Vísir - 08.11.1973, Page 6
6
Vísir. Fimmtudagur 8. nóvember 1973.
VÍSIR
Ctgefandi:-Reykjapci»nt hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Slmar 11660 86611
Afgreibsla: Hverfisgötu 32. Slmi 86611,
Ritstjórn: Slbumúla 14. Slmi 86611 (7,Ifnur)
Askriftargjald kr. 360 á mánuöi innanlands
I lausasölu kr. 22:00 eintakib.
Blabaprent hf.
Senn þarf svæðisþróun
Einhvern tima á næsta aldarfjórðungi kemur
að þvi, að Reykjavik verður fullbyggð. Borgin
hefur takmarkað landrými, þvi að Kópavogur
takmarkar vöxt hennar til suðurs og Mosfells-
hreppur til norðurs. Eina stóra svæðið i Reykja-
vik, sem enn hefur ekki verið skipulagt, er
Korpúlfsstaða- og úlfarsfellssvæðið.
Reykjavik hefur þanizt óvenju ört út að undan-
förnu. Hverfin i Breiðholti verða greinilega full-
byggð eftir um það bil fjögur ár i stað þeirra tiu
ára, sem gert var ráð fyrir i aðalskipulagi
borgarsvæðisins. Það reynist þvi væntanlega
nauðsynlegt að hefja byggingar á nýja svæðinu
við norðurmörk borgarlandsins þegar á árinu
1978 eða þar um bil.
Undirbúningurinn að skipulagi nýja svæðisins
er óvenju vandaður. Kannaðir og kortlagðir hafa
verið allir þættir náttúrufarsins, sem áhrif hafa á
byggð, svo sem landslag, hæð yfir sjávarmáli,
skjól, úrkoma, birta, útsýni og jarðvegsdýpt. Á
kortunum má sjá, hvaða svæði eru hentug til
hverrar tegundar af landnýtingu.
Þessu starfi er nærri lokið. Þegar gerðar hafa
verið ý msar aðrar athuganir, svo sem spár um
mannfjölgun i borginni á næstu árum og áratug-
um, er hægt að hefja sjálft skipulag svæðisins.
Ekkert ætti að geta hindrað, að skipulagi fyrstu
hverfanna verði lokið i tæka tið, þegar fram-
kvæmdum i Breiðholti fer að ljúka.
Ráðamenn borgarinnar hafa unnið afrek i
Breiðholti. Þeim hefur nokkurn veginn tekizt að
láta þjónustuframkvæmdir borgarinnar koma i
takt við uppbyggingu svæðisins, þótt fólk hafi
byggt þar miklum mun hraðar en nokkurn gat ór-
að fyrir. Borgarkerfið er ekki svo stirt i vöfum, að
það geti ekki lagað sig að slikum aðstæðum og
flýtt sínum eigin framkvæmdum.
Engin ástæða er til að óttast, að Reykjavik-
urborg hafi ekki sitt skipulag og undirbúning
i lagi, þegar menn fara að byggja yfir sig á
Korpúlfsstaða- og Úlfarsfellssvæðinu. Það verða
allt önnur vandamál, sem menn horfast þá i augu
við. Þau vandamál felast i þvi, að sveitarfélögin i
nágrenni Reykjavikur standa þá andspænis
þeirri skyldu að taka við allri fólksfjölgun
svæðisins, þegar Reykjavik verður fullbyggð.
Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri benti
nýlega á þann möguleika, að sveitarfélögin i ná-
grenni Reykjavikur gerðust aðilar að þróunar-
stofnun borgarinnar. Með þeim hætti gætu allar
sveitarstjórnir Reykjavikursvæðisins unnið
sameiginlega og af miklum krafti að risavöxnu
verkefni, fullbyggingu alls Reykjavikur-
svæðisins. Með sliku afli er hægt að vinna verk,
sem einstök sveitarfélög hafa ekki bolmagn til að
vinna.
