Vísir - 08.11.1973, Blaðsíða 4
4
Vísir. Fimmtudagur 8. nóvember 1973.
Allt að 2/0 ára fangelsi
fyrír „kynþáttahatur"
Sumir segja, að (s-
lendingar séu í raun-
inni miklir „kynþátta-
hatarar", en það fer að
verða dýrt, ef satt er.
Sektir, varðhald eða
allt að 2ja ára fangelsi
bíður „kynþáttahat-
ara", ef Alþingi
samþykkir stjórnar-
frumvarp, sem kom
fram í fyrradag.
Sú verður þá refsing hvers,
sem „meö háöi, rógi, smánun,
ógnun eða á annan hátt ræðst
opinberlega á hóp manna vegna
þjóðernis þeirra, litarháttar,
kynþáttar eða trúarbragða,”
eins og segir i frumvarpinu.
„Bæði orð og annarskonar
viljatjáning falla undir hið
refsiverða svið, svo sem til
dæmis myndir,” segir i athuga-
semdum. „Með orðinu hæða er
meðal annars átt við lltilsvirð-
andi háttsemi, svo sem að
teikna myndir eða birta þær,
sem lút að útliti einstakra
kynþátta, sem til háðs má
telja,” stendur þar. „Verknaður
er bundinn við háttsemi, sem
höfð er uppi opinberlega, enda
þykir of langt gengið að lýsa til
dæmis háð refsivert, ef slfkt á
sér stað i einkasamtali,” segir i
athugasemdunum. Þá er tekið
fram, að um veröi aö ræða að
háttseminni sé beint gegn hópi,
ef hún eigi að vera refsiverð, en
þó segir það ekki alla sögu.
Þannig segir, að sé til dæmis
ummælum, myndagerö og slíku
beint aö einstaklingi, þá geti
verið, að með þvi sé gefið til
kynna háð, smánun eöa rógur
um hóp manna, þar sem ein-
staklingur „er talinn tákn fyrir
heild”. 1 þvi tilviki sé unnt að
beita refsiákvæðinu. Ennfrem-
ur sé „ekki útlokaö” að beita
ákvæðinu um ummæli, sem séu
höfð i frammi á vettvangi, sem
ekki teljist opinber,” ef
viðkomanda gat ekki dulizt, að
þau myndu verða eftir honum
höfð á opinberum vettvangi, til
dæmis i blaöi,” segir I athug-
semdum frumvarpsins. Þó er
tekið fram, aö I slfkum tilvikum
„geti orðið torvelt að sanna,” að
um refsivert athæfi sé að ræða.
Verknaöurinn verður aö vera
framinn af ásetningi, ef hann á
að teljast refsiverður, segir i at-
hugasemdunum.
Kefsingar eru sagðar
svipaðar og i lögum annarra
Norðurlanda.
Frumvarpið er samið af
hegningalaganefnd. I henni áttu
sæti, þegar um það var fjallað,
Armann Snævarr, hæstaréttar-
dómari, sem var formaður,
Jónatan Þórmundsson prófess-
or, Þórður Björnsson yfirsaka-
dómari og Valdimar Stefánsson
saksóknari rikisins.
Frumvarpið er fram komið I
framhaldi samnings, sem
Sameinuðu þjóðarinnar beittu
sér fyrir og var gerður I
desember 1965. Laganefndir á
öðrum Noröurlöndum hafa at-
hugað hvaða lög þyrfti að setja
þess vegna og er töluvert stuðzt
við það hér.
— HH
Satt að segja
færðu ótrúlega mikið fyrir peningana
í Heilsuræktinni
TÖKUAA T.D. ALMENNA ÞJÁLFUN 2 X í VIKU —
í ÞVÍ NÁMSKEIÐI FELST:
„TfJbúfifii
að leggja
veginn"
— segir Sverrir
50 min. líkamsþjálfun ásamt jógaæfingum og jógaslökun og
síðan frjáls afnot að eigin vild af kerlaugum með hvera-
vatni, sauna, sturtuböðum, háfjallasól, infrarauðum Ijósum,
hvildarbekkjum, hvíldartækjum og þrekþjálfunartækjum.
Og hvað kostar svo þetta allt saman?
Runólfsson —
vantar bara valtara,
fiefif og tank —
skal leggja slitlag
Jú, 3ja mán. námskeið kostar fyrir einstaklinga kr. 2 þús. á
mánuði ef allt námskeiðið, kr. 6 þús., er greitt í einu eða
tvennu lagi, og fyrir hjón aðeins3.167.00á mánuði.
HEILSURÆKTIN
GLÆSIBÆ SÍMI 85655
Auglýsing um
innlausnarverð verðtryggða
spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR INNLAUSNAR- TÍMABIL INNLAUSNARVERÐ x) 10.000 KR. SKÍRTEINI
1964 10.01.74—10.01.75 KR. 76.028,-
1965-2.FL. 20.01.74—20.01.75 KR. 52.489,-
1966-2.FL. 15.01.74—15.01.75 KR. 44.964,-
1968-l.FL. 25.01.74—25.01.75 KR. 37.334,-
1968-2.FL. 25.02.74—25.02.75 KR. 35.310,-
1969-l.FL. 20.02.74—20.02.75 KR. 26.560,-
X) Innlausnarvcrð cr höfuöstóll, vextir, vaxtavextir og veröbót.
