu Guðmundsdótt- ur varð efst i hraðsveitarkeppn- inni. Þá var að lokum keppt á 4 borð- um við Havnar bridgefélagið og vann B.D.B. með nokkrum mun. Auk spilamennsku buðu heima- menn i lengri og skemmri hóp- ferðir á sjó og landi. Heimsókninni lauk með veg- legu hófi, sem formaður Nyggja bridgefélagsins, Albert Hansen, stjórnaði af rausn og skörungs- skap. Þar voru verðlaun afhent og hlaut B.D.B. tvo veglega silf- urbikara, sem Bókagarður og Esmar Hansen höfðu gefið i til- efni þessarar heimsóknar. Var hófinu siðan framhaldið við dans og ölteiti langt fram eftir nóttu. Var ferðin og dvölin i Færeyj- um öllum þátttakendum ógleym- anlegt ævintýri. Fararstjóri var Margeir Sigur- jónsson. TROMPKÓNGURINN KOM SIGLANDI Spílið~niag er frá nýafstöðnu tslandsmóti, og er athyglisvert að mörgu leyti. Það kom fyrir milli sveita Arnar Arnþórssonar og Kristmanns Guðmundssonar, en seinni hálfleikur var sýndur á sýningartöflunni. Staðan var: allir utan hættu og austur gaf. 4 A-10-9-5-4-3 ¥ D-G-6 ♦ A-8 4 7-3 4 8-7-2 4 K ¥ A-K-4-2 ¥ 10-9-7-6-3 ♦ 10-7-2 ♦ K-G-6-5-4 * D-6-2 4 A-8 ♦ D-G-6 ¥ 8 ♦ D-9-3 4 K-G-10-9-5-4 1 lokaða salnum þar sem sveit Kristmanns sat n-s gengu sagnir: Austur Suður Vestur Norður 1 ¥ 2 ♦ 2¥ 2A 34 <¥ 44 p p p Austur spilaöi út hjartatiu, vestur drap með AS og spilaði tigli til baka. Sagnhafi hleypti á drottningu, austur drap á kóng, tók laufás og beiö siðan eftir trompslagnum, sem hann fekk. Einn niður og 50 til a-v A sýningartöflunni gengu sagnir þannig: Austur Suður Vestur Norður Sigfús Þórarinn Kristm Hörður l¥ 2 4 2 ¥ 24 P P 3 ¥ 3 4 P 4 4 Allir pass. Enn var útspilið hjartatia, en vestur gpetti ekki að sér og drap með KONGNUM. Hann spilaði siöan spaöa og Hörður staldraði viö. Óliklegt var, að austur hefði spilað út frá hjartaásnum og þar með var vestur sannaður með ás og kóng i hjarta. Til þess að eiga opnun, þá þurfti austur að eiga spaðakóng og þess vegna drap Höröur á ásinn og uppskar verð- launin, þegar kóngurinn kom siglandi. Nú var efhungis eftir að vinna yfirslaginn, og þaö geröi Höröur einnig. Hann spilaði út laufi, austur lét lágt, kóngurinn upp, sem átti slaginn. Siðan meira lauf og austur átti slaginn á ásinn. Hann gerði siöustu til- raunina með þvi að spila út tigli, en drottningin tók þann slag. Fimm unnir og sveit Arnar græddi 11 stig á spilinu. AÐ KAUPA VERÐTRYGGÐ SPARISKlRTEINI RÍKISSJÓÐS JAFNGILDIR FJÁRFESTINGU í FASTEIGN EINFALDASTA OG HAGKVÆMASTA FJÁRFESTINGIN SKATT- OG FRAMTALSFRJÁLS TIL SÖLU I ÖLLUM BÖNKUM — ÚTIBÚUM SPARISJÓÐUM OG HJÁ NOKKRUM VERÐBRÉFASÖLUM SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.