Vísir - 17.07.1973, Page 3
Visir. Þriöjudagur 17. júli 1973
3
Starfsmenn skiptast ó
að stjórna fyrirtœkinu
Hjá fyrirtækinu Frjálst
framtak hf. hefur verið
tekin ákvörðun um.að hver
starfsmaöur skuli vera for-
stjóri fyrirtækisins í eina
viku í senn.
Við brugöum okkur þvi i smá-
heimsókn til fyrirtækisins og töl-
uðum fyrst við Jóhann Briem
framkvæmdastjóra þess og
spurðumst nánar fyrir um þetta
fyrirkomulag.
„Akvörðunin hafði tvimælalaust
þegar þau áhrif, að allir fengu
meiri áhuga fyrir þvi, sem er að
gerast i fyrirtækinu. Þarna fær
fólkiö tækifæri á að koma hug-
myndum sinum i framkvæmd,
sem annars hefðu jafnvel aldrei
séö dagsins ljós. Viö höfum aö
visu veriö meö hugmyndasam-
keppni á siöasta ári og þar komu
fram nokkrar hugmyndir, en eng-
in gagngjör breyting varö fyrir
tilstilli þeirra. Verðlaun fyrir
beztu hugmyndina voru 10 þús.
kr. og 5 þús. fyrir næstbeztu,”
sagði Jóhann. Mánaöarlegir
fundir hafa veriö meö starfsfólk-
inu, sem eru 12 manns.
E'rjálst framtak h.f. er með
stærstu útgáfufyrirtækjum hér á
landi fyrir utan dagblöðin og
Hilmi h.f. og fyrir valinu til aö
stjórna fyrirtækinu fyrstu vikuna
en þaö var siöaslliðin vika, var
Erna Freyja Oddsdóttir.
,,Ég get nú ekki annaö sagt, en
ég hafi veriö dálitiö áhyggjufull
fyrst, en allt stóöst áætlun og mér
tókst að gera allt sem til stóö og
var það reglulega skemmtilegt”
sagöi Erna þegar viö spurðum
hana hvernig heföi gengiö.
Hún hefur aöeins unnið hjá fyr-
irtækinu siðan i september i fyrra
og aldrei unnið á skrifstofu. Hún
er húsmóðir og hefur unniö áöur
hjá Mjólkursamsölunni.
Þegar vikan var liðin, var fund-
ur meö Jóhanni Briem Ernu og
næsta stjórnanda ungri 18 ára
stúlku úr Verzlunarskólanum
Ingu Rósu Þórðardóttur og var
rætt um, hvernig hefði gengið og
hvernig ætti að haga störfum
næstu viku.
,,Ég get nú ekki annaö sagt, en
ég kviöi dálitið fyrir, en þar sem
Ernu gekk svo vel þá er ég nú
miklu rólegri,” sagði Inga.
Inga var i 5. bekk I vetur og var
hjá Frjálsu framtaki part úr degi
i tvo og hálfan mánuö á meöan
hún var i skólanum, en vinnur nú
allan daginn þar. Hún hefur meö-
al annars séö um að senda út bók-
ina „tslenzk fyrirtæki,” sem
kemur út einu sinni á ári og senda
kynningu á timaritinu „Frjálsri
verzlun” viðs vegar um landið
auk þeirra fjöldamörgu verkefna
sem þurfa úrlausnar við daglega.
Þaö var ekki annað aö heyra á
þessum tveim stúlkum, en aö þær
hefðu ekkert á móti þvi aö stjórna
fyrirtækinu áfram, en þó aöeins
eina og eina viku i senn. Þaö
fannst þeim nóg i bili aö minnsta
kosti.
Þaö kemur sér vafalaust ágæt-
lega fyrir framkvæmdastjórann,
þvi að hann tekur það rólega
þessa dagana aö hans eigin sögn.
Hann er i hálfgeröu sumarfrii og
jafnframt er verið að undirbúa
stofnun nýs skóla,eins konar viö-
skiptaskóla.
Skólinn á aö hafa það markmiö
aö ýta undir og hjálpa þvi fólki,
sem vill komast út á vinnumark-
aöinn á ný eöa þvi, sem gjarnan
vill afla sér meiri þekkingar i þvi
starfi, sem þaö þegar er i. Mun
þetta veröa 6-8 vikna skóli meö
kennslu m.a. i bókhaldi, málum
og almennum verzlunarfræöum.
