Vísir - 08.11.1973, Blaðsíða 7
Vlsir. Fimmtudagur 8. nóvember 1973,
7
Þannig á kollurínn
að vera í veturl
Mikið virðist ætla að
verða um pelsa og loð-
kápur, húfur og annað
slikt i vetur. Pelsar hafa
alla tið verið vinsælir, en
loðhúfurnar eru nú að
koma aftur fram i dags-
ljósið.
Slikur fatnaður á virkilega vel
við okkar veðráttu. En fatnaður
þessi er yfirleitt mjög dýr og ekki á
færi hvers og eins að verða sér úti
um slikan.
En stundum má fá fallega gervi-
pelsa og ekki mjög dýra ,þó að
auðvitað sé skemmtilegra að geta
leyft sér að ganga i einhverjum
ekta.
Við birtum nú nokkrar myndir af
loðhúfum, eins og sumar eru á
markaðnum i vetur. Þær eru
sannarlega ekki amalegar i
vetrarkuldann, frostin og snjóinn.
A mynd númer eitt sjáum við
frekar finlegan hatt úr brúnu
skinni. Hattur þessi er með hálf-
gerðu barðasniði.
A mynd númer tvö sjáum við
hatt, sem á liklega eftir að verða
geysilega vinsæll, enda hefur þetta
snið vakið hvað mesta athygli i
haust Kollurinn á þessari húfu er
mokkaskinn en það hvita sem við
sjáum, er blárefur.
Þriðja myndin sýnir hatt úr
dökku minkaskinni. Þessi hattur er
mjög kvenlegur, og sniðið er eink-
ar skemmtilegt.
Mynd númer fjögur sýnir svo
höfuðfat úr hlébarðaskinni. Þessi
hattur er skemmtilegur i sniðinu,
og hann nær undir hökuna, þar sem
hann er hnepptur á annarri hlið-
inni.
IIMIM
SÍOAIM
Umsjón
Edda
Andrésdóttir
ALLT
Á
VÍSUM
STAÐ!
Hver kannast ekki við
það, þegar ekki virðist
hægt að finna nokkurn
hlut og allt virðist týn-
ast, sem maður lætur
frá sér. En það er til ráð
við þvi, og það sjáum við
hér á meðfylgjandi
mynd.
Þó nóg sé af skápunum um alla
veggi, þá virðist svo sem aldrei
finnist hirzlur fyrir vissa hluti,
sem þarf að geyma og mikilvægt
er að týnist ekki.
Slíkan poka má auðveldlega
sauma sjálfur. Hann þarf heldur
ekki nauðsynlega að hafa i þess-
ari stærð, þessi er stór og
myndarlegur, kannski helzt til
stór, til þess að hengja upp á
góðum stað. Þessi er 90 x 150 cm á
stærð.
En hólfin eru mjög þægileg
fyrir hvað sem er, hvort sem það
eru timarit, dagblöö, leikföng eða
annað. Takið svo eftir vösunum á
pokanum, sem hægt er að loka.
BLANDIÐ SAMAN SMJÖRI OG
JURTASMJÖRLÍKI
Þannig sparar 5 manna fjölskylda 4560 kr á óri
4ra manna — 3648 —
3ja manna — 2736 —
Það getur verið gaman að velta
þvi fyrir sér, hvernig hægt sé að
spara i mat án þess að rýra veru-
lega gildi matarins og gæði. Við
tslendingar borðum yfirleitt
hreint og óblandað smjör, en
flestar nágrannaþjóðir okkar láta
sér nægja blöndu af smjöri og
jurtasmjörliki til daglegrar
notkunar. Slik blanda er ekki
fáanleg hér, en hins vegar getum
við sparaö þúsundir á ári með þvi
að blanda venjulegu smjöri og
jurtasmjörlíki til helminga. Auk
þess fáum við minni dýrafitu og
ágætlega bragðgott smjör út úr
þvi.
Kilóið af jurtasmjörlikinu er nú
um 160 krónur, en smjörið er ná-
lægt helmingi dýrara, eða 312
krónur kilóið. Jurtasmjörlikið
hefur tekið nokkrum breytingum
upp á siðkastið vegna bætts véla-
kosts og er nú mun mýkra og
þéttara.
A þessu myndi 5 manna fjöl-
skylda spara 4560 krónur á ári,
4ra manna fjölskylda 3648 krónur
og 3ja manna fjölskylda 2736
krónur. Er þá miðað við að
neyzla hvers sé um 6 kiló af
smjöri á ári. Við sjáum, að það
má fá nokkrar góðar nautasteik-
ur fyrir þennan mismun, eða
jafnvel nokkrar máltiðir á veit-
ingahúsi.
-ÞS.