Vísir - 17.09.1973, Side 14
14
Vlsir. Mánudagur 17. september 1973
Ekki tókst Dýrling-
unum á laugardag að
hefta sigurgöngu Leeds
á leikvelli sinum The
Dell í Southampton —
hafnarborginni miklu á
suðurströnd Englands.
Nei, Leeds vann sinn
sjöunda sigur i röð, þó
svo litla „generálinn”
Johhny Giles og
þrumufleyginn Peter
Lorimer vantaði.
Leeds vann 2-1 og var
sigurinn öruggari en
þessar tölur gefa til
kynna — Brian O’Neil
skoraði eina mark
Dýrlinganna eftir að
venjulegum leiktima
lauk, en hann er einn af
hinum „útfluttu” leik-
mönnum Burnley —
einn af fjölmörgum,
sem leika með
þekktum liðum.
SJO i
Veðmangarar á Englandi eru
nú farnir að bjóða 10 á móti 1, að
Leeds vinni 12 fyrstu leiki sina i
keppninni og bæti þar með met
Tottenham frá haustinu 1960.
Tottenham vann þá 11 leiki —
bezta byrjun, sem um getur.
Leeds hefur þegar náð þriggja
stiga forskoti i 1. deild —
markatalan er 19-4 — mun
betri en hjá nokkru öðru liði i
deildunum fjórum. Þrir marka-
hæstu leikmennirnir i 1. deild
eru úr Leeds — Lorimer beztur
með sex mörk og hefur þó ekki
leikið í tveimur siðustu leikjun-
um, eða frá þvi hann hlaut
meiðslin i leiknum gegn
Birmingham, sem við sáum i
sjónvarpinu á laugardag. Fyr-
irliðinn Billy Bremner, sem nú
er 31 árs, hefur skorað fjögur
mörk — eða meira en á öllu
leiktimabilinu siðasta, og Alan
Clarke hefur einnig skorað fjög-
ur mörk. Og enn hefur enginn
leikmaður Leeds verið bókaður
eða fengið tiltal frá dómara.
Yfir 26 þúsund áhorfendur
þrengdu sér inn á The Dell á
laugardag og sáu Alan Clarke
skjóta niður heimaliðið, sem lék
án sfns bezta manns i leiknum —
Mike Channon. Clarke skoraði
bæði mörk Leeds — hið fyrra á
32. min. eftir fyrirgjöf Eddie
Gray — oghiðsiðara á 77. mín. 1
lokin skoraði svo O’Neill — en
hann var óheppinn að skora ekki
annað mark í leiknum. David
Harway. . .bjargaði snilldarlega
frá honum.
Burnley var óheppið að tapa
stigi gegn Derby á heimavelli
sinum. Þeir Martin Dobson og
Leighton James fóru illa með
opin færi i fyrri hálfleiknum og
Burnley hafði yfirburði. Dobson
skoraði þó, en markið var dæmt
af vegna rangstöðu. Leikurinn
fór að mestu fram við og i vita-
teig Derby og svo var allt I einu
spyrnt langt fram völlinn.
Archie Gemmill sendi á Roger
Davies og hann skoraði hjá Alan
Stevenson. Þrátt fyrir markið
lét Burnley árar ekki falla —
■
ÞJÓFAAÐVÖRUNARKERFI
BRUNAAÐVÖRUNARKERFI
SERH/EFT
FYRIRTÆKI
\\v//
VARI
SIMI
37393
sótti mun meira, og loks á 77.
min. jafnaði miðherjinn ungi
Ray Hankin, sem aðeins er
17 ára, með ágætum skalla eftir
fyrirgjöf James. Þarna var
Derby-liðið heppið að ná stigi.
Hinir kunnu framherjar liðsins
komust litið áfram gegn hinum
leikreyndu varnarmönnum
Burnley, þar sem Keith Newton,
áður landsliðsbakvörður, sem
Burnley fékk „ókeypis” frá
Everton, lék aðalhlutverkið.
Newton, 32 ára, kann enn vel
sitt fag, og I hinni bakvarðar-
stöðunni vakti Peter Noble
mikla athygli. Hann var keypt-
ur frá Swindon i sumar og lék
alltaf i framlínunni áður fyrr.
Colin Waldron, sem Burnley
fékk frá Chelsea fyrir nokkrum
árum fyrir 30 þúsund pund, lék
einnig stórvel sem miðvörður og
kvað Kevin Hector i kútinn.
Ahorfendur voru 23.334.
Við skulum nú lita á úrslitin i
leikjunum á laugardaginn.