Engar kröfur eru geröar til
Inga Rósa Þórðardóttir, sem er forstjóri þessa vikuna, ræðir við Jóhann Briem framkvæmdastjóra
áður en hún tekur við. Xú verður það hún semtekur ákvarðanir og hann verður bana að hlusta.
prófs, en frjálst er að ganga und-
ir það, ef vill.
Samkvæmt áliti Jóhanns ættu
hlutirnir i fyrirtækjum að geta
gengiö miklu hraðara og betur
fyrir sig, ef starfsmennirnir eru
vel kunnugir rekstri þeirra. Meö
þessari tilraun er veriö aö leita aö
betri og fjölbreyttari stjórnunar-
aðferðum.
„Aðalatriðiö er, aö starfsfólkiö
geti leyst hin daglegu störf af
hendi hjá fyrirtækjunum svo aö
stjórnendur geti gefiö sér tima til
að vinna aö ákveönu markmiði og
gera áætiun um, hvernig þeim
megi ná,” sagði Jóhann aö lok-
um. —EVT
RÚTA MEÐ 25 ÞJÓÐ-
VERJUM ÚT í SKURÐ
Rúta, sem var meö hóp
þýzkra feröamanna á vegum
Ferðaskrifstofu rlkisins, fór út
af veginum á milli Skóga og
Seljalandsfoss I gærkvöldi, og
skemmdist hún mikið. Þjóö-
verjarnir voru 25 að tölu, og
slösuðust flestir eitthvað.
Rútan, sem er i eigu Strætis-
vagna Kópavogs, var á leiö
austur, og var hún miöja vegu á
milli Seljalandsfoss og Skóga,
þegar hún fór útaf i beygju, og
stakkst á framendann ofan i
skurö. Hún skreiö eftir
skuröinum, og lyftist upp úr
honum aftur, og var þá aftur-
endinn ofan i.
Þjóðverjarnar hentust til i
rútunni, og meiddust þeir yfir-
leitt á fótum eöa höföi. 5 þeirra
voru keyrðir i snarhasti i bæinn,
og voru þeir fluttir á Slysavarö-
stofuna, og þar á meðal farar-
stjórinn, sem var þýzkur.
Sjúkrahúsiö á Selfossi haföi
ekki aöstööu til aö taka á móti
þeim. Slysiö varð um klukkan
19.30 i gærkvöldi. Leigubill, sem
átti leið hjá, flutti þá mest
slösuöu til Reykjavikur, en hinir
uröu eftir, og biöu eftir lögregl-
unni á Hvolsvelli, sem reyndar
var stödd á Selfossi er slysið
gerðist. Reyndist erfiðleikum
bundið að ná i lögreglu, bæði á
Selfossi og Hvolsvelli, til að fara
á slysstað.
-ÓH
ísland og landhelgismálið í iapan
„Ef Jóhannessyni verða á mis-
tðk gœti hann klofið NATO"
„Jafnvel útkjálkablaö norður
á Hokkaido i Japan birtir mynd
af ólafi Jóhannessyni forsætis-
ráðherra meö grein, sem
japanskur fréttaritari i London
hefur skrifað. Það er viða getið
um „vesenið” á landanum
(Reyndar segja Japanir Rondon
i staö London. Þeir eiga óskap-
lega erfitt meö að segja „ell”.)
Þetta segir Jón Björgvinsson
meöal annars i bréfi sinu, sem
hann sendi okkur á Visi, en hann
er staddur á Hokkaido. Hér á
siðunni sjáum við svo greinina
um Island eins og hún birtist i
þessu japanska blaði, Prauda.
Þetta er svo sannarlega eitt-
hvað annað en viö eigum að
venjast, og satt að segja er það
hálf furðulegt aö sjá mynd af
forsætisráðherra mitt i öllu út-
flúrinu.
Letrið er svo sannarlega flók-
iö, enda eiga liklegast fæstir
jafn margbrotiö ritmál. Jón
fræðir okkur á þvi i bréfi sinu,
aö i Japan séu til hundraö orð,
jafnvel meira, sem þýða aðeins:
ég.
„Með framtið her-
stöðvarinnar að
vopni”.
I flestum tungumálum gengur
auöveldlega aö læra orð eins og
ég, þú, og. En I Japan eru notuð
mörg orö, sem tákna þessi orð.
Notkun þeirra fer þó eftir þvi
viö hvern talað er, aldur, stöðu
og fleira sem snertir viðkom-
andi.
En þannig hljóðar greinin.
