Vísir - 16.06.1973, Blaðsíða 20
vísir
Laugardagur 16. júni 1973.
Skelja-
leysi
gerir
Hólmara
atvinnu-
lausa!
Þeir eru heldur óhressir I
Stykkishólmi þessa dagana.
Sjávarútvegsráöuneytið hefur
sett bann á skelfiskveiðar Hólm-
aranna, en fjórir bátar hafa
stundað veiðar á hörpudiski frá
áramótum og hfa lagt á land 1500
tonn af skelinni, em er um 28
milljón króna verðmæti.
„Viö getum ekki skilið hvers
vegna okkur er bannað, meðan
ekkert bann er lagt á útgerðar-
stöövar annars staðar”, sagði
Sigurjón Helgason I Stykkishólmi
I viðtali við Visi i gærkvöldi.
Sagðist Sigurjón ekki geta
skilið aðgerðir sem þessar, enda
væri taliö að hörpudiskurinn væri
búinn að hrygna að mestu, þegar
bannið kæmi. Kvað hann hörpu-
diskinn mjög mikilvægan fyrir
atvinnulif staöarins, 20-30 manns
hefðu vinnu i tveim húsum á
staðnum af skelinni, og á bátun-
um væru 20sjómenn,sem nú yrðu
stopp, meðan verið væri að gera
bátana út á aðrar veiðar, meðan
hin auðugu skelfiskmið i
Breiöafirði væru ónotuð. Sigurjón
kvað bannið hafa verið birt með
aðeins viku fyrirvara.
— JBP—
Paö getur oi'ðið dýrt spaug að
geyma peninga þar sem aðrir
geta til þeirra náð, og það fökk
ver/Iunin Tókk-Kristall að reyna
á raiðvikudaginn var.
Kona á míðjum aldri kom inn i
búðina rótt fyrir lokun, og bað
um aö sér yröu sýndir ýmsir
munir, og var þöð gert. Meðan
konan var að skoðá munina
þurfti afgreiðslustúlkan aö
bregða Sér til hliöar og örstuttu
seinna, þegar hún sneri sór aftur
af afgreiðsluborðínu, sá hún kon*
úna hverfa út útbúinni i flýti. Þar
scm klukkan var um sex, fór af-
greiöslustúlkan stuttu seirlna aö
telja peningana sem höföu komið
inn yfir daginn. Kom hún þá aö
peningaskúffunni tómri. Höföu
horfiö þaðan u.þ.b. 30 til 36
þúsund krónur, Hún tilkynntí
strax um hvarfið og gerði ráö-
stafanir tii aö þær ávisanir sem
hún mundi eftir yrðu aftur-
kallaöar. BÖgrelan hefur ekki
enn haft hendur i hári konunnar,
en samkvæmt lysingu afgreiöslu-
stúlkunnar er hún frekar sver,
rauðhærð allrjöð i andliíi og meö
freknur. Hún var klædd i grá-
yrjótta kápu. __öh
Kaupa sumarbústad
við Þingvallavatn til
að kveikja í honum
— aðstœður fyrir kvikmyndun Bagley-myndarinnar kannaðar í sumar
„Meiningin er að at-
huga, hvaða staðir
verða beztir á landinu
fyrir kvikmyndina ,,Út
i óvissuna” i júli-
mánuði”, sagði Gisli
Gestsson hjá kvik-
myndagerðinni Viðsjá
i viðtali við Visi i gær.
„Útí óvissuna”, er skáldsaga
skrifuð af Desmond Bagley og
gerist hún á Islandi.
Nú er meiningin aö kvik-
mynda söguna hér uppi á
Islandi og verður það gert
sumarið 1974, en undir-
búningurinn er þegar hafinn og
hefur Ian Roger, sá sem sá um
lokaþáttinn á Elizabetu Eng-
landsdrottningu og var hér
fyrir skömmu, samiö kvik-
myndahandritið.
Geoffrey Reeve er mjög
þekktur kvikmyndaframleið-
andi og mun hann framleiða
myndina.