Það væri æskilegt, að þetta samstarf eða annað
slikt gæti eflzt sem fyrst. Sveitarfélögin i ná-
grenni Reykjavikur verða að vera vel undir það
búin, að einhvern tima á næsta aldarfjórðungi
geti Reykjavik ekki lengur borið hitann og þung-
ann af mannfjölguninni á svæðinu. Til þess að sú
breyting komi ekki eins og reiðarslag, þurfa
sveitarfélögin umhverfis Reykjavik smám
saman að efla getu sina til að úthluta lóðum,
þannig að þau geti létt álaginu af Reykjavik skref
fyrir skref á löngum tima. Slikt verður bezt gert
með sameiginlegu átaki svæðisins.
-JK.
mann veifa fána slnum til merkis um, aö Israelski herflokkurinn I varð-
stöð þessari við Súezfióa hafi gefizt upp fyrir Egyptum. Varðstööin var
á eiði og varð að róa meö striðsfangana 37 i land, en siðan hefur ekkert
til þeirra spurzt.
Bim Gyðingur,
sem er hlýtt
tii Egypto,
v«r þó stríðs-
fongi þeirra
Eini israelski striðsfanginn,
sem sendur hefur verið heim frá
Egyptalandi, segir, að fangaiff i
Kairo feli i sér sjónvarp, stereo og
skoðunarferðir til pýramídanna.
,,fcg hefði gaman af að fara
þangað aftur einhvern daginn og
þá sem ferðamaður, en ekki
fangi”, sagði Dan Avidan,
örkumla Gyðingahermaður, sem
i þrjú ár og ellefu mánuði var
fangi Egypta.
Avidan sneri heim til konu og
þriggja barna fyrir mánuði,
þegar Israel krafðist heim-
sendingar hans og niu annarra
striðsfanga, sem hafa verið i
haldi þrjú ár eða meira...og auk
þess 320 tsraelsmanna annarra,
sem teknir voru til fanga i þessu
siðasta striði á dögunum.
Þessi þrjátiu og niu ára gamli
fyrrverandi bóndi birtist i
Israelska sjónvarpinu núna i
byrjun vikunnar og kom þá
mörgum landa sinum mjög á
óvart, þegar hann lýsti þvi,
hvernig með hann og félaga hans
var farið, meðan þeir voru á valdi
Egypta.
„Við höfðum okkar eigið sjón-
varpstæki, útvarpsviðtæki og
stereo-plötuspilara,” sagði
Avidan og sneri mikið upp á
þykka efrivararskeggið, sem
hann hafðik safnað i fangavist-
inni. — „Egyptarnir létu okkur
einnig fá prjónavél”.
„Við hlustuðum á Bach, Beet-
hoven, Tchaikowsky og grað-
hestamúsík, prjónuðum peysur,
húfur, yfirhafnir og jafnvel
ábreiður”, sagði Avidan, sem var
skotinn niður og tekinn til fanga i
launsátri við Súezskurðinn 14.
des. 1969. Hann var liðsforingi i
varaliðinu. — Núna hefur hann
verið lagður inn á sjúkrahús til
meðferðar vegna sundurskotinna
fótleggjanna.
Það, sem eftir var af herflokki
Avidans.féll fyrirkúlum Egypta.
En i fangavistinni bjó hann með
sjö flugliðsforingjum,
israelskum, einum hermanni og
tveim óbreyttum borgurum, sem
allir höfðu verið teknir til fanga á
árinu 1970.
En þrátt fyrir frásögn Avidans
um þægilegt lif i fangavistinni, er
Israelsmönnum mjög i mun að
vita um örlög fanganna, sem
teknir voru i siðasta striði.
Dráttur Egypta á þvi að gera
grein fyrir þeim hefur vakið al-
menna reiði i Israel.
Embættismenn Rauða krossins
hafa staðfest, að Egyptar hafi
einungis gefið upp nöfn 90
israelskra striðsfanga og hafi
einungis leyft fjörutiu og fimm
þeirra að fá heimsókn einu sinni,
og það er liðnar þrjár vikur siðan.