1. dcild:
Birmingham—Liverpool 1-1
Burnley—Derby 1-1
Chelsea—Coventry 1-0
Everton—Q.P.R. 1-0
Leicester—Manch. City 1-1
Manch. Utd.—-West Ham 3-1
Newcastle—Wolves 2-0
Reading—Bury 2-2
Rotherham— Hartlepool 2-2
Workington—Lincoln 1-1
Þegar maður litur á þessi
úrslit stingur strax i augun stór-
sigur Arsenal i Norwich. Það er
annaö hvort I ökkla eða eyra hjá
Lundúnaliðinu. Arsenal lék
mjög vel i fyrri hálfleik — með
Charlie George sem aðalmann
— og skoraði þá þrjú mörk.
George skoraði hið fyrsta á 14.
mln. með miklu skoti utan vita-
teigs. Þá átti hann stangarskot
— knötturinn hrökk út á völlinn
aftur og bakvörðurinn og fyrir-
liði Arsenal, Bob McNab, fylgdi
fast eftir og skoraði. Þriðja
mark Arsenal skoraði Alan Ball
úr vitaspyrnu. Siðari hálfleikur-
inn hófst með stórsókn Norwieh
og liðið hafði yfirtökin nær allan
hálfleikinn. En ekki tókst leik-
mönnum liðsins að skora —
vegna frábærs leiks Bob Wilson
I marki Arsenal — og svo bætti
Arsenal fjórða markinu við. Það
var Ray Kennedy fimm min.
fyrir leikslok — mikið
einstaklingsframtak hjá hon-
um.
Bobby Moore var meðal 42
þúsund áhorfenda á Old Traff-
ord og sá félaga sina i West
Ham yfirspilaða af Manch. Utd.
LEEDS
sem lék sinn bezta leik i marga
mánuði. Þar munaði mestu um
framlag ensku landsliðsmann-
anna Brian Kidd og Ian Moore,
sem lék með að nýju eftir langa
fjarveru vegna meiðsla. Kidd,
sem litið hefur verið með sið-
ustu vikurnar, skoraði tvivegis
með þrumuskotum af 25 metra
færi— fyrra markið kom þegar á
7. min., en hið siðara eftir
klukkustundar leik. Ian Moore
skoraði 3ja markið, en Billy
Bonds skoraði eina mark West
Ham úr vitaspyrnu. Kannski
eru nú betri timar framundan
hjá hinu fræga félagi Manchest-
er United?
Tveir Pétrar voru hetjur
Chelsea gegn Coventry frammi
fyrir 24 þúsund áhorfendum á
Stamford Bridge. Peter Osgood
skoraði einfalt mark á 11. min.,
eftir að Bill Glazier, markvörð-
ur Coventry, hafði slegið frá
skaliknött Tommy Baldwin.
Osgood átti stórleik, Svo kom að
hinum — Peter Bonetti varði
vitaspyrnu Míck Coop — önnur
vitaspyrnan, sem hann ver i
vikunni Markatalan 1-0 gefur
ekki til kynna yfirburði
Lundúnaliðsins.
Óheppnin eltir Birmingham —
liðið var sannarlega óheppið að
hljóta ekki bæði stigin gegn
Norwich—Arsenal Southampton—Leeds Stoke—Ipswich Tottenham—Sheff. Utd. 0-4 j 1-2 l-l ! 1-2
2. deild: Bolton-C. Palace 2-0
Cardiff—Fulham 0-0
Luton—Portsmouth 3-3 I -'Æ
Middlesbro—A. Villa 0-0
Millwall—Hull City 3-0
Notts County—Swindon 2-0
Orient—Blackpool 3-2
Oxford—Sunderland 0-1 nSHHHHPf . -
Preston—Bristol City 1-1
Sheff. Wed.—Carlisle 1-0
WBA—Nottm. Forest 3-3
3. deild: Brighton—Charlton 1-2 pgrf. jðjPx
Bristol Rov.—Halifax 2-0
Chesterfield —Blackburn 3-0 j§|| jrt-
Hereford—Watford 1-1 Í-;í>'v
Huddersf.—Aldershot 1-0
Oldham—Wrexham 0-0
Shrewsbury —Rochdale 2-0
Southport—Plymouth 1-1
Walsall—Bournemouth 1-2
York—Port Vale 3-1 z^' * ÉÉjkJk
4. deild: Bradford—-Peterboro M 1 S jrEÍlr
Brentford—Doncaster 2-0 1 ISSSSSIIISlllSlSÍlvJ
Chester—Exeter 0-1 ■HH ÆHSBBm ■
Peter Osgood, Chelsea, (til
vinstri) og Brian Kidd, Manch.
Utd. léku mjög vel með liðum
sinum á laugardag.
Liverpool. Það hafði algjöra yf-
irburði á miðjunni, þar sem
Bobby Hope átti stórleik, en
tengiliðir Liverpool sáust varla.