Geoffrey Reeve og Ian Roger
munu koma hér í júlí en
höfundur bókarinnar fékk
hjartaáfall og getur þvi ekki
komið með.
Farið verður um landið, þar
sem sagan gerist, og verður lagt
af stað frá Keflavík norður til
Akureyrar, að Asbyrgi og að
Oskju og siðan suður um
hálendiö Vestmannaeyjar og
Vik i Mýrdal koma við sögu, en
þvi verður sennilega breytt i
handritinu. Handritið er alla
vega töluvert öðru visi en
sagan.
„Út i óvissuna” svipar mikið
til bók Alister MacLain og er
mikil spenna og margir drepnir
áöur en lýkur, einnig stendur til
að kveikja i sumarbúasað við
Þingvallavatn, auðvtað með
öllum varúöarráðstöfunum og
alls ekki innan Þjóðgarðsins.
—EVI—
Þau geta orðiö heldur en ekki
hrikaleg, björgin, sem falla á
Óshliðarveg, veginn frá isafirði
og Hnifsdal inn I Bolungarvík.
Fréttamenn Visis voru á ferð
þarna I fyrradag og komu að
bjarginu á inyndinni, auk
nokkurra hnullunga af minni
gerð. Vegagerðarmenn voru að
vinna við veginn mcð stórvirk
tæki og I nótt var vegurinn lok-
aður fyrir allri umferð meðan
gert var við veginn. Leið þessi
er hrikaleg og ægifögur og
ferðafólki skal bent á að betra
er að fara varlega jafnframt þvl
sein staðrcynd er, að slys eru
ekki tíð af völdum
grjóthrunsins.
i góða veðrinu var mikið uin
umferð um vegina í nánd við
isafjörð og þarna hittum við
fyrir unga dömu úr Hnifsdal.
Hún hafði hjólað í bæinn til að
kaupa sér blöðru, enda má vfst
enginn krakki án sliks vera á
morgun, þegar stofnun
lýðvleids okkar fyrir 29 árum
verður fagnað.
óhemju margir árekstrar og
slys urðu I umferðinni I gærdag,
og var svo mikiö um þetta, að
slysarannsóknadeild lög-
reglunnar mátti ekki vera að þvi
aö telja óhöppin vegna anna.
Mest voru þetta smærri
árekstrar og slys, en nokkur al-
varlegri óhöpp áttu sér stað.
Moskuvich bifreið ók af Laufás-
veginum inn á Hringbraut, I veg
fyrir sendiferöabil, og skullu bif-
reiðarnar harkalega saman.
Báðir ökumenn voru fluttir á
Slysavarðstofuna. Annar þeirra
varallnokkuömeiddur. Hinn fékk
að fara heim
A Skúlagötunni við gatnamót
Barnónsstlgs varð árekstur, er
bíll sem var að fara vestur Skúla-
götu ætlaði að beygja upp
Barónsstiginn, en lenti þá
framan á öðrum bil sem kom á
móti. Báðir bilarnir stór-
skemmdust, en enginn slasaðist.
Þá varð maður fyrir bil á Lauga-
veginum, er hann slangraði út á
götuna. Hann slasaðist eitthvað.
Hjá slysarannsóknadeild lög-
reglunnar fengum við þær upp-
lýsingar, að svo virtist sem fólk
væri gjörsamlega hætt að hugsa i
umferðinni. Það réðu þeir af þvi,
aö nær enginn ökumannanna sem
lentu i óhöppum núorðiö, gerði
sér nokkra grein fyrir
ástæðunum fyrir óhöppunum,
heldur hafa menn bara verið að
hugsa eitthvaðallt annað, og vita
svo ekki til fyrr en allt er komið i
köku.
—ÓH
Þessi mynd var tekin i gær á Hringbrautinni, en þar ók Moskvitch
bifreiðin i veg fyrir sendibíiinn, sem kastaði henni upp á
umferðareyju. Ljósmynd: Bjarnleifur
„MENN HÆTTIR
AÐ HUGSA I
UMFERÐINNI"