Moshe Dayan, varnamálaráð-
herra Israels, segir, að Eygptar
beiti striðsföngunum fyrir sig i
þvingunarskyni. Þeir ætia með
kúgunum að fá tsrael til þess að
láta af hendi eitthvað af vinning-
um sinum i Jom Kippur-striðinu.
segir Dayan. Avidan gat aðeins
greint frá sinni fangavist og
þeirra tiu, sem höfðu verið svona
lengi i haldi. Enginn veit neitt um
hina, sem teknir voru núna siðast.
Avidan sagði, að þeir hefðu
haft „márgar bækur” við höndina
og lagt stund á tungumálanám,
stærðfræði. eðlisfræði og
arkitektúr. Þeir byrjuðu hvern
dag með leikfimiæfingum og
bjuggu „likt og gerist á
sámyrkjubúunum”. Avidan, sem
llllllllllll
Umsjcn:
Guðmundur
Pétursson
er sonur hershöfðingja frá strið-
inu 1948, _en sá er núna stjórn-
málamaður. er ættaður frá
samyrkjubúinu Kubbutz hjá En
Hashofet nærri'Haifa.
Hann lauk lofsorði á „góða
meðferð”, sem hann fékk hjá
Egyptum. og brosandi benti hann
sjónvarpsáhorfendum á: „Eg lit
vel út, ekki satt?” — Ef frá voru
taldir fæturnir. þá gerði hann
það.
Israelsmaðurinn sagði, að hann
og félagar hans.hefðu fengið að
hafa bökunarofn og bakað sin
eigin brauð og eidað ofan I sig
sjálfir.—Siðan dró hann fram úr
pússi sinu ljósmyndir, sem hann
hafði tekið hjá Sfinxinni og pýra-
midum.
Avidan var skilað á stefnumóti,
sem egypzkir, israelskir og liðs-
foringjar frá gæzluliði Sameinuðu
þjóðanna áttu á Súezveginum um
60 milur frá Kairó. Þvi var haldið
leyndu i fyrstu, og Egyptar hafa
ekki gefið neina skýringu á þvi,
hvers vegna þeir slepptu
liðsforingjanum, en héldu
félögum hans niu.
„Áður en þeir skiluðu mér yfir,
fór egypzkur hershöfðingi með
mig i búðarráp i Kairó”, sagði
Avidan og át siðan upp eftir
sjálfum sér, likt og tryði hann þvi
ekki enn? „Hershöfðingi með
mér, liðsforingja i búðarrápi....”
Avidan keypti handtösku fyrir
konu sina, frimerki og minjagripi
fyrir börnin. — Þá fór arabiski
hershöfðinginn með hann á
kaffihús, skrafaði þar heilmikið
við hann, ók síðan að alað-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna i
Kairó en skildi hann eftir fyrir
utan skrifstofurnar án gæzlu-
manns, meðan hann fór sjálfur
inn.
„Hugsið ykkur Israelsmann
einan á ferð -i Kairó”, skrikti
A'vidan. „Það var sko skrýtin
tilfinning”.
Fangarnir fengu að vita af þvi,
að nýtt strið væri byrjað, þegar
yfirfangavörður þeirra sagði
þeim frá þvi: „Bræður ykkar og
bræður okkar eru teknir að
berjast”. — Han fullvissaði þá
um, að þeir hefðu ekkert að
■óttast.
Flokkur israeiskra striðsfanga
einhvers staöar i Sinai-eyði-
mörkinni, meðan bardagar
stóðu sem hæst.
Mikil reiði er i lsraei vegna tregðu Araba til þess að hlíta þvi ákvæði
Genfarsáttmálans um stríðsfanga að skiía iista með nöfnum fanga,
sem á þeirra valdi eru. Ilér sést hópur fólks i inótmælastöðu við skrif-
stofur alþjóða Rauða krossins i Tel Aviv. A spjöldunum stendur: „Hvar
ertu núna?” — „Sleppið pabba!”