Vísir - 01.09.1973, Síða 2
2
Vísir. Laugardagur 1. september 1973
visiBsm:
Eiga tslendingar aö grípa til ein-
hverra sérstakra aðgeröa vegna
atburðanna um borö i Ægi á mið-
unum?
Gréta Gunnarsdóttir, húsmóðir:
— Alveg örugglega. Bara eitthvað
nógu róttækt.
Sigurður Guömundsson, kennari:
— Hafa ekki allir möguleikar,
sem eru æskilegir og færir, verið
nýttir? Kannski mætti visa sendi-
herranum brezka úr landi. En ný
viðhorf skapast vegna þessa
slyss, og þá þarf um leið nýjar
róttækar aðgerðir.
Sigurlaug Guðmundsdóttir, hús-
móðir: —Það er frekar tilefni að
gera meira þegar dauðsföll
verða. Mér virðist deilan vera
farin að færast á alvarlegra stig.
En þaö verður að fara varlega i
allar aðgerðir.
Guðbjörg Jóelsdóttir, húsmóðir:
— Alveg eindregið. Að visu veit ég
ekki hvaö hægt er að gera. Deilan
er nú komin á alvarlegra stig.
Ingólfur Pálmason, kennari: —
Ég kem nú ekki auga á neinar
sérstakar aðgerðir. Landhelgis-
gæzlan hefur staðið sig vel, og
ekkert að hennar störfum að
finna. Það kæmi til álit að reka
brezka sendiherrann úr landi.
Kristján Einarsso, iögreglu-
þjónn: — Já, en ég hef samt enga
standard lausn á hvaða aðgerðir
það mættu vera. En eitthvað þarf
aö gera, og það helzt róttækar að-
geröir.
„Sem flestir œttu að temja sér
frjálslyndi og umburðarlyndi",
Það sýnir að hann er alltaf á
dagskrá. Tökum sem dæmi
sýningarnar á Súperstar. Ég var
mjög hrifinn af þvi. Þá stóðu ein-
mitt yfir föstumessur, og þangað
'kom ungt íóTk, og heyröi
nákvæmlega sama boðskap, bara
örðu visi borinn fram. Það var
mjög jákvætt og gleðilegt”.
„Það er erfitt samt sem áöur að
dæma um alltsvona lagað. En við
vitum það með alla, að þegar á
reynir, er gripið til trúarinnar.
Reynslan sýiiir lika, að þegar
fýkur i öll önnur skjól, er hún það
eina sem stenzt”.
— Hefurðu einhverjar hug-
myndir um breytingar i sam-
bandi við kirkjuna, svo sem
messuhald eða annaö?
„Já, að á hverjum tima verði
kirkjan að vera i takt við það fólk,
sem hún lifir og starfar með.
Tökum sem dæmi ýmis hugtök
frá miðöldum. Þau voru i gildi þá,
en þau ganga hins vegar ekki i
dag”.
„Mér finnst þess vegna mjög
fáránlegt að innan kirkjunnar
skuli vera hreyfing, sem er að
reyna að innleiða alla þessa
miðaldahluti upp á nýtt”.
— Hvað um poppmessur?
„Mér finnst sjálfsagt að reyna
sem flest og sjá hvað hentar unga
fólkinu. Það er opið og leitandi og
þarf aö finna réttu svörin við hin-
um ýmsu spurningum. Ungt fólk i
dag má alls ekki afgreiða með
þessari gömlu setningu: „Það er
bara svona”.
Og það er þá ekki úr vegi að
lokum, aö spyrja ungu prests-
frúna Eddu Carlsdóttur, hvernig
það sé að vera eiginkona prests?
„Þaö er mjög gott. Ég hef mik-
inn áhuga á starfi hans. Tökum
sem dæmi unga fólkiö. Mér finnst
að það mætti sinna æskunni og
æskulýðsstarfinu meir og á svo
ýmsan hátt. Sjálf lauk ég prófi frá
leiklistarskóla Þjóðleikhússins og
ég tel að viö þurfum að gefa ungu
fólki tækifæri til þess að tjá sig og
opna sig um leið”.