A 66 min. tókst Birmingham
loks að skora — Bob Latchford
— eftir mistök fyrirliða
Liverpool Tommy Smith. En
fimm min. fyrir leikslok tókst
Liverpool að jafna, þegar Brian
Hall skoraði.
Það er eins og Tottenham geti
ekki leikið á White Hart Lane
nú. Liðið tapaði sinum 3ja leik
þar á laugardag gegn ágætu liði'
Sheff. Utd. Tottenham sótti
mun meira i byrjun, en það var
þó United, sem skoraði fyrst.
Alan Woodward skoraði sitt 100.
mark fyrir lið sitt á 36. min. —
spyrnti knettinum innan á stöng
og I mark. Martin Chivers jafn-
aði fyrir Tottenham, en fjórum
min. fyrir leikslok skoraði Jim
Bone sigurmarkið
Leic'.æster sótti mun meira
gegn Manch. City, en tókst ekki
að tryggja sér sigur vegna stór-
leiks Joe Corrigan i marki City.
Loks á 77. min tókst Keith Well-
er að skora fyrir Leicester, en
fimm min. síðar jafnaði Colin
Bell — heppnismark. Eftir
hornspyrnu stökk Bell upp til að
skalla — náði ekki til knattar-
ins með höfðinu, en af viðbeini
hanshrökk boltinn framhjá Pet-
er Shilton, landsliðsmarkverði
Leicester og Englands.
Úlfarnir sóttu meira i fyrri
hálfleik I Newcastle, en tókst
ekki að skora. Þó var fyrirliðinn
Mike Bailey tvivegis nálægt þvi
með góðum skotum. I siðari
hálfleiknum skoraði svo
Newcastle tvivegis á siðustu
fimm min. leiksins. Fyrst
Irving Nattrass, og siðan Pat
Howard. Phil Parkes lék ekki I
marki Úlfanna — var settur úr
liðinu eftir að hafa leikið 175
leiki samfleytt.
Geoff Hurst bjargaði stigi fyr-
ir Stoke, þegar hann skallaði i
mark á 72. min og jafnaði þar
með mark, sem Clime Cods
hafði skorað fyrir Ipswich i
byrjun siðari hálfleiks. Everton
vann leiðinlegan leik gegn QPR
með frábæru marki Mike Lyons
á 74. min.
Þá má geta þess, að Alan
Durban, sem við höfum svo oft
séð með Derby-liðinu i sjón-
varpinu, var seldur i vikunni til
Shrewsbury i 3. deild. Hann lék
á laugardaginn — Shrewsbury
vann sinn fyrsta leik, og Durban
skoraði annað markið i 2-0
sigrinum gegn Rochdale. Annar
kunnur kappi, Neil Young, sem
lék svo lengi með Manch. City,
skoraði mark Preston gegn
Bristol City, þó ekki nægði það
liöi Bobby Charlton til sigurs.
Bristol jafnaði.
Á Skotlandi léku erkifiend-
urnir Rangers og Celtic á leik-
velli Rangers, Ibrox Park.
Celtic sigraði 1-0 með marki
Jimmy Johstone. Leikurinn
var frábær.
í 2. deild á Englandi eru fimm
lið með sjö stig — Aston Villa,
Bolton, Sunderland, Middlesbro
og Bristol City — C. Palace
meðst með eitt stig. 13. deild
eru Tranmere og Bristol Rovers
efst með átta sig eftir fimm
leiki.
Colchester—Newport 4-1
Gillingham— Darlingt. 0-1
Mansfield—Swansea 2-1
Charlie George — skoraði fyrsta mark Arsenal I Norwich. Brian
Clohgh hjá Derby vill nú kaupa hann og býður 300 þúsund sterlings-
pund!!!
Staðan 11. deild er nú bannig:
Leeds 7 7 0 0 19 4 14
Burnley 7 4 3 0 13 7 11
Newcastle 7 4 2 1 12 6 10
Leicester 7 3 4 0 9 5 10
Derby 7 4 2 1 8 5 10
Coventry 7 4 1 2 8 5 9
Manch. City 7 3 2 2 8 7 8
Liverpool 7 3 2 2 9 7 8
Sheff.Utd. 7 3 1 3 10 8 7
Everton 7 2 3 2 8 7 7
Arsenal 7 3 1 3 10 10 7
Chelsea 7 3 0 4 9 8 6
Q.P.R. 7 1 4 2 8 9 6
Manch. Utd. 7 3 0 4 8 10 6
Southampt. 7 2 2 3 7 10 6
Stoke 7 0 5 2 6 8 5
Tottenham 7 2 1 4 8 12 5
Norwich 7 1 3 3 8 13 5
Ipswich 7 1 3 3 9 15 5
Wolves 7 2 0 5 7 13 4
West Ham 7 0 3 4 9 14 3
Birmingham 7 0 2 5 6 16 2