(Hún er lesin niður og frá hægri
til vinstri). Undir myndinni
stendur Ólafur Jóhannesson
forsætisráðherra, eöa Yo-ha-ne-
so-n. Stóra fyrirsögnin þýöir:
ísland setur pressu á Nato. Sið-
an kemur frá hægri: Þorska-
striöiö færist út. Jafnvel
Bandarikin eru að blandast i
málið gegn vilja sinum. Island
reynir meö framtið herstöðvar-
innar i Keflavik að voþni.aö
þvinga Nato til stuðnings gegn
Englandi.
1 greininni er sagt frá þvi, aö
tsland hafi sett kröfur sinar i
fiskveiðideilunni fram á fundi i
Brussel, en að engin niöurstaöa
hafi fengizt vegna ósamstöðu á
fundinum.
A sama tima tilkynnti A-gu-
su-to-so-n (Einar Ágústsson)
utanrikisráöherra Nato aö
vanarsáttmálinn viö Island yröi
aö endurnýjast. Frá þvi 1971
hefur vinstri stjórn veriö á Is-
landi og frá þeim tima hefur
vilji stjórnarinnar og þjóðarinn-
ar veriö að leggja niöur her-
stööina eöa að endurnýja
samninginn með tilliti til hag-
smuna Islands, segir blaðið. Um
þetta hefur alla tið verið rætt, en
nú eru raddirnar háværar.
Það er skoðun brezkra
stjórnmálamanna, segir i grein-
inni, að Islendingar notfæri sér
herstöðina i Keflavik, ekki að-
eins til að reyna að þvinga Nato
sem samtök til stuðnings við sig
i þorskastriðinu, heldur einnig
til að blanda aðildarþjóðum
NATO i máliö, svo að þær þurfi
að taka sjálfstæða afstöðu i
málinu og vænti þess þar með
að fá stuðning gegn Englending-
um.
Island hefur átt i miklum deil-
um I sambandi viö útfærslu
landhelginnar án þess að aðrar
þjóðir hafi sýnt málinu áhuga,
segir blaðið. En nú reyni þeir að
beina athyglinni að sér með þvi
að blanda NATO og Bandarikj-
unum I máliö og reyni að fá
stuðning þeirra.
Þó svo megi virðast, sem Is-
land sýni mikla hörku i málinu,
verði þó að hafa hugfast, að inn-
an NATO falli þeir smáu al-
gjörlega i skugga þeirra stóru
og eigi erfitt með að koma hug-
myndum sínum á framfæri. En
nú vilji smáu rikin að á sig sé
hlustaö.
Smáu aðildarþjóðirnar hafi
rekið sig á þetta vandamál i des.
1972 þegar Danmörk og Holland
hafi verið andstæðar Bandarikj-
unum, sem hafi viljaö koma
meira af ábyrgð og útgjöldum
NATO á herðar hinna þjóðanna.
Ef Jóhannessyni verða á mis-
tök I þessari deilu, segir blaðið,
gæti hann klofið NATO I stórar
þjóðir og smáar.
„íslendingar geri her-
stöðina „óvirka”.
Siðan kemur i japanska blað-
inu stuttu grein frá AP-frétta-
stofunni.
Þar er fyrirsögnin: Aðvörun
til forseta Bandarikjanna.
Johannesson segir að NATO
geti orðið óvirk.
Innihald greinarinnar er i
stórum dráttum þetta: Islenzkir
fréttaritarar segja, aö svo lengi
sem enskir togarar séu innan 50
milna landhelginnar, sé vel
möguleiki á þvi, að tsland hætti
að gegna skyldum sinum i
NATO.
Þetta er staöfest af Jóhannes-
syni nú i viðtali hans viö Nixon
og Pompidou að fundi þeirra
loknum þann 31. mai.
Jóhannesson sagði I fyrsta
lagi, að herskip við Island yrðu
að kallast burt tafarlaust. 1 ööru
lagi, að nú kæmi i ljós, hversu
góð tengsl væru milli tslands og
Bandarikjanna.
Ef þessir tveir punktar yrðu
virtir að vettugi, gæti svo farið
að Island hætti aö gegn skyldum
sinum i NATO og hætti siðan að-
ild sinni að varnarbandalaginu.
Jóhannesson tjáði Nixon, að
ef Bandarikin veita íslandi ekki
stuðning? gætu þeir hægt þaö
mikið á störfum herstöðvarinn-
ar.aö hún yrði óvirk.
Þannig skýrir japanska
pressan frá málum Islands.
— EA.