Og Páll bætti við: „Hún hefur
sýnt mikinn áhuga á minu starfi,
og þá bezt i Fríkirkjunni, þar sem
hún stóö með mér af mikilli prýbi
og dugnaöi i öllum prestsstörf-
um”.
Kosningarnar fara sem fyrr
segir fram 9. september, og 3.206
eru á kjörskrá.
— EA.
segir séra Páll Pálsson
„Ég legg höfuðáherzlu á,
að sem flestir temji sér
frjálslyndi og umburðar-
lyndi. Bara lífið sjálft hef-
ur hreinlega sýnt mér, að
því víðsýnni sem menn eru,
þeim mun auðveldara
reynist fólki að lifa saman í
sátt og samlyndi. Og
fordómum og ofstæki vísa
ég algjörlega á bug".
Þetta sagði Páll Pálsson prest-
ur, þegar við heimsóttum hann og
konu hans, Eddu Carlsdóttur i
litla libúð þeirra við Dráöuhlið, og
spurðum hann þá meöal annars,
hvert væri hans viðhorf til deilna i
trúmálum.
Páll Pálsson hefur meðal ann-
ars verið um tima sóknarprestur i
Vik i Mýrdal. Hann hefur starfað
við kennslu i um 20 ár, og nú sið-
ast var hann i hálft ár prestur viö
Frikirkjuna. „Þangaö kom ég að-
eins til þess að hjálpa á meðan
prestur kirkjunnar var veikur”.
„Það er ekki min reynsla, að
fólk hafi minnkað það að leita til
prests sins. Þegar ég var við
Frikirkjuna, i hálft ár, hafði ég
viötalstima, og i hvert sinn var
biðröö út fyrir dyr og siminn
stoppaöi ekki. Það eru ekki sér-
stakir aldursflokkar sem leita til
prests frekar en aðrir. Ég fermdi
t.d. 80 börn i vor, og mjög mörg
þeirra heimsóttu mig, eingöngu
til þess að hitta mig einan,
burtséö frá barnaspurningun-
um”.
— Er unglingavandamál nú
frekar en áöur?
„Alveg hiklaust nei, Það eru
breyttir timar og breytt viöhorf,
en fólkið sjálft er ekkert verra.
Það er sagt, aö unga fólkið standi
ekki lengur upp fyrir fullorðna
fólkinu, og það vilji ekki hlýta
boöum eða bönnum. Þetta er
nákvæmlega það sama og Sókra-
tes sagöi fyrir 3500 árum um unga
fólkiö”.
— Hvaö um þær hugmyndir,
sem ungt fólk vill gera sér um
Jesúm Krist, t.d. aö hann hafi
veriö eiturlyfjaneytandi og eins
og hippi er i dag?
„í raun og veru er allt athyglis-
vert, sem fram kemur um hann.
„1 raun og vcru er allt athyglisvert, sem kemur fram um Jesúm Krist”. — Páll Pálsson ásamt konu
sinni Eddu Carlsdóttur.
„Um leið og Dýraverndunar-
sambandið þakkar heilshugar
veittan stuðning yðar við málefni
dýraverndar, bæði varðandi
spitalamálið og oliudauðann,
væntir Sambandið þess, að þér
sjáið yður fært að ljá eftirfarandi
pláss i blaði yðar:
Undanfarna mánuði hefur stór-
hugur einstaks Islandsvinar legið
óhreyfður i pakkhúsi, innan um
snjóhjólbarða og sekkjað mjöl.
