Vísir - 17.07.1973, Blaðsíða 5
Visir. Þriðjudagur 17. júli 1973
5
AP/INITB ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson
Rússar í geimstöð USA
Rússnesku geimfararnir, Leonov og Rudavishinkov, sem eru i hópi
Rússaua. er undanfarið hafa dvalizt hjá Geimferðarstofnun Banda-
rikjanna, sjást hér skoða einn þjálfunarklefann i Johnsons geim-
miðstöðinni. Heimsókn þeirra er liður i undirbúningi sameiginlegs
geimskots Bandarikjamanna og Rússa 1975.
Heimsmeistara-
mót unglinga
Heimsmeistaramót unglinga i
skák hófst i Thornby-on-Tees i
Englandi i gær. Voru þar mættir
50 þátttakendur frá 48 löndum og
þeirra á meðal einn Islendingur,
Kristján Guðmundsson.
Teflt verður i tveimur riðlum,
jafnsterkum, og fyrri hluti móts-
ins, undanúrslit — einar sjö
umferðir.
Sigurstranglegastur er talinn
Alexander Beylavsy.
Fýkur í aðal-
skjól hass-
neytenda
Konungsrikið Nepal f Hima- Stjórnin tilkynnti bannið með
layafjöllum er nú ekki lengur fyrirvara i júni. Voru samin
paradís hassreykjandi ung- bráðabirgðalög, en frumvarp
menna af Vesturlöndum — að þvi til staðfestingar verður lagt
minnsta kosti ekki opinberlega. fyrir þingið á næstunni.
Frá og með deginum i gær Margir Nepalbúar sem
bannaði rikisstjórnin fram- kynslóð fram af kynsíóð hafa
leiðslu á hampi og sölu á hash- haft að lifibrauði að selja hash-
ish og ópfum, og þar með eru ish og ópium, vérða nú að snúa
hinir ljúfu timar hassneytend- sér að öðru. Strax i morgun voru
anna liðnir hjá. verzlunareigendur byrjaðir að
rifa niður auglýsingaskilti sin.
Þessi mynd var tekin af söngkonunni, Janie Jones, inni í Iögreglubif-
reiö á leið til réttarhaldanna Dómþingin eru haldin til rannsóknar á
því, hvort tilefni er til málshöfðunar á hendur söngkonunni, sem gefið
er að sök að hafa átt milligöngu i vændi, að hafa bruggað fyrrv. eigin-
manni sinum banaráð og að hafa beitt fjárþvingunum.
Hleruðu líka Nixon
og gestí hans
SEGULBANDSUPPTÖKUR í HVÍTA HÚSINU
Leiðtogi rússneska
kom múnista f lokksins,
Leonid Bresjnev,
kanslari V-Þýzkalands,
Willy Brandt og forsætis-
ráðherra Stóra-Bretlands,
Edward Heath, eru trú-
lega meðal þeirra, sem
hafa verð hleraðir, meðan
fundir þeirra við Nixon
forseta stóðu yfir í Hvíta-
húsinu.
Allir þrir hafa átt fundi meö
Nixon i Hvita húsinu á s.l. tveim
árum, en samkvæmt vitnisburöi
eins vitnanna, sem þingnefndin
yfirheyrði i gær vegna Wat-
ergatemálsins, hafa öll samtöl
inni á skrifstofu Nixons verið
hleruð siðan á árinu 1971, og
jafnframt verið tekin upp á
segulband.
Alexander Buetterfield, sem
áöur tilheyröi starfsliði Hvita
hússins, skýröi þingnefndinni
frá þessu i gær, og um leiö frá
þvi, að Nixon hefði aldrei beöiö
um aö segulbandið væri stöövaö
— ,,Þannig að ekkert ætti að
vera auðveldara nefndinni en að
kanna, hvort Nixon hafi verið
Ofter i holti heyrandi nær.
kunnugt um Watergatenjósn-
irnar eða yfirhylmingartil-
raunir, og þá hvenær hann hafi
komizt á snoðir um það”, sagði
Buetterfield. ,,Það þarf bara að
athuga segulbandsspólurnar”.
Butterfield skýrði frá þvi, að
tilgangurinn meö þessum hler-
unum heföi veriö sá aö varö-
veita samtöl Nixons forseta á
spólum til notkunar siðar meira
annaðhvort við bókarskrif eða
skráningu sögunnar. — Hann
sagöi ennfremur, aö hann hefði
heyrt, að slikur viðbúnaöur,
hefði verið, þegar Lyndon
Johnson var forseti, en það hefði
ekki verið notað fyrstu tvö árin,
sem Nixon gengdi forsetaem-
bættinu.
Watergatenefnd þingsins hefur
þegar lagt drög að þvi aö fá
segulbandsspólurnar afhentar,
en blaðafulltrúi forsetans
neitaði aö svara spurningum
fréttamanna i nótt um það,
hvort þær yrðu látnar af hendi.
Má vel vera, að meöal sam-
tala sem geymd eru á segul-
bandsspólunum, séu viöræður
Nixons og forsætisráöherra
Italiu, Andreotti, Eþiópiu-
keisara, Haile Sealssie, for-
sætisráðherra Israels, Goldu
Meir, Jórdaniukonungs,
Husseins eða forsætisráðherra
Indlands, Indhiru Gandhi, en
þau hafa öll átt fundi með Nixon
á siðustu mánuðum.
Mœttu ekki í veizlu
Heats og Caetanos
Nokkur hundruð mót-
mælenda hrópuðu ókvæðis-
orðum að Marcello Cae-
tano/ forsætisráðherra
Portúgals og Edward
Heath, forsætisráðherra
Bretlands, þegar þeir komu
til kvöldverðar, sem Heath
hélttil heiðurs gesti sínum i
gærkvöldi.
En forystumenn stjórnarand-
stööuflokkanna, sem höfðu verið
boönir til veizlunnar mættu ekki
til hennar til þess að sýna hug
sinn vegna ásakanna gegn Portú-
gal um fjöldamorð i Mozambique.
Það kom til minniháttar átaka
milli lögreglu og mótmælenda, en
það tók fljótlegaaf.Hafa ýmsir að-
ilar bundizt samtökum um mót-
mælaaðgerðir alla dagana (4),
sem Caetano er i opinberri heim-
sókn i Bretlandi. Lögreglan hefur
öflugan vörð um portúgalska for-
sætisráöherrann og mikinn við-
búnað.
Neðri deild brezka þingsins
mun taka til umræðna i dag heim-
sókn Caetanos, og er það algert
einsdæmi i sögu brezka þingsins,
að slikar umræöur eigi sér stað
um erlendan gest — einmitt
meðan hann er staddur i landinu.
Harold Wilson, leiötogi verka-
mannaflokksins, fékk Heath for-
sætisráöherra til að samþykkja
umræöurnar, en Wilson hafði á
sinum tima krafizt þess að heim-
sókn Caetanos yrði frestaö,
meðan gengið yrði úr skugga um,
hvað hæft væri i ásökunum um aö
Portúgalar hefðu myrt 400
manns i þorpinu Wiriyamu i
Mozambique.
Caetano, forsætisráðherra.
Hafði vœndiskvennaher
Skýrsla eins
plötusnúðanna, sem við-
riðinn var hneykslið hjá
brezka útvarps- og sjón-
varpsfyrirtækinu BBC,
var lesin upp i rétti i
London i gær, þar sem
fjallað er um mál Janie
Jones, söngkonunnar.
Lýsti plötusnúðurinn,
sem ekki var nafn-
greindur, kynsvalli, sem
söngkonan hafði efnt til,
og játaði hann sinn þátt i
þvi.
Janie Jones (34 ára) er sökuð
um að hafa i 26 tilvikum notað
vændiskonur til þess að telja
stjórnendur og framleiðendur út-
varps- og sjónvarpsþátta BBC á
að leika ákveðnar hljómplötur i
þáttum sinum. Ennfremur er
henni gefið að sök að hafa reynt
að telja mann nokkurn á að
myrða fyrrum eiginmann
hennar, John Christina Dee,
dægurlagahöfund.
I skýrslu plötusnúðarins kom
fram, að hann og framleiðandi
sjónvarpsþáttar hans hefðu verið
að heimili Janie Jones eitt sinn,
og var þeim þá boðið'að standa á
gægjum meðan þrjá stúlkur léku
listir sinar i svefnherberginu.
„Sfðan bauö Janie okkur að taka
þátt i leiknum — hvað við
gerðum,” sagði plötusnúðurinn.
Ein vændiskonan skýrði frá þvi,
hvernig hún hefði heimsótt
nokkrum sinnum ákveðinn sjón-
varpsframleiðanda fyrir Janie
Jones, og leyft honum að berja sig
með svipu.
Mál þetta hefur vakið mikla
hneykslan á Bretlandseyjum og
hefur það nánast skyggt á
hneykslið, þegar tveir ráðherrar
stjórnar Heaths, reyndust vera
i tygjum við simavændiskonur.