Innlausn spariskirteina rikissjóðs fer fram i afgreiðslu Seðlabanka
íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframt frammi nánari
upplýsingar um skirteinin.
Sala verðtryggðra spariskirteina i 2. flokki 1973 er nú hafin hjá
venjulegum söluaðilum.
Reykjavik, 7. nóvember 1973.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
á allan
Þingvallaveginn
nœsta vor
,,f:g ætla að sanna ágæti
þessarar tækni i þessum
mánuði”, sagði Sverrir
Kunólfsson, vegagerðarmaður,
sem Visir ræddi við i morgun.
„Ég hef hrærivélina, sem til
þarf, ég flutti ekki inn alla véla-
samstæðuna, en ég get sannað
mitt mál með þvi að nota hræri
vélina, en þá þarf ég að fá að
láni veghefil, valtara og tank”.
— Þú hlýtur að fá svoleiðis
tæki strax?
„Nei, það er nú hængurinn á
— það gengur illa. Við höfum
veriðað reyna hjá Reykjavikur-
borg núna siðast, en það hefur
gengið illa”.
Fáirðu þessi tæki, ferðu þá
upp á Kjalarnes með þau og
malbikar kaflann frá Ártúnsá
að Tiðaskaröi?
„Nei — þar vantar allt undir-
lag. Þessi kafli, sem mér var
skammtaður þarna á Kjalar-
nesinu, er bara einhvers staðar
úti i mýri. Ég þarf undirlag.
Gamian veg, það væri það
bezta. Mér hefur helzt komið til
hugar afleggjarinn til Þorláks-
Æafnar. Þar eru frábærar
aðstæður. Ég þarf bara að
blanda bindiefni i grunnefnið á
staðnum — þvi er hrært saman
| og sett i einn hrygg á miðjan
veginn, og siðan koma veg-
hefillinn, valtarinn og tankur-
inn”.
Og þú ert tilbúinn núna i
nóvember?
„Já, já — og það, sem ég vil
taka fram, er aðeins þetta: Ég
vil, að vegir séu lagðir hér með
fullkomnustu tækni, sem völ er
á, fyrir eins litið fé og hægt er.
Ég skal setja varanlegt slitlag
á Þingvallaveginn árið 1974. Við
hljótum að gera það fyrir
hátiðarhöldin á þvi merkisári —
en fyrst verð ég að fá að sanna
mitt mál, og það núna”.
Og það er aðeins einn valtari,
einn veghefill og einn tankur,
sem stendur i vegi Sverris.
—GG
lllo við
hippana
Idi Amin forseti Uganda hefur gefið
öryggissveituni lands sins fyrirmæli
um að handtaka alia hippa i landinu,
samkvæmt fréttum Nairobi-útvarps-
ins.
Það var haft eftir honum, að hann
hafði sagt stjórn sinni, að meðan
Uganda byði ferðamenn velkomna til
landsins, þá kærði það sig hins vegar
ekkert um hippa.
„Enginn i þessum heimi kærir sig
um hippa”, var haft eftir forsetanum.
0g settu
því Holl-
land í
olíubann
SAUDI Arabia setti Holland i olíu-
bann i siðasta mánuði vegna þess að
hoilenzka stjórnin hunzaði úrslitakosti
Feisals konungs um að lýsa opinber-
lega yfir stuðninga við Araba,
„eða”.
Þetta fullyrðir timaritið As Sayyad i
Beirút I gær, en getur þó engra heim-
ilda að þessari frétt sinni. Blaðið
heldur þvi samt fram, að þessir úr-
slitakostir hefi verið settir fram i
sendiráði Hollands i Jidda I Saudi
Arab.iu og eins kunngerðir rikisstjórn
Hollands af sendiherra Saudi Arabiu i
Amsterdam.
Blaðið segir, að Feisal konungur
hafi gefið Hollendingum tveggja daga
frest til þess að birta yfirlýsingu um
stuðning við málstað Araba i deilunni
við Israelsmenn.
Til Venus
Mercury-eldflaug, sem ber heitiö
Mariner 10, var skotið á loft um
helgina frá Canaveral-höfða I átt til
Venusar. Þetta 500 kg geimfar, sem
sést hér á myndinni fyrir neðan lyftast
frá jörðu, mun koma að Venusi
snemma árs 1974 til rannsókna.
Hins vegar hefur verið frestað að
skjóta á loft geimförunum þrem, sem
eiga að annast lokaáfangann i Sky-
lab-geimstööinni. Vegna bilunar var
hætt við skotið og mun því verða
frestað i 5 daga.