Ekkert annað ár íslandssögunnar
hefur borizt á land jafn gífurlegt
magn gjafa, styrkja og annarrar
ölmusu. Allt klabbið hafa lands-
feðurnir þegið með viðeigandi
þakkarávörpum, i metratali,
glansmyndum og cocktailsam-
sætum, en dýraspitali, heilshugar
gjöf frá enskum nanni, rykfellur á
hafnarbakkanum. Þar mun
spitalinn sjálfsagt liggja
innpakkaður unz boðinn verður
upp fyrir áföllnum geymslu-
DÝRAVERNDUNARSAMBANDIÐ:
Safnað fyrir
dýraspítala
kostnaði, eða gefandinn sendir
hann þakklátri þjóð. Slegið hefur
verið á útrétta bróðurhönd til is-
lenzkra dýra.
Mark Watson stilaði gjöf sina
upphaflega til islenzku dýra-
verndarfélaganna. Félögin lýstu
sig reiðubúin til að veita gjöfinni
móttöku og þökkuðu af alhug.
Gjöfinni fylgdi einnig mikill
tækjakostur, greiðsla á helmingi
uppsetningarkostnaðar og loks
boð um að kosta hingað sér-
menntaða dýrahjúkrunarkonu.
Þessi rausn fylgdi i kjölfar fjölda
annarra gjafa og veljvilja Mark
Watsons til hinna ýmsu
menningarmála okkar. Akveðið
var að verja öllu fjármagni dýra-
verndarfélaganna, samtals um
einni milljón króna, til móttöku
spitalans. Helzt kom til tals að
festa kaup á landareign og hús-
næði fyrir væntanlegan gæzlu-
mann. Sjálfur rekstrarkostnaður-
inn er ofviða fjárhag félaganna,
sem hafa engan fastan tekjustofn,
utan frjálsra framlaga. Treyst
var á riki og borg. 1 sakleysi sinu
héldu dýravinir nefnilega að
stjórnvöldin myndu samgleðjast
yfir þessum erka áfanga i heil-
brigðis- og menningarsögu
þjóöarinnar
Spitalinn naut þegar velvilja.
Tollar voru eftirgefnir og
helmingur flutningsgjalds. Hags-
munafélög dýraeigenda fögnuðu
þessum visi að allsherjar dýra-
hjúkrunaraðstöðu. Stórar gjafir
og smáar bárust frá almenningi.
Halldór Laxness sagði, á
skemmtun Dýraverndunarsam-
bandsins, að engin frétt hin siðari
ár, hefði glatt sig meir en hingað-
koma spitalans. Borgarráð var
jákvætt i umsögn sinni og visaði
styrkbeiðni til nefndar. Loks sást
hilla undir æðsta draum dýravina
allt frá dögum Tryggva Gunnars-
sonar.
En draumurinn hljóp I baklás.
Þrátt fyrir goðæri til sjávar og
sveita, almenna velmegun skatt-
greiðenda og siðast en ekki sizt
viðurkennda þörf fyrir gjöfina, sá
ríkisvaldið sér ekki fært að verja
árlega um tveim milljónum
króna til þeirra íbúa landsins,
sem gert hafa það byggilegt i
ellefu aldir. Alþingi virðist þvi
óhætt að strika út úr bókum sin-
um lögin um dýravernd. Þau
standast ekki i praxis þegar á
reynir.
^Þrátt fyrir að eðlilegt sé, að
ríkið annist allan spitalarekstur,
án annarlegra hagnaðarsjónar-
miða, sem aldrei mega vera ráð-
andi afl i heilbrigðismálum, eru
dýraverndarmenn fúsir tii að
reisa spitalann fyrir eigið fé og
vinnu. Reksturinn verður okkur
burðarás um öxl. Þörf er nú á
samtakamætti alls góðs fólks.
Þeim, sem eitthvað vildu láta af
hendi rakna er góðfúslega bent á
giróreikning Dýraverndunar-
sambandsins nr. 44000. Einnig
taka dagblöðin á mdti framlög-
um. Skömmin er þegar orðin of
stór. Við skuldum dýrunum
meira en einn spitala. Hann skal
upp, og einhvern veginn höldum
við honum opnum. Okkar litla
milljón er til reiðu. Hver vill eiga
næsta leik?
Asgeir Hannes Eiriksson.”
HRINGIÐ í
síma 86611
KL13-15