Vísir - 17.07.1973, Side 6
6
Vísir. Þriöjudagur 17. júli 1973
VÍSIR
Otgefandi:-Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
y Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Afgreiösla; Hverfisgötu 32. Slmi 86611
Ritstjórn: Síöumúla 14. Simi 86611 f7 llnur)
Askriftargjald kr. 300 á mánuöi innanlands
I lausasölu kr. 18.00 einfakiö.
Blaöaprent hf.
Grænt sumar í borg
Þessa mildu sumardaga skartar Reykjavik
sinu bezta. Aðkomumenn, sem koma aðeins á
nokkurra ára fresti til borgarinnar, sjá, hve ört
borginni fleygir fram að svip og fegurð. Heima-
menn sjá þetta siður, þvi að i þeirra augum verða
breytingarnar fljótt gamlar.
Það er ekki langt siðan flestar götur i Reykja-
vik voru malargötur, sem rykið grúfði yfir. Og
það er ekki langt siðan flest hús borgarinnar voru
oliukynt og spúðu reykmekki. Ekki er lengra
siðan Hljómskálagarðurinn og Arnarhóllinn voru
einu verulegu grænu blettirnir i borginni.
Nú er öldin önnur. Þrátt fyrir gifurlega hraða
útþenslu borgarinnar, fyrst austur fyrir Norður-
mýri og siðan langt austur fyrir Elliðaárvog,
hefur Reykjavikurborg tekizt að auka þjónustu
sina mun hraðar.
Fyrir nokkrum árum náðist það markmið að
koma hitaveitu i öll hverfi borgarinnar. Nú er
hitaveita lögð i allar nýbyggingar. Fyrir bragðið
lækkar byggingakostnaður og hitunarkostnaður,
auk þess sem andrúmsloftið hefur hreinsazt.
Skemmra er siðan borginni tókst að koma mal-
bikuninni fram úr byggingaframkvæmdum. Á
Breiðholtinu voru götur malbikaðar áður en
byrjað var á húsunum. Ibúar nýjustu hverfanna
þurfa þvi ekki lengur að búa við umferðarryk
fyrstu árin.
Og nú i ár er jafnvel farið að malbika gangstiga
áður en húsin risa. Þetta var reynt i sumar á
Breiðholti i fyrsta sinn. Þetta endurspeglar hinn
stóraukna áhuga á umferð gangandi fólks og er
einkum vel þegið á sumardögum eins og verið
hafa að undanförnu.
Breið ræktarbelti girða nú sumar helztu
umferðaræðarnar eins og Miklubraut og Kringlu-
mýrarbraut og gefa borginni notalegan svip i
augum þeirra, sem um borgina aka. Miklatún og
Laugardalur hafa verið ræktuð upp og kjarrlendi
er komið i suðvestanverðri öskjuhlið. Ræktun
Sogamýrar og útisvæða i Árbæ og Breiðholti er
hafin, og ættu þau svæði að geta komið að gagni
siðla þessa sumars.
Ekki má gleyma Heiðmörkinni, hinu viðáttu-
mikla útisvæði innan borgarmarkanna, sem
verður gróðurrikara og skemmtilegra með
hverju sumrinu, sem liður. Og nú er skógræktin i
Elliðaárdal farin að draga að sér athygli fólks. Sá
dalur verður senn með fallegustu útivistar-
svæðum Reykvikinga.
Siðan lokið var mestu átökunum i hitaveitu og
malbikun gatna hefur sennilega ekkert atriði
fjárhagsáætlunar Reykjavikurborgar hækkað
hlutfallslega eins ört og ræktun og frágangur úti-
vistarsvæða. Enn er að visu ólokið verulegum
verkefnum á þvi sviði, enda geta fáar borgir
heimsins státað af skipulagi jafnmikilla úti-
vistarsvæða og grænna belta og einmitt Reykja-
vik.
Nú er sá timi ársins, er við kunnum bezt að
meta þessar öru framfarir, hreina loftið og grænu
svæðin, sem bjóða borgarbúum upp á margvis-
lega möguleika til leikja og gönguferða.
— JK
Hinn sextán ára sonarsonur milljónamæringsins hélt sig mikiö á hippaslóöum I Róm.
Sextíu og þriggja ára
gömlum skurðlækni frá
smáríkinu/ San Mariono,
og dóttur hans var rænt í
lok júní, en þau komu bæði
fram heil á húfi núna um
helgina.
Það hefur ekki veriö látiö uppi,
hvort oröiö var við kröfum ræn-
ingjanna um 5 milljón króna
lausnargjald, en þótt hinn kunni
skurölæknir, Italo Rossini, heföi
goldið mannræningjunum skatt-
inn fyrir sig og 25 ára dóttur sina,
Rossella, þá eru 5 milljónir engan
veginn hæsta gjald, sem bófar
hafa þvingaö út úr fólki á ítaliu aö
undanförnu.
1 febrúar siöastliönum létu
mannræningjar lausan skammt
frá Milanó iöjuhöld, sem sagður
er hafa greitt þeim 200 milljónir
króna I lausnargjald. Ef satt er,
þá er það algert heimsmet I sögu
lausnarfjár.
