Vísir - 08.11.1973, Blaðsíða 5
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson
Vlsir. Fimmtudagur 8. nóvember 1973.
Þannig lítur skopteiknari brezka blaOsins „Sun” á afstöðu EBE og yfir-
lýsingu utanrfkisráðherranna niu.
,,Jé, já, herra — við lofum að láta engan hafa með okkur"
Á reki í 6 daga
Bandariska strandgæzlan fann I
fyrradag konu cina, sem haföi
veriöá reki á fleka i Karfbahafinu f
sex daga..
Tveir menn, sem ætiuðu að synda
i iand, eru taldir af. Hefur ekkert
til þeirra spurzt og þykir liklegt, að
þeir hafi örmagnazt á sundinu og
drukknað.
Menn þessir voru dr. Zerhouni,
oliusérfræðingur frá Alsir, og Jean
Ives Bergbeder, franskur hag-
fræðingur.
Flugvél strandgæziunnar kom
auga á fleka á reki suöur af Puerto
Rico og gerði skipum strand-
gæzlunnar viðvart.
Þau þrjú höfðu lagt af stað frá
smárfkinu St. Kitts á miövikudag í
siöustu viku og voru á leið til
Nevis. Bilun varð i utanborösmótor
gúmflekans, og þegar hann hafði
rekið svo langt.að einungis þrjár
milur voru eftir til Nevis, reyndu
mennirnir að synda I land. Það var
fyrir sex dögum.
Siðan hefur konan verið ein á
flekanum, en þraukað þrátt fyrir
þorsta og hungur.
Líður að
brullaupi
Þetta er aðaiekill Bretlands-
drottningar, Arthur Showell,
með eykið, sem brúðhjónin
ungu, Anna prinsessa og Mark
Philips, munu sitja I, þegar þau
aka um Lundúnaborg þann 14.
nóvember, en þann dag fer
hjónavigslan fram. Aðeins einn
hestur verður spenntur fyrir
skrautkerruna, grái gæöingur-
inn Rio, sem lét tilleiöast að
stilla sér upp með Showell fyrir
Ijósmyndarann.
Afvopnunartil-
raunir yfirskin"
segja Kínverjar og fullyrða, að hœttan
ó kjarnorkustyrjöld sé meiri nú en óður
Fulltrúi Kina hjá Sam-
einuðu þjóðunum sakaði i
gær Rússa um að vinna
að afvopnun og friði með
vinstri hendinni, en reka
yfirgangs- og útþenslu-
stefnu með þeirri hægri.
Wang Ming-Hsiu, full-
trúi Kina, kallaði
afvopnunarumleitanir
Rússa huliðsreyk og
krafðist hann þess, að
Sovétrikin og Bandarikin
lýstu þvi yfir, að þau
skyldu ekki verða fyrst til
þess að beita kjarnorku-
vopnum.
Sovétmenn svöruðu um hæl
fullum hálsi og sögðu, að Kinverjar
hefðu fjandsamlega og algerlega
neikvæða afstööu til afvopnunar og
aukins alþjóðlegs öryggis. — Og
nokkrir fulltrúar annarra rikja létu
I ljósi óþolinmæði vegna mis-
heppnaðra tilrauna stórveldanna
ti! þess að ná samkomulagi um
afvopnun kjarnorkuvopna.
„Smærri rikin” sagði Templeton,
fulltrúi Nýja Sjálands „eru að
missa þoíinmæðina meö alveg
undursamlegri hæfni stórveldanna
til þess að taka afstöðu, sem þau
vita fyrirfram, að hinn aðilinn
getur aldrei samþykkt”.
Þessar umræður urðu á alls-
herjarþinginu i gær i stjórn-
málanefndinni, en þar er orðinn
fastur árlegur viðburður, að
umræður verði þar um
afvopnunarmál. — Nokkur riki
höfðu að þessu sinni borið fram
tillögu um bann við öllum
tilraunum með kjarnorkuvopn.
„Dagblað alþýðunnar” i Kina
hafði i leiðara sagt, að hættan á
kjarnorkustyrjöld hefði aukizt
siðustu árin i stað þess að minnka.
Og var þar gagnrýnt harðlega
samkomulag Nixons og Brezhnevs
til þess að koma i veg fyrir kjarn-
orkustyrjöld og bent á, að ekki ein
einasta grein þess samkomulags
tæki fram, ,,að Sovétrikin og
Bandarikin mundu halda sig frá
þvi að beita kjarnorkuvopnum”.
„Það blasir við”, segir i
leiðaranum”, að Sovétrikin hafa
unnið sér frest með alls konar sam-
komulagsgerðum um falskar
afvopnunartilraunir og reyna að
nota þann frest til þess að komast
upp að hlið Bandarikjanna og helzt
fram ú þeim i hernaðarstyrk”.