En þótt Rossini læknir og dóttir
hans hafi fundizt heil á húfi, ráf-
andi eftir fáförnum vegi nærri
Arezzo á miöri Italiu (um 65 km
fram San Marino). Þá getur móö-
ir J. Paul Getty III ekki veriö of
viss um aö heimta son sinn á
/sama hátt aftur heilan á húfi. 1
rauninni getur ekkert fórnar-
lamba mannræningja veriö
öruggt um lif sitt.
Mál Rossinis læknis er eitt þaö
siöasta af fimmtiu slikum tilvik-
um mannrána, sem framin hafa
iverið á Italiu siöustu tvö árin.
Lögreglan i Róm gizkar á, aö
glæpamenn hafi haft upp úr þess-
um ránum samtals um einn millj-
larð króna i lausnargjöldum. En
lögreglunni hefur hins vegar ekki
tekizt að upplýsa nema sárafá
þessara tilvika, enda hafa ekki
nærri öll þeirra veriö tilkynnt lög-
reglunni af ótta viö aö ræningj-
arnir mundu þá láta þaö bitna á
fórnardýrum sinum.
Athygli manna tók aö beinast
’aö þessari óhugnanlegu iðju
jglæpamanna Italiu, þegar frétt-
'ist, að sonarsonur, auöugasta
,manns heims, væri horfinn. Það
'er haldiö, aö honum hafi verið
,rænt, en þó er enginn vissa talin
'vera fyrir þvi.
Þegar móðir J. Paul Getty III,
Gail Harris fyrrum leikkona, kom
til heimilis sins i Róm eftir viku-
iangt feröalag, uppgötvaði hún,
aö sonur hennar hafði veriö að
I heiman allan timann á meöan. Nú
eru liðnar alls tvær vikur, siöan
Iþessi sextán ára unglingur sást
siðast.
Siminn hringdi hjá frú Getty
fljótlega eftir að hún kom heim,
og karlmannsrödd sagöi i siman-
um: „Við höfum rænt syni þinum.
Hafðu lausnarféð til reiðu. Við
höfum samband við þig siðar.” —
Hún sagði, að sá, sem hringdi,
Mann-
róna-
brans-
inn í
Róm
llllllllllll
Umsjón:
Guðmundur
Pétursson
J. Paul Getty III hefur hugsan-
lega sett rániö á sjálfum sér á
sviö!
hafi ekki haft samband viö hana
aftur.
Fyrst hélt hún, aö þetta væri
eitthvert gabb, en nú uggir hana
oröiö, aö þarna sé þvi miöur blá-
köld alvara á feröinni. — Nema
aö eitt komi til:
Frú Getty skýröi lögreglunni i
Róm frá þvi, aö sá möguleiki væri
fyrir hendi, aö sonur hennar
kunni að hafa sjálfur sett rániö á
sjálfum sér á sviö, til þess að
reyna að ná fé út úr hinni auöugu
fjölskyldu sinni. Ung stúlka, sem
segist hafa veriö vinkona Pauls
Getty III, heldur þvi fram, aö hún
hafi heyrt hann eitt sinn hafa orö
á þvi, aö hann kynni aö taka upp á
sliku.
Paul Getty III er byrjandi i
málaralist og oftast fjárþurfi, eft-
ir þvi sem vinir hans á hippaslóð-
um Rómar segja. Sér til fjáröfl-
unar seldi hann stundum skart-
gripi á torgum.... skartgripi, sem
hann hafði gert sjálfur.
Þetta hljómar ögn ótrúlega i
eyrum þeirra sem vita ekki annað
en strákur er sonur J. Paul Getty,
jr., sem aftur er sonur J. Paul
Getty, sam talinn hefur verið
auðugasti maður veraldar. — Þau
J. Paul Getty jr. og Gail Harris
skildu fyrir nokkrum árum, og
gekk hann þegar aö eiga fyrirsæt-
una Talitha Pohl, sem lézt i fyrra
eftir aö hafa tekið of stóran
skammt af heróini.
Þaö hefur ekki veriö barnalánið
á Paul gamla Getty, þvi að annar
sonur hans, George Franklin
Getty II, lézt i síöasta mánuöi af
völdum ofneyzlu áfengis og fikni-
efna, og var þá aðeins 48 ára aö
aldri.
Vegna lifernis sona sinna hefur
Paul Getty ekki veitt þeim nema
takmarkaðan aögang i sjóði sina,
og þótt sæmilega væri séö fyrir
Gail Harris eftir skilnaðinn við
Paul Getty jr., þá var ekki um aö
ræða neitt rikidæmi, sem ætla
mætti af þeim.er verið hafði I
Getty-fjölskyldunni.
Þegar lögreglan hóf rannsókn
málsins og fór að leita fyrir sér
um ferðir og lifnaðarhætti Paul
Getty III, komst hún fljótlega að
raun um það, að drengurinn lifði
ekki þvi, sem kalla mætti reglu-
sömu liferni. — Húsvörðurinn i
húsi þeirra mæðgina hafði ekki
saknað hans, þótt drengurinn
hefði ekki verið heima i heila
viku, „vegna þess að drengurinn
kom oft ekki heim fyrr en undir
morgun, ef hann gisti þá ekki
annars staðar.”
í janúarmánuði sl. var Paul
Getty III handtekinn i mótmæla-
aðgerðum vinstri manna gegn
nýfasistaflokknum. En lögfræð-
ingur hans fékk hann lausan
tveim dögum siðar á þeim for-
sendum, að drengurinn hefði að-
eins verið á leið þarna hjá, en
ekki